Meirihluti Íslendinga á móti sölu alls áfengis í matvörubúðum

Stuðn­ings­menn Við­reisnar eru lík­leg­astir til að styðja sölu á áfengi, bæði sterku og léttu, í mat­vöru­versl­unum. Stuðn­ings­menn VG eru lík­leg­astir til að vera á móti því.

74,3 pró­sent Íslend­inga eru mót­fallnir því að sterkt áfengi verði selt í mat­vöru­búðum og 56,9 pró­sent eru mót­fallin sölu á á léttu áfengi og bjór í slíkum búðum. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR.

Aðeins 15,4 pró­sent svar­enda sögð­ust fylgj­andi því að sterkt áfengi væri selt í mat­vöru­búðum en 32,7 pró­sent sögð­ust hlynnt sölu á léttu áfengi og bjór í búðum.

Konur eru almennt lík­legri en karlar til að vera á móti sölu sterks áfengis í mat­vöru­versl­unum. 70 pró­sent kvenna sögð­ust vera mjög and­vígar því, en 58 pró­sent karla. 14 pró­sent karla voru mjög hlynntir sölu á sterku áfengi í búðum en aðeins fimm pró­sent kvenna.

And­staðan við sölu sterks áfengis eykst með aldr­inum, en í ald­urs­hópnum 18 til 29 ára var hlut­fall þeirra sem eru mjög á móti sölu sterks áfengis í búðum 46 pró­sent, á meðan hlut­fallið er 81 pró­sent hjá 68 ára og eldri. Stuðn­ings­menn VG eru hvað lík­leg­astir til að vera á móti sölu sterks áfengis í búðum, 89 pró­sent þeirra eru and­víg. Minnst and­staða var hjá stuðn­ings­mönnum Pírata, 55 pró­sent, Sjálf­stæð­is­flokks, 65 pró­sent, og Bjartrar fram­tíðar, 65 pró­sent.

Sama er uppi á ten­ingnum þegar kemur að sölu létts áfengis og bjórs í búðum, 50 pró­sent kvenna eru því mjög and­vígar en 43 pró­sent karla. 28 pró­sent karla eru mjög hlynntir slíkri sölu en 13 pró­sent kvenna.

Ungt fólk á aldr­inum 18 til 29 ára skipt­ist í tvo jafn­stóra hópa þegar kemur að bjór og léttu áfengi í búðir, 43 pró­sent sögð­ust hlynnt en 42 pró­sent and­víg. And­staðan jókst með hækk­andi aldri og í elsta ald­urs­hópnum voru 61 pró­sent and­víg en 28 pró­sent hlynnt.

Stuðn­ings­menn Við­reisnar eru hlynnt­astir sölu á léttu áfengi og bjór í mat­vöru­versl­unum, eða 58 pró­sent. Af stuðn­ings­mönnum Bjartrar fram­tíðar voru 49 pró­sent hlynnt sölu bjórs og létt­víns í búðum og 48 pró­sent Pírata. 40 pró­sent stuðn­ings­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins vilja að bjór og létt­vín sé selt í búðum.

Ein­ung­ist 19 pró­sent stuðn­ings­manna VG voru hlynnt sölu á bjór og léttu áfengi í mat­vöru­búðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár