Skortur á skattalöggjöf réði miklu um aflandseignir Íslendinga

CFC skatta­lög­gjöf var ekki sett hér á landi fyrr en eftir hrun, en löngu fyrr í Banda­ríkj­unum og Norð­ur­lönd­unum. Þetta réði miklu um fjölda aflands­fé­laga og fjár­magns­flótta frá Íslandi á árunum fyrir hrun. Lagt var til að lögin yrðu sett árið 2004.

Fjár­magns­flótti frá Íslandi og í aflands­fé­lög í skatta­skjólum hefði lík­lega ekki orðið eins mik­ill og raunin varð á árunum fyrir hrun ef að Ísland hefði haft sömu skatta­reglur og giltu á hinum Norð­ur­lönd­unum. Þessir fjár­magns­flutn­ingar í aflands­fé­lög léku veiga­mikið hlut­verk í fjár­mála­væð­ingu fyrsta ára­tugs ald­ar­innar, og jafn­vel má leiða líkur að því að ef settar hefðu verið sam­bæri­legar reglur og ann­ars staðar hefði eigna­verðs- og útlána­þensla þessa tíma­bils orðið væg­ari en raunin varð, og fallið minna.

Þetta kemur fram í skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum, sem gerð var opin­ber í síð­ustu viku. Í skýrsl­unni er vikið að skatta­lög­gjöf­inni á Íslandi á árunum fyrir hrun, og sér­stak­lega svo­kall­aðri CFC lög­gjöf. CFC stendur fyrir Controlled For­eign Cor­poration, erlend fyr­ir­tæki, félög eða sjóði í lág­skatta­ríkjum í eigu, eða undir stjórn íslensks eig­anda, hvort sem sá eig­andi er félag eða ein­stak­ling­ur. Lögin kveða meðal ann­ars á um að greiða skuli tekju­skatt hér á landi af hagn­aði félags sem íslenskur skatt­að­ili á en er í lág­skatta­rík­i. Íslend­ingar sem eiga félög á lág­skatta­­svæðum eiga að skila sér­­­stöku fram­tali með skatt­fram­tal­inu sínu vegna þessa, skýrslu ásamt grein­­ar­­gerð þar sem meðal ann­­ars eru sund­­ur­lið­aðar tekj­­ur, skatta­­legar leið­rétt­ing­­ar, arðsút­­hlutun og útreikn­ingur á hlut­­deild í hagn­aði eða tapi á grund­velli árs­­reikn­inga, sem eiga að fylgja. Ef það er ekki gert brýtur það í bága við lög um tekju­skatt.

Það er einnig talið hafa ráðið miklu um það hversu mörg aflands­fé­lög Íslend­ingar áttu að þessi lög­gjöf var ekki inn­leidd fyrr en eftir hrun.

Reglur ekki settar fyrr en eftir hrun

CFC reglur voru ekki settar hér á landi fyrr en í apríl 2009 og tók gildi 2010, en löngu fyrr hafði verið lagt til að slíkar reglur yrðu settar hér á landi. Í skýrslu ann­ars starfs­hóps um umfang skattsvika á Íslandi, sem skil­aði skýrslu sem lögð var fyrir Alþingi í lok árs­ins 2004, kom fram að hraða þyrfti setn­ingu slíkra ákvæða í íslenska skatta­lög­gjöf til þess að koma í veg fyrir mögu­leg skatt­svik með stofnun aflands­fé­laga í skatta­skjólum.

Þrátt fyrir þessi til­mæli starfs­hóps­ins virð­ist hins vegar sem stjórn­völd hafi á þessum tíma haft efa­semdir um nauð­syn þess að setja slíka lög­gjöf, segir í skýrsl­unni. Meðal ann­ars er vísar til greinar í vefriti fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins frá árinu 2006, þar sem spurt var hvort Ísland þarfn­að­ist CFC-lög­gjafar.

Starfs­hóp­ur­inn sem skil­aði skýrslu í haust segir að greinin skýri hugs­an­lega að ein­hverju leyti ástæð­urnar fyrir því að ekki var farið að til­lögu hins starfs­hóps­ins um setn­ingu CFC ákvæða í íslensk lög. Starfs­hóp­ur­inn segir að sterk rök hnígi til þess að meiri festa hefði verið á umgengni íslenskra aðila við aflands­fé­lög ef lög­gjöfin hefði verið tekin upp hér á landi á sama tíma og það var lagt fyrst til. Í Banda­ríkj­unum hafi slík lög­gjöf verið tekin upp löngu fyrir ára­mót og á Norð­ur­lönd­unum strax í upp­hafi þess­arar aldar, 2002 og 2003.

Ekki fylgt eftir og engin yfirsýn

Jafnvel þótt regl­urnar hafi verið settar eftir hrun var þeim ekki fylgt mjög fast eftir, segir starfs­hóp­ur­inn. Reglu­gerð um skil fram­tala sam­kvæmt CFC regl­unum var ekki gefin út fyrr en árið 2013. „Það ber ekki vitni um að þessi þáttur í skatta­legu eft­ir­liti hafi verið fram­ar­lega í for­gangs­röð stjórn­valda, þótt eftir sem áður hafi fram­telj­endum borið að fara eftir lög­unum frá setn­ingu þeirra,“ segir í skýrsl­unni.

Einnig kemur fram í skýrsl­unni að ein­ungis um þriðj­ungur þeirra ein­stak­linga sem tengd­ust skatta­skjóls­gögn­unum sem keypt voru af íslenskum stjórn­völdum höfðu gefið aflands­fé­lögin sín upp til skatts á Íslandi. Skatta­yf­ir­völd hafa ekki gengið hart eftir því að þeir sem þó gáfu upp aflands­fé­lögin sín til skatts á Íslandi fylli út skýrslur sem kveðið er á um að þeir geri sam­kvæmt CFC lög­gjöf­inni.

Þá hafa eyðu­blöð með þessum skýrslum ekki verið sjálf­krafa inni í skatta­skilum og því hefur rík­is­skatt­stjóri ekki getað aflað upp­lýs­inga um þann fjölda sem skilað hefur CFC skýrslum. Til þess að finna slíkt út þyrfti að fara hand­virkt yfir öll skatt­fram­töl, og það hefur ekki verið gert. Hins vegar stendur til að breyta þessu fyr­ir­komu­lagi þannig að rík­is­skatt­stjóri eigi auð­veld­ara með að fá heild­ar­yf­ir­sýn yfir skil á þessum skýrslum.

Komst í fréttir eftir Panamaskjölin

Kjarninn greindi frá því síð­ast­liðið vor að rík­is­skatt­stjóri væri með í und­ir­bún­ingi að vél­taka CFC-­eyðu­blöð sem aflands­fé­laga­eig­endur eiga að fylla út og skila með skatt­fram­tölum sín­um. „Þegar því verki verð­ur­ lokið mun útfyll­ing eyðu­blað­anna verða ófrá­víkj­an­leg,“ sagði Skúli Eggert Þórð­ar­son rík­is­skatt­stjóri við Kjarnann síð­ast­liðið vor.

Ástæða fyr­ir­spurn­ar­innar var sú að ­Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, birti blogg­færslu þar sem fram kom að fram­tal vegna aflands­fé­lags­ins Wintris, sem er ­skráð á Bresk Jóm­frú­areyj­un­um, hafi ekki verið í sam­ræmi við CFC-lög­gjöf­ina. Þar kom einnig fram að við fram­tals­­gerð þeirra hjóna hafi „ver­ið horft í gegnum félagið eins og það hafi aldrei verið til og eignir þess skráð­ar­ ­sem bein eign Önnu frá því ári áður en svo kall­aðar CFC-­­reglur tóku gildi. Sú var­­færna leið að greiða skatta af öll­u­m ­eign­um, hverri fyrir sig, í stað þess að nýta félagið og líta á það sem ­fyr­ir­tæki í atvinn­u­­rekstri (og skila CFC-fram­tali) hefur skilað sér í hærri skatt­greiðslum til rík­­is­ins en ef ­stuðst hefði verið við atvinn­u­­rekstr­­ar­-/CFC-­­leið­ina.“ Í færslu Sig­­mundar Dav­­íðs sagði einnig að skatta­yf­­ir­völd hafi aldrei ­gert athuga­­semdir við með hvaða hætti talið var fram.

Kjarn­inn beindi ítrekað fyr­ir­spurnum til Sig­mundar Dav­íðs um hvort Wintris hafi staðið að skatt­skilum í sam­ræmi við CFC-­regl­ur, en fékk aldrei svör. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár