Á Kúbu eftir Castro

Fídel Castro var einn lang­lífasti og áhrifa­mesti leið­togi sam­tím­ans. Eftir frá­fall hans spyrja Kúbverjar og heims­byggðin hvað tekur við. Hafliði Sæv­ars­son skrifar frá Havana.

Slag­orðið málað upp um alla veggi á Kúbu eftir frá­fall Fídels Castro hljóðar svo: „Fídel er á meðal okkar allra.“

Engum dylst tví­feldnin í orða­lag­inu. Í fyrsta lagi þá mun stefna og arf­leifð Fídels lifa áfram í stjórn­ar­háttum lands­ins. Í öðru lagi má túlka orðin þannig að andi Fídels sé bók­staf­lega enn á meðal Kúbverja. Þess vegna má ekki gera grín að honum vegna þess að hann gæti heyrt til þín.

En þegar sólin skín og Kúbverjar eru spurðir um við­horf sitt til Fídels minna svörin um margt á við­horf Íslend­inga til þjóð­kirkj­unnar. Mikill meiri­hluti manna er Fídelistar án þess þó að trúa sér­stak­lega á ágæti skoð­ana hans. Hins vegar er ólíkt með Íslend­inga og Kúbverja að þeir fyrr­nefndu þora fæstir að gera grín að þjóð­kirkj­unni en Kúbverjar eru snöggir til að hrista brand­ara um Fídel fram úr erminni.

Við­fangs­efnið er oft ótrú­legt lang­lífi Fídels sem mann­veru, bylt­ing­ar­leið­toga, og for­seta. Einn brandar­anna hljóðar svo: Fídel liggur á spít­ala á níræð­is­aldri og frést hefur að hann gæti átt stutt eftir. Þúsundir manna hafa safn­ast saman fyrir utan spít­ala­glugg­ann og Fídel spyr aðstoð­ar­mann sinn til hvers fjöld­inn sé sam­an­kom­inn. Aðstoð­ar­mað­ur­inn svarar svo um að fólkið sé komið til að kveðja. Þá spyr Fídel: „Hver er allt þetta fólk að fara?“

Ein algeng­asta spurn­ingin um Kúbu áður Fídel dó hljóð­aði svo: „Verður maður ekki að heim­sækja Kúbu áður en Castro deyr?“ Margir sáu fyrir sér alls­herjar inn­reið banda­rískrar neyslu­hyggju eftir frá­fall hans. Í fyll­ingu tím­ans myndu Coca Cola og McDonalds aug­lýs­ingar hylja ásýnd Havana­borgar með öll sín fal­legu sér­kenni eins og spænskan nýlendu-arkítektúr, sól­brúnt fólk og amer­ískra dreka og aðra forn­bíla sem þjóta um göt­urnar eins og í gömlum bíó­myndum.

Rétt svar er að það verður alltaf gaman að koma til Kúbu. Fídel skilur eftir sig þjóð­fé­lag sem er útsjón­ar­sam­ara en flest önnur á heimskringl­unni. Útlensk heims­veldi og neyslu­vörur munu aldrei skyggja á lífs­gleð­ina sem ein­kennir eyja­skeggja á Kúbu. Sem dæmi um ein­stakt lífs­við­horf Kúbverja má benda á að ekki er hægt að ganga niður eina ein­ustu götu í land­inu án þess að vera heilsað af blá­ó­kunn­ugum manni og finna sig knú­inn til að kasta kveðj­unni til baka.

Til að fá hug­mynd um hvaða breyt­ingar og þróun eru í nánd þarf fyrst að gefa glögga mynd af því hvernig venju­legir Kúbverjar kom­ast í gegnum dag hvern. Lífið á Kúbu er öðru­vísi en víð­ast hvar ann­ars staðar. Ástæður eins og vöru­skortur og fátækt eru á meðal helstu skýr­ing­anna en hér að neðan eru fleiri ástæður tíund­aðar:

Tvöfalt peningakerfi

Á Kúbu eru tveir gjald­miðlar í notkun. kúbverski pesóinn (CUP) er í dag­legu tali kall­aður inn­lent reiðufé (moneda nacional á spænsku). Rík­is­starfs­menn fá greitt í þessum gjald­miðli og greiða með honum fyrir helstu nauð­synja­vörur. Sumar, eins og brauð og egg, eru veru­lega nið­ur­greiddar af rík­inu og skammt­aðar skv. bók.

Hinn gjald­mið­ill­inn heitir skipt­an­legi pesóinn (CUC). Í dag­legu tali er jafnan vísað í skamm­stöfun hans sem gæti hljó­mað skemmti­lega í eyrum Íslend­inga. CUC má skipta í hlut­föll­unum einn á móti einum við Banda­ríkja­dal á ábyrgð Seðla­bank­ans. Tilurð skipt­an­lega pesóans má rekja til svo­kall­aðra doll­ara­búða sem opn­uðu árið 1993 og ein­ungis útlend­ingar og þeir sem höfðu sér­stakt leyfi máttu versla þar. Árið 2004 var hætt að taka við doll­urum í þessum búðum og skipt yfir í hina sér­stöku kúbversku mynt, skipt­an­lega pesóann eða CUC. Smátt og smátt fjölg­aði búð­unum sem tóku við skipt­an­lega pesó­anum (m.a. á bens­ín­stöðvum) og notkun hans breidd­ist út. Flestöll við­skipti í höf­uð­borg­inni Havana fyrir utan almenna mat­vöru fara nú fram í kúk.

Opin­ber­lega er gengi CUP gagn­vart CUC einn á móti einum en í praxís er gengið 25 á móti 1. Örfáar opin­berar stofn­anir nota opin­bera gengið. Sem dæmi má nefna að miði á sýn­ingu þjóð­ar­ball­ets­ins fræga kostar 30 CUP (um 150 íslenskar krónur) fyrir Kúbverja en fyrir útlend­inga kostar hann 30 CUC (um 3.500 krónur). Hins vegar nota græn­met­is­salar raun­veru­lega gengið og selja pundið af tómötum á 5 inn­lenda pesóa en ef kaup­and­inn þarf að greiða í skipt­an­lega pesó­anum borgar hann 20 CUC sent (um 25 krónur íslenskar).

Kúbverjar upp­lifa mun­inn á pen­ing­unum þannig að þeir sjálfir eru dæmdir til að versla með verð­lít­inn pappír á meðan útlend­ingar og Kúbverjar sem fá pen­inga­send­ingar erlendis frá kaupa vand­aðri vörur sem verð­lagðar eru í doll­urum.

Helsti kostur inn­lenda pesóans er að almenn­ings­vagnar taka hálfan slíkan í far­gjald. Það kostar því heilar fimm krónur íslenskar að taka strætó á Kúbu ef fólk er til í troðn­ing­inn. Einnig er það kostur að fyrir flestar nið­ur­greiddar nauð­synja­vörur sem skammt­aðar eru þarf ein­ungis að greiða fárán­lega lágar upp­hæðir í CUP. Í hverjum mán­uði fær fá full­orðnir 5 pund of grjónum, 3 pund af hvítum sykri, 2 pund af brúnum sykri, 1 lít­inn pakka af kaffi, 1,5 pund af kjúklingi, hálft pund a svörtum baunum, 5 egg og 250 gr af mat­ar­olíu. Allt þetta í skiptum fyrir nokkra inn­lenda pesóa sem jafn­gilda u.þ.b. einum glans­andi íslenskum fimm­tíu­kalli. Á þriggja mán­aða fresti fá þeir 1 kg af salti þannig að sjaldan er mat­ur­inn bragð­laus.

Nýlega inn­leiddu stjórn­völd reglu­gerð þar sem allir sölu­staðir sem taka við skipt­an­lega pesó­anum voru skyld­aðir til að taka einnig við inn­lenda pesó­anum. Var þetta gert til að reyna jafna hlut gjald­miðl­anna tveggja og auka vöru­úr­val fyrir almenn­ing.

Efna­hags­um­bætur Raúl Castro, sem tók við sem for­seti Kúbu af bróður sínum þegar hann veikt­ist árið 2006, eru undir miklum áhrifum ráð­gjafa frá Kína. Þar í landi var sams konar tvö­falt pen­inga­kerfi við líði allt fram til 1987. Það kerfi var einnig hugsað fyrir útlend­inga sem þurftu að kaupa FEC (e. Foreign Currency Permit) erlendis fyrir erlendan gjald­eyri. Ólíkt CUC sem er skipt­an­legt út fyrir dollar var FEC væri skráð í kín­verskum júönum með u.þ.b. 20% álagn­ingu. Það kerfi var end­an­lega afleitt sam­fara bættum efna­hag. Síðar átti júanið eftir að styrkj­ast svaka­lega.

Kúba á langt í land með geta afleitt tvö­falda pen­inga­kerfið. Enn fremur sér ekki fram á að end­ur­bætur svip­aðar þeim og ollu kín­verska krafta­verk­inu muni eiga sér stað í bráð.

Helsti mun­ur­inn er sá að þegar Deng Xiaoping opn­aði Kína fyrir erlendum við­skiptum tók umheim­ur­inn vel á móti kín­verskum vörum og síðar fjár­magni. Þegar Raúl byrj­aði að opna Kúbu var við­skipta­bann Banda­ríkj­anna við líði og er það enn þrátt fyrir þýðu í sam­skiptum við rík­is­stjórn Obama.

Kúbverska rík­is­stjórnin hefur heldur ekki boðið erlendu og brott­fluttu kúbversku við­skipta­fólki að koma með fjár­fest­ingu inn í landið. Hin risa­vaxna og flókna inn­viða- og fram­leiðslu­fjár­fest­ing sem er í Kína þekk­ist ekki á Kúbu.

Fyrir utan nokkur dæmi um opin­ber verk­efni rík­is­ins og erlendra aðila þora ein­ungis örfáir erlendir ævin­týra­menn, oft giftir kúbverskum mökum, að koma með fjár­magn inn í landið og reyna byggja þar upp stöndug fyr­ir­tæki. Til dæmis eru aðeins 20 Bretar skráðir til búsetu á Kúbu.

Efnahagsbreytingar Raúls

Árið 2006 varð Fídel Castro svo veikur að hann þurfti að láta af emb­ætti. Hver veik­indin voru nákvæm­lega hefur aldrei verið útskýrt opin­ber­lega en kenn­ingar um ristil­krabba­mein eða aðra kvilla í melt­ing­ar­vegi hafa hlotið mestan hljóm­grunn. Vitað er að hann var skor­inn upp á Spáni. Heims­pressan stóð á önd­inni og beðið var eftir því hvort honum yrði end­ur­kvæmt aftur heim til Kúbu.

Þegar hann féll frá tíu árum síðar tjáðu stjórn­völd sig ekki um dán­ar­or­sök hans. Líklegt er að hann hafi átt við ban­væn veik­indi að stríða síð­asta ára­tug ævinnar. Sú stað­reynd end­ur­speglar enn frekar ein­stakt lang­lífi hans.

For­seta­emb­ættið fór fyrst tíma­bundið til Raúl Castro. Innan nokk­urra ára var hann form­lega búinn að taka við flestum æðstu stöðum rík­is­ins frá bróður sínum.

Í stað þess að fylgja hug­sjónapóli­tík eldri bróður síns tók Raúl fljót­lega til handa við efna­hags­legar end­ur­bætur sem eng­inn gat ímyndað sér að Fídel hefði nokkurn tíma sam­þykkt í stjórn­ar­tíð sinni.

Hann byrj­aði á því skipa hátt setta menn í hernum í æðstu emb­ætti rík­is­stjórn­ar­innar. Oftar en ekki voru þetta gamlir full­trúar úr stjórn­sýslu hers­ins. Aðspurður af því af hverju hann leit­aði til þeirra svar­aði hann að þetta væru menn sem hann gæti treyst.

Eftir að hafa tryggt bak­land sitt leyfði hann einka­fram­tak í ákveðnum atvinnu­greinum líkt og hár­snyrt­ingu og veit­inga­rekstri. Hann sagði upp hund­ruðum þús­unda rík­is­starfs­manna og sagði í ræðu á þing­inu árið 2010: „Við verðum að stroka út þá ímynd fyrir fullt og allt að Kúba sé eina landið í heim­inum þar sem fólk geti lifað líf­inu án þess að vinna.“

Hann skar niður eða aflagði hádeg­is­verð­ar­mötu­neyti fyrir rík­is­starf­semi sem láku gríð­ar­legu magni mat­væla sem hrein­lega var stolið. Í stað­inn fengu þeir mat­ar­pen­inga sem duga ekki fyrir litlum pizzum með smá sósu og osti sem nú eru bak­aðar á flestum götu­hornum. Sam­an­brotnar gæða Kúbverjar sér á þeim inni í hálfri A4 ljós­rit­un­ar­blað­síðu.

Raúl minnk­aði nið­ur­greiðslur rík­is­ins á ýmsum vöru- og þjón­ustu­teg­undum án þess þó, líkt og Deng gerði í Kína, að eyði­leggja heil­brigð­is­kerfið. Almenna mennta- og heil­brigð­is­kerfið er enn til fyr­ir­myndar fyrir alla Amer­íku­álfu. Því til við­bótar er félags­legur jöfn­uður og jafn­ræði kyn­þátta eft­ir­tekt­ar­verður á Kúbu, sér­stak­lega í sam­an­burði við stóra grannan í norðri, Banda­ríkin.

Raúl er eng­inn aukvisi þegar kemur að því að stjórna. Hann hefur ekki vílað fyrir sér að reka hátt­setta emb­ætt­is­menn ef upp kemst um brigsl. Það gerði hann m.a. árið 2009 þegar mynd­bands­upp­tökur sýndu nokkra af æðstu leið­togum lands­ins standa saman í veislu og hneyksl­ast manna­breyt­ingum Raúls sem voru í gangi. Í það skiptið rak hann fyrrum einka­rit­ara Fídels, Felipe Perez Roque, sem þá var utan­rík­is­ráð­er­herra spáð að yrði næsti for­seti lands­ins.

Sá sem nú þykir lík­leg­astur til að taka við nú er Miguel Diaz-Canel. Hann er fyrrum fylk­is­stjóri Santa Clara, mennta­mála­ráð­herra og vara-for­sæt­is­ráð­herra í dag. Hann þykir vera praktískur rekstr­ar­maður sem lætur lítið fyrir sér fara. Hann var Bítla­að­dá­andi og lét sér vaxa langt hár í þá tíð þegar litið var niður á þess slags nýmóð­ins fólk.

Diaz-Canel brýtur ekki eitt af skil­yrð­unum sem Raúl hefur sett fyrir fram­tíðar leið­toga lands­ins. Líkt og í Komm­ún­ista­flokki Kína má ekki til­nefna menn í æðsta ráð flokks­ins eftir að þeir eru orðnir sex­tugir. Diaz-Canel verður 59 þegar Raúl lætur af völdum.

Túrismi og brottfluttir Kúbverjar

Fyrsti túrist­inn sem kom til Kúbu gæti hafa verið Krist­ó­fer Kólumbus en þangað kom hann í fyrsta Amer­íku­leið­angri sínum. Fyrst hélt hann að Kúba væri skagi sem teygði sig út úr Kína. Eyja­skeggjar sann­færðu hann um að svo væri ekki og hann hélt í austur heim á leið til Spánar.

Síðar lögðu Spán­verjar Kúbu og mest­alla Mið- og Suður Ameríku undir sig og byggðu upp sína helstu flota­stöð í Havana. Borgin var í kjöl­farið stundum kölluð Lyk­ill­inn að Indíum eða Perla Karí­ba­hafs­ins.

Öll sú atvinnu­starf­semi sem fylgir meiri háttar hafn­ar­borg og meira til skaut rótum í Havana. Bak­ara­iðnin skaff­aði þurrt brauð sem bakað var úr möl­uðu inn­lendu rót­ar­græn­meti og ent­ist vel á löngum sjó­ferðum. Brátt varð syk­ur­reyr helsta útflutn­ings­varan og úr honum var eimað úrvals romm. Sér­stak­lega vin­sælt var og er að njóta þess með annarri útflutn­ings­vöru, kúbverska vindl­inum.

Allt þetta, nema áður­nefnt brauð, stendur nú aftur til boða í Havana eftir að Fídel Castro opn­aði landið fyrir erlendum ferða­mönnum. Hann var neyddur til þess vegna skorts á gjald­eyri í kjöl­far falls Sov­ét­ríkj­anna snemma á tíunda ára­tugnum. Þar með hvarf helsti við­skipta­vin­ur­inn sem keypti sykur frá Kúbu dýrar en á heims­mark­aðs­verði.

Af öllum þeim lægðum og kreppum sem herjað hafa á landið í seinni tíð er engin sem hlotið hefur sér­stakt nafn líkt og sú sem geis­aði eftir fall Sov­ét­ríkj­anna. Tíma­bilið er kallað sér­staki tím­inn (per­iodio especial á spönsku). Forsaga þess á rætur sínar að rekja til fyrstu áranna eftir bylt­ing­una.

Fídel Castro stóð upp sem sig­ur­veg­ari í frels­is­bylt­ingu Kúbverja árið 1959. Þar með los­aði hann landið, fyrstur þjóð­ar­leið­toga Kúbverja, undan afskiptum erlendra heims­velda (Banda­ríkj­anna á þessum tíma en áður Spánar og um skamma hríð, Bret­lands). Fljót­lega varð ljóst að Fídel og Banda­ríkin áttu ekki sam­leið og rík­is­væddi Fídel fjölda syk­ur­plantekra og fyr­ir­tækja sem áður höfðu notið for­gangs á eynni vegna banda­rísks eign­ar­halds.

Fídel hall­aði sér upp að Sov­ét­ríkj­unum og seldi þeim sykur í skiptum fyrir Lödur og kjöt í nið­ur­suðu­dósum. Kúbu­deilan árið 1962 tryggði Fídel og Kúbu skringi­legan frið­ar­samn­ing við Banda­ríkin. Komm­ún­ism­inn virk­aði fyrir Kúbu með stuðn­ingi Sov­ét­ríkj­anna, jöfn­uður óx, fólk lifði lengur og allir hlutu menntun. Á átt­unda ára­tugnum fór siða­boð­skapur stjórn­valda að ganga of langt og lit­ríkt menn­ing­ar­líf eyj­unnar, sér­stak­lega tón­list og dans, mátti þola fyrir það.

Hrun Sov­ét­ríkj­anna kippti fót­unum undan efna­hags­legu öryggi þjóð­ar­innar. Ekki var til erlendur gjald­eyrir til að kaupa vara­hluti í vél­arnar í verk­smiðj­unum og talið er að 60 pró­sent þeirra hafi ein­fald­lega lokað. Havana­borg og landið allt ber þess glögg merki þar sem yfir­gefnar verk­smiðjur ryðga og rotna innan um íbúða­hverfi og lestar sem eru löngu hættar að ganga.

Sárlega vant­aði erlendan gjald­eyri og Fídel vissi vel að Kúbueyja gæti alltaf dregið að sér túrista. En í þetta skiptið fengju þeir ekki aðeins að sóla sig á hvítum ströndum þar sem hafið er blá­grænt og krist­al­tært. Nú fengju þeir líka að verða vitni að einu útsjón­ar­samasta og sjálf­bærasta sam­fé­lagi heims. Þar eiga bíl­arnir, líkt og kett­irnir, sér níu líf og heima­menn sár­langar til að tala við erlenda gesti um lífið í öðrum löndum og helsta sam­eig­in­lega áhuga­mál þjóð­ar­innar, hafna­bolta.

Stjórn­völd höfðu einnig ýmist horft í gegnum fingur sér eða ein­fald­lega leyft þeim sem vildu flytja á brott að reyna fleyta sér 90 mílur yfir fló­ann til Flórída á alls kyns heima­gerðum flekum (sá flott­asti var víst Chevrolet sem hafði verið breytt í bát).

Flótta­menn­irnir hafa síðan stutt fjöl­skyldur sínar heima á Kúbu með pen­inga­send­ingum sem fyrir löngu eru orðnar helsta tekju­lind lands­ins. Árið 2012 er talið að 5 millj­arðar doll­ara hafi verið sendar til Kúbu á hverju ári í beinum pen­inga­send­ingum eða sem vörur sem fólk ber með sér á eyna í ferða­töskum. Sú tala er hærri en það sem landið þénar á fjórum stærstu atvinnu­grein­unum: túrisma, syk­ur­fram­leiðslu, nikk­el­náma­vinnslu og lyfja­fram­leiðslu.

Hvorki Fídel né Raúl Castro né heldur nokkur kúbverskur hag­fræð­ingur getað ímyndað sér að stærsta tekju­lind þjóð­ar­innar í fram­tíð­inni kæmi frá „mús­unum sem flúðu skipið.“

Kúba eftir Fídel

Þegar Fídel Castro féll frá nýlega var fljót­lega lýst yfir 9 daga þjóð­ar­sorg. Það kvis­að­ist út þetta ætti að vera þurr þjóð­ar­sorg, þ.e.a.s. háværar skemmt­anir yrðu bann­aðar og áfengi yrði ekki til sölu á meðan henna stæði. Ansi margir brugð­ust við með því að rjúka út í búð og kaupa sér romm­flösku til að skála fyrir Fídel og „drekka“ frá sér sorg­ina.

Sann­leik­ur­inn er sá að kúbverjar orðnir lang­þreyttir á þeirri rús­sí­ban­areið sem valda­tími þeirra Castro bræðra hefur verið. Að sama skapi gera þeir sér flestir grein fyrir því að Fídel tókst það sem engum kúbverskum for­seta hafði tek­ist áður, að tryggja land­inu sjálf­stæði án inn­gripa frá erlendum heims­veldum.

Kald­hæðni örlag­anna er sú að yngri bróðir Fídels og núver­andi for­seti, Raúl, er í augum margra orðin helsta vonin um langvar­andi breyt­ingar til hins betra. Frá því hann tók við for­seta­emb­ætt­inu árið 2006 hafa nokkur hænu­skref verið stig­inn í átt að frjáls­ara og opn­ara hag­kerfi. Hann hefur lýst því yfir að hann láti af emb­ætti árið 2018. Enginn veit hvort sá sem tekur við muni halda áfram með end­ur­bætur.

Upp­gangur er mik­ill í land­inu og almennt er til­finn­ingin sú að end­ur­bóta­stefnan sem Raúl er búinn að skapa tryggi bætt lífs­gæði og áfram­hald­andi tak Komm­ún­ista­flokks­ins á stjórn­ar­taumunum.

Annar brand­ari um lang­lífi Fídels fjallar um heim­sókn hans í dýra­garð­inn í Havana. Þar er honum færð að gjöf sjald­gæf skjald­baka og sagt að hún gæti orðið 400 ára gömul. Hann afþakkar hana þar sem hann vill ekki þurfa að syrgja hana þegar hún fellur frá.

Fídel Castro Ruz dó þann 25. nóv­em­ber árið 2016, níræður að aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár