Faðir nútíma hryllings dó í fátækt

Þvílíkur hryll­ingur, myndi ein­hver segja. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kaf­aði ofan í mikil áhrif H.P. Lovecraft.

H.P. Lovecraft er almennt tal­inn einn af fremstu höf­undum hryll­ings­sagna frá upp­hafi og er yfir­leitt nefndur í sömu andrá og Edgar Allan Poe og Stephen King. Þessi ein­kenni­legi maður naut þó aldrei þeirrar hylli meðan hann lifði og hans fremstu verk birt­ust ein­ungis í ódýrum áhuga­manna­tíma­ritum sem fengu tak­mark­aða dreif­ingu og lestur. Lovecraft barð­ist við ytri og innri djöfla alla sína ævi en kom þeim þó öllum á prent. Áhrif hans í dag ná langt út fyrir heim bók­mennt­anna.

Barnæskan og geðveikin

Howard Phillips Lovecraft fædd­ist árið 1890 í borg­inni Providence í Rhode Island fylki Banda­ríkj­anna. Rhode Island er eitt af sex fylkjum sem mynda hið svo­kall­aða Nýja England í norð-aust­ur­hluta lands­ins. Nýja England er sér­stakt menn­ing­ar­svæði, hámenntað, með mikil tengsl við hafið og Bret­landseyjar þaðan sem flestir inn­flytj­end­urnir komu. Lovecraft gat rakið ættir sínar langt aftur bæði til fyrstu land­nema svæð­is­ins og einnig til Bret­landseyja. Þetta mót­aði heims­sýn hans að miklu leyti og braust jafn­vel fram í andúð á þeim sem voru ekki af eng­il­sax­nesku bergi brotnir.

Howard, betur þekktur sem H.P., var eina barn hjón­anna Winfield og Söru Lovecraft. Æska hans var plöguð af geð­rænum vanda­málum, bæði hjá honum sjálfum og for­eldrum hans. Faðir hans missti vitið þegar H.P. var ein­ungis þriggja ára gam­all. Hann sá ofsjónir og var hald­inn miklu ofsókn­ar­brjál­æði sem orsak­aði það að hann var lagður inn á geð­sjúkra­hús þar sem hann lést fimm árum síðar. Móðir hans varð eftir það mjög þung­lynd og fékk móð­ur­sýkisköst. Lovecraft lýsti upp­eldi móður sinnar sem kæf­andi og taldi það hvorki heil­brigt fyrir hann né hana. Hún varði öllum stundum með honum svo hann gat hvorki sinnt skóla­göngu né félags­lífi líkt og jafn­aldrar hans. Það mætti segja að félags­leg ein­angrun hans hafi byrjað í barn­æsku. Lovecraft var veiklað barn, bæði á lík­ama og sál.

Hann var oft las­inn og átti mjög erfitt með svefn. Stans­lausar martraðir þar sem skrýmsli ásóttu hann orsök­uðu það að hann varð snemma mjög tauga­veikl­aður og hlé­drægur. Eftir að faðir hans féll frá bjó Lovecraft með móður sinni, tveimur móð­ur­systrum og afa. Það sem bjarg­aði barn­æsk­unni var sam­bandið við afa hans, Whipple Van Buren Philips. Whipple var iðn­jöfur sem var einnig mjög menn­ing­ar­lega sinn­aður og ákaf­lega bókelskur. Hann kynnti Lovecraft fyrir mörgum af helstu bók­mennta­verkum sög­unnar. Hann sagði honum einnig drauga-og hryll­ings­sögur. Lovecraft elskaði þessar stundir en varði einnig miklum tíma einn í bóka­safni afa síns. Hann náði snemma góðum tökum á enskri tungu og þá sér­stak­lega ljóð­list. Það var þó ekki í heim bók­mennt­anna sem Lovecraft stefndi á þessum tíma. Á tán­ings­aldri fékk hann mik­inn áhuga á stjörnu­fræði og tak­mark hans var að kom­ast í stjörnu­fræði­nám í Brown háskóla í heima­borg sinni. En Lovecraft náði ekki einu sinni að útskrif­ast úr mennta­skóla. Námið, félags­legar aðstæður og and­legir kvillar orsök­uðu það að hann fékk tauga­á­fall og hrökkl­að­ist úr skóla. Á seinni árum skamm­að­ist hann sín mikið fyrir að hafa ekki kom­ist í háskóla.

Draumahringurinn

Eftir skóla­göng­una bjó Lovecraft einn með móður sinni í nokkur ár. Hann vann ekki, var grannur og fölur og lítið á ferli utandyra. Hann eyddi öllum sínum stundum við lestur og skrif og leit á sig sem mennta­mann og herra­mann. Það var honum til happs að hann komst í kynni við sam­tök áhuga­manna­rit­höf­unda í gegnum bréfa­skriftir. Menn sáu strax að hann hafði hæfi­leika og var hann því hvattur til að birta sögur og ljóð. Hann hafði áður fengið birt ljóð og greinar um stjörnu­fræði í dag­blöðum, en fyrsta hryll­ings­sagan hans The Alchemist var gefin út árið 1916 í tíma­rit­inu United Amateur. Á sama tíma hóf hann að gefa út sitt eigið áhuga­manna­tíma­rit, The Conservative, sem kom út árlega næstu átta árin. Hann segir:

„Þegar mér var rétt hin vin­gjarn­lega hönd áhuga­mennsk­unnar í fyrsta sinn, var ég eins nálægt því að vera græn­meti og nokk­urt dýr getur orðið. Með til­komu United öðl­að­ist ég til­gang með líf­inu… Í fyrsta sinn gat ég ímyndað mér að mínar klaufa­legu fálm­anir eftir list­inni væru aðeins meira en dauft kjökur í afskipta­lausum heimi.“

Þó að Lovecraft væri mjög sér­stakur maður, jafn­vel ein­kenni­legur og félags­fæl­inn, þá átti hann auð­velt með að tengj­ast fólki í gegnum bréfa­skriftir og í gegnum þær öðl­að­ist hann gott tengsla­net innan geirans. Talið er að Lovecraft hafi skrifað yfir 120.000 bréf á ævi sinni, hvert þeirra nokkrar síður að lengd. Fyrstu ár þriðja ára­tug­ar­ins voru tíð­inda­mikil fyrir Lovecraft. Móðir hans lést eftir dvöl á geð­sjúkra­húsi, hann kynnt­ist eig­in­konu sinni Soniu Greene, og tíma­ritið Weird Tales var hóf göngu sína.

Á þessum árum skrif­aði Lovecraft mest­megnis smá­sögur, margar mjög stuttar og flestar inn í heim sem kall­aður hefur verið Drauma­hring­ur­inn. Í þessum sögum eru viða­miklar lýs­ingar á Drauma­lönd­unum sem stað­sett eru í annarri vídd og fólk kemst þangað í draumum sínum. Þetta er mjög furðu­legur og fram­andi heimur þar sem guð­legar verur ráða ríkjum. Flestar sög­urnar eru sagðar frá sjón­ar­hóli einnar per­sónu, Randolph Carter. Drauma­hring­inn mætti frekar flokka sem furðu­sögur en hryll­ing en þó má segja að grunn­ur­inn af hroll­vekjum hans hafi verið lagður. Annars vegar var stíl­inn kom­inn, þ.e. áhersla á and­rúms­loft og upp­lifun fremur en línu­legan sögu­þráð. Hins vegar komu fram sumar af hinum guð­legu verum sem Lovecraft varð þekkt­astur fyrir. Til dæmis Azathoth, hinn blindi og vits­muna­lausi­lausi guð.

Þegar H.P. Lovecraft skrif­aði Drauma­hring­inn var hann undir miklum áhrifum frá sam­tíma­manni sínum, breska rit­höf­und­inum Edward Plunkett barón af Dunsany. Sagt hefur verið að Lovecraft hafi bein­línis reynt að herma eftir Dunsany og það hafi verið mjög hamlandi fyrir hann. Þegar tíma­ritið Weird Tales kom fyrst út árið 1923 stökk Lovecraft þar um borð og þá vék Drauma­hring­ur­inn fyrir ann­ars konar hryll­ings­sögum. Lovecraft og Greene, sem var rúss­neskur gyð­ingur, gift­ust árið 1924 og fluttu til New York sem reynd­ist mikið óheilla­spor. Greene þurfti að sjá fyrir honum og hann var óham­ingju­samur og ein­mana. Skrif hans frá þeim tíma bera þess glöggt merki en hann hélt stöðu sinni sem einn af fremstu rit­höf­undum blaðs­ins. Á meðal ann­arra rit­höf­unda Weird Tales má nefna Robert E. Howard höf­und Conan sag­anna og Robert Bloch sem seinna skrif­aði Psycho. Þegar Greene neydd­ist til að fara til Ohio til að vinna árið 1926 ákvað Lovecraft að flytja aftur til Providence. Það voru mikil vatna­skil fyrir hann, hjóna­bandið var úr sög­unni en hans frjósamasti skrifta­tími rétt að byrja.

Cthulhu fæðist

Árið 1926 skrif­aði Lovecraft smá­sögu sem nefnd­ist The Call of Cthulhu. Sagan er hans þekktasta verk og fjallar um guð­inn Cthulhu (með höfuð kol­krabba en er vængj­aður og með mann­eskju­legan búk) sem dvelur í neð­an­jarð­ar­borg sem nefn­ist R´Lyeh undir Kyrra­haf­inu. Cthulhu varð svo akk­erið í þeim heimi sem Lovecraft skóp á næstu árum, heimi sem kall­aður hefur verið Cthulhu goð­sögnin. Á þessum árum komu út öll hans bestu verk, s.s. The Dunwich Horror (1929), The Whisperer in Darkness (1931), The Shadow Over Innsmouth (1936) og At the Mountains of Madness (1936). Sögurnar urðu lengri og vand­aðri en enn voru þær flestar birtar í Weird Tales og fengu tak­mark­aða dreif­ingu og eft­ir­tekt. Hann bætti við guðum eins og Yog-sot­hoth og Shub-niggur­ath og fékk aðra að láni eins og Hastur sem Ambrose Bierce hafði skapað á seinni hluta 19. aldar.

Þetta voru guðir sem komu utan úr geimnum eða öðrum víddum, ævafornir og oft form­lausir. Þegar Lovecraft lærði stjörnu­fræði komst hann að því hversu smár mað­ur­inn og jafn­vel jörðin sjálf er í alheim­inum og það skín í gegn í þessum verkum. Guðirnir, eða “hinir gömlu”, eru afskipta­lausir um menn­ina og taka nán­ast ekki eftir þeim. Smæð manns­ins er kjarni hryll­ings­ins. Nýja England er helsta sögu­sviðið en stað­ar­nöfn eru yfir­leitt skálduð, t.d. Arkham, Innsmouth og Kingsport. Sumar sög­urnar ger­ast þó á afskekktum stöðum víðs vegar um hnött­inn, s.s. á Kyrra­hafi, Suð­ur­skauts­land­inu, Alaska o.fl. Lovecraft fékk inn­blástur víða að, ekki síst frá 19. aldar bóka­safni afa síns. Þetta kemur glöggt fram í stíl hans sem var ákaf­lega gam­al­dags og sér­stakur. Hans eigin æska, martrað­irnar og sú geð­veiki sem hann ólst upp við kemur einnig ber­sýni­lega í ljós. Í mörgum sög­unum er aðal­per­sónan smám saman að missa vitið frammi fyrir hinum ásækj­andi, ódauð­legu og ógn­ar­stóru öflum.

Kyndlinum haldið á lofti

Veturinn 1936-1937 greind­ist H.P. Lovecraft með krabba­mein í smá­þörmum. Eftir stutt en kval­ar­fullt dauða­stríð lést hann 15. mars árið 1937, 46 ára að aldri. Þrátt fyrir að hafa átt mjög frjóan ára­tug þá dó hann nán­ast óþekktur og í sárri fátækt. Oft átti hann ekki fyrir mat. Honum gekk alltaf illa að koma sér á fram­færi og fékk litlar greiðslur fyrir þær sögur sem hann fékk birtar. Hann var mjög sjálfs­gagn­rýn­inn, þoldi illa höfnun og í raun sinn eigin versti óvinur. Margar sög­urnar end­uðu í skúff­unni og komu ekki út fyrr en eftir dauða hans. Lovecraft sá aðeins eina bók útgefna eftir sjálfan sig meðan hann lifði, The Shadow Over Innsmouth, sem fékk mjög litla dreif­ingu. Verk hans hefðu senni­lega fallið í gleymsk­unnar dá ef ekki hefði verið fyrir félaga hans úr hópi áhuga­manna­rit­höf­unda.

Lovecraft var nefni­lega ekki sá eini sem skrif­aði inn í Cthulhu goð­sögn­ina. Fjöldi ann­arra rit­höf­unda skrif­uðu sögur, bættu við guðum og fengu lán­aðar per­sónur og atburði frá hvorum öðrum. Þessi félags­skapur var kall­aður Lovecraft-hring­ur­inn og inni­hélt rit­höf­unda á borð við August Derleth, Frank Belknap Long, Clark Ashton Smith og áður­nefnda Robert E. Howard og Robert Bloch. Þessir læri­sveinar héldu nafni hans á lofti eftir dauða hans og komu á fót útgáfu­fyr­ir­tæk­inu Arkham House árið 1939. Það sama ár kom út fyrsta safnið af verkum Lovecraft, The Outsider and Others. Arkham House er ennþá starf­andi bóka­út­gáfa sem hefur í gegnum ára­tug­ina ein­blínt á hroll­vekjur og vís­inda­skáld­skap. Í upp­hafi voru verk Lovecraft og læri­sveina hans áber­andi hjá útgáf­unni en síðan fóru að tín­ast inn seinni tíma rit­höf­undar sem margir hverjir skrif­uðu inn í Cthulhu goð­sögn­ina eða voru undir miklum áhrifum frá henni. Á sjö­unda og átt­unda ára­tugnum hófst mikil bylgja af Lovecraft bók­menntum í Bret­landi, fyrir til­stilli rit­höf­unda á borð við Ramsey Campbell og Brian Lumley. Smám saman fór fólk að taka eftir þessum sögum og frægð Lovecraft jókst með hverju árinu. Áður en menn vissu af var Lovecraft orð­inn risi í bók­mennta­heim­inum og Cthulhu orð­inn að menn­ing­ar­fyr­ir­bæri.

Áhrifin alls staðar

Í dag er talað um Lovecraft-hryll­ing sem sér­staka teg­und bók­mennta. Það á ekki aðeins við þær bækur og sögur sem skrifa beint inn í þennan heim heldur einnig það sem svipar til hans í stíl og lýs­ingum. Margir af fremstu nútíma rit­höf­undum hroll­vekja og vís­inda­skáld­skapar segja Lovecraft vera mik­inn áhrifa­vald og hafa skrifað sögur í hans stíl. Má þar nefna Neil Gaiman, Terry Pratchett, George R.R. Martin, Alan Moore og Stephen King. Hinn síð­ast­nefndi sagði árið 1995:

„Nú þegar tím­inn hefur gefið okkur visst sjón­ar­horn á verk hans, þá held ég að það sé hafið yfir nokkurn vafa að eng­inn hefur kom­ist frammúr H.P. Lovecraft á 20. öld sem mesti iðk­andi hinnar klass­ísku hroll­vekju.

En áhrif Lovecraft ná lengra. Á átt­unda ára­tugnum birt­ust þau á hvíta tjald­inu, fyrst og fremst vegna kvik­mynd­ar­innar Alien (1979). Sviss­neski lista­mað­ur­inn H.R. Giger, sem hann­aði geim­ver­una frægu, var undir miklum áhrifum frá Lovecraft. Í kjöl­farið fylgdu ótal hryll­ings­myndir á borð við The Thing (1982) og Evil Dead þrí­leik­inn (1981-1992). Minna hefur borið á slíkum hryll­ingi í sjón­varpi, en þó má nefna þátta­röð­ina vin­sælu True Detective, sem fjall­aði um sér­trú­ar­söfnuð guðs­ins Hastur. Bækur Lovecraft hafa veitt tón­list­ar­mönnum inn­blástur og þá sér­stak­lega innan þung­arokks­ins.

Má þar nefna hljóm­sveitir á borð við Black Sabbath, Cradle of Filth, Deicide, Opeth og Metallica. Mest áhrif hefur Lovecraft þó senni­lega haft á leikja­iðn­að­inn. Bæði tölvu­leiki (Quake, Alone in the Dark o.fl). og borð­spil (Arkham Horror, Elder Sign, Call of Cthulhu RPG o.fl.). En það er ekki ein­ungis í list of afþrey­ing­ar­iðn­að­inum sem Lovecraft skín í gegn. Með til­komu inter­nets­ins og sam­fé­lags­miðla hefur Cthulhu sjálfur orðið að vin­sælli tákn­mynd. Hann má sjá á stutt­erma­bolum, der­húfum, kaffi­bollum, lím­miðum, styttum og jafn­vel leik­föngum. Hinn grimmi og skeyt­ing­ar­lausi kol­krabba­guð sem Lovecraft skap­aði árið 1926 er nú orð­inn nokk­urs konar Mikki Mús.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár