Leikhús fáranleikans á fleygiferð

WWE er á mik­illi sigl­ingu þessa dag­ana og hækk­aði verð­mið­inn á fyr­ir­tæk­inu um tæp­lega fimm pró­sent á föstu­dag­inn þegar gott upp­gjör félags­ins fyrir síð­asta ár var kynnt.

Fyrir utan Key Arena í mið­borg Seattle streymdi að fólk sem var með spjöld og belti. Mörg þeirra voru með mynd af John Cena, mestu stór­stjörnu WWE fjöl­bragða­glímu­heims­ins nú um stundir.

Stundum hefur þessi banda­ríska afþrey­ingar­í­þrótt verið sögð vera leik­hús fár­an­leik­ans. Og þannig er það, á vissan hátt. Þetta er ekki íþrótt í hefð­bundnum skiln­ingi heldur ein­ungis afþrey­ing en þó sett upp eins og um alvöru keppni sé að ræða. Blóma­skeið þessa afþrey­ing­ar­iðn­aðar var á níunda ára­tug síð­ustu aldar. Eftir nokkuð mik­inn öldu­dal er nú komið nýtt blóma­skeið.

Olíubornir menn

Við feðgar, ég og tíu ára sonur minn, fengum okkur sæti á góðum stað. Wrestlemania stóð stórum stöfum í loft­inu og fyrir neðan var hring­ur­inn sjálfur. Þar koma saman olíu­bornir karlar og berj­ast með miklum lát­brögðum, gjarnan eftir rifr­ildi um það hvor er nú sterk­ari og meiri maður.

Ég við­ur­kenni að for­dóm­arnir voru ekki bara miklir heldur var ég ákveð­inn í því fyr­ir­fram að þessir ágætu herrar sem þarna voru komnir að „berj­ast“ myndu þurfa að vinna sig upp í áliti hjá mér alveg frá botni.

Hvernig stendur á þessu?

Sonur minn ásamt bekkj­ar­bræðrum hans hefur hins vegar verið hel­tek­inn af þessum glímuköppum og þekkir bak­sögu þeirra allra, hetju­nöfnin, tökin sem þeir beita og nöfnin á lög­unum sem þeir nota til að hita áhorf­endur upp þeir þeir ganga í sal­inn. Ég hef verið að hugsa síðan í haust; hvernig stendur því að þetta er orðið svona vin­sælt aftur?

Svarið við því er þaul­skipu­lögð mark­aðs­her­ferð og end­ur­fæð­ing á vöru­merk­inu, WWE (World Wresting Enterta­in­ment). Síð­ast­lið­inn föstu­dag hækk­aði verð­mið­inn á félag­inu um 4,8 pró­sent, en fyr­ir­tækið er skráð á Banda­ríkja­markað. Verð­mið­inn er nú tæp­lega 1,7 millj­arður Banda­ríkja­dala, eða rétt um 200 millj­arðar króna. Félagið er því um það bil með sama verð­miða og Marel og Össur, til sam­an­burðar við tvö stærstu félagin á íslenska mark­aðnum. Marel er nú 219 millj­arða virði en Össur 175 millj­arða.

Það sem skýrði mikla hækkun á bréf WWE á föstu­dag­inn voru góðar sölu­tölur og ört vax­andi sölu­tekjur af varn­inigi. Árið 2015 voru heild­ar­tekjur WWE 659 millj­ónir Banda­ríkja­dala en þær voru 729 millj­ónir Banda­ríkja­dala í fyrra. EBIDTA fram­legð var tæp­lega 20 pró­sent og bendir allt til þess, sam­kvæmt upp­gjör­inu, að vöxt­ur­inn verði mik­ill á þessu ári.

Áskrift­ar­sala að WWE Network, sem er svipuð efn­isveitu-þjón­usta og Netflix nema hvað efnið er ein­göngu unnið upp úr WWE við­burðum og við­tölum, hefur rokið upp og telja for­svars­menn WWE Network að áskrif­enda­fjöldi geti tvö­fald­ast á þessu ári.

For­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins og stærsti eig­andi er Vince McMahon en um 70 pró­sent af hluta­bréfum í fyr­ir­tæk­inu eru í eigu hans og fjöl­skyld­unnar. Sögu WWE fyr­ir­tæk­is­ins má rekja aftur til árs­ins 1952, þegar sölu- og mark­aðs­starf í kringum WWE-bar­daga var stór­eflt, og má segja að það hafi síðan verið stór hluti af banda­rískum afþrey­ing­ar­iðn­aði. Árið 2014 var afdrifa­ríkt fyrir WWE því þá kom vog­un­ar­sjóð­ur­inn Eminence Capital inn í hluta­hafa­hóp­inn og hafa hjólin tekið að snú­ast hraðar eftir það. Fyr­ir­tækið ætlar sér að stór­efla sölu á varn­ingi og gefa út meira af sjón­varps­efni fyrir efn­isveit­una svo hún geti vaxið og dafnað.

WWE hrað­lestin ferð­ast stöðugt um Banda­ríkin og heldur við­burði eins og þann sem við feðgar fórum á í stórum tón­leika- og íþrótta­húsum. Við­burð­irnir eru vin­sælir og selst oft­ast upp á þá með miklum fyr­ir­vara. Um 500 við­burðir eru haldir á ári á vegum WWE og eru helstu vígin í Florida og Connecticut.

Stórstjörnur

Helstu stjörn­unar í þessu leik­húsi fár­an­leik­ans eru John Cena og The Rock, eða Dwayne Johnson. Hann hefur þegar gert það gott í Hollywood en fer­ill­inn hjá Cena er á hraðri upp­leið og mun ekki líða á löngu þar til hann verður með allra vin­sæl­ustu leik­urum í Hollywood þegar kemur að gaman- og ung­linga­myndum.

Cena hefur komið víða við á ferli sínum en hann verður fer­tugur síðar á árinu. Inn­komu­lag hans á við­burðum heitir Time Is Now og naut tölu­verðra vin­sælda í fyrra. Í því rappar hann sjálfur ásamt Eminem og gefur frá sér þau skila­boð, að tími hans sé kom­inn.

Við feðgar komumst af því að hver WWE sýn­ing tekur tæp­lega fjóra klukku­tíma og hinir olíu­bornu glímu­kappar eru furð­an­lega fljótir að jafna sig af miklum byltum, hoppum og stökkum í hringnum. En til þess er leik­ur­inn gerður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár