MS sektað um hálfan milljarð fyrir markaðsmisnotkun

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur sektað Mjólk­ur­sam­söl­una um 480 millj­ónir króna fyrir að mis­nota mark­aðs­ráð­andi stöðu sína. Eft­ir­litið hafði áður sektuð fyr­ir­tækið um 370 millj­ónir fyrir brotin en áfrýj­un­ar­nefnd felldi þann úrskurð úr gildi

Mjólk­ur­sam­salan (MS) hefur verið sektuð um 480 millj­ónir króna af Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu fyrir alvar­leg brot á sam­keppn­is­lögum. Fyr­ir­tækið er sagt hafa mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með því að selja keppi­nautum hrá­mjólk til fram­leiðslu á mjólk­ur­vörum á óeðli­lega háu verði á sama tíma og MS og aðilar tengdir fyr­ir­tæk­inu fengu hrá­efnið undir kostn­að­ar­verði. Frá þessu er greint á vef RÚV.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið sektaði MS upp­haf­lega fyrir umrædd brot í sept­em­ber 2014. Þá var sektin 370 millj­ónir króna. Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu í des­em­ber 2014 að fella yrði úrskurð­inn úr gildi, vegna þess að MS upp­lýsti ekki eft­ir­litið um samn­ing á milli fyr­ir­tæk­is­ins og Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, sem á hlut í MS og er einn þeirra aðila sem fékk hrá­mjólk á lægra verði. MS lagði samn­ing­inn ekki fram fyrr en við mál­flutn­ing fyrir áfrýj­un­ar­nefnd­inni, þrátt fyrir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefði ítrekað beðið um skýr­ingar og gögn frá fyr­ir­tæk­inu.

Áfrýj­un­ar­nefndin taldi að henni væri því skylt að vísa mál­inu aftur til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Áfrýj­un­ar­nefndin tók enga efn­is­lega afstöðu til máls­ins heldur taldi að ekki hefðu komið fram full­næg­andi skýr­ingar af hálfu MS á fram­kvæmd samn­ings­ins fyrir nefnd­inni. Þess vegna ætti Sam­keppn­is­eft­ir­litið að rann­saka málið aft­ur, með hlið­sjón af umræddum samn­ingi, og kom­ast að nýrri nið­ur­stöðu um hvort MS hefði brotið sam­keppn­is­lög. Nú liggur nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins fyrir. 

Hafa þegar lækkað verð

MS ákvað í sept­em­ber í fyrra að lækka verð á hrá­mjólk til ann­arra fram­leið­enda á mjólk­ur­vörum. Í til­kynn­ingu sem fyr­ir­tækið sendi frá sér þá kom fram að það ætl­aði sér að bjóða þeim sem vilja fram­leiða úr mjólk að fá allt að 300 þús­und lítra á ári á sama verði og MS greiðir bænd­um, en það var þá tæp­lega 85 krónur á lítr­ann. Lækk­unin nam rúm­lega 11 pró­sentum frá almennu verði á óger­il­sneyddri hrá­mjólk.

Ljóst er að sektin mun hafa veru­leg áhrif á rekstur MS, en fyr­ir­tækið tap­aði 330 millj­ónum króna í fyrra. Það tap var til­komið vegna þess að fram­leiðsla umfram mark­aðs­þarfir inn­an­lands var sjö til átta milljón lítr­ar. Þ.e. fram­leið­end­urn­ir, bænd­ur, fram­leiddu meiri mjólk en nauð­syn­legt var og MS þurfti að kaupa hana af þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár