Guðni vill að þingmenn endurheimti traust Alþingis

„End­ur­heimt trausts er í senn mögu­leg og brýn. Nú er lag að auka veg­semd þings­ins og virð­ingu – takast vissu­lega á í þing­sal, deila hart ef svo ber undir, en bæta vinnu­brögðin, við­mótið, reglur og þing­sköp. Um leið skulum við halda í heiðri góðar hefðir og venjur, læra af sög­unni, hafa víti til varn­aðar.“ Þetta sagði Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, við þing­setn­ingu Alþingis í dag.

Þetta var fyrsta þing­setn­ing Guðna frá því að hann var kjör­inn í emb­ætti for­seta Íslands í sumar. Hann ræddi um þær óvenju­legu aðstæður sem Alþingi kemur nú saman við, þar sem ekki hefur enn tek­ist að mynda nýja rík­is­stjórn. Hann tal­aði einnig um Kristján Eldjárn, þriðja for­seta Íslands, en öld er í dag frá fæð­ingu hans. „Ekki er örgrannt um að almenn­ingi hafi þótt til vansa hve illa þing­inu gekk að mynda rík­is­stjórnir síð­ustu ár Krist­jáns Eldjárns á for­seta­stóli,“ sagði Guðni, en áfram hafi kjós­endur þó treyst Alþingi.

„Sú er því miður ekki raunin um okkar daga. Fleira hrundi en bankar haustið 2008. Fólki fannst þingið hafa brugð­ist. Þótt margt hafi breyst til batn­aðar er ljóst að ekki hefur skap­ast á ný það traust sem þarf að ríkja milli þings og þjóðar. Íslend­ingar dæma alþing­is­menn af verkum þeirra, fram­komu og starfs­háttum.“ Úrbóta væri þörf í þingsalnum, og um það væru margir sam­mála. „Deilu­efni þurfa ítar­lega umræðu en mál­þóf vekur furðu fólks og andúð. Meiri­hluti þarf að hafa úrslita­vald en þeir sem eru í minni­hluta verða að geta haft áhrif á gang mála.“

Guðni gerði einnig að umtals­efni hversu margir nýir þing­menn væru nú komnir til starfa á Alþingi. Aldrei áður hafi eins margir nýliðar sest á þing, rúm­lega helm­ingur þing­manna. Aldrei hafi þing­reynsla verið eins lítil, aldrei hafi eins margar konur verið í þing­heimi og lík­lega hafi bak­grunnur þing­manna aldrei verið eins fjöl­breyttur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár