Trump boðar alla öldungadeildina á fund um Norður-Kóreu

Staða á Kóreu­skaga verður sífellt flókn­ari og erf­ið­ari.

Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, veifar af svölum.
Kim Jong-un, leið­togi Norður-Kóreu, veifar af svölum. Mynd: EPA

Donald J. Trump Banda­ríkja­for­seti hefur boðað alla 100 þing­menn öld­unga­deildar Banda­ríkja­þings til fundar í Hvíta hús­inu á mið­viku­dag, þar sem hátt­settir emb­ætt­is­menn úr starfs­liði for­set­ans munu upp­lýsa þá um þróun mála á Kóreu­skag­anum.

Varn­ar­mála­ráð­herr­ann James Mattis og Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herra, verða í hópi þeirra sem fara yfir málin með öld­unga­deild­ar­þing­mönn­unum, sam­kvæmt umfjöllun New York Times.

Banda­rísk stjórn­völd hafa sagt að nauð­syn­legt sé að taka ógn­ina frá Norður-Kóreu, með leið­tog­ann Kim Jong-Un fremstan í flokki, alvar­lega.

Talið er að farið verði yfir allar helstu upp­lýs­ingar um stöðu mála í Norður-Kóreu, en í yfir­lýs­ingum frá hinum óút­reikn­an­lega Kim Jong-Un hefur komið fram að öllum hern­að­ar­til­burðum Banda­ríkj­anna verði mætt af mik­illi hörku, og strax við minnstu til­raun til árásar verði stríð hafið.

Á und­an­förnum mán­uðum og vikum hefur til­raunum Norður-Kóreu með lang­dræg flug­skeyti fjölgað, og hafa þau skeyti sem hafa lent næst Japan verið í um 300 kíló­metra fjar­lægð frá landi. Nágrann­arnir Suður-Kórea og Japan hafa for­dæmt til­raun­irnar harð­lega og kraf­ist frek­ari aðgerða af hálfu Sam­ein­uðu þjóð­anna og alþjóða­sam­fé­lags­ins. Undir þetta hafa stjórn­völd í Banda­ríkj­unum tekið, og gott betur. Hafa hern­að­ar­um­svif Banda­ríkja­hers á Kóreu­skaga auk­ist jafnt og þétt og æfingum með Suður-Kóreu fjölgað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár