Boston: Borg sigurvegara

Vel­gengni íþróttaliða frá Boston hefur verið ævin­týri lík­ust á und­an­förnum árum. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur komst að því að skap­gerð borg­ar­búa er stundum sögð sveifl­ast með gengi íþróttalið­anna.

New England Patriots unnu Ofurskálina svokölluðu í NFL-deildinni í Bandaríkjunum í byrjun þessa mánaðar. Liðið hefur aðsetur í Boston þar sem fjöldi íþróttaliða eru mjög farsæl.
New England Patriots unnu Ofur­skál­ina svoköll­uðu í NFL-deild­inni í Banda­ríkj­unum í byrjun þessa mán­aðar. Liðið hefur aðsetur í Boston þar sem fjöldi íþróttaliða eru mjög far­sæl. Mynd: EPA

Þann 5. febr­úar síð­ast­lið­inn vann New England Patriots leik­inn um ofur­skál­ina, enn eina ferð­ina. Vel­gengni liða frá Boston hefur verið ótrú­leg síðan um alda­mótin og fólk er farið að spyrja sig hvort eitt­hvað sé í vatn­inu þarna. En til að skilja þessa vel­gengni er nauð­syn­legt að skoða menn­ingu og stofn­anir svæð­is­ins, aðdá­end­urnar og þau gildi sem þeir standa fyrir, og hina ríku íþrótta­sögu sem nær allt aftur til 19. aldar.

Sérstök borg

Í Boston borg býr um hálf milljón manns og um fjórar millj­ónir á stór-Boston svæð­inu. Það er það 10. fjöl­menn­asta í Banda­ríkj­unum. Borgin er hjarta Nýja Englands, sex fylkja þar sem búa um 15 millj­ónir manns. Flestir íbúar Nýja Englands styðja íþróttalið frá Boston ef und­an­skil­inn er ítalski hluti Connecticut fylkis sem er næst New York borg. Ef taldir eru titlar fjög­urra vin­sæl­ustu keppn­is­í­þrótt­anna þá er Boston í öðru sæti á eftir New York (sem hefur tvö lið í hverri deild). Þá hefur Boston landað tölu­vert fleiri titlum en tug­millj­óna­borgir á borð við Chicago og Los Angeles.

Þetta kann að koma á óvart í ljósi þess að borgin er fyrst og fremst þekkt fyrir menntun og menn­ingu. Í nær­liggj­andi bæjum eru nokkrir af þekkt­ustu háskólum heims á borð við Harvard og M.I.T. En íþróttir hafa lengi verið stór hluti af sjálfs­mynd íbú­anna. Til dæmis voru bæði körfuknatt­leikur og blak sköpuð í nánd við Boston á 19. öld. Sem aðdá­endur hafa Boston-búar algera sér­stöðu innan Banda­ríkj­anna. Þeir eru háværir, dóna­legir, heimtu­frekir og hataðir af öllum öðrum. En þeir hata líka alla aðra til baka og líta svo á að allur heim­ur­inn sé á móti þeim. Hafna­bolta­stjarnan David Ortiz orð­aði þetta svo: “Þetta er okkar fokk­ing borg!” Það er þessi mót­sagna­kennda blanda af hág­menn­ingu og lág­menn­ingu sem gerir Boston alger­lega sér­staka.

Húsið sem Auerbach byggði

Boston Celtics hafa verið í NBA deild­inni frá upp­hafi, árið 1946, og afrek þeirra eru vel þekkt. Hinn græni Kelti dregur fram írska arf­leið borg­ar­innar en Írar fluttu í stórum stíl til Boston um miðja 19. öld eftir hung­ursneyð­ina þar í landi. Celtics eru sig­ur­sælasta lið NBA deild­ar­innar með 17 meist­aratitla á bak­inu sem er tæpur fjórð­ungur af öllum titlum frá upp­hafi. Sig­ur­sæl­ustu ár þeirra voru á sjötta og sjö­unda ára­tug­unum þegar þeir unnu 11 titla á 13 árum og þar af 8 í röð árin 1959-1966. Seinna blóma­skeið þeirra var á níunda ára­tugnum þegar þeir unnu 3 titla. Lyk­il­maður í vel­gengni Celtics var Red Auerbach sem kom til liðs­ins sem þjálf­ari árið 1950 og gengdi því starfi til árs­ins 1966.

Eftir það vann hann ýmis störf fyrir félagið, m.a. sem for­seti, til dauða­dags árið 2006 þá 89 ára gam­all. Hinn lit­ríki Auerbach sem var frægur fyrir að reykja stóra vindla, er almennt tal­inn einn besti íþrótta­þjálf­ari sög­unnar og hæfi­leikar hans fólust sér­stak­lega í því að finna hæfi­leik­a­ríka leik­menn. Celtics eru þekktir fyrir að vera agað og óeig­in­gjarnt lið, lausir við glys og glamúr. Þeirra helstu keppi­nautar í gegnum tíð­ina, Los Angeles Lakers, eru alger and­stæða við þá að því leyti. En þó að Celtics séu þekktir fyrir sterka liðs­heild, þá hafa margar af stærstu stjörnum körfuknatt­leiks­ins spilað fyrir þá. Má þar nefna Bob Cousy, Bill Russell, Larry Bird og Kevin Garnett. Celtics hafa spilað í TD Garden frá árinu 1995. Í hálfa öld spil­uðu þeir í Boston Garden sem borg­ar­búar hugsa enn til með hlýju. Sú höll var sér­stak­lega erfið and­stæð­ingum þeirra. Hávaðinn frá áhorf­endum var ærandi og það var engin loft­ræst­ing þannig að hit­inn gat orðið óbæri­legur. Boston Garden var slík gryfja að árið 1986 töp­uðu Celtics aðeins einum leik þar.

Bölvun Babe Ruth

Hafna­bolti er sögu­lega vin­sælasta íþrótta­grein borg­ar­innar og sagt er að skap­gerð borg­ar­búa ber­ist með gengi atvinnu­manna­liðs­ins Boston Red Sox. Red Sox er eitt af elstu MLB lið­unum, stofnað árið 1901. Liðið var eitt það sterkasta í upp­hafi 20. aldar og vann 5 titla á árunum 1903 til 1918. Helsta stjarna þeirra var Babe Ruth sem hóf feril sinn sem kast­ari en færði sig seinna í stöðu kylfings. Árið 1919 var Ruth seldur til New York Yankees til að fjár­magna söng­leik sem eig­andi Red Sox vildi koma á fót. Ruth vann fjóra titla með Yankees en hjá Red Sox upp­hófst eyði­merk­ur­ganga sem varði í meira en manns­aldur, eða “bölvun Babe Ruth”. Bölvunin lá eins og mara á allri borg­inni og kynnti undir hatur milli stuðn­ings­manna lið­anna tveggja um ára­tuga skeið. Boston búar þreyt­ast ekki á því að hrópa níð­yrði um Yankees, hvort sem það er á hafna­bolta­leikjum, á heima­leikjum í öðrum íþróttum eða á götum úti. Ef maður klæð­ist Yankees fatn­aði á götum borg­ar­innar er lík­legt að maður verði fyrir aðkasti. Árið 2004 verður lengi í minnum haft í Boston.

Þá voru Red Sox 0-3 undir gegn Yankees í und­an­úr­slitum og leit allt út fyrir að bölvunin myndi halda áfram. En Red Sox gerðu hið ómögu­lega og sneru rimm­unni við og unnu 4-3 í fyrsta og eina skipti hafna­bolt­ans. Liðið var kallað “hálf­vit­arnir” (the idiots) af því að þeir spil­uðu líkt og þeim væri sama um bölvun­ina. Curt Schilling, kast­ari Red Sox, spil­aði þrátt fyrir meiðsli í fæti….með blóð í sokknum. Það er eitt fræg­asta og mynd­ræn­asta atvik amer­ískrar íþrótta­sögu. 86 ára bölvun­inni var aflétt og Red Sox unnu tit­il­inn þetta árið. Þeir bættu svo tveim titlum í safnið árin 2007 og 2013. Á þessum árum fylltu Red Sox heima­völl sinn Fenway Park 820 sinnum í röð, sem er met í amer­ískum íþróttum. Fenway Park með sinn fræga græna vegg (Græna skrímslið) hefur goð­sagna­kenndan blæ og er helgur staður í augum Boston búa.

Hið nýja yndi

Ameríska ruðn­ings­liðið New England Patriots voru um ára­tuga skeið utan­veltu í íþrótta­lífi Boston. Nafnið Patriots var valið vegna þýð­ing­ar­mik­ils hlut­verks borg­ar­innar í amer­ísku bylt­ing­unni og sjálf­stæði lands­ins, s.b.r. Teboðið í Boston árið 1773. Fram til árs­ins 1971 hétu þeir Boston Patriots en nafn­inu var breytt til þess að fá breið­ari skírskotun á svæð­inu. Árangur liðs­ins var hins vegar í með­al­lagi og liðið var titla­laust frá stofnun þess árið 1959 og út 20. öld­ina. Borg­ar­búar tengd­ust lið­inu lítið og á tíunda ára­tugnum kom til álita að færa liðið vestur til St. Louis. Liðið er í raun ekki stað­sett í Boston heldur smá­bænum Foxborough, um 30 kíló­metrum suð­vestur frá borg­inni. Í um 30 ár spil­uðu þeir á Foxboro Stadium sem þótti einn sá léleg­asti í deild­inni. Hann var illa hann­aður, hrip­lekur og flest allt í ólagi sem gat verið í ólagi.

En allt breytt­ist um alda­mótin þegar liðið réð þjálf­ar­ann Bill Belichick og völdu leik­stjórn­and­ann Tom Brady í nýliða­val­inu. Síðan þá hefur árangur liðs­ins verið ótrú­legur. Liðið hefur 7 sinnum kom­ist í ofur­skál­ina og 5 sinnum unnið leik­inn. Á þessum stutta tíma hafa Patriots kom­ist í hóp sig­ur­sæl­ustu NFL-liða allra tíma. Árið 2001 fluttu þeir einnig á leik­vang sem kenndur er við snyrti­vöru­fram­leið­and­ann Gillette (sem kemur frá Boston). Leik­vang­ur­inn minnir á lítið þorp. Þar er versl­un­ar­mið­stöð, veit­inga­staðir, hótel, kvik­mynda­hús, næt­ur­klúbbar, keilu­höll, og meira að segja heilsu­gæslu­stöð. Aðgengið að leik­vangnum þykir hins vegar nokkuð slæmt, sér­tak­lega þegar tug­þús­undir streyma þangað á leik­dögum. Það hefur þó ekki stöðvað Boston-búa í að streyma til Foxborough því að Patriots er orðið hið nýja yndi borg­ar­innar. Patriots deila leik­vang­ing­inum með knatt­spyrnu­lið­inu New England Revolution enda sömu eig­endur að báðum liðum. Revolution hafa verið í MLS deild­inni frá stofnun, kom­ist 5 sinnum í úrslita­leik­inn en aldrei unnið titil.

Hokkí, hlaup og róður

Íshokkíliðið Boston Bruins hefur lengi verið stolt borg­ar­búa. Bruins er eitt af elstu liðum NHL deild­ar­innar, stofnað árið 1924, og hafa unnið Stanley bik­ar­inn sam­an­lagt 6 sinnum. Þeirra þekkt­asti leik­maður er Bobby Orr sem spil­aði á sjö­unda og átt­unda ára­tugnum og er almennt tal­inn besti varn­ar­maður sög­unnar. Bruins hafa ekki farið var­hluta af vel­gengni borg­ar­innar und­an­farin ár og unnu Stanley bik­ar­inn síð­ast árið 2011. En Bruins eru þekkt­astir fyrir aðdá­end­urnar. Þeir haga sér með því­líkum hroka og dólgs­hætti að aðdá­endur ann­arra lið bein­línis hata þá. Bruins hafa fylgt Celtics bæði í Boston Garden og seinna TD Garden.

Stærsti íþrótta­við­burður borg­ar­innar er án efa Boston-mara­þonið sem er haldið apr­íl­mán­uði ár hvert. Fyrsta mara­þon borg­ar­innar var hlaupið árið 1897 og á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar jókst þát­taka og áhorf til muna. Nú eru þáttak­endur um 30.000 tals­ins og áhorf­endur um hálf milljón. Mara­þonið er eitt það fjöl­menn­asta í heimi og talið eitt af “Stóru 6” með New York, Chicago, London, Berlín og Tókýó. Árið 2013 frömdu tveir tjétjénskir bræður hryðju­verk í mara­þon­inu þegar þeir sprengdu tvær heima­gerðar sprengjur. Þrír áhorf­endur lét­ust og hund­ruðir særð­ust í árásinni.

Annar stærsti íþrótt­við­burður borg­ar­innar er róðr­ar­keppnin Head of the Charles Regatta. Í októ­ber á hverju ári fylgj­ast tug­þús­undir áhorf­enda með um 10.000 ræð­urum keppa við ósa Charles árinnar sem rennur í gegnum Boston. Róður er gríð­ar­lega vin­sæll á svæð­inu og á djúpar rætur í íþrótta­lífi Nýja Englands. Síðan 1852 hafa tveir virt­ustu háskólar heims, Harvard og Yale att kappi í grein­inni.

Lygileg velgengni

Jason litli með skiltið er vel þekktur í Boston. Í hvert sinn sem lið frá borg­inni fagnar meist­aratitli með skrúð­göngu er hann mættur og búinn að upp­færa skiltið sitt. Þegar Patriots fögn­uðu sigri í ofur­skál­inni 7. febr­úar síð­ast­lið­inn var hann vita­skuld þar með skilti sem á stóð: “15 ára gam­all, 10 skrúð­göngur”. Á hans stuttu ævi hafa Patriots unnið 5 titla, Red Sox 3, Celtics 1 og Bruins 1. Þetta er sér­stak­lega til­komu­mikið í ljósi þess að á árunum 1987-2001 var borgin titla­laus. Aðdá­endur hafa verið sak­aðir um að vera van­þakk­látir en það gæti ekki verið meira fjarri sanni. Þeir eru ákaf­lega stoltir af vinnu­semi og prjál­leysi lið­anna sinna og hafa stutt dyggi­lega við þau í gegnum súrt og sætt. Þó þeir séu til­ætl­un­ar­samir þá eru þeir einnig þeir dygg­ustu sem fyr­ir­finn­ast.

En hverju er þessi nýja vel­gengni að þakka? Senni­lega hinu sterka háskólaum­hverfi svæð­is­ins. Upp úr 1990 fór töl­fræði að verða meira áber­andi í frétta­flutn­ingi af íþróttum og birtar voru ítar­legar upp­lýs­ingar um hvern leik, hvert lið og hvern leik­mann. Á þessum tíma voru tölvur farnar að sjást á hverju ein­asta heim­ili sem opn­aði á mikla mögu­leika fyrir töl­fræði-áhuga­fólk. Í Boston býr bæði mennt­að­asta fólk Banda­ríkj­anna og það íþrótta-óðasta og þessi þróun var himna­send­ing fyrir það. Ýmis konar töl­fræði­grúsk, umræðu­hópar og fantasy-deildir blómstr­uðu í borg­inni. Sér­stak­lega hjá mennt­uðu fólki sem hafði ekki lík­am­legt atgervi í það að verða íþrótta­fólk sjálft (Lesist: nördar).

Þegar nýjir aðilar keyptu atvinnu­manna­liðin, t.a.m. Robert Kraft (Patriots) og John Henry (Red Sox), opn­uð­ust nýjar stöður fyrir þetta fólk, þ.e. til greina töl­fræði­legar upp­lýs­ingar. Þær voru síðan not­aðar við kaup og sölur á leik­mönnum, upp­still­ingu leikk­erfa o.fl. “Pen­inga­bolti” (money­ball) er þetta kallað, þ.e. að kaupa lágt, selja hátt og nýta hvern leik­mann sem best töl­fræði­lega. Vel­gengni lið­anna hefur síðan undið upp á sig innan háskól­anna sem bjóða nú upp á sér­stakar brautir fyrir fólk sem vill starfa við úrvinnslu íþrótta­töl­fræði og stjórnun liða.

Líklegt er að Jason litli þurfi að breyta skilt­inu sínu enn á ný á kom­andi árum því að fram­tíðin er björt í Boston. Árið 2017 eru Patriots, Red Sox, Celtics og Bruins öll með allra bestu liðum í sínum deildum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár