Malbikunarstöð í eigu borgarinnar með 73 prósent markaðshlutdeild

Ingólfsstræti malbikað.
Ing­ólfs­stræti mal­bikað. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði hf., sem er að öllu leyti í eigu Reykja­vík­ur­borgar og er með póli­tískt skip­aða stjórn yfir sér, er með 73 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í mal­bik­un­ar­verk­efnum á vegum borg­ar­innar. Til sam­an­burðar er Höfði með 24 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í verk­efnum sem Vega­gerðin, hinn stóri útboðs­að­ili mal­bik­un­ar­verk­efna á Íslandi, býður út. Þetta kemur fram í sam­an­tekt Við­skipta­ráðs Íslands á öllum útboðum Reykja­vík­ur­borgar og Vega­gerð­ar­innar á árunum 2008-2016.

Í grein sem Við­skipta­ráð skrifar um málið segir að eign­ar­hald Reykja­vík­ur­borgar á Höfða sé tíma­skekkja, að atvinnu­rekst­ur­inn skapi áhættu fyrir íbúa borg­ar­innar og eign­ar­haldið því ósam­rým­an­legt sjón­ar­miðum um heil­brigða sam­keppni og hag­kvæma opin­bera þjón­ustu. Því hvetur Við­skipta­ráð til þess að Reykja­vík­ur­borg selji Höfða.

Í grein ráðs­ins segir: „Mik­il­vægt er aðilar á sam­keppn­is­mark­aði keppi á jafn­ræð­is­grund­velli. Staða fyr­ir­tækja er hins vegar óum­flýj­an­lega ólík þegar verk­kaupi og einn bjóð­enda er sami aðil­inn. Það bætir enn síður stöð­una þegar stjórn­ar­maður fyr­ir­tæk­is­ins er jafn­framt borg­ar­full­trúi í Reykja­vík líkt og jafnan á við í til­felli Höfða. Hér gildir einu hvort farið sé eftir lög­bundnum útboðs­leiðum. Á meðan Höfði er í eigu Reykja­vík­ur­borgar er ekki hægt að tryggja jafn­ræði á þessum sam­keppn­is­mark­aði.“

Samkvæmt árs­reikn­ingi árs­ins 2015 voru tekjur Höfða 1,7 millj­arðar króna og hagn­aður þess 100 millj­ónir króna. Heild­ar­eignir voru rúmur millj­arður króna og árs­verk sam­tals 37 tals­ins. Í grein Við­skipta­ráðs­ins segir að eign­ar­hald borg­ar­innar á „Mal­bik­un­ar­stöð­inni Höfða er tíma­skekkja. Það skekkir sam­keppn­is­stöðu á mark­aðnum, rök­semdir um fákeppni eiga ekki við og áhætta er tekin með fjár­muni skatt­greið­enda. Tímabært er að Reykja­vík­ur­borg taki af skarið og hætti fram­leiðslu og lagn­ingu mal­biks fyrir inn­lendan markað. Þannig er hags­munum borg­ar­búa best borgið.“

Í stjórn Höfða sitja Margrét S. Björns­dóttir, sem er stjórn­ar­for­maður, Bryn­hildur Þor­geirs­dóttir og Marta Guð­jóns­dóttir, vara­borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík.

Frétt­inni var breytt klukkan 13:40 eftir ábend­ingu um að upp­lýs­ingar um sam­setn­ingu stjórnar Höfða sem settar voru fram á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins væru rangar. Þar stendur að Hildur Sverr­is­dóttir sitji í stjórn Höfða, en hið rétta er að Marta Guð­jóns­dóttir situr þar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár