Forstjóri MS: Fyrirtækið misnotaði ekki markaðsráðandi stöðu

MS lýsir ánægju sinni yfir því að áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála hafi fellt úr gildi ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins frá 7. júlí, en sekt­ar­greiðsla upp á 440 millj­ónir var felld niður og eftir stendur 40 millj­óna króna stjórn­valds­sekt, eins og greint var frá í frétt frá því fyrr í dag.

Í til­kynn­ingu frá Ara Edwald, for­stjóra MS, fagnar hann því sér­stak­lega að áfrýj­un­ar­nefndin hafi farið vel ofan í álita­málin, sem um ræðir. Það hafi leitt til þess að sam­starf MS við önnur fyr­ir­tæki hafi verið í sam­ræmi við lög.

Hann segir að nið­ur­staðan sýni að lagaum­hverfið sé til þess fallið að verja hags­muni neyt­enda og stuðla að hag­ræð­ingu. „Þá er það sér­stakt ánægju­efni að nefndin skuli hafa stað­fest að sam­starf MS við tengda aðila hafi verið að fullu í sam­ræmi við lög og að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi ekki gefið sam­spili sam­keppn­islaga og búvöru­laga nægi­legan gaum í rann­sókn sinni.

Samkvæmt lögum er hluti af starf­semi mjólkur­iðn­að­ar­ins und­an­þeg­inn afmörk­uðum ákvæðum sam­keppn­islaga. Markmið þessa er að lækka kostnað við fram­leiðslu mjólk­ur­af­urða, til ábata fyrir neyt­endur. Skipulag starf­semi MS og tengdra aðila hefur grund­vall­ast á þessu.

Sú heim­ild til sam­starfs sem aðilar í mjólkur­iðn­aði hafa á grund­velli búvöru­laga, hefur skilað sér í veru­legri hag­ræð­ingu og þar af leið­andi umtals­vert lægra vöru­verði til neyt­enda. Þetta fyr­ir­komu­lag hefur skilað sér í tölu­vert lægra verði á mjólk­ur­vörum til neyt­enda sam­kvæmt óháðum úttektum aðila á borð við hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands.

Varðandi stað­fest­ingu á úrskurði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um að MS hafi láðst að leggja fram til­tekið gagn þá skal það tekið fram að MS hafði engan hag af því, heldur þvert á móti, enda studdi það mál­stað MS. Þá skal það áréttað að MS veitti ekki á nokkru stigi rangar upp­lýs­ingar heldur láð­ist að leggja fram til­tek­inn samn­ing, sem margoft var þó vísað til á fyrri stigum máls­ins.

Það eru hags­munir kúa­bænda, eig­enda MS, að sem flestir aðilar starfi að nýsköpun í grein­inni, að vöru­fram­boð sé fjöl­breytt og smærri fyr­ir­tæki skili árangri í nýt­ingu mjólk­ur­af­urða. Það er von MS að hið góða sam­starf við bændur og aðra fram­leið­endur, eflist með tíð og tíma og skili sér áfram í nýsköpun í iðn­að­inum og fjöl­breyttu vöru­úr­vali til neyt­enda,“ segir Ari Edwald, for­stjóri MS.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár