Mikilvægt kosningaár framundan

Póli­tískur glund­roði. Heim­ur­inn á tíma­mótum. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti sér hið póli­tíska lands­lag.

Marine Le Pen, frambjóðandi Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi (f. Front Nationale).
Marine Le Pen, fram­bjóð­andi Þjóð­fylk­ing­ar­innar í Frakk­landi (f. Front Nationale).

Árið 2016 var árið þar sem skoð­ana­kann­anir virt­ust alger­lega marklausar. Fæstir höfðu reiknað með að Bretar kysu með því að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu og sigur Donald Trump í banda­rísku for­seta­kosn­ing­unum kom eins og vatns­gusa framan í flesta stjórn­mála­skýrendur. Meira að segja hér á Íslandi voru úrslitin tölu­vert frá því sem búist var við. Pópúl­ismi er í upp­sveiflu víða um heim og erfitt að reiða hendur á hann þar sem fylgið mælist illa í könn­unum. Frjáls­lynt og alþjóða­sinnað fólk er því með í mag­anum yfir flestum kosn­ingum sem haldnar eru. Hér verður farið yfir nokkrar af þýð­ing­ar­mestu kosn­ingum sem haldnar verða á árinu 2017.

Þingkosningar í Hollandi

Þann 15. mars ganga Hol­lend­ingar að kjör­borð­inu. Allra augu munu bein­ast að Frels­is­flokknum (PVV) og leið­toga hans Geert Wilders. Flokk­ur­inn er af meiði þjóð­ern­ispópúl­isma og Wilders hefur verið einn umdeild­asti stjórn­mála­maður Evrópu um nokk­urt skeið þá sér­sta­kelga fyrir fram­göngu sína gegn islam. Wilders vill banna kór­an­inn, koma í veg fyrir moskubygg­inar og sekta konur fyir að ganga með höf­uð­klúta. Hann komst í frétt­irnar fyrir meið­andi ummæli um Marokk­ó­búa á fram­boðs­fundi árið 2014 og var dæmdur fyrir þau nú í des­em­ber, en án refs­ingar þó. Wilders hefur notað þennan dóm til að gera sig að písl­ar­vætti tján­ing­ar­frels­is­ins og það virð­ist virka.

Frels­is­flokk­ur­inn sem fékk 10% í sein­ustu þing­kosn­ingum árið 2012 er nú að mæl­ast með um 30% í skoð­ana­könn­unum sem myndi að öllum lík­indum gera hann að stærsta þing­flokki lands­ins. Stjórn­mála­skýr­and­inn Tom Jan-Meus telur að kosn­ing Donald Trump muni hafa tölu­verð áhrif á hol­lensku þing­kosn­ing­arnar. Fyrir kosn­ing­arnar sagði hann:

„Hol­lend­ingar munu senni­lega taka harka­lega hægri­beygju í mars. Hversu langt til hægri þeir fara er í höndum banda­rískra kjós­enda.“

Wilders hefur heitið því að draga Holland út úr Evr­ópu­sam­band­inu ef flokk­ur­inn sigrar kosn­ing­arnar og kemst í rík­is­stjórn. Talað hefur verið um Nexit í því sam­hengi og yrði mikið áfall fyrir sam­bandið. Holland er öfl­ugt versl­un­ar­land og 17. stærsta hag­kerfi heims þrátt fyrir að þar búi ein­ungis um 17 millj­ónir íbúa. Hol­lend­ingar hafa einnig verið dygg­ustu stuðn­ings­menn Evr­ópu­sam­bands­ins hingað til, ásamt Belgum og Lúx­em­borg­urum. Ef þetta vígi fellur gæti það haft dómínó-áhrif um álf­una. Aðrir flokkar gætu þó reynt að mynda banda­lag gegn Frels­is­flokknum.

Nú sitja tveir stærstu flokkar lands­ins til hægri og vinstri saman í stjórn. Flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans Mark Rutte, Frelsis og lýð­ræð­is­flokkur fólks­ins (VVD), mun að öllum lík­indum halda sjó að mestu leyti en búist er við afhroði hjá Verka­manna­flokknum (PvdA). Það er því ljóst að Rutte mun þurfa að leita til fleiri flokka ef takast á að halda Wilders frá stjórn­ar­taumunum. Það er þó ekki víst að Wilders nái að koma Hollandi úr Evr­ópu­sam­band­inu þó að hann sigri kosn­ing­arnar. Stuðn­ingur við úrsögn er ekki mikið hærri en það fylgi sem PVV mælist með í könn­unum. Brexit kenndi okkur þó að treysta könn­unum tæp­lega.

Forsetakosningar í Frakklandi

For­seta­kosn­ing­arnar í Frakk­landi eru tví­skiptar. Fyrri umferðin fer fram 23. apríl og sú seinni milli tveggja efstu fram­bjóð­and­anna 7. maí. Í síð­ustu kosn­ingum, árið 2012, sigr­aði Sós­í­alist­inn Francois Hollande sitj­andi for­seta Nicolas Sarkozy með mjög naumum mun. Þá fékk Marine Le Pen, fram­bjóð­andi Þjóð­fylk­ing­ar­innar (Front Nationale) tæp­lega 18% atkvæða. Nú er hún talin lík­leg til að kom­ast í aðra umferð kosn­ing­anna þar sem fylgið við hana mælist nú um 25-27% og hefur verið á upp­leið. Í öðru sæti kann­ana er Repúblík­an­inn Francois Fillon sem talið er að kom­ist nær örugg­lega í aðra umferð kosn­ing­anna. Sós­í­alistar eru aftur á móti í miklum vand­ræðum.

Þann 29. jan­úar mun það ráð­ast hvort að Benoit Hamon eða Manuel Valls verður fram­bjóð­andi þeirra en talið er nær óhugs­andi að annar hvor þeirra kom­ist áfram. Helsta ástæða þess eru miklar óvin­sældir Hollande for­seta. Von vinstri manna er því bundin við fyrrum við­skipta­ráð­herr­ann Emmanuel Macron sem klauf Sós­í­alista­flokk­inn og stofn­aði Hreyf­ing­una! (En Marche!) árið 2016. Hann hefur verið að mæl­ast með tæp­lega 20% fylgi und­an­farið.

Það hefur áður gerst að fram­bjóð­andi hinnar þjóð­ern­ispópúl­ísku Þjóð­fylk­ingar kom­ist í aðra umferð, þ.e. árið 2002. Þá náði Jean-Marie Le Pen, faðir Marine, mjög óvænt inn með tæp­lega 17% fylgi en atkvæði í þeim kosn­ingum dreifð­ust mjög víða. Frökkum var mjög brugðið og fylktu sér bak­við for­set­ann Jacques Chirac sem var þó mjög óvin­sæll á þessum tíma. Chirac fékk aðeins tæp 20% í fyrri umferð­inni en rúm­lega 82% í þeirri seinni. Le Pen hækk­aði hins vegar aðeins um tæpt pró­sentu­stig milli umferða. Ef Francois Fillon og Marine Le Pen mæt­ast í annarri umferð í þessum kosn­ingum er ólík­legt að bilið verði jafn mikið og ekki loku fyrir því skotið að Le Pen gæti unnið. Bylgja þjóð­ern­ispópu­l­isma í Evrópu hefur gert boð­skap Þjóð­fylk­ing­ar­innar mun ásætt­an­legri í augum almenn­ings en hann var árið 2002. Marine er einnig mun fág­aðri fram­bjóð­andi en faðir hennar sem hefur látið mörg stæk ummæli falla um aðra kyn­þætti og útlend­inga í gegnum tíð­ina. Ef Marine Le Pen vinnur er ljóst að eitt mál kemst á odd­inn í frönskum stjórn­málum, útganga Frakk­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu eða Frexit. Hvort sam­bandið lifi það af er stór spurn­ing.

Þingkosningar í Þýskalandi

Kosn­ingar til þýska sam­bands­þings­ins verða haldnar þann 24. sept­em­ber. Reyndar eru einnig for­seta­kosn­ingar í land­inu strax 12. febr­úar sem skipta mun minna máli en gætu gefið ein­hverja vís­bend­ingu um hvernig þing­kosn­ing­arnar fara. Angela Merkel, leið­togi Kristi­legra demókrata, hefur verið kansl­ari síðan árið 2005 og hyggst verða það áfram en staða hennar hefur sjaldan eða aldrei verið jafn veik. Hún hefur tekið afdrátt­ar­lausa afstöðu með flótta­fólki og hleypt um einni milljón inn í landið á und­an­förnum árum. Hún hefur skapað sér stöðu sem óum­deildur leið­togi evr­ópskrar frjáls­lynd­is­stefnu og eftir að Trump tók við að Obama sem for­seti Banda­ríkj­anna þá á það við um heim­inn allan líka. Þjóð­ern­ispópúl­ism­inn hefur fest rætur í Þýska­landi og birt­ist það helst í auknu fylgi við flokk­inn Valkost fyrir Þýska­land (AfD).

Flokk­ur­inn sem stofn­aður var fyrir þing­kosn­ing­arnar 2013 fékk þá tæp­lega 5% fylgi og náði ekki inn mönnum en þar er sama fyr­ir­komu­lag og hér á Íslandi með 5% þrösk­uld. Nú mælist flokk­ur­inn með um 10-15% sem er ekki jafn hátt og í mörgum öðrum Evr­ópu­löndum en engu að síður er öruggt að þeir fái þó nokkuð marga þing­menn. Eftir kosn­ing­arnar 2013 mynd­uðu tveir stærstu flokkar Þýska­lands, Kristi­legir demókratar og Sós­í­alde­mókratar, rík­is­stjórn. Þá vann Merkel stór­sigur með 41,5% fylgi en sam­starfs­flokk­ur­inn fékk 25,7%. Það er búist við að báðir flokk­arnir tapi fylgi í kosn­ing­unum í sept­em­ber en ólík­legt þykir að þeir tapi meiri­hlut­anum. Spurn­ingin er aftur á móti hvort þeir hafi áhuga á að starfa áfram saman í breið­fylk­ingu ef tapið verður stórt fyrir báða flokka.

Búist er við því að kosn­inga­bar­áttan verið mjög sóða­leg, sér­stak­lega miðað við Þýska­land, og að stefna Merkel í flótta­manna­málum og vand­ræði Evr­ópu­sam­bands­ins verði helstu deilu­málin. Telja verður þó lík­legt að Merkel verði í þeirri stöðu að mynda rík­is­stjórn eftir kosn­ing­arnar því það er eng­inn annar leið­togi í sjón­máli til að taka við af henni. Helstu tíð­indi kosn­ing­anna verða hins vegar inn­koma AfD. Stjórn­mála­skýr­and­inn Nina Schick orðar þetta svo:

„Ég held að aðal­fréttin úr kosn­ing­unum verði sú að AfD, öfga-hægri pópúlista­flokkur, mun kom­ast yfir þrösk­uld­inn til að kom­ast inn á sam­bands­þingið. Að það skuli ger­ast í þýskum stjórn­málum hræðir fólk.“

Ólíkt ástand­inu í Hollandi og Frakk­landi þá er ekk­ert í spil­unum sem bendir til þess að Þýska­land, stærsta hag­kerfi Evrópu, yfir­gefi Evr­ópu­sam­bandið í bráð. Hins vegar gæti Evr­ópu­sam­bandið yfir­gefið Þýska­land ef Nexit og Frexit verða að veru­leika.

Aðrar athygl­is­verðar kosn­ingar:

Þingkosningar í Hong Kong

Íbúar Hong Kong ganga til kosn­inga þann 26. mars. Mikill hiti hefur verið í stjórn­málum borg­ar­innar á und­an­förnum árum eftir að kín­verskt stjórn­völd breyttu kosn­inga­kerf­inu og stúd­entar mót­mæltu kröft­ug­lega. Við afhend­ingu Hong Kong frá Bret­landi til Kína árið 1997 var komið á kerfi sem á að tryggja sjálf­ræði borg­ar­innar. En kín­versk stjórn­völd hafa alla tíð síðan beitt sér gegn því og öllum þeim sem vilja auka sjálf­stæði Hong Kong á nokkurn hátt. Stúd­entar og ungt fólk styður flest sjálf­stæði borg­ar­innar og er ugg­andi um stöð­una og sjálf­ræðið. Nið­ur­stöður kosn­ing­anna munu að miklu leyti velta á því hversu góð kosn­inga­þát­taka ungs fólks verður.

Sveitarstjórnarkosningar í Bretlandi

Íhalds­flokk­ur­inn hefur um 13% for­skot á Verka­manna­flokk­inn í skoð­ana­könn­unum fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar sem haldnar verða 4. maí. Því hafa margir velt því fyrir sér hvort boðað verði til þing­kosn­inga í Bret­landi á þessu ári til að styrkja umboð Theresu May til að koma útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu í gegn. En sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar að þessu sinni munu að miklu leyti snú­ast um Skotland.

Skoski Þjóð­ern­is­flokk­ur­inn hefur yfir­burða­stöðu á skoska þing­inu og nán­ast alla skosku þing­menn­ina á breska þing­inu. Þá kaus hver ein­asta sýsla lands­ins með áfram­hald­andi við­veru Bret­lands í Evr­ópu­sam­band­inu. Búist er við því að sér­staða Skotlands styrk­ist enn frekar með sigri Þjóð­ern­is­flokks­ins í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum og að í kjöl­farið verði boðað til nýrrar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði lands­ins.

Forsetakosningar í Suður Kóreu

Í des­em­ber síð­ast­liðnum var Park Geun-hye for­seti lands­ins sett af tíma­bundið eftir spill­ing­ar­mál. Park ólst upp í sér­trú­ar­söfn­uði og talið er að Choi Soon-il, reglu­bróðir hennar, hafi haft of mikil áhrif á stjórn lands­ins og jafn­vel stjórnað því alfarið bak við tjöldin. Ef dóm­stólar fall­ast á að Park verði vikið úr emb­ætti verður kosið 1-2 mán­uðum seinna. Annars verður kosið 20. des­em­ber og ljóst að for­set­inn gengur löskuð inn í þær kosn­ingar. Park situr fyrir hægri­flokk­inn Saenuri en hjá stærsta vinstri­flokknum, Demókra­ta­flokknum, lítur út fyrir að Lee Jae-myung verði fram­bjóð­and­inn. Lee er fyr­ir­ferð­ar­mik­ill pópúlisti sem hefur lýst aðdáun sinni á bæði Donald Trump og Bernie Sanders. Hann þykir lík­legur til að sigra og ef svo fer seg­ist hann ætla að hefja eig­in­legt sam­tal við Norður Kóreu og koma Park Geun-hye bak við lás og slá.

19. Landsþing Kína

Kína er ekki lýð­ræð­is­ríki og því ekki kosið til æðstu emb­ætta lands­ins. Æðstu menn Komm­ún­ista­flokks­ins koma hins vegar reglu­lega saman og velja full­trúa í mið-og fasta­nefndir sem stýra land­inu. Þetta val mun næst eiga sér stað á haust­mán­uðum 2017. Xi Jinping hefur verið aðal­rit­ari síðan 2012 og það lítur allt út fyrir það að hann haldi þeirri stöðu. Spurn­ingin er aftur á móti sú hvort að hann nái að koma banda­mönnum sínum og vænt­an­legum arf­taka að í nefnd­irnar eða hvort að valdi milli fylk­inga flokks­ins verður dreift eins og svo oft áður. Árið 2017 verður mjög mik­il­vægt ár í kín­verskum stjórn­málum þar sem óvenju mörgum nefnd­ar­mönnum verður skipt út vegna ald­urs, þ.e. um helm­ing í mið­nefnd­inni og 5 af 7 í fasta­nefnd­inni. Það hefur hægst á kín­verskum efna­hag und­an­farið og búist er við því að það muni ráða úrslitum um val á mönnum í nefndir. Ólíkt því sem við eigum að venj­ast þá fer umræðan þó aðal­lega fram í reyk­fylltum bak­her­bergjum en ekki í fjöl­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár