Sekt lækkuð og búvörulög sögð æðri samkeppnislögum

Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála kvað í dag upp úrskurð vegna ákvörð­unar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins frá 7. júlí síð­ast­liðnum, en þá var MS sektað um 480 millj­ónir króna vegna mis­notk­unar fyr­ir­tæk­is­ins á mark­aðs­ráð­andi stöðu.

Áfrýj­un­ar­nefndin breytir nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins í úrskurði sínum og lækkar sekt vegna máls­ins í 40 millj­ónir. Meiri­hluti áfrýj­un­ar­nefnd­ar­innar, það er tveir nefnd­ar­menn af þremur, taka síðan undir þau sjón­ar­mið MS að búvöru­lögin séðu æðri sam­keppn­is­lögum, og fella því þau sjón­ar­mið Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins úr gildi í mál­inu.

Með ákvörðun sinni 7. júlí komst eft­ir­litið að þeirri nið­ur­stöðu að MS hefði mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með alvar­legum hætti með því að selja keppi­nautum sínum grund­vall­ar­hrá­efni til fram­leiðslu á mjólk­ur­vörum á óeðli­lega háu verði á sama tíma og MS sjálft og tengdir aðilar fengu þetta hrá­efni á mun lægra verði, og að auki undir kostn­að­ar­verði.

Var þetta til þess fallið að veita MS og tengdum aðilum veru­legt sam­keppn­is­for­skot og geta keppi­nauta til þess að keppa við MS og tengd félög skert með alvar­legum hætti, að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Taldi Sam­keppn­is­eft­ir­litið að hátt­semin væri til þess fallin að skaða á end­anum hags­muni bæði neyt­enda og bænda. „Þá lá fyrir að MS veitti Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu rangar upp­lýs­ingar og lét undir höfuð leggj­ast að upp­lýsa eft­ir­litið um mik­il­væg gögn,“ segir í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

Áfrýj­un­ar­nefndi er sam­mála Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu um að Mjólk­ur­sam­salan hafi „með alvar­legum hætti“ brotið sam­keppn­is­lög með því að halda mik­il­vægum upp­lýs­ingum frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu við rann­sókn máls­ins. Hafi félagið tor­veldað rann­sókn­ina með því hátta­lagi. Stað­festi nefndin þá stjórn­valds­sekt sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið lagði á MS vegna þessa, segir í til­kynn­ingu, og er 40 millj­óna sektin ein­göngu vegna þessa.

„Í úrskurði sínu klofn­aði áfrýj­un­ar­nefndin hins vegar í afstöðu sinni til þess hvort um mis­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu hefði verið að ræða. Þannig byggir meiri­hluti nefnd­ar­innar (tveir nefnd­ar­menn) á því að ákvæði búvöru­laga, sem heim­ilar mjólk­ur­af­urða­stöðvum sam­starf sem ella væri ólög­mætt sam­kvæmt sam­keppn­is­lögum, hafi í raun heim­ilað MS að selja hrá­mjólk á lægra verði til tengdra aðila heldur en til sjálf­stæðra afurða­stöðva. Á þessum for­sendum fellir meiri­hlut­inn ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins út gildi að þessu leyti. Minni­hluti nefnd­ar­innar (for­maður nefnd­ar­innar) lýsti sig hins vegar sam­mála þeirri nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að MS „hafi brotið alvar­lega gegn 11. gr. sam­keppn­islaga. Einnig tel ég að sú sekt sem ákveðin var í hinni kærðu ákvörðun sé rétt ákveðin““ segir í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu vegna máls­ins.

Nefndin tekur ekki undir gagn­rýni MS á máls­með­ferð og rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu segir, að það muni nú fara yfir úrskurð­inn og taka afstöðu til þess hvort rétt sé að bera hann undir dóm­stóla.

Í áfrýj­un­ar­nefnd­inni eru Jóhannes Karl Sveins­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður, for­maður. Anna Kristín Trausta­dóttir, lög­giltur end­ur­skoð­andi og Stefán Már Stef­áns­son, pró­fessor í lögum við Háskóla Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár