Topp 10: Illdeilur tónlistarfólks

Það getur gengið á ýmsu í tón­list­inni. Stundum lifa menn tón­list­ar­heim­inn ekki af.

Það er fátt sem slúð­ur­pressan elskar jafn heitt og hressi­legar rimmur milli popp­stjarna. Tónlist er mik­ill sam­keppn­is­bransi og sjálfs­á­lit stjarn­anna á pari við hnefa­leika­menn. Því blossa reglu­lega upp ill­deilur milli þeirra og gildir þá einu hvort um sé að ræða popp, rokk, rapp eða jafn­vel klass­íska tón­list. Þessar deilur geta staðið yfir ára­tugum saman og klofið aðdá­endur í fylk­ingar. Eftir á að hyggja virð­ast þær þó flestar afar hjá­kát­legar.

10. The Cure vs The Smiths

Ein sorg­leg­asta deila tón­list­ar­sög­unnar hófst milli bresku popp­hljóm­sveit­anna The Smiths og The Cure á níunda ára­tugnum, eða nánar til­tekið milli for­sprakka þeirra Morrissey og Robert Smith. Bæði bönd voru þekkt fyrir að spila upp­lífg­andi tón­list við nið­ur­drep­andi texta og for­sprakk­arnir báðir heims­þekktir fýlu­púkar. En þeir höfðu einnig munn­inn fyrir neðan nefið og voru óhræddir við að láta vaða gagn­vart öðrum tón­list­ar­mönnum, sér­stak­lega Morrissey. Það var einmitt hann sem byrj­aði deil­una með því að segja (úr hörð­ustu átt) að Robert Smith væri vælu­kjói og að The Cure hefðu fundið upp nýja vídd á hug­tak­inu skít. Eftir nokkur álíka skot til við­bótar gat Smith ekki hamið sig og svar­aði en þó á frekar aumkunn­ar­verðan hátt. Hann sagði að þó að þeir hefðu fundið upp nýja vídd á skít þá væri tón­listin þeirra ekki byggð á skít……eins og vænt­an­lega tón­list Morrissey. Einnig sagð­ist Smith borða kjöt ein­göngu vegna þess að Morrissey væri á móti því. Þessi vand­ræða­lega keppni um að vera kon­ungur fýlu­púkanna blossar reglu­lega upp og mun senni­lega gera það þar til yfir lýkur.

9. Michael Jackson vs Prince

Deila Jackson og Prince hófst á níunda ára­tugnum þegar báðir voru að ryðja sér til rúms sem stærstu popp­stjörnur heims. Deilan var knúin áfram af öfund á báða bóga. Jackson öfund­aði Prince af því að vera tal­inn frá­bær laga­höf­undur og fram­úr­skar­andi tón­list­ar­maður af flestum gagn­rýnendum. Prince öfund­aði Jackson af frægð­inni og sölu­töl­unum. Þeir brugð­ust þó við þess­ari öfund sinni á mis­mun­andi hátt. Jackson reyndi ítrekað að fá Prince með sér í verk­efni eins og t.d. Bad og We Are the World en Prince hafn­aði því ávallt. Prince hafði mikið keppn­is­skap og baun­aði reglu­lega á Jackson t.d. í lag­inu Life ´O´ the Party. Þá breytti hann einnig tón­list­inni á plöt­unni Purple Rain til að gera hana sölu­væn­legri, gagn­gert til að reyna að skáka Jackson. Und­ar­leg­asta sena deil­unnar átti sér stað á tón­leikum Prince í Las Vegas árið 2006. Jackson var boðið á tón­leik­ana og Prince gekk að honum með bassagítar og spil­aði fyrir framan hann á mjög ágengan hátt. Jackson sárn­aði þetta allt saman og sagði Prince vera bæði and­styggi­legan og dóna­legan.

8. Elton John vs Madonna

Popp­goðsagn­irnar tvær hafa starfað í marga ára­tugi en deila þeirra hófst árið 2002 þegar Elton John sagði að lag Madonnu úr kvik­mynd­inni Die Another Day væri versta Bond-lag allra tíma. En hann lét ekki þar við sitja og næstu 10 árin eða svo sendi hann söng­kon­unni reglu­lega svæsin skot bæði í fjöl­miðlum og á sviði. Hann sak­aði hana um að syngja ekki á tón­leikum heldur ein­ungis hreyfa varn­irnar, sem að hans mati er glæpur sem ætti að refsa með aftöku. Einnig kall­aði hann hana hæfi­leika­lausa, ömur­lega kú og tívolí-fata­fellu. Þá hjálp­aði eig­in­maður hans, David Furnish, honum við að ausa sví­virð­ingum yfir hana. Madonnu sárn­aði þetta vita­skuld en hún lagð­ist hins vegar aldrei niður á sama plan og Elton John. Hún sagð­ist hins vegar vor­kenna honum og von­ast til þess að hann jafn­aði sig í fram­tíð­inni. Margir töldu hana hafa haft sigur á Elton John þegar hún sigr­aði hann í bar­áttu um Gull­hnött­inn árið 2012. Hún til­eink­aði sig­ur­lagið, Masterpiece, Elton og gremja hans duld­ist engum.

7. Dixie Chicks vs Toby Keith

Vorið 2002 gaf country tón­list­ar­mað­ur­inn Toby Keith út lagið Courtesy of the Red, White and Blue (The Angry American) sem við­bragð við árá­unum á tví­bura­t­urn­ana 11. sept­em­ber árið áður. Í text­anum segir hann að Sámur frændi ætti að hefna sín og sparka í rass­inn á óvinum sínum. Natalie Maines, söng­kona hljóm­sveit­ar­innar Dixie Chicks, sagði lagið heimsku­legt og léti country-tón­list líta heimsku­lega út. Upphófst nú mikil rimma milli þeirra tveggja þar sem Keith sagði Maines ömur­legan laga­höf­und og á tón­leikum sýndi hann risa­stóra sam­skeytta mynd af söng­kon­unni og ein­ræð­is­herr­anum Saddam Hussain. Maines svar­aði með að klæð­asta stutt­erma­bol með áletrunn­inni F.U.T.K., sem fólk mátti síðan túlka að vild. Dixie Chicks urðu um tíma útskúf­aðar úr hinu íhalds­sama country-sam­fé­lagi eftir að hafa sagst skamm­ast sín fyrir það að koma frá sama fylki og for­set­inn George W. Bush og bar­áttu þeirra var gerð skil í heim­ild­ar­mynd­inni Dixie Chicks: Shut Up and Sing. Um tíma lá hljóm­sveitin í dvala en nú hafa þær komið fram á sjón­ar­sviðið á ný og tekið upp þráð­inn sem stærsta country-band ver­aldar.

6. Johannes Brahms vs Richard Wagner

Brahms og Wagner voru tveir af lyk­il­mönnum róm­an­tísku bylgj­unnar um miðja 19. öld en komu þó úr sitt hvorri átt­inni. Wagner var 20 árum eldri en fylgj­andi hinnar nýstár­legu stefnu Franz Liszt, þ.e. að tón­list ætti að vera tengd ljóð­list og segja sögu. Ópera væri æðsta form tón­listar. Brahms fylgdi gamla skóla sin­fón­íu­tón­listar þar sem tón­list þurfti ekki að vera neitt annað en fal­legir tónar. Fólk skipt­ist í fylk­ingar og sýndi fyr­ir­litn­ingu sína í verki t.a.m. í blöðum, rit­gerðum og tón­verkum. Sumir mættu á upp­færslur gagn­gert til þess að flissa upp­hátt. Þjóð­verjarnir tveir hitt­ust aðeins einu sinni, árið 1863 og var sá fundur ekki óvin­gjarn­legur. En eftir það var kalt á milli þeirra, sér­stak­lega hjá Wagner sem réðst ítrekað á Brahms í greina­skrifum sínum. Þrátt fyrir að vera and­stæðir pólar í tón­list sagði Wagner að frægð Brahms væri honum að þakka fyrir að hafa rutt veg­inn. Brahms var vita­skuld sár og neit­aði að láta af hendi dýr­mætt hand­rit af Tann­hauser, óperu Wagners, þegar höf­und­ur­inn bað um það fyrir upp­færslu í Munchen. Deilan hefur verið kölluð stríð róm­an­tíker­anna.

5. Nirvana vs Guns n´ Roses

Ein orð­ljótasta hljóm­sveita­deila síð­ustu aldar átti sér stað milli Guns n´ Roses og Nirvana í upp­hafi tíunda ára­tug­ar­ins. G.N.R. voru þá stærsta rokk­hljóm­sveit heims en Nirvana á leið­inni að verða það. G.N.R.-liðar voru miklir aðdá­endur Nirvana og þá sér­stak­lega bassa­leik­ar­inn Duff McKagan sem kom frá Seattle líkt og Nirvana. Axl Rose þrá­bað Kurt Cobain að hita upp fyrir G.N.R. á tón­leika­ferða­lagi og að spila á þrí­tugs afmæl­inu sínu snemma árs 1992. En Cobain neit­aði og sagði að G.N.R væru þýð­ing­ar­laust band og hluti af kerf­inu. Rose fékk loks nóg og reif Nirvana í sig á sviði. Hann sagði Nirvana vera fíkla­band og að nýfædd dóttir Cobain og söng­kon­unnar Courtney Love væri van­sköpuð vegna eit­ur­lyfja­notk­unar móð­ur­innar. Hápunkti deil­unnar var náð á MTV tón­list­ar­há­tíð­inni árið 1992 þegar Love stríddi Rose með því að segja að hann væri guð­faðir dótt­ur­innar. Rose sagði Cobain þá að halda konu sinni á mott­unni. Það var þó ekki endir deil­unnar því að Cobain hélt áfram að senda Rose pillur í fjöl­miðlum og kall­aði hann m.a. kyn­þátta­hat­ara og karl­rembu. Eftir að Cobain féll frá vorið 1994 hefur sam­bandið milli með­lima hljóm­sveit­anna verið mjög gott og hafa þeir t.a.m. spilað saman á tón­leikum.

4. Metallica vs Megadeth

Árið 1981 gekk gít­ar­leik­ar­inn Dave Mustaine til liðs við hina nýstofn­uðu þung­arokks­hljóm­sveit Metallica í Los Angeles. Hann stóð sig vel bæði á tón­leikum og í laga­smíð. En tveimur árum seinna, rétt áður en fyrsta platan Kill ´em All kom í búðir, var hann rek­inn úr hljóm­sveit­inni eftir tón­leika í New York. Opinbera ástæðan var óhóf­leg drykkja og notkun eit­ur­lyfja en raun­veru­lega ástæðan var sú að Mustaine var hroka­fullur og erf­iður í sam­skiptum við flest alla. Nið­ur­brot­inn var hann sendur heim til Kali­forníu með rútu. Í þess­ari 4 daga rútu­ferð lagði hann á ráðin um stofnun sinnar eigin hljóm­sveitar, Megadeth. Báðar hljóm­sveit­irnar urðu risar í þung­arokk­inu á níunda ára­tugnum en frægð Metallica var þó alltaf langt um meiri en Megadeth. Þetta sárn­aði Mustaine aug­ljós­lega og hann sendi sínum gömlu félögum ítrekað pillur í fjöl­miðlum. Metallica liðar reyndu að láta þetta sem vind um eyru þjóta eða þá lýsa vor­kunn sinni á Mustaine og stöðu hans. Á síð­ustu árum hefur sam­bandið lag­ast umtals­vert og Mustaine spil­aði meira að segja á sviði með Metallica árið 2011. Það er þó alls ekki um heilt gróið á milli þeirra.

3. Kanye West vs Taylor Swift

Haustið 2009 steig country-söng­konan Taylor Swift á svið á MTV tón­list­ar­há­tíð­inni til að taka á móti verð­launum fyrir besta tón­list­ar­mynd­band í kvenna­flokki. Í miðri ræðu stökk rapp­ar­inn Kanye West inn á sviðið, reif af henni hljóð­nem­ann og til­kynnti að Beyonce, sem einnig var til­nefnd, hefði átt eitt besta mynd­band allra tíma. West var rek­inn út úr hús­inu og fékk hol­skeflu af gagn­rýni næstu daga á eftir, m.a. frá Obama for­seta sem kall­aði hann asna. West baðst afsök­unar og mál­inu virt­ist lokið. En ári seinna gaf Swift út lagið Innocent sem var gagn­rýni á fram­ferði West á verð­launa­af­hend­ing­unni. Þá dró West afsök­un­ar­beiðni sína til baka og sagð­ist ekki sjá eftir neinu, Swift hafi ekki átt verð­launin skilið og hún hefði nýtt sér athygl­ina eftir atvikið. Nokkrum árum seinna virt­ist allt leika í lyndi milli þeirra og meira að segja var farið að tala um sam­starf stjarn­anna. En árið 2016 gaf hann út hið alræmda lag Famous þar sem hann sagð­ist “hafa gert tík­ina (Swift) fræga”. Í mynd­bandi lags­ins mátti sjá naktar vax­styttur af frægu fólki, þar á meðal Swift. Swift svar­aði svo fyrir sig á Grammy-verð­launa­at­höfn­inni þar sem hún tók við verð­launum fyrir plötu árs­ins í annað skiptið á ferl­inum. Þessari rimmu er hvergi nærri lokið.

2. Oasis vs Blur

Um miðjan tíunda ára­tug­inn reið Britpop bylgjan yfir og Blur urðu vin­sælasta hljóm­sveit Bret­lands, með Damon Albarn í far­ar­broddi. En þá rudd­ust Oasis, með bræð­urna Liam og Noel Gallag­her inn­an­borðs, inn á sjón­ar­sviðið og skor­uðu Blur á hólm. Þann 12. ágúst árið 1995 gáfu báðar sveit­irnar út smá­skífur og fjallað var um atburð­inn eins og heims­meist­ara­bar­daga í hnefa­leikum og sölu­tölur myndu ráða úrslitum. Blur lagið Country House vann Oasis lagið Roll With It og Gallag­her bræður tóku því afar illa. Skömmu síðar kom hins vegar (What´s the Story) Morning Glory, önnur plata Oasis, út og þar með var tek­inn af allur vafi hver hefði unnið stríðið. Albarn reyndi að standa í lapp­irnar en gíf­ur­yrði Gallag­her bræðra í fjöl­miðlum voru slík að aur­inn slett­ist á alla við­kom­andi. Deilan risti einnig djúpt í breska þjóð­ar­sál í ljósi þess að Blur voru háskóla­strákar frá London en Oasis úr verka­manna­stétt í Manchester. Að lokum fennti yfir deil­una og Gallag­her bræðrur fóru að bít­ast sín á milli uns Oasis hættu árið 2009. Albarn fór að ein­beita sér meira að tölvu­popp­grúpp­unni sinni Gorillaz og nýverið kom út lagið We Got The Power í sam­starfi við Noel Gallag­her. Liam hraun­aði vita­skuld yfir það.

1. Tupac Shakur vs Biggie Smalls

Tupac og Biggie kynnt­ust í Los Angeles árið 1993 og urðu strax mestu mátar. Tupac var þá rísandi stjarna í rapp­heim­inum en Biggie að stíga sín fyrstu skref í Brooklyn. Í hvert sinn sem þeir hitt­ust grill­uðu þeir, reyktu dóp og höfðu gaman. Tupac kenndi Biggie fáein trix, fékk hann á svið með sér og kom honum á fram­færi. Biggie bað þá Tupac um að ger­ast umboðs­maður sinn en Tupac hafn­aði því. Í nóv­em­ber árið 1994 var Tupac rændur og skot­inn af þremur mönnum í upp­töku­veri við Times-torg í New York. Tupac komst á snoðir um að Biggie hefði vitað af árásinni og fannst hann svik­inn en Biggie þvertók fyrir það. Á þeim tíma var Tupac aura­laus og í fang­elsi fyrir kyn­ferð­is­brot en Biggie á leið­inni upp. Upphófst þá stríð í rapp­heim­inum. Austur vs vestur, Biggie vs Tupac, Bad Boy Records vs Death Row Records. Í upp­hafi var stríðið háð með ljóðum, þ.e. skotin gengu á víxl í textum rapp­ar­anna. Biggie hleypti af fyrsta skot­inu með lag­inu Who Shot Ya? og illindin mögn­uð­ust svo með hverju lag­inu. En deilur rapp­ara eru yfir­leitt alvar­legri en í öðrum geirum tón­listar. Þann 7. sept­em­ber árið 1996 var Tupac skot­inn í Las Vegas og hann lést skömmu síðar. Hálfu ári síðar var Biggie myrtur í Los Angeles. Morðin eru enn óleyst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár