Topp 10 - Jólalög

Það eru mörg jóla­lög til en sum eru betri en önnur. Þannig er nú það.

Hugtakið jóla­lag er eitt það teygj­an­leg­asta sem til er í tón­list. Einu skil­yrðin sem lag þarf að upp­fylla til að telj­ast jóla­lag er að það vitni ein­hvers staðar í jólin og/eða að það sé aðal­lega spilað um hátíð­arnar. Það eru til jóla­lög í öllum geirum tón­list­ar­innar og flestir eiga sín upp­á­halds jóla­lög. Yfir­leitt eru það lög sem maður heyrði oft sem barn því jólin eru jú hátíð barn­anna. End­ur­tekn­ingin er því eitt helsta ein­kenni jólatón­listar. Í hverjum ein­asta nóv­em­ber byrja að heyr­ast sömu gömlu lögin og jóla­lag getur ekki talist vel heppnað nema það hafi verið flutt af mörgum flytj­endum. Hér eru nokkur af þeim allra bestu.

[adspot]

10. The Christmas Song

The Christmas Song er silki­mjúkt djasslag sem samið var árið 1945 af banda­rísku laga­höf­und­unum Mel Tormé og Robert Wells. Ári seinna fengu þeir hinn mikla baritón Nat King Cole til að taka lagið upp og það náði tölu­verðum vin­sældum. Cole tók lagið reyndar upp í nokkur skipti og margt sam­tíma­fólk hans spreytti sig einnig á því, s.s. Frank Sinatra, Bing Crosby og Judy Garland. Texti lags­ins er ekki upp á marga fiska. Hann fjallar um jóla­and­ann, eft­ir­vænt­ingu barna og alls kyns hluti sem ein­kenna jólin. Titill lags­ins er einnig mis­heppn­aður þar sem flestir þekkja fyrstu línu lags­ins (Chestnuts roasting on an open fire) mun betur og halda að það sé tit­ill­inn. Það sem gerir lagið svo gott er því fyrst og fremst óað­finn­an­legur flutn­ingur Cole. Laginu hefur verið snúið upp á íslensku, fyrst af hljóm­sveit­inni Bruna­lið­inu árið 1978 í mjög popp­aðri útgáfu. Hét lagið þá Þor­láks­messu­kvöld.

9.Little Saint Nick

Jólin eru ekki það fyrsta sem kemur upp í hug­ann þegar minnst er á hjómsveit­ina The Beach Boys, frekar sandur og sól. Engu að síður tóku þeir upp heila jóla­plötu árið 1964, The Beach Boy´s Christmas Album, sem fékk mjög góðar við­tökur og þykir sígild í dag. Vin­sælasta lag plöt­unnar, Little Saint Nick, kom út ári áður og er byggt á eldra lagi þeirra Little Deuce Coupe. Little Deuce Coupe er eitt af fjöl­mörgum Beach Boys lögum sem fjalla um bíla. Þeir yfir­færðu bíla­dell­una á Little Saint Nick nema þá fjall­aði lagið um sleða jóla­sveins­ins. Sleðinn er svo mikið trylli­tæki að sveinki þarf að nota akst­urs­gler­augu og ein­hverra hluta vegna gengur sleð­inn bæði fyrir bens­íni og hrein­dýra­afli. Þó að lagið sé hefð­bundið brim­bretta­lag þá dugar text­inn og nokkrar sleða­bjöllur til þess að maður sé sann­færður um jóla­gildi þess.

8. Ef ég nenni

Ein af und­ar­leg­ustu hefðum sem skap­ast hafa í íslenskri tón­list er það að breyta ítölskum dæg­ur­lögum í jóla­lög. Þar má t.d. nefna lögin Ég hlakka svo til, Þú komst með jólin til mín og Þú og ég og jól. Þegar maður heyrir lagið Ef ég nenni með Helga Björns­syni þá er óþarfi að gúgla hvaðan það er, ítölsku áhrifin leyna sér ekki. Lagið heitir á frum­mál­inu Cosi Celeste (Svo himnesk) og er eftir Zucchero Fornaciari. Lagið var þýtt yfir á íslensku árið 1955, sama ár og það kom út í Ítalíu. Cosi Celeste er ást­ar­söngur og Ef ég nenni líka en mun­ur­inn er aftur á móti sá að í loka­vers­inu á því síð­ar­nefnda er minnst á jólin. Lagið hefur haldið vin­sældum sínum í 20 ár og er það ávallt meðal mest spil­uðu jóla­lag­anna í útvarpi. Árið 2014 var Ef ég nenni valið besta íslenska jóla­lagið af 24 manna dóm­nefnd.

7. Santa Baby

Santa Baby er með ósæmi­legri jóla­lögum sem til er. Þetta er rólegt djasslag, samið árið 1953 af Joan Javits og Philip Springer og flutt af söng­kon­unni Eartha Kitt. Kitt flutti lagið svo í söng­leikja­mynd­inni New Faces ári seinna. Kitt gerði út á kyn­þokk­ann á sínum ferli og hann kemur ber­sýni­lega í ljós í Santa Baby, hennar lang­þekktasta lagi. Lagið rambar reyndar á barmi þess að vera bein­línis klám­fengið. Í lag­inu syngur Kitt beint til jóla­sveins­ins á mjög svo tælandi hátt og í lok lags­ins heimtar hún hring. Það er þó ekki það eina sem hún heimtar. Lagið er stút­fullt af neyslu­hyggju þar sem Kitt finnst t.d. sjálf­sagt að sveinki gefi sér snekkju og fylli út ávís­anir fyrir sig til að eyða út í bæ. Fjöl­margar söng­konur á borð við Madonnu og Kylie Minogue hafa fetað í fót­spor Kitt og jafn­vel reynt að toppa hana í kyn­þokk­anum. Engin útgáfa jafn­ast þó á við þá upp­runa­legu.

https://www.youtube.com/watch?v=DeNhjPaP53I

6. Litli trommuleikarinn

Litli trommu­leik­ar­inn var sam­inn af Katherine Kenniscott Davis, amer­ískum tón­list­ar­kenn­ara, árið 1941. Það fjallar um lít­inn fátækan dreng sem spilar á trommu fyrir nýfætt Jésú­barnið. Lagið er nokkuð lát­laust og ein­kenn­ist af takt­föstum trommuslætt­inum. Það minnir því fremur á útför her­manns heldur en jólin. Eftir að lagið var sungið af aust­ur­rísku söng­fjöl­skyld­unni Trapp (sem fjallað er um í kvik­mynd­inni Sound of Music) árið 1955 náði lagið miklum vin­sældum. Síðan þá hafa ótal söngv­arar, sér­stak­lega djúp­radd­aðir karlar, flutt lagið og er það orðið að nokk­urs konar fasta á jóla­plötum. Margir muna eftir flutn­ingi Bing Crosby og David Bowie á lag­inu og sér­lega und­ar­legu mynd­bandi sem fylgdi. Þekktast er lagið þó senni­lega í flutn­ingi country-söngv­ar­ans Johnny Cash. Fjöl­margir Íslend­ingar hafa reynt sig við lagið en eng­inn með betri árangri en sjálfur Raggi Bjarna.

5. O Helga Natt

Ó helga nótt eða Cantique de Noel eins og það heitir á frum­mál­inu er franskt lag, samið árið 1847 af Adolphe Adam við ljóð Placide Cappeau. Það náði strax mik­illi útbreiðslu og var t.a.m. þýtt yfir á enska tungu aðeins 8 árum síðar. Lagið er nokkuð hefð­bundið og það fjallar um nótt­ina sem Jésú fædd­ist og mik­il­feng­leik hans. Lagið er vel þekkt kór­a­lag en einnig hafa margir af fremstu óperu­söngvörum sög­unnar spreytt sig á því, t.d. Enrico Caruso, Luciano Pavarotti og Placido Domingo. Margir þekkja einnig stór­brotna útgáfu Eric Cartman af lag­inu. Enginn kemst þó með tærnar þar sem sænski ten­ór­inn Jussi Björling hefur hæl­ana. Björling tók lagið upp árið 1959. Þá var hann nýkom­inn af spít­ala eftir mikil hjarta­veik­indi og þá barð­ist hann einnig við alkó­hól­isma og þung­lyndi á þessum tíma. Raunir hans skína í gegn í upp­tök­unni sem gera hana svo áhrifa­mikla. Björling lést ári seinna, tæp­lega fimm­tugur að aldri.

4. God Rest Ye Merry Gentlemen

God Rest Ye Merry Gentlemen er hefð­bundið enskt jóla­lag sem flestir tengja við Vikt­or­íu­tím­ann og Jólasögu Charles Dickens. Kvæðið hefur þó verið til síðan á 16. öld og jafn­vel fyrr. Fyrsti þekkti heild­ar­text­inn er frá miðri 18. öld og um miðja 19. öld var lagið orðið mjög vin­sælt í Bret­landi. Í lag­inu er sagt frá fæð­ingu Jésúm í Bet­hlehem og flestir þekkja lín­una „To save us all fom Satan´s Power“. Það er jú fátt sem kemur manni í jafn gott jóla­skap og Satan. Lagið er þekkt kór­a­lag og einnig vin­sælt hjá litlum jóla­söng­hópum. Fjöl­margir heims­þekktir tón­list­ar­menn hafa tekið það upp í gegnum tíð­ina t.d. Bing Crosby, Nat King cole, Annie Lennox og Mariah Carey, en Youtube stjörnur sam­tím­ans hafa einnig sett það í athygl­is­verðan bún­ing. Má þar nefna accapella-hóp­inn Pentatonix og tón­list­ar­hóp­inn Post­modern Jukebox sem flytur þekkt lög í swing útgáfum.

3. Gilsbakkaþula

Gils­bakka­þula var samin laust eftir miðja 18. öld af Kolbeini Þor­steins­syni. Kolbeinn, sem síðar varð prestur í Mið­dals­kirkju við Laug­ar­vatn, samdi kvæðið um jóla­heim­sókn sína til tengda­fjöl­skyld­unnar á bænum Gils­bakka í Borg­ar­firði. Kvæðið lýsir jóla­hald­inu á bænum ítar­lega og er Guðrúnu dóttur Kolbeins sem var þá barn að aldri, í aðal­hlut­verki. Í kvæð­inu koma fyrir fjölda­mörg nöfn á fólki sem fæstir kunna deili á en það gefur því ein­stak­lega per­sónu­legan tón. Það er eins og maður sé bók­staf­lega á staðnum. Gils­bakka­þula var oft dönsuð fyrir jólin áður fyrr en sá siður er nú í dvínun. Tvær þjóð­laga­hljóm­sveitir hafa gert kvæð­inu góð skil, Savannatríóið (1963) og Þrjú á palli (1971). Það sem kvæðið er mjög langt spil­uðu hljóm­sveit­irnar ein­ungis hluta af kvæð­inu og ekki einu sinni sama hluta. Seinni útgáfan var á plöt­unni Hátíð fer að höndum ein, einni þekkt­ustu jóla­plötu Íslands.

2. O Come, O Come Emmanuel

Lagið Veni, Veni Emmanuel (Kom þú, kom vor Immanúel) er eitt af elstu þekktu jóla­lög­unum með rætur aftur til mið­alda. Laglínan er a.m.k. frá 15. öld og elstu texta­brotin hugs­an­lega frá 9. öld. Lagið segir frá Gyð­ing­unum og leit þeirra að Messíasi og svo komu Jésú Krists og upp­fyll­ingu orðs­ins. Um miðja 19. öld var það þýtt á enska tungu af prest­inum John Mason Neale og hefur það notið sér­stakrar hylli í hinum ensku­mæl­andi heim allar götur síðan. Lagið hefur verið flutt af frægum popp­stjörnum á borð við Whitney Houston, U2 og Enyu en er fyrst og fremst þekkt sem kór­a­lag. Ameríska pönk­hljóm­sveitin Bad Religion flutti athygl­is­verða útgáfu af lag­inu á jóla­plötu sinni Christmas Songs árið 2013. Greg Graffin, söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar, var sjálfur í kirkjukór á yngri árum.

1. Fairytale of New York

Lagið er afurð veð­máls milli með­lima hljóm­sveit­ar­innar The Pogues og hljóð­bland­ara þeirra, Elvis Costello. The Pogues sömdu lagið og fengu Kirsty MacColl, dóttur þjóð­laga­söngv­ar­ans Ewan MacColl, til að syngja með. Lagið, sem er nokkuð hefð­bundin þjóð­laga­ball­aða með mjög óhefð­bundnum texta, kom svo út fyrir jólin árið 1987. Lagið fjallar um rifr­ildi fylli­byttupars í New York borg og er það bæði dóna­legt og róm­an­tískt í senn. Þrátt fyrir að vera jóla­lag þá koma ýmis blóts­yrði á borð við slut, arse, scumbag og faggot fyrir í því. Í sumum útgáfum er þó búið að skipta faggot út fyrir hagg­ard. Það er að miklu leyti vegna orð­bragðs­ins sem lagið varð svo vin­sælt og þá sér­stak­lega hvernig MacColl hreytti óþverr­anum út úr sér. Lagið er lang­vin­sælasta lag söng­kon­unnar sem lést langt fyrir aldur fram í köf­un­ar­slysi í Mexíkó. Lagið hefur notið nán­ast sam­felldra vin­sælda síðan þá og rýkur upp vin­sælda­listana í Bret­landi á hverju ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár