Sláturhúsið í Saydnaya

Hryll­ing­ur­inn í Sýrlandi hefur birst með ýmsum hætti í borg­ara­styrj­öld­inni í land­inu. Amnesty International vörp­uðu ljósi á skelfi­leg fjöldamorð í fang­elsi í land­inu.

Hið alræmda Saydnaya fang­elsi í Sýrlandi hefur um ára­tuga skeið hýst póli­tíska óvini al-Assad stjórn­ar­innar. Fram að borg­ara­styrj­öld­inni sem nú geysar í land­inu voru það yfir­leitt skæru­liðar og aðrir víga­menn, bæði sýr­lenskir og erlendir. Vistin þar var hörð og ýmis mann­rétt­inda­brot framin en síðan stríðið braust út árið 2011 hefur eðli starf­sem­innar breyst til muna og til hins verra. Nýlega kom út skýrsla sem varpar ljósi á umfang starf­sem­innar sem á beina teng­ingu við efstu lög valda­kerfis lands­ins og for­set­ans Bashar al-Assad.

Baráttutæki gegn íslömskum vígamönnum

Fang­elsið í Saydnaya var byggt árið 1987 og er eitt af þeim allra stærstu í land­inu með rými fyrir 5000 fanga. Það stendur um 30 kíló­metrum norðan við höf­uð­borg­ina Damascus, skammt frá landa­mær­unum við Líbanon. Það var byggt í stjórn­ar­tíð Hafez al-Assad, föður núver­andi for­seta lands­ins Bashar al-Assad. Hafez stýrði Sýrlandi með harðri hendi fyrir Ba´ath flokk­inn í tæp­lega 30 ár, frá 1971 til dauða­dags hans árið 2000. Ba´ath er ver­ald­legur stjórn­mála­flokkur, tengdur íraska Ba´ath flokki Saddams Hussains, sem byggir á sós­í­al­isma og sam-arab­ískri þjóð­ern­is­kennd en hafnar trú­ar­legum öfgum. Snemma í for­seta­tíð Hafez al-Assad, þurfti hann að kljást við upp­reisn íslamskra skæru­liða-og hryðju­verka­sam­taka á borð við Bræðra­lag múslima sem réð­ust á her­menn, lög­reglu­menn og almenna borg­ara. Stjórn­ar­her­inn brást hart við og kvaddi upp­reisn­ina í kút­inn árið 1982.

Þá voru flestir leið­togar sam­tak­anna annað hvort drepnir eða fang­els­aðir. Eftir þessa upp­reisn beitti her­inn sér af mik­illi hörku gegn öllum þeim sem grun­aðir voru um að styðja ísla­mistana. Tug­þús­undir end­uðu í fang­elsi þar sem kerf­is­bundnum pynd­ingum og drápum var beitt um langt skeið. Saydnaya, sem stjórnað er af her­lög­regl­unni, var liður í þessum aðgerðum. Vitað var að Saydnaya væri eitt harð­neskju­leg­asta fang­elsi lands­ins og það breytt­ist ekk­ert þegar Bashar al-Assad tók við völdum af föður sínum. Árið 2008 komst það í heims­frétt­irnar þegar fangar þar gerðu mikið upp­þot. Fjöl­margir fangar úr Bræðra­lagi múslima voru þar enn. Uppþotið var hins vegar brotið á bak aftur af mik­illi hörku og um 50 fangar hurfu spor­laust. Eftir upp­þotið var örygg­is­gæslan hert til muna og með­ferðin á föng­unum varð verri.

Stefnubreyting í borgarastyrjöldinni

Í jan­úar árið 2011 hófust frið­sam­leg mót­mæli sýr­lenskra borg­ara gegn stjórn Bashar al-Assad. Mótmælin stóðu yfir mán­uðum saman en lög­reglan og her­inn brugð­ust við með því að berja og skjóta á mót­mæl­endur. Þetta olli því að ýmsir hópar tóku sig saman og hófu vopn­aða upp­reisn gegn stjórn­ar­hernum um sum­arið. Þá var mörgum ísla­mistum sleppt lausum úr fang­elsum lands­ins, þ.á.m. fjöl­mörgum úr Saydnaya. Sumir þess­ara fanga voru jafn­vel vopn­aðir af stjórn­ar­hernum þó að vitað væri að þeir myndu ganga til liðs við upp­reisn­ar­menn­ina. Þetta var gert til að stjórn al-Assad liti betur út í sam­an­burði við upp­reisn­ar­menn­ina í augum alþjóða­sam­fé­lags­ins. Það virk­aði þó ekki og einu þjóð­irnar sem studdu stjórn al-Assad beint voru Rússar og Íranir sem þegar voru banda­menn þeirra. Hinn vest­ræni heimur vildi ein­ræð­is­herr­ann frá. Um haustið hóf stjórn al-Assad hins vegar að hand­taka almenna borg­ara í massa­vís. Fólk var hand­tekið fyrir það eitt að hafa tekið þátt í frið­sam­legum mót­mælum, fólk sem aldrei hafði gripið til vopna. Her­lög­reglan réðst inn í hverfi sem talin voru óvin­veitt for­set­anum og hand­tóku fólk, jafn­vel án þess að hafa neitt hald­bært í höndum um sekt þeirra. Fjöl­margir voru hand­teknir vegna sögu­sagna og slúð­urs ann­arra borg­ara.

Fang­elsin voru fljót að fyll­ast og í Saydnaya hýsti nú að jafn­aði um 20.000 fanga, fjór­falt fleiri en það var byggt fyrir. Hver ein­asti Sýr­lend­ingur vissi hversu slæm vistin í Saydnaya var og að ef maður yrði sendur þangað væri óvíst hvort maður kæmi lif­andi þaðan út. Nú í febr­úar birti Amnesty International skýrslu um fang­elsið. Hún er byggð á vitn­is­burðum 84 fyrrum fanga, fanga­varða og dóm­ara, og er mun dekkri en nokkurn gæti órað fyrir.

Velkominn til Saydnaya!

Fang­arnir eru fluttir til Saydnaya með stórum vöru­bílum sem ætl­aðir eru fyrir kjöt­af­urðir. Þeim er yfir­leitt ekki sagt hvert þeir eru að fara en margir geta sér þó til um það. Þegar þangað er komið eru þeir dregnir út úr bíl­unum og við tekur “veisla” til að bjóða þá vel­komna í and­dyri hinnar svoköll­uðu rauðu bygg­ingar. Þessi veisla er í raun nokk­urs konar vígsla eða próf­raun. Allir nýju fang­arnir eru barðir heift­ar­lega með ýmsum svipum og kylfum til að gefa þeim nasa­þef­inn af því sem koma skal. Þeir sem öskra hæst eru barðir mest en þeir sem geta afborið mis­þyrm­ing­una í hljóði sleppa best. Í þessum veislum fara fanga­verð­irnir gjarnan í keppni sín á milli um hver hefur mesta úthaldið til að berja á föng­unum. Það tekur lík­am­lega á að berja fólk í langan tíma.

Einnig skipt­ast þeir á til að gefa hvorum öðrum hvíld. Eftir veisl­una er föng­unum smalað inn í klef­ana. Klef­arnir eru tvenns konar, ein­stak­lings­klefar og hóp­klefar. Í ein­stak­lings­klef­unum eru geymdir u.þ.b. 9 fangar og um 50 í hóp­klef­unum. Klef­arnir eru mjög litlir og auk þess mega fang­arnir ekki nýta þá til fulls, þ.e. þeir mega ekki vera nálægt hurð­inni. Fjöl­margir fangar eru í rifnum fötum eða jafn­vel hálf­naktir eftir veisl­una en þeir fá ekki annan klæðnað við kom­una. Í klef­unum er ekk­ert ljós svo að fang­arnir sitja löngum stundum í algeru myrkri. Þá er aðeins eitt sal­erni í hverjum klefa og nokkur teppi. Ofan á þetta allt saman mega fang­arnir ekki tala, hvorki sín á milli né við fanga­verð­ina. Það verður að ríkja algjör þögn í klef­unum.

Helvíti á jörð

Í Saydnaya búa fang­arnir við stöðugan ótta. Versta hljóðið sem þeir heyra er þegar þeir eru vaktir klukkan 5:30-6:00 á morgn­anna. Verð­irnir koma gjarnan inn í klef­ana og berja fang­ana eða flytja þá í aðra álmu fang­els­is­ins þar sem stund­aðar eru pynd­ingar. Þeir geta komið hvenær sem er, stundum taka þeir ein­ungis fyrir einn klefa en stundum ganga þeir á röð­ina. Allir fang­arnir heyra nákvæm­lega hvað er að ger­ast, það er hluti af pynd­ing­unni. Heyrnin verður næm­ari með hverjum deg­inum í Saydnaya. Þeir læra fljótt að þekkja fót­spor hvers varðar og hvaða pynd­inga­tól er verið að nota hverju sinni.

Algeng­ustu tólin eru svipur úr raf­magns­vír, járn­pípur, kylfur úr gúmmí og tré, vatns­fötur og hjól­barðar sem eru bæði skornir niður í ræmur sem svipur og til að koma föng­unum í óþægi­legar stell­ingar. Einn salur fang­els­is­ins hafði áður verið mat­salur með borðum og bekkjum en nú er hann ein­ungis not­aður fyrir pynd­ingar. Fang­arnir eru látnir hlaupa hratt í myrkri yfir borðin og bekk­ina uns þeir detta og brjóta þá oft bein eða tennur. En þeir öskra ekki, a.m.k. ekki þeir sem hafa verið í fang­els­inu um nokkurn tíma. Sumum föngum hefur verið nauðgað af vörð­unum og sumir fangar hafa verið neyddir til þess að nauðga öðrum. Fang­arnir eru einnig hæddir og smán­aðir og neyddir til að segja við­ur­styggi­lega hluti um fjöl­skyldur sínar. Þeir lifa í við­var­andi ótta, sárs­auka og nið­ur­læg­ingu.

Um klukkan 13:00 skín sólin inn í klef­ana og þeir sjá almenni­lega framan í hvorn annan. Sumir eru naktir og því hlýjan mjög vel­komin. Þennan tíma nota fang­arnir til snyrt­ingar, t.d. til að týna lýs af hvorum öðrum. Til dægrar­stytt­ingar skrifa þeir á vegg­ina með belt­is­sylgjum en stroka það jafn­harðan út svo verð­irnir sjái það ekki. Þeir stara á flís­arnar og reyna að sjá myndir út úr þeim. Sumir hvísla vers úr kór­an­inum sem þeir kunna utan­bókar og kenna þeim sem ekki þekkja. Þeir fá ekk­ert að borða fyrr en seinni part dags og sumir ekki fyrr en um kvöldið.

Mat­ar­tím­arnir eru samt slæmir því að yfir­leitt fylgja þeim bar­smíðar. Þegar verð­irnir koma inn þurfa fang­arnir að vera í ákveð­inni stell­l­ingu þ.e. krjúp­andi, með lokuð augu og snúa í átt að veggnum. Þeir fá ávallt það sama þ.e. hrís­grjón, egg, ólífur og sultu, öllu hrært saman í einn graut. Oft er mat­ur­inn skítugur og jafn­vel ataður í blóði. Skammt­arnir eru alls ekki nægir og fang­arnir borða allt sem þeir fá, meira að segja eggja­skurn. Það er aldrei neitt rusl eftir þá. Eftir langa dvöl í Saydnaya byrjar hungrið að yfir­taka líf fang­anna. Þeir hugsa um ekk­ert annað en mat, ekki einu sinni fjöl­skyldur sínar sem þeir fá engar frengir af.

Af og til er skrúfað fyrir vatnið í klef­unum, í allt að þrjá sól­ar­hringa í senn. Þegar ofþorn­unin tekur völdin fá fang­arnir ofskynj­anir og sjá vatn í hyll­ingum renna niður veggi klef­ans. Þeir reyna hvað sem er til að fá nokkra vatns­dropa, jafn­vel að sjúga þá úr sal­ern­inu. Stundum eru þeir bleyttir því á nótt­unni er kalt. Margir veikj­ast vegna þess en fá enga aðhlynn­ingu. Besta hljóðið sem þeir heyra er þegar verð­irnir skipa þeim að fara að sofa á kvöldin. Enginn vill vakna á nýjan leik í Saydnaya og yfir­leitt eru nokkrir sem sleppa við það þegar verð­irnir vekja þá um morg­unin.

Mennskt sláturhús

Það er ekki að ósekju að Saydnaya hefur verið kallað mennskt slát­ur­hús. Það er sagt að um 75% af þeim sem fara þangað inn komi ekki aftur út. Margir deyja eftir pynd­ingar, úr sjúk­dómum eða slæmum aðbún­aði. En aðrir eru teknir af lífi og aftök­urnar virð­ast gerðar af handa­hófi. Venju­lega sækja verð­irnir þá á mánu­dögum og mið­viku­dögum, 20-50 í senn. Stundum eru heilu klef­arnir tæmdir. Sumar aftök­urnar eru þó beinar skip­anir frá æðstu vald­höfum al-Assad stjórn­ar­innar. Þeir eru vaktir seint um kvöld og sagt að verið sé að flytja þá í annað fang­elsi en þeir eru yfir­leitt barðir og smán­aðir á leið­inni út.

Í raun er aðeins farið með þá í næsta hús, í hvítu bygg­ing­una svoköll­uðu. Það er bundið fyrir augu þeirra og þeir leiddir að skrif­borði. Þar er þeim sagt að stimpla fingrafar sitt á blað sem sýni hverjir þeir séu. Blaðið er hins vegar yfir­lýs­ing um sýr­lenska ríkið beri ekki ábyrgð á dauða þeirra. Þá taka við sýnd­ar­rétt­ar­höld sem taka yfir­leitt ekki lengri tíma en 2-3 mín­útur. Oftast eru dóm­arnir aðeins byggðir á játn­ingum fang­anna sjálfra eftir pynd­ingar. Það er svo farið með þá í kjall­ara hvítu bygg­ing­ar­innar þar sem þeim er stillt upp nokkrum í senn og þeir hengdir í snörum sem bundnar eru við járn­rör.

Sumir þeirra vita ekki að þeir munu deyja fyrr en snaran er komin um háls þeirra. Dauðinn í snör­unni tekur langan tíma. Dómari sem var vitni af aftökum sagði að þeir væru látnir hanga í ca. 10-15 mín­útur. Þeir yngstu eru oft ekki nógu þungir til hengj­ast og því þurfa fanga­verðir að kippa í fætur þeirra svo þeir háls­brotni. Sumir fangar eru geymdir í hvítu bygg­ing­unni og þeir heyra vel hvernig heng­ing­arnar fara fram í gegnum veggi og gólf. Þegar aftök­unum er lokið er farið með líkin til her­spít­al­ans í Tishreen, þar sem sjálfur Bashar al-Assad lærði augn­lækn­ingar. Þar er dán­ar­or­sök úrskurðuð sem annað hvort hjarta­bilun eða önd­un­ar­færa­vanda­mál. Að lokum eru líkin grafin í fjölda­gröfum á landi sýr­lenska hers­ins sunnan og vestan við höf­uð­borg­ina. Fjöl­skyldur fang­anna fá ekk­ert að vita um afdrif þeirra.

Ábyrgð stjórnvalda

Amnesty International áætlar að á bil­inu 5000 til 13.000 fangar hafi verið hengdir án dóms og laga í Saydnaya frá sept­em­ber mán­uði árið 2011 til árs­loka 2015. Í skýrsl­unni sem Nicolette Waldman samdi fyrir sam­tökin er full­yrt að pynd­ing­arnar, aðbún­að­ur­inn og aftök­urnar í fang­els­inu séu árás á sýr­lenskan almenn­ing. Einnig að þær flokk­ist sem stríðs­glæpir og glæpir gegn mann­kyni sem beri að rann­saka af óháðum aðilum.

Áður en skýrslan kom út var áætlað að tæp­lega 18.000 þús­und fangar hefðu dáið í borg­ara­styrj­öld­inni í öllum fang­elsum lands­ins. Þetta þýðir hins vegar að sú tala er allt of lág. Waldman segir jafn­framt að það sé engin ástæða til að halda að pynd­ing­arnar og aftök­urnar hafi hætt árið 2016. Vænt­an­lega hafa þús­undir í við­bót farist í Saydnaya allt til dags­ins í dag. Um miðjan jan­úar 2017 fóru Amnesty International fram á svör frá sýr­lensku stjórn­inni vegna Saydnaya en hafa ekki fengið nein. Samtökin eru jafn­framt bönnuð í land­inu. Talsmenn Amnesty International við­ur­kenna að ýmsir stríðs­að­ilar, s.s. ISIS og al-Nusra hreyf­ingin hafi gerst sekir um skelfi­lega stríðs­glæpi. En rann­sóknir þeirra leiða í ljós að stjórn al-Assad beri ábyrgð á mestu voða­verk­unum þegar kemur að póli­tískum föngum.

Þeir geta heldur ekki neitað ábyrgð. Flestar aftöku­skip­an­irnar eru und­ir­rit­aðar af Fahd Jassem al-Freij, varn­ar­mála­ráð­herra lands­ins. Saydnaya er hluti af þeirri stefnu Bashar al-Assad að nota ótta og harð­neskju til að berja niður alla and­spyrnu við stjórn sína.

Hægt er að skrifa undir bæna­skjal til banda­rískra og rúss­neskra yfir­valda um að þrýsta á sýr­lensk yfir­völd að stöðva hryll­ing­inn í Saydnaya og öðrum fang­elsum lands­ins á vef Amnesty International.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár