Kínverjar kaupa fótboltann

Lang­launa­hæstu fót­bolta­menn í heimi eru nú í Kína. Verður deild­ar­keppnin í Kína orðin sú sterkasta eftir tíu ár? Ekki gott að segja. En það er mark­miðið.

Það hefur ekki farið fram­hjá neinum knatt­spyrnu­á­huga­mönnum hversu áber­andi Kín­verjar hafa verið á leik­manna­mark­að­inum und­an­farið. Nánast dag­lega ber­ast fregnir af svim­andi háum til­boðum í stjörnu­leik­menn frá nán­ast óþekktum liðum á borð við Shanghai SIPG, Hebei Fortune og Jiangsu Suning. En hvaðan koma þessir peng­ingar og af hverju eru Kín­verjar að reyna að kaupa allt sem tönn á festir? Er þetta eitt­hvað tíma­bil líkt og árin 2003 og 2004 þegar fjöldi þekktra leik­manna fóru til Qatar? Eða er þetta kannski nýr veru­leiki í knatt­spyrnu­heim­inum?

Fótboltinn rís úr rústum Maó

Kín­verjar hafa skarað fram úr í ýmsum íþrótta­greinum s.s. fim­leikum, borð­tennis, bad­minton og dýf­ingum. Þær tvær hóp­í­þróttir sem njóta mestrar hylli í land­inu eru körfuknatt­leikur og knatt­spyrna. Kín­verjar eru lang­sterkasta körfuknatt­leiks­þjóð Asíu og ein af þeim sterk­ustu í heim­inum. En í knatt­spyrn­unni eiga þeir tals­vert verk fyrir höndum. Karla­liðið þeirra hefur aldrei unnið asíska meist­ara­tit­il­inn og ein­ungis einu sinni kom­ist á heims­meist­ara­mótið, árið 2002. Skýr­ing­una á þessu má að miklu leyti finna í skorti á skipu­lagðri atvinnu­manna­deild um langa hríð.

Til­raunir voru gerðar til að koma á fót áhuga­manna­deild í land­inu á sjötta ára­tug sein­ust aldar. Menn­ing­ar­bylt­ing Maó for­manns á sjö­unda ára­tugnum eyði­laggði hins vegar nán­ast allt knatt­spyrnu­starf lands­ins. Þegar Maó lést árið 1976 tók kín­verska lands­liðið aftur þátt í stór­mótum og ára­tug seinna var Jia-A deild­inni komið á lagg­irnar. Jia-A var aðeins hálfat­vinnu­manna­deild í upp­hafi en árið 1994 var hún end­ur­skipu­löggð og gerð að atvinnu­manna­deild. Deildin gekk vel í upp­hafi en í kringum 2000 ein­kennd­ist hún af skandölum og spill­ingu. Fjöl­mörgum úrslitum hafði verið hag­rætt vegna veð­mála­starf­semi og almenn­ingur missti áhug­ann. Á þessum tíma byrj­aði Yan Shiduo, vara­for­seti kín­verska knatt­spyrnu­sam­bands­ins, að tala fyrir stofnun nýrrar atvinnu­manna­deildar á grunni Jia-A líkt og gert hafði verið í Englandi með stofnun Úrvals­deild­ar­innar árið 1992.

Auk þess að að ná tökum á spill­ing­unni var tak­markið að efla ung­linga­starfið, stjórnun lið­anna og ná betri tökum á fjár­mál­unum. Það varð úr að Kín­verska Ofur­deildin (CSL) var stofnuð árið 2004. Fyrstu árin gengu brösu­lega. Spill­ing­ar­málin frá Jia-A tím­anum voru ennþá til staðar og áhugi almenn­ings á deild­inni lít­ill. Kín­verskur almenn­ingur hafði mik­inn áhuga á evr­ópskum stór­liðum, sem voru nú farin að spila æfinga­leiki í Kína á sumrin, en CSL tap­aði miklum fjár­hæðum og það bitn­aði á öllu knatt­spyrnu­starfi heima fyrir. Árið 2010 var viss vendi­punktur fyrir kín­verska knatt­spyrnu. Þá var ákveðið að taka hart á spill­ing­unni og nokkrir emb­ætt­is­menn úr knatt­spyrnu­hreyf­ing­unni og virt­asti knatt­spyrnu­dóm­ari lands­ins voru hand­teknir. Alls voru 33 aðilar bann­aðir frá allir aðkomu að íþrótt­inni. Eftir aðgerð­irnar hefur almenn­ingur sýnt CSL tölu­vert meiri áhuga.

Annað elliheimili?

For­svars­menn CSL hafa alltaf gert sér grein fyrir því að deildin verður aldrei byggð upp af Kín­verjum einum saman. Því er tak­mark þeirra að flytja inn hæfi­leik­a­ríka erlenda knatt­spyrnu­menn og þjálf­ara. En það er hæg­ara sagt en gert. Þetta hefur verið reynt í öðrum deildum , s.s. MLS í Banda­ríkj­unum, J-League í Japan og nokkrum deildum Mið­aust­ur­landa en yfir­leitt hefur ein­ungis tek­ist að laða að knatt­spyrnu­menn sem eru á loka­skeiði fer­ils síns jafn­vel þó að góðar summur séu í boði. Sagt hefur verið í háði að þessar deildir séu elli­heim­ili knatt­spyrnu­manna. Árið 2012 virt­ist CSL ætla að bæt­ast í hóp öldr­un­ar­þjón­ust­unnar þegar leik­menn á borð við Frederic Kanoute, Yakubu, Nicolas Anelka og Didier Drogba skrif­uðu undir samn­inga hjá kín­verskum félags­liðum.

Liðin fengu þá ódýrt eða frítt en launin voru svim­andi há. Didier Drogba fékk t.a.m. 28 millj­ónir króna í viku­laun hjá lið­inu Shanghai Shenshua. Fyrir eldri knatt­spyrnu­menn er CSL til­val­inn staður til að spila í. Leikja­á­lag er til­tölu­lega lítið með ein­ungis 16 lið og eina bik­ar­keppni. Þó að leik­vang­arnir séu margir hverjir mjög stórir þá eru þeir yfir­leitt ekki nema hálf­fullir í það mesta og áreiti lítið. Mótherj­arnir eru einnig flestir ákaf­lega slakir miðað við þá evr­ópsku. En Kín­verjar vildu ekki reisa enn eitt elli­heim­ilið, þeir vildu fá leik­menn og helst stjörnur á hápunkti fer­ils síns. Til þess að gera það urðu þeir að byggja upp deild að evr­ópskri fyr­ir­mynd og til þess að gera það þurftu þeir að fá bestu þjálf­ar­ana.

For­svars­menn deild­ar­innar duttu því í lukku­pott þegar þeir kló­festu Marcelo Lippi, sem gerði Ítala að heims­meist­urum 2006 og Juventus að marg­földum Ítal­íu­meist­urum. Lippi gerð­ist þjálf­ari liðs­ins Guangzhou Evergrande árið 2012 og hann byggði upp veldi í kín­verskri knatt­spyrnu (Guangzhou hafa unnið tit­il­inn á hverju ári síðan). Ráðning Lippi lað­aði einnig að aðra heims­fræga þjálf­ara. Má þar nefna Sven Göran Eriksson, Radomir Antic, Luiz Felipe Scolari, Andre Villas-Boas og nú síð­ast Felix Magath og Manuel Pellegrini. Allt eru þetta knatt­spyrnu­stjórar sem gætu hæg­lega verið að stýra stærstu klúbbum Evrópu og það sýnir hversu mikil alvara er á ferð hjá Kín­verj­unum.

Forseti með drauma

Árið 2015 fór Xi Jingping, for­seti Kína, í heim­sókn til enska knatt­spyrnu­liðs­ins Manchester City. Í kjöl­farið keypti rík­is­rekna fyr­ir­tækið China Media Capital 13 pró­sent hlut í félag­inu á 37 millj­arða króna.

Þetta sama ár lýsti for­set­inn yfir þeim vilja sínum að gera Kína að alþjóð­legum íþrótt­ar­isa árið 2025 og CSL deildin átti að verða stór þáttur í því tak­marki. Ástæðan fyrir þessu er ekki af hégóm­legum toga heldur frekar til­raun til þess að efla neyt­enda­mark­að­inn heima fyrir í ríki sem hingað til hefur að mestu leyti verið fram­leiðslu­land. Efling CSL á einnig að styrkja kín­verska knatt­spyrnu og kín­verska lands­liðið. Í deild­inni eru strangar reglur um erlenda leik­menn. Hvert lið má ein­ungis hafa 6 erlenda leik­menn á skrá og ein­ungis 4 inn á vell­inum í einu. Þar af verður einn leik­mað­ur­inn að koma frá öðru Asíu­landi (flestir frá Suður Kóreu). Þá verða allir mark­verðir deild­ar­innar að vera Kín­verjar. Með þessu fá inn­lendir leik­menn bæði að spila með og gegn sterkum erlendum mótherjum. Einnig er stefnt á að efla inn­viði lið­anna og deild­ar­innar til muna, t.d. æfinga­að­stöðu, knatt­spyrnu­skóla, dóm­gæslu, tækni­mál og fleira. En hver borgar þetta allt saman? Heróp Xi for­seta berg­málar um deild­ina og eig­end­urnir lið­anna hlýða því. Í upp­hafi voru eig­endur lið­anna úr ýmsum geirum, t.a.m. nokkrir tóbaks­fram­leið­endur. En síðan þá hafa fast­eignarisar tekið við að mestu. Þessir fast­eigna­hringir eiga mikið undir góðum sam­skiptum við ríkið og komm­ún­ista­flokk­inn og að splæsa í nokkra knatt­spyrnu­menn er lítil fórn í því sam­hengi. For­set­inn og eig­end­urnir hafa því gengið alger­lega sam­stíga í þessu verk­efni.

Leiftursókn

Kín­verjar létu til sín taka á árinu 2016. Þann 29. jan­úar keypti liðið Jiangsu Suning brasil­íska miðju­mann­inn Ramires frá Chelsea á 3,5 millj­arð króna sem var asískt met. Fimm dögum seinna keypti Guangzhou Evergrande kól­umbíska fram­herj­ann Jackson Martinez á tæpa 5 millj­arða frá Atletico Madrid. Tveim dögum seinna keyptu Jiangsu Suning svo brasil­íska miðju­mann­inn Alex Teixeira frá Shakhtar Donetsk á tæpa 6 millj­arða, næstum tvö­fallt það sem enska liðið Liverpool bauð í leik­mann­inn.

Metið hafði því verið slegið þrisvar sinnum á ein­ungis viku og allir leik­menn­irnir voru innan við þrí­tugt og meðal eft­ir­sótt­ustu leik­manna á evr­ópska mark­að­inum. Þetta voru ekki bara hefð­bundin fót­bolta­við­skipti heldur stefnu­yf­ir­lýs­ing um það sem koma skyldi. Hér eftir yrðu Kín­verjar stórt afl á mark­að­inum og myndu keppa við evr­ópsk lið um leik­menn á hátindi fer­ils síns. Árið var hins vegar aðeins rétt byrjað og Kín­verjar héldu áfram að láta til sín taka á mark­að­inum. Þann 30. júní var metið slegið í fjórða sinn þegar Shanghai SIPG keyptu brasil­íska fram­herj­ann Hulk frá Zenit í Pét­urs­borg á rúm­lega 6,5 millj­arða. Loks var það slegið í fimmta sinn á þor­láks­messu þegar til­kynnt var að sama lið hefði keypt brasil­íska miðju­mann­inn Oscar frá Chelsea á 8,5 millj­arða.

En það eru ekki bara kaup­samn­ing­arnir sem vekja athygli heldur einnig launa­greiðsl­urnar. Það sást best þegar argent­ínski fram­herj­inn Carlos Tevez var keyptur til Shanghai Greenland Shenshua frá Boca Juniors (þar sem hann ætl­aði að enda fer­il­inn) 29. des­em­ber. Tevez verður lang­launa­hæsti leik­maður heims með rúm­lega 85 millj­ónir í viku­laun.

Af 20 launa­hæstu leik­mönnum heims í dag spila 6 í CSL deild­inni og þeim mun bara fjölga. Þeir eru nú (í evrum mælt, árs­tekjur):

16. Ezequiel Lavezzi Hebei Fortune 31 milljón

15. Asamoah Gyan Shanghai SIPG 31,5 milljón

8. Graziano Pelle Shandong Luneng 40,5 milljón

6. Hulk Shanghai SIPG 44,5 milljón

2. Oscar Shanghai SIPG 55,5 milljón

1. Carlos Tevez Shanghai Shensua 85,5 milljón

Evrópu brugðið

Arsene Wenger, knatt­spyrnu­stjóri Arsenal, segir að England og Evrópa ætti að hafa áhyggjur af Kína. Ekki ein­ungis vegna þess að hæfi­leika­miklir knatt­spyrnu­menn hverfi úr deild­inni heldur einnig vegna þess að þetta muni valda gríð­ar­legri verð­bólgu á evr­ópska mark­að­inum.

Sjálfur er hann að glíma við tvær af sínum eigin stjörnum, Alexis Sanchez og Mesut Özil, sem báðir hafa fengið til­boð um laun frá kín­verskum liðum sem Arsenal geta engan veg­inn keppt við. Vanda­málið sé að hækk­andi kaup­verð og launa­greiðslur muni ein­ungis valda ójöfn­uði í knatt­spyrnu­heim­inum. Önnur ensk lið hafa líka áhyggjur af sínum stjörnum. Kínversk lið hafa t.a.m. borið víurnar í fram­herj­ana Diego Costa hjá Chelsea og Zlatan Ibrahimovic hjá Manchester United.

Sagt er að kín­verskt lið hafi boðið hinum 35 ára gamla Ibrahimovic um 16,5 millj­arð til að flytja sig um set og að kín­verska ríkið væri vilj­ugt að fjár­magna það að hluta. Auðvitað hafa tvær stærstu knatt­spyrnu­stjörnur sam­tím­ans einnig verið nefndar, Lionel Messi og Cristiano Ronaldo. Umboðs­maður Ronaldo full­yrti að ónefnt kín­verskt lið hefði boðið Real Madrid 35,5 millj­arð króna og leik­mann­inum um 12 millj­arða í árs­laun. Það eru heldur ekki ein­ungis leik­menn og þjálf­arar sem Evrópa þarf að hafa áhyggjur af að missa því að þekkt­asti dóm­ari ensku Úrvals­deild­ar­innar, Mark Clattenburg, hefur einnig fengið til­boð frá ris­anum í austri.

Hvort sem Wenger eða öðrum líkar betur eða verr þá eru Kín­verjar komnir til að vera. CSL vex hratt og mun halda áfram að vaxa á næstu árum. Árið 2010 borg­uðu aðal­styrkt­ar­að­ilar deild­ar­innar um 4 millj­arða á ári en nú er upp­hæðin orðin 21,5 millj­arður. Nýr sjón­varps­samn­ingur sem und­ir­rit­aður var árið 2016 hækk­aði árlegar greiðslur til deild­ar­innar úr 1 millj­arði í 27 millj­arða!

Þá er talið að Kín­verjar stefni á að halda heims­meist­ara­mót árið 2030 og Xi Jingping vill ekki bara halda mótið, hann vill vinna það. Þetta er ein­fald­lega sá veru­leiki blasir við og evr­ópsk lið verða að takast á við hann. Þann 2. jan­úar 2017 hafn­aði belgíski miðju­mað­ur­inn Axel Witsel ítalska ris­anum Juventus fyrir Kína. Hann sagði:

Þetta var mjög erfið ákvörðun af því að ann­ars vegar var það risa­klúbb­ur­inn Juventus og hins vegar ómót­stæði­legt boð fyrir fram­tíð fjöl­skyldu minnar.

Þá er talið að einn eft­ir­sótt­asti fram­herji heims, Gabon-mað­ur­inn Pierre-Emerick Auba­meyang hjá Borussia Dortmund muni halda til Kína fyrir tæp­lega 18 millj­arða króna. Það er rúmum 5 millj­örðum meira en Manchester United greiddu fyrir Paul Pogba. Uli Höness, for­seti Bayern Munchen, hafði þetta um það að segja:

Þetta er sjúkt. Þetta er ekk­ert nema sjúkt. Ég vona bara að þetta sé tíma­bundið eins og í Ameríku fyrir nokkru síðan.

Það er ljóst að ráða­mönnum evr­ópskrar knatt­spyrnu er brugðið. En þetta er hinn nýji veru­leiki og kannski verður Xi Jinping að ósk sinni. Kannski munu íslensk ung­menni þurfa að vaka langt fram á nætur til að sjá upp­á­halds knatt­spyrnu­stjörnur sínar spila. Kannski verður CSL orðin sterkasta deild heims árið 2025.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár