Samningur við Háholt augljóslega ekki góð nýting á fjármunum

Félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra tekur undir gagn­rýni á að samn­ingur við Háholt, sem kost­aði allt að 500 millj­ónir króna, hafi ekki verið góð nýt­ing á almannafé. Einn ungur fangi var vistaður á heim­il­inu á samn­ings­tím­anum.

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, segir að það sé aug­ljóst að þjón­ustu­samn­ingur sem gerður var við með­ferð­ar­heim­ilið Háholt árið 2014 hafi ekki verið góð nýt­ing á fjár­munum. Samn­ing­ur­inn kost­aði rík­is­sjóð milli 450-500 millj­ónir króna og var gerður í tíð fyr­ir­renn­ara Þor­steins í emb­ætti, Eyglóar Harð­ar­dóttur.

Þjón­ustu­samn­ing­ur­inn var rök­studdur með því að finna þyrfti stað til að vista fanga undir aldri sem dæmdir höfðu verið til óskil­orðs­bund­innar refs­ing­ar. Frá því að samn­ing­ur­inn var gerður hefur einn slíkur fangi verið vistaður í Háholti, sem er stað­sett í Skaga­firði. Allt í allt hafa að jafn­aði 1-3 ein­stak­lingar verið vistaði í Háholti.

[links]

Rekstr­ar­að­ilar Háholts sendu því nýverið vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu bréf þar sem þeir ósk­uðu ekki eftir því að end­ur­nýja þjón­ustu­samn­ing­inn sem gerður var í tíð síð­ustu rík­is­stjórn­ar, og rennur út 1. sept­em­ber næst­kom­andi. Rekstur heim­il­is­ins hættir í lok júní.

Nýtt meðferðarheimili verður byggt

Bragi Guð­brands­son, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, sagði við Kjarnann í gær að að gerð þjón­ustu­samn­ings­ins hafi ekki verið góð aðgerð. „Þetta er skelfi­leg með­ferð á opin­beru fé,“ sagði Bragi aðspurður um hvort það væri rétt­læt­an­legt að eyða nálægt hálfum millj­arði króna í þjón­ustu fyrir þá fáu ein­stak­linga sem vistaðir voru á Háholti.

[adspot]

Þor­steinn seg­ist sam­mála Braga. Það sé aug­ljóst að samn­ing­ur­inn hafi ekki verið góð nýt­ing á fjár­munum. „Þetta er úrræði sem hefur verið mjög lítið nýtt á und­an­förnum árum. Það var bara vistaður einn ungur fangi þarna í nokkra mán­uði. Svo er aug­ljóst að dregið hefur úr eft­ir­spurn eftir svona með­ferð­ar­úr­ræðum og mun meiri áhersla er á að sinna þeim sem þurfa á slíkum að halda í nærum­hverfi.“

Þor­steinn segir að ákvörð­unin um að gera þjón­ustu­samn­ing­inn við Háholt hafi á sínum tíma verið umdeild. Ráðu­neytið hafi þó ekki lagt í neina vinnu við að greina af hverju ákvörðun um gerð hans hafi verið tekin á sínum tíma. „Það liggur nú fyrir mat Barna­vernd­ar­stofu að þetta úrræði sé barn síns tíma. Búið er að taka ákvörðun um að byggja nýja með­ferð­ar­stofnun nær höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Því verk­efni hefur þegar verið tryggt fjár­heim­ild til upp­bygg­ingar og rekstr­arfé. Fram­kvæmda­sýsla rík­is­ins vildi kanna hvort mögu­leiki væri á að fá notað hús­næði undir þessa starf­semi áður en ráð­ist yrði í bygg­ingu á nýju. Því var aug­lýst eftir not­uðu hús­næði en ekk­ert fannst. Það verður því byggt nýtt hús­næði undir starf­sem­ina. Næstu skref eru að hanna það hús­næði og finna hent­uga stað­setn­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár