Trans konan sem skók tennisheiminn

Tenn­is­fer­ill­inn hjá Rennée Richards var óvenju­legur.

Fyrir 40 árum síðan olli trans­konan Renée Richards miklu fjaðrafoki þegar hún sigr­aði tennis­mót í kvenna­flokki. Tenn­is­sam­böndin, aðrir kepp­endur og áhorf­endur brugð­ust illa við og reyndu að úti­loka hana frá þát­töku. Richards hélt þó ferli sínum til streitu og er í dag talin braut­ryðj­andi í mál­efnum trans­fólks og sam­kyn­hneigðra. Richards stendur nú á vissum tíma­mótum og því vert að renna yfir ótrú­legt lífs­hlaup hennar.

Fyrirmyndardrengur

Renée Richards fædd­ist sem Richard Raskin, þann 19. ágúst árið 1934 Í New York, sonur hjón­anna David og Sade Muriel Raskind. Raskind hjónin voru gyð­ingar af rúss­neskum ættum sem bjuggu í Queens hverf­inu og störf­uðu bæði sem læknar. David var bækl­un­ar­læknir en Sade geð­læknir og jafn­framt pró­fessor við Columbia háskóla. Richard átti eina eldri systur og Sade sá aðal­lega um upp­eldi barn­anna þar sem David var mikið fjar­ver­andi.

Strax á barns­aldri var Richard for­vit­inn um kyn sitt og hann laum­að­ist iðu­lega í fata­skáp systur sinnar og klæddi sig upp. Það kom stundum fyrir að hann fór út fyrir húsið í kjól en fáir vissu af þessu engu að síður. Richard gekk vel í skóla og stefndi á að fylgja í fót­spor for­eldra sinna, þ.e. í lækna­nám. En á mennta­skóla­aldri kom í ljós að hann var frá­bær íþrótta­maður einnig. Hann stund­aði margar íþróttir s.s. hafna­bolta, amer­ískan ruðn­ing, sund og tennis. Hann þótti einkar góður kast­ari í hafna­bolta og atvinnu­manna­lið úr MLB deild­inni tóku eftir honum. Hugur hans var þó við tennis­í­þrótt­ina sem hann hélt áfram að stunda eftir að hann hóf háskóla­nám.

Hann fór í hinn virta Yale háskóla og svo Lækna­skól­ann í Rochester í sér­nám þar sem barna­augn­lækn­ingar urðu fyrir val­inu. Náms­ferl­inum lauk hann svo í New York þar sem hann kláraði verk­námið. Allan þennan tíma spil­aði hann tennis og þótti með þeim bestu í land­inu. Á árunum 1953 til 1960 keppti hann 5 sinnum á Opna amer­íska meist­ara­mót­inu sem áhuga­maður en komst aldrei mjög langt. Eftir námið gekk hann í lækn­is­þjón­ustu sjó­hers­ins og þar spil­aði hann einnig tennis. En þrátt fyrir að vera mjög efni­legur leik­maður var ljóst að fer­ill hans sem læknir varð að ganga fyrir og því sótt­ist hann ekki eftir því að ger­ast atvinnu­maður í íþrótt­inni.

Gervilíf

Á fyrri hluta átt­unda ára­tug­ar­ins virt­ist lífið leika við Richard Raskind. Hann var einn af fremstu augn­læknum lands­ins og þén­aði vel. Hann var ævin­týra­gjarn, tók flug­próf og ferð­að­ist víða. Árið 1970 gift­ist hann fyr­ir­sæt­unni Barböru Mole og þau eign­uð­ust son tveimur árum síðar. En undir niðri kraum­aði óánægja sem braust af og til fram þar sem Richard fannst hann lifa eins konar gervi lífi. Gervið fólst í því að þykj­ast vera karl­maður. Á háskóla­ár­unum hafði hann fiktað við að klæð­ast kven­manns­fötum en þó yfir­leitt inn­an­dyra. Banda­ríki Eisenhower-tím­ans höfðu hvorki skiln­ing á né umburð­ar­lyndi fyrir slíku athæfi. Hann taldi sjálfur að hann ætti við geðjúk­dóm að stríða og leit­aði sér því lækn­is­hjálpar. Sú “hjálp” fólst í sál­fræði-og horm­óna­með­ferð, 5 daga vik­unnar um margra ára skeið. Þetta hafði þó engin áhrif á hneigð Richards sem hélt áfram að klæð­ast kven­fatn­aði. Um miðjan sjö­unda ára­tug­inn ferð­að­ist hann til Evrópu þar sem hann þorði að klæð­ast kven­fatn­aði utandyra.

Já, ég held að ég hafi ekki blekkt marga, en ég var sátt við sjálfa mig.

Á þessum tíma­punkti var hann hárs­breidd frá því að fljúga yfir Mið­jarð­ar­hafið og gang­ast undir kyn­leið­rétt­ingu í borg­inni Casablanca í Marokkó. Hann ákvað þó að snúa við til Banda­ríkj­anna þar sem beið hans gervi­lífið og djúpt þung­lyndi. Hann klædd­ist þó endrum og eins kven­fatn­aði, t.d. á kvöldin þegar hann fór út að ganga með hund­inn. Þetta gat þó ekki gengið til lengdar og árið 1975 skildu Richard og Barbara. Þetta sama ár lagð­ist hann inn á spít­ala í New York og gekkst undir skurð­að­gerð og kyn­leið­rétt­ingu. Hinn nýi ein­stak­lingur fékk nafnið Renée Richards eða Richard end­ur­fæddur.

Hún er karlmaður!

Hluti af end­ur­fæð­ing­unni var að flytja sig um set og hefja nýtt líf. Renée Richards flutti því til Suður-Kali­forníu þar sem hún hélt áfram ferl­inum sem augn­læknir. Þá tók hún upp gam­alt áhuga­mál, tennis­í­þrótt­ina, og hóf að spila í litlum klúbbi sem kenndur er við Hollywood leik­ar­ann John Wayne. Þá kall­aði hún sig reyndar Renée Clark. Aðrir klúbb­með­limir tóku strax eftir hæfi­leikum hennar og því var hún hvött til að taka þátt í litlu móti í nágrenn­inu. Vinir hennar vör­uðu hana við því að taka þátt þar sem mótið gæti komið henni í klípu en Renée skráði sig full sjálfs­trausts og vann mótið. Þá fékk einn sjón­varps­frétta­maður veður af því að eitt­hvað væri sér­stakt við þetta. Clark var umtals­vert hávaxn­ari en keppi­nautar hennar, næstum 190 cm á hæð, og karl­mann­legri í vexti og and­lits­dráttum. Frétta­mað­ur­inn kaf­aði í málið og komst að for­sögu hennar. Í kjöl­farið birt­ist frétt sem fór eins og eldur í sinu um gjörvöll Banda­ríkin. Sig­ur­veg­ari móts­ins var karl­maður!

Þetta var ekki það sem Richards vildi, þ.e. að verða fjöl­miðla­matur, og hún hafði engar fyr­ir­ætl­anir um það að halda keppn­is­ferl­inum áfram. Hún var í góðu starfi og þar að auki komin á fimm­tugs­aldur. Engu að síður voru for­svars­menn Banda­ríska tenn­is­sam­band­is­ins (USTA) fljótir að senda frá sér yfir­lýs­ingu um að hún væri ekki vel­komin á mót á þeirra vegum s.s. Opna amer­íska meist­ara­mótið. Þetta þoldi Richards ekki og leit á sem áskorun af hálfu sam­bands­ins. Hún sótti því um að taka þátt á Opna amer­íska árið 1976. Til að koma í veg fyrir að hún tæki þátt setti tenn­is­sam­bandið reglur um að kepp­endur yrðu að gang­ast undir svo­kallað Barr-litn­inga­próf. Richards neit­aði og fór með málið fyrir dóm­stóla. Vörn hennar fólst í því að prófið væri gróf mis­munun og því um mann­rétt­inda­mál að ræða, hún væri jú laga­lega séð kona. Richards tap­aði mál­inu í hér­aði og fékk ekki að taka þátt á mót­inu en eftir að áfrýj­un­ar­dóm­stóll dæmdi henni í vil ári seinna var henni heim­ilt að taka þátt í öllum mótum á vegum sam­bands­ins í kvenna­flokki. Hún ákvað því að hefja feril sem atvinnu­maður í grein­inni.

Hörð viðbrögð

Richards leit ekki á sig sem fram­herja í bar­áttu trans­fólks eða sam­kyn­hneigðra. Þetta var per­sónu­legt rétt­læt­is­mál fyrir hana.

Ég vissi ekk­ert hvað ég var að gera. Fólk gerir oft hluti sem eru taldir hetju­dáðir án þess að átta sig á því hvað það er búið að koma sér út í. Og það á við í mínu til­felli.

Um fátt annað var talað en Renée Richards fyrir Opna amer­íska árið 1977 og skipt­ist fólk alger­lega í tvær fylk­ingar hvað varðar þát­töku hennar. Vörn tenn­is­sam­bands­ins fyrir dóm­stólum hafði fyrst og fremst verið sú að Richards hefði óeðli­legt for­skot á aðra kepp­endur. Ekki ein­ungis hæð­ina heldur einnig vöðvamass­ann, lík­am­legan þroska og þjá­flun sem karl­maður í mörg ár. Ef henni yrði leyft að taka þátt þá myndi það opna á að aðrir karl­menn myndu jafn­vel fara í slíka aðgerð í þeim til­gangi að keppa í kvenna­flokki. Undir þetta sjón­ar­mið tóku margar af keppi­nautum hennar á leirnum.

Á átt­unda ára­tugnum var mik­ill upp­gangur í kvenna­tennis og fjöl­margar stjörnur að koma fram sem náðu frægð til jafns við karla. Tennis var talin ein fem­inís­kasta grein íþrótt­anna. Að hafa kepp­anda inn­an­borðs sem hafði verið karl­maður ein­ungis tveimur árum áður var því þyrnir í augum margra. Richards fékk því að upp­lifa mörg óþægi­leg atvik í upp­hafi atvinnu­manna­fer­ils síns. Áhorf­endur fylltu keppn­is­vell­ina til að fylgj­ast með henni og margir bentu og hlógu líkt og hún væri sýn­ing­ar­dýr í hring­leika­húsi. Margir hróp­uðu ókvæð­is­orð í hennar garð úr stúkunni sem er harla óal­gengt í þess­ari fág­uðu íþrótta­grein.

Þegar hún mætti í útvarps­við­töl hringdu reiðir hlust­endur inn með óvið­eig­andi athuga­semdir og jafn­vel líf­láts­hót­anir. Margir keppi­nautar hennar skráðu sig úr mótum sem hún tók þátt í. Í einu mót­inu voru ein­ungis 7 kepp­endur eftir af þeim 32 sem áttu að taka þátt. Margar af þeim sem mættu hróp­uðu að henni og sýndu henni fing­ur­inn. Bún­ings­klef­arnir tæmd­ust svo þegar hún gekk þar inn. Sumar gengu í bolum þar sem á stóð „Ég er alvöru kona”. Þegar Richards keppti í tvennd­ar­leik með NBA-stjörn­unni John Lucas II sögðu sumir að um við­undra­sýn­ingu væri að ræða. Hún fékk fjölda boða um að spila gegn körlum, jafn­vel þeim bestu í heimi þar sem sjón­ar­miðið var það að hún væri í raun og veru ekki kona. Hún hafn­aði því þó alltaf og hélt ótrauð áfram þrátt fyrir mót­lætið. Eins og áður var sagt þá var þetta per­sónu­legt og djúp­stætt rétt­læt­is­mál fyrir hana.

Arfleiðin

Renée Richards lagði spað­ann á hillunna árið 1981 þá 47 ára gömul eftir 5 ár í atvinnu­mennsku. Hún keppti á Opna amer­íska í öll þessi ár og hafði því keppt sam­an­lagt 10 sinnum, jafn­oft sem kona og karl. Auk þess hafði hún tekið þátt í móta­röð í Banda­ríkj­unum og í lat­nesku Ameríku en hafði ekki leyfi til að taka þátt í Evrópu. Hún náði ágætum árangri og var um tíma í 20. sæti á heims­list­anum.

Þó að ótt­inn við að yngri karlar skiptu um kyn og tækju þátt væri til staðar þá ógn­aði Richards aldrei þeim allra bestu, enda var hún að keppa við langtum yngri konur. Það var henni máske til happs og olli því að and­staðan var ekki þeim mun meiri. Richards átti líka tvo hauka í horni, þ.e. tvær af bestu tenn­is­konum heims Billie Jean King og Martinu Navr­a­tilovu. Sem sam­kyn­hneigðar konur náðu þær að skilja Richards betur en flestir aðrir í grein­inni og veittu henni stuðn­ing. Þær komu báðar út úr skápnum árið 1981. Eftir að ferli Richards lauk gerð­ist hún þjálf­ari Navr­a­tilovu og hjálp­aði henni að vinna fjölda­mörg stór­mót og verða óum­deil­an­lega ein besta tenn­is­kona sög­unnar. Navr­a­tilova hefur lýst Richards sem miklum áhrifa­valdi í lífi sínu. Árið 2000 var Richards tekin inn í Frægð­ar­höll tennis­í­þrótt­ar­innar og árið 2013 var hún ein af þeim fyrstu til að vera tekin inn í Frægð­ar­höll sam­kyn­hneigðra íþrótta­manna (ásamt vin­konum sínum King og Navr­a­tilovu).

Richards iðk­aði ekki lækn­ingar á meðan tenn­is­ferl­inum stóð og steypt­ist um tíma í skuldir. Eftir fer­il­inn flutti hún aftur heim til New York og hélt áfram sínum fyrri störfum með miklum glans. Hún hefur síðan gefið út þrjár bækur með æviminn­ingum sínum og gerð hefur verið heim­ild­ar­mynd um hana. Engu að síður hefur hún að miklu leyti fallið í gleymsku, sem er nokkuð ein­kenni­legt miðað við þann fjöl­miðlasirkus sem fer­ill hennar var. Skýr­ingin á því kann að vera sú hóg­værð og lít­il­læti sem hún hefur alla tíð sýnt af sér. Í heimi sam­kyn­hneigðra er hún talin braut­ryðj­andi en hún lætur sér fátt um það finn­ast.

Hún gerði það sem hún gerði fyrst og fremst fyrir sig sjálfa og í raun sé þetta aðeins lít­ill hluti af ævi hennar. Í seinni tíð hefur hún jafn­vel tekið undir þau sjón­ar­mið að aðstaða hennar hafi verið ósann­gjörn gagn­vart keppi­nautum hennar. Richards er ennþá starf­andi augn­læknir í dag, 82 ára að aldri. Hún býr í litlum bæ norðan við New York borg með aðstoð­ar­konu sinni og tveimur hundum. Árið 2016 eru viss tíma­mót í lífi hennar. Hún hefur lifað sam­an­lagt í 41 ár sem karl og 41 ár sem kona.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár