Topp 10 - Hrikalegustu stríðin

Stríð eru botn­inn á mann­legri til­veru. Þá er siða­lög­málum hálf­part­inn vikið til hliðar og vopnin látin tala. Skelfing stríðs­á­taka sést nú því miður víða um heim.

Ástandið á Kóreu­skaga hefur ekki verið jafn við­kvæmt síðan árið 1953 þegar um vopna­hlé var samið milli norð­urs og suð­urs. Norður-og Suður Kóreu­menn, Banda­ríkja­menn og Kín­verjar hafa eflt við­búnað sinn og aðrar þjóðir, s.s. Rússar og Japanir virð­ast búa sig undir það versta. Leið­togar ríkj­anna berja sér á brjóst og tala eins og stríð sé á næsta leyti. Erfitt er að segja til um hvernig slíkt stríð myndi þró­ast en miðað við stærð norður kóreyska hers­ins og kjarn­orku­getu þeirra gæti slíkt stríð hæg­lega orðið að sögu­legum harm­leik.

Síðustu 100 ár eru blóði drifin og mörg stríð sem virð­ast nú alger­lega til­gangs­laus höfðu skelfi­legar afleið­ingar löngu eftir að beinum átökum lauk.

10. Stríð Sovétmanna í Afghanistan

Afghanistan nútíma­vædd­ist hratt á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar en árið 1978 frömdu komm­ún­istar valda­rán með stuðn­ingi Sov­ét­ríkj­anna. Þeir settu kvaðir á bændur sem brugð­ust við með því að grípa til vopna og hin nýja stjórn missti tökin á land­inu. Til að bjarga stjórn­inni var rauði her­inn sendur inn í landið á jóla­dag árið 1979. Sov­ét­menn náðu borg­unum en í sveit­unum réðu upp­reisn­ar­hópar, mujahideen, sem not­uðu trúnna sem vopn. Múslimar hvaðanæva úr heim­inum fóru til Afghanistan til að berj­ast fyrir islam og gegn hinum guð­lausa inn­rás­ar­her.

En fleiri studdu þá líka, t.d. Banda­ríkja­menn sem litu á átökin sem hluta af kalda stríð­inu. Stríðið dróst á lang­inn og ástandið breytt­ist lítið uns Mikhail Gorbachev komst til valda. Stefna hans var að draga her­liðið hægt og bít­andi út úr land­inu á seinni hluta níunda ára­tugs­ins. Sov­ét­menn fóru árið 1989 eftir ára­tug af þrá­tefli og við tók borg­ara­styrj­öld sem lauk með valda­töku Talíbana árið 1996. Innrás Sov­ét­manna olli um 1 til 1,5 milljón dauðs­föllum, gríð­ar­legu flótta­manna­vanda­máli, upp­gangi jihad­isma og gerði Afghanistan að mis­heppn­uðu ríki.

[adspot]

9. Íran-Írak

Eftir að sjítaklerk­ur­inn Khomeini komst til valda í írönsku bylt­ing­unni árið 1979 ein­angr­að­ist landið að miklu leyti frá umheim­inum. Hann hvatti sjíta í Írak til að berj­ast gegn hinni ver­ald­legu stjórn Saddams Hussain en Hussain vildi ná svæðum og auð­lindum í vest­ur­hluta Íran. Með stuðn­ingi bæði Banda­ríkj­anna og Sov­ét­ríkj­anna réð­ust Írakar inn í Íran án við­vör­unar haustið 1980. Írökum gekk vel í upp­hafi en Íranir ráku þá svo til baka og sóttu inn í Írak.

Lengst af fest­ist hern­að­ur­inn þó í skot­gröfum með til­heyr­andi mann­falli. Írakar reyndu að brjóta upp þrá­teflið með efna­vopnum (taugagasi, sinn­eps­gasi o.fl.) sem þeir beyttu í stórum stíl gegn bæði Írönum og banda­mönnum þeirra Kúrdum og Íranir settu Írak í her­kví með flota sínum í Persaflóa. En hvor­ugum stríðs­að­il­anum tókst að brjóta hinn á bak aftur og stríðið dróst í 8 ár. Það var þrýst­ingur (og olíu­skortur) alþjóða­sam­fé­lags­ins sem fékk þá loks að samn­inga­borð­inu og friður var loks sam­inn sum­arið 1988. Alls féllu um ein milljón manns, helm­ingur í hvoru landi, án þess að landa­mær­unum væri haggað nokkuð.

8. Víetnam stríðið

Víetna­mar voru nán­ast sam­fleytt í stríði í rúma hálfa öld. Þeir börð­ust við Japani í seinni heims­styrj­öld­inni 1941-1945, Frakka á árunum 1946-1954, inn­byrðis og gegn Banda­ríkja­mönnum árin 1955-1975 og gegn Kam­bó­díu­mönnum árin 1978-1992. Það er stríðið gegn Banda­ríkja­mönnum sem er það lang­þekktasta og það hafði mest áhrif. Banda­ríkja­menn töldu sig ekki geta ráð­ist beint inn í hið komm­ún­íska Norður Víetnam og í stað þess vörp­uðu þeir ógrynni sprengja á landið. Þeir vörp­uðu einnig efna­vopnum, eldsprengjum og plöntu­eitri sem hafði skelfi­leg áhrif á heilsu íbú­anna löngu eftir að stríð­inu lauk og eyddi jurta og dýra­lífi á stórum svæðum.

Talið er að um 2 millj­ónir Víetnama hafi farist í stríð­inu en ein­ungis nokkrir tugir þús­unda Banda­ríkja­manna. Víetnam stríðið var fyrsta stríðið sem Banda­ríkja­menn horfðu á í sjón­varpi heima í stofu og and­staðan jókst heima­fyrir með hverju árinu. Þegar Víetna­mar gáfu sig ekki reyndi Richard Nixon for­seti í örvænt­ingu sinni að útfæra stríðið til Kambódíu með skelfi­legum afleið­ingum. Banda­ríkja­menn yfir­gáfu landið loks árið 1973 og tveimur árum síðar var landið sam­einað.

7. Íraksstríðið

Eftir árás­ina á Tví­bura­t­urn­ana þann 11. sept­em­ber 2001 var stefna Bush-stjórn­ar­innar að taka hart á hryðju­verka­mönnum og öllum þeim sem hýsa þá. Banda­ríkja­menn höfðu því samúð heims­ins þegar þeir réð­ust inn í Afghanistan þetta sama ár, þar sem Talí­ban­arnir hýstu Osama bin Laden. Heim­ur­inn hafði minni skiln­ing á inn­rásinni í Írak vorið 2003 sem var rétt­lætt með því að Saddam Hussain ætti ger­eyð­ing­ar­vopn.

Að koma Baath-stjórn­inni í Írak frá völdum tók innan við mánuð og nokkrum mán­uðum seinna var Hussain hand­samaður. En þá byrj­aði stríðið í raun og veru. Átök brut­ust út á milli sunní og sjíta múslima og Írak varð að einum stórum þjálf­un­ar­búðum fyrir hryðju­verka­hópa eins og t.d. Al-Qaeda og afsprengi þeirra, ISIS. Banda­ríkja­menn og lepp­stjórn þeirra fékk engan frið til að byggja upp landið sem leyst­ist upp í algert stjórn­leysi. Inn­við­irnir hrundu, nauð­synjar s.s. raf­magn og vatn var af skornum skammti og mann­fallið í heild­ina á bil­inu 0,5 til 1 milljón manns, að lang­mestu leyti almennir borg­arar. Enn hefur ekki tek­ist að vinda ofan af vanda­mál­unum sem fylgdu inn­rásinni í Írak.

6. Kóreustríðið

Sundruð Kórea var vanda­mál sem stór­veld­unum tókst ekki að leysa eftir seinni heims­styrj­öld­ina og því voru stofnuð tvö lepp­ríki sem bæði höfðu sam­ein­ingu að mark­miði. Þann 25. júní árið 1950 hófu Norður Kóreu­menn skyndi­árás á suðrið og tókst nærri að ná öllum skag­anum. Banda­ríkin og nokkur ríki undir fána Sam­ein­uðu Þjóðanna hófu gagnárás og hættu ekki fyrr en þeir voru komnir nálægt kín­versku landa­mær­unum.

Kín­verjar gripu þá í taumana og hröktu sveitir Sam­ein­uðu Þjóðanna að upp­runa­legu landa­mær­unum og þar fest­ist hern­að­ur­inn í tvö ár uns vopna­hlé var samið í júlí árið 1953. Á þessum tíma höfðu bæði Banda­ríkin og Sov­ét­ríkin (sem studdu Norður Kóreu) kjarn­orku­getu og her­for­ingi Banda­ríkja­manna, Douglas MacArthur, vildi beita slíkum vopnum. En Harry Truman Banda­ríkja­for­seti setti hann af til að stríðið færi ekki úr bönd­unum. Mann­fallið var mikið í þessu stríði sem end­aði með jafn­tefli á sama stað og það hafði byrjað. Talið er að um 1 milljón her­menn hafi fallið, flestir Kín­verjar og Norður Kóreu­menn, og um 1,5 milljón almennra borg­ara, þar af nokkuð fleiri í Suður Kóreu.

5. Borgarastyrjöldin í Kongó

Mann­skæð­asta stríðið síðan seinni heims­styrj­öld­inni lauk var háð í Lýð­veld­inu Kongó í hjarta Afríku á árunum 1998 til 2003. Kongóbúar máttu þola harka­lega nýlendu­stefnu Belga og þriggja ára­tuga harð­stjórn ein­ræð­is­herr­ans Mobutu áður en landið leyst­ist upp í stjórn­leysi og röð inn­an­lands styrj­alda.

Eftir borg­ara­styrj­öld­ina í nágranna­rík­inu Rúanda árið 1994 flúðu tæp milljón Hútúmanna yfir til Kongó en Tútsar, sem náðu völdum í Rúanda, vildu láta kné fylgja kviði og réð­ust inn í landið og náðu næstum að fella hina nýju stjórn for­set­ans Kabila. Mörg Afr­íku­ríki (Úganda, Angóla, Zimbabwe o.fl) tóku þátt í stríð­inu sem fór að mestu leyti fram í aust­ur­hlut­anum sem er ákaf­lega ríkur af demöntum og góð­málmum. Stríðið er eitt það hrotta­leg­asta sem hefur verið háð þar sem stríðs­herrar fóru um með barna­heri, slátr­uðu heilu þorp­unum, brenndu, nauðg­uðu og aflim­uðu. Talið er að tæp­lega 3 millj­ónir hafi farist í stríð­inu og annað eins á næstu árum á eftir vegna þess. Engu að síður hefur ákaf­lega lítið verið fjallað um stríðið í vest­rænum fjöl­miðlum.

4. Kínverska borgarastyrjöldin

Kín­verska borg­ara­styrj­öldin var háð á árunum 1927 til 1949 á milli komm­ún­ista undir for­ystu Maó Zedong og þjóð­ern­is­sinna undir for­ystu Chiang Kai-shek. Lengst af voru þjóð­ern­is­sinnar ofan á og Kai-shek við­ur­kenndur sem leið­togi Kína. Stríðið er mjög sér­stakt að því leyti að á árunum 1937-1945 gerðu aðil­arnir hlé á inn­byrð­ist bar­áttu (að mestu) og börð­ust þess í stað sam­ein­aðir gegn Japönum sem lögðu undir sig ger­valla aust­ur­strönd­ina.

Árin eftir sig­ur­inn á Japönum voru mun blóð­ugri en upp­hafsár stríðs­ins og báðir aðilar gerð­ust sekir um fjöldamorð á óbreyttum borg­urum. Talið er að um 8 millj­ónir hafi fallið í borg­ara­styrj­öld­inni og þar af 6 millj­ónir á árunum eftir heims­styrj­öld. En þá voru komm­ún­ist­arnir orðnir mun sterk­ari, sér­stak­lega í norð­ur­hluta lands­ins og í sveit­unum. Þegar tap virt­ist óum­flýj­an­legt sigldi Kai-shek með her sinn yfir til eyj­unnar Formósu og setti á fót eigið ríki, sem nú er þekkt sem Tævan. 1. októ­ber árið 1949 var Alþýðu­lýð­veldið Kína stofnað og bar­dög­unum lauk. Stríðinu lauk þó aldrei form­lega og enn þann dag í dag gera Kín­verjar og Tævanir kröfu á land­svæði hvors ann­ars.

3. Rússneska borgarastyrjöldin

Eftir að hafa misst um 3 millj­ónir manna í fyrri heim­styrj­öld­inni (mest allra) steyptu Rússar keis­ar­anum Nikulási II og komm­ún­istar komust til valda haustið 1917. Lenín samdi um frið við Þjóð­verja og gaf eftir mikið land­svæði en þá hófst nýtt stríð inn­an­lands á milli komm­ún­ista (rauð­liða) og and­stæð­inga þeirra (hvít­liða).

Hvít­liðum varð ágengt í upp­hafi, sér­stak­lega á jað­ar­svæðum í Eystra­salti, Kákakus­hér­uð­unum og í Síberíu. En þeir voru sundraðir á meðan rauði her­inn var sam­ein­aður undir for­ystu Leons Trotský. Komm­ún­istar stóðu uppi sem sig­ur­veg­arar árið 1922 og mynd­uðu Sov­ét­ríkin en hvít­liðar héldu Eystra­salts­lönd­unum og Póllandi. Það sem ein­kenndi þetta stríð voru hreins­anir, fjölda­af­tökur og þjóð­ar­morð á báða bóga m.a. gegn Gyðingum og Kósökkum. Talið er að um 8 millj­ónir hafi farist í styrj­öld­inni en þar af ein­ungis 1,5 milljón her­menn. Stór hluti af töl­unni orsakast af mik­illi hung­ursneyð undir lok stríðs­ins en auk gríð­ar­legs mann­falls þá flúðu margar millj­ónir Rússland á þessum árum, til Evrópu, Banda­ríkj­anna og Kína.

2. Fyrri heimsstyrjöldin

Þegar Franz Ferdin­and, rík­is­arfi aust­uríska keis­ara­dæm­is­ins, var myrtur í júní­mán­uði 1914 hófst keðju­verkun sem leiddi til þess að öll stór­veldi heims­ins bár­ust á bana­spjótum. Barist var um ger­vallan heim­inn en lang­mestu átökin áttu sér stað á vestur og aust­ur­víg­stöðvum Evrópu. Stríðið var háð á þeim tíma þegar varn­ar­vopn skil­uðu mun betri árangri en sókn­ar­vopn og því fest­ust víg­línur í skot­graf­ar­hern­aði, sér­stak­lega á vest­ur­víg­stöðv­unum.

Her­for­ingjar sendu tugi og hund­ruðir þús­unda pilta út í opinn dauð­ann í stórum orr­ustum á borð við Ypres, Somme og Verdun þar sem ávinn­ing­ur­inn var í mesta lagi nokkrir kíló­metrar. Stríðs­að­ilar próf­uðu ýmis­legt (flug­vélar, gas, skrið­dreka) en stríðið var í raun óvinn­an­legt á víg­vell­inum. Það var því mann­afli og efna­hags­legt úthald sem skil­aði Banda­mönnum að lokum sigri. Þegar stríð­inu lauk í nóv­em­ber árið 1918 höfðu 17 millj­ónir fallið í val­inn, þar af tæpur helm­ingur almennir borg­arar, og landa­kort heims­ins var teiknað upp á nýtt. Þá kom spænska veikin og tók tæp­lega 100 milljón sálir í við­bót.

1. Seinni heimsstyrjöldin

Seinni heims­styrj­öldin er stærsta stríð og jafn­framt einn stærsti atburður mann­kyns­sög­unnar. Stríðið sem hófst í Asíu árið 1937 og Evrópu 1939 orsak­að­ist af upp­risu fasískra afla með land­vinn­inga að sjón­ar­miði. Lífsrými (Leb­ens­raum) til að færa út kví­arnar og und­ir­oka hópa sem taldir voru óæðri. Þegar allt er talið voru dauðs­föllin u.þ.b. 80 millj­ónir (3,5% af jarð­ar­búum) og margar millj­ónir þurftu að flýja heim­ili sín eða voru flæmd burt eftir stríðið. Heims­myndin og áhrifa­svæði riðl­uð­ust og ógn­ar­jafn­vægi kalda stríðs­ins tók við þegar hild­ar­leiknum lauk árið 1945.

Banda­ríkin leiddu nú hinn vest­ræna heim því Evrópa var í molum og Sov­ét­ríkin urðu að heims­veldi þrátt fyrir að hafa misst flesta íbúa (27 millj­ónir). Stærstur hluti lát­inna voru óbreyttir borg­arar sem voru strá­felldir kerf­is­bundið, t.d. af víga­sveitum nas­ista (einsatzgruppen). Íbúa­fjöldi landa eins og Póllands og Hvíta Rúss­lands náði sér ekki á strik fyrr en mörgum ára­tugum seinna. Þekkt­asti atburður heims­styrj­ald­ar­innar er þó hel­förin þar sem morð voru gerð að verk­smiðju­iðn­aði. Rúmlega 10 millj­ónir fór­ust og þar af stærstur hluti gyð­ing­dóms í Evrópu. Helförin breytti því sam­setn­ingu álf­unnar til fram­búðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár