Hengja bakara fyrir smið

Siðfræði á að vera leið manna til að finna út hvað sé rétt og rangt. Það er aftur á móti ekki alltaf svona ein­falt og getur verið freist­andi að leita að glu­fum í settum reglum. Nýút­komin bók eftir Øyvind Kvalnes tekst á við hlut­verk sið­fræð­innar.

Tripitakaya (त्रिपिटक) - Helgiritasafn búddista
Tripitakaya (त्रिपिटक) - Helgi­rita­safn búddista Mynd: EPA

Siðfræði hefur verið ofar­lega á baugi í íslenskri umræðu síðan í hruni og margir hafa velt fyrir sér hvort þörf sé á frek­ari kennslu í til dæmis við­skiptasið­fræði eða reglu­setn­ingu. En þá vakna spurn­ingar hvort nóg sé að setja siða­reglur til að við­halda góðri hegðun í starfs­stéttum og hvort ekki sé einnig mik­il­vægt að not­ast við dóm­greind­ina og heil­brigða skyn­semi þegar við á.

Til­hneig­ing er að fylgja siða­reglum bók­staf­lega og líta svo á að það sem þær banni ekki sér­stak­lega sé sið­ferði­lega heim­ilt. Þetta segir Øyvind Kvalnes dós­ent í við­skiptasið­fræði í Osló en hann hélt fyr­ir­lestur um smugur í sið­fræð­inni í Þjóð­minja­safn­inu síð­ast­lið­inn mið­viku­dag. Hann var hald­inn í til­efni útgáfu bókar hans Siðfræði og sam­fé­lags­á­byrgð í íslenskri þýð­ingu Jóns Ólafs­sonar. Kjarninn leit við og náði tali af þýð­and­anum.

Sumir undanþegnir siðareglum

Kvalnes segir að það sé ekki nóg að líta til laga þegar huga skal að sið­ferði­legri breytni. „Það eru hlutir sem við megum laga­lega gera en það gætu verið aðrar ástæður fyrir því að ekki væri skyn­sam­legt að haga sé á ein­hvern ákveð­inn hátt,“ segir hann.

Til þess að útskýra smugusið­fræði þá tekur hann til dæmisögu frá 18. öld um smið­inn og bak­ar­ann. Hann segir að þetta sé fyrsta dæmið sem hann muni eftir sem lýsi og útskýri þetta fyr­ir­bæri vel. Í litlum bæ lendir smiður nokkur í slags­málum á krá og verður þess vald­andi með einu hnefa­höggi að and­stæð­ingur hans deyr. Hann er dreg­inn fyrir framan dóm­ara og bíður eftir dauða­dómi fyrir sakir sínar. En rétt áður en dóm­ar­inn gefur upp sinn dóm þá fær hann heim­sókn frá framá­mönnum í sam­fé­lag­inu sem benda honum á að smið­ur­inn sé sá eini í bænum og að það sé erfitt að fá góðan smið. Það þyrfti að hafa það í huga fyrir dóms­upp­kvaðn­ingu.

Framá­menn­irnir vildu benda dóm­ar­anum á að bær­inn hefði aftur á móti tvo bak­ara, og annar væri hvort sem er gam­all. Af hverju ekki að dæma gamla bak­ar­ann í stað­inn fyrir smið­inn? Útkoman yrði þannig betri fyrir bæinn. Dómarinn sér hvergi í lögum að ekki megi dæma bak­ara fyrir smið, svo úr verður að hann dæmir bak­ar­ann til dauða.

Þannig hefur sá sem þykir merki­legur fyrir sam­fé­lagið ákveðna sið­ferði­lega vernd ólíkt öðrum. Kvalnes segir að hann sjái hlið­stæð dæmi í nútíma­sam­fé­lagi. Ríkt fólk kom­ist til dæmis frekar upp með ósæmi­lega hegðun en aðrir. Fjöl­miðlar og sam­fé­lagið hefur til­hneig­ingu til að vernda „mik­il­væga“ fólkið. Fólk í við­skipta­líf­inu og stjórn­málum líti þannig á sig sem und­an­þegið almennu sið­ferði. Það sé of mik­il­vægt til að taka afleið­ingum gjörða sinna á sama máta og annað fólk.

Jafnvægi milli dómgreindar og reglna

Kvalnes lýsir smugusið­fræði á þann veg að almennt fylgi fólk ákveðnum reglum. Ákveðið jafn­vægi verði á milli dóm­greindar eða heil­brigðar skyn­semi og reglna sem fylgt er eftir. Ef of mikil áhersla sé lögð á reglur og við­mið munum við draga úr dóm­greind­inni. Þannig sé stundum til­hneig­ing til að rétt­læta hegðun út frá því að hún sé bein­línis ekki bönnuð og farið í kringum reglur.

Reglur geta jafn­vel þannig ýtt undir skap­andi hugsun við að finna leiðir fram­hjá regl­unum. Afleið­ing­arnar geta þá orðið þær að fleiri reglur eru settar hver á eftir annarri sem gerir það að verkum að dóm­greindin minnkar og heil­brigða skyn­semin einnig.

Kvalnes segir að þar af leið­andi líti sumir á hegðun sem nær ekki yfir sér­stakar reglur sem rétt­læt­an­lega. Það finni smugur í regl­unum og sið­fræð­inni. Dóm­greindin sé þá ekki nóg til að ná yfir þá hegðun, heldur ein­ungis regl­urnar. Hann telur að þetta sé vafa­samt og að nauð­syn­legt sé að hafa jafn­vægi milli reglna og dóm­greindar; ekki treysta ein­ungis á heil­brigða skyn­semi og ekki búa til reglu­bálka sem fylgt er í blindni.

Siðferðileg hugsun nauðsynleg

Jón Ólafsson, heim­spek­ingur og þýð­andi bók­ar­innar, segir að þörf hafi verið á slíkri bók. Hann hafði verið að kenna sið­fræði, bæði fyrir við­skipta­lífið og almenna sið­fræði, og heppi­legt les­efni á íslensku fyrir nem­endur á þessu sviði er af skornum skammti. Hann segir að hann og fleiri hafi verið að huga að því að skrifa bók sem hent­aði til kennslu í hag­nýtri sið­fræði en eftir að hafa kom­ist í kynni við upp­kast af bók­inni hans Kvalnes þá hafi hann ákveðið frekar að þýða hana. Hann segir hana mjög aðgengi­lega og læsi­lega „Kvalnes hefur lag á að útskýra sið­fræði­kenn­ingar á ein­faldan máta og nýta þær sem verk­færi til að fjalla um spurn­ingar sem koma upp í lífi og starfi,“ bendir hann á.

Jón segir að bókin fjalli um ákvarð­anir og starfs­hætti; hvernig taka megi á hags­muna­á­rekstrum, hvernig eigi að meta ólíkar kröfur sið­ferð­is­ins, taka holl­ustu við sam­starfs­fólk fram yfir skyldur við sam­fé­lagið eða öfugt og svo fram­vegis. „Þannig hentar hún ekki síst þeim sem ekki hafa kynnst sið­fræði áður. Hún hjálpar fólki að skilja vanda­málin sem það er að takast á við í starfi á hverjum ein­asta degi og setja þau í sam­hengi,“ segir hann.

„Margir halda fyrir fram að sið­ferði ráð­ist bara af til­finn­ingu. Réttsýnt fólk viti alltaf hvað best er að gera. En það skiptir svo miklu máli að átta sig á því að flest störf í nútíma­sam­fé­lagi eru flókin, bæði hvað varðar mann­leg sam­skipti og ákvarð­anir sem fólk þarf að taka frá degi til dags,“ segir Jón. Til­finn­ingin sé aldrei nóg. Við þurfum að hugsa og læra af reynslu og bæta við skiln­ing okkar á aðstæðum.

Siðferðileg viðmið frekar en reglur

Jón segir að bókin hjálpi fólki að skilja mun­inn á reglum og heil­brigðri skyn­semi. Það verði að túlka reglur út frá dóm­greind og nota reglur til að skilja dóm­greind­ina. Þetta sé því víxl­verkun. „Það eru til ákveðin verk­færi sem hægt er að nota, reynsla og skyn­sam­leg sjón­ar­mið. Þannig eru reglur og kenn­ingar hjálp­ar­tæki – mark­miðið er alltaf að taka réttar ákvarð­anir að geta rétt­lætt þær með góðum rökum og ástæðum“ segir hann.

Jón segir að siða­reglur séu mik­il­væg leið til að nálg­ast sið­fræði­lega umræðu. „Mér finnst reyndar betra að tala um sið­ferði­leg við­mið en að tala um siða­reglur. Siða­reglur má hvorki skilja of þröngt, né halda að þær eigi að vera óbreyt­an­legar. Í fyrsta lagi skiptir sam­ræðan og umhugs­unin, sem fer fram þegar verið er að vinna að þeim, mjög miklu máli,“ segir hann. Allir sem eiga að fara eftir siða­regl­unum þurfa að koma að þeim og end­ur­skoðun er einnig mjög mik­il­væg, að hans mati. „Siða­reglur gera ekk­ert gagn nema það sé verið að hugsa um þær og líka end­ur­skoða þær eftir þörfum,“ segir hann.

Siðareglur síbreytilegar

Siða­reglur eru þannig hjálp í við­leitn­inni til að sinna starfi sínu vel, hvort sem verið er að tala um stjórn­mála­menn eða aðrar starfs­stéttir. Þær nýt­ast ekki öðrum en þeim sem vilja nýta þær, að sögn Jóns. Hann segir að þær séu ekki sam­bæri­legar við laga­reglur og séu ekki verk­lags- eða aga­reglur heldur. Þær skipi ekki fyrir heldur leið­beini við að hugsa um hlut­ina og taka afstöðu til þeirra. Þær eigi kannski fyrst og fremst að geta af sér auð­mýkt gagn­vart verk­efn­unum sem þurfi að leysa frá degi til dags.

Siða­reglur voru sam­þykktar á Alþingi í mars síð­ast­liðnum og segir Jón að þær séu fjarri því að vera full­komnar. Þær hafi verið afleið­ing mála­miðl­unar og að það hafi þurft að koma til móts við ýmis sjón­ar­mið. Þings­á­lykt­un­ar­til­laga um siða­reglur fór að lokum í gegnum Alþingi og telur Jón þó að það hafi verið mjög mik­il­vægt skref. „En þá þurfa menn að halda áfram, það þarf að taka þær aftur upp og end­ur­skoða reglu­lega. Þannig er það með allar slíkar reglur eða við­mið,“ bætir hann við.

Ekki stinga reglum ofan í skúffu

Hann bendir á að ýmsar rann­sóknir hafi verið gerðar um hvaða gagn sé að siða­reglum og að fólk hafi efa­semdir um nota­gildi þeirra. Það komi í ljós að siða­reglur geta verið til ills ef fólk býr til reglur og stingur þeim síðan bein­ustu leið ofan í skúffu – fyllist sjálfs­á­nægju yfir að hafa þær en notar þær ekki í raun. Þær skipti litlu máli ef fólk setur þær ein­ungis til að upp­fylla skil­yrði en hefur ekki áhuga á að nota þær. „En um leið og fólk er að ræða þær og nota þær til hjálpar og leið­bein­ingar þá hafa þær góð áhrif á starf­semi stofn­ana og fyr­ir­tækja,“ segir hann.

Hann segir að aðal­at­riðið sé að á fagsviðum fari fram gagn­rýnin umræða um starfs­hætti, við­horf og ákvarð­anir. Að fólk þori að hugsa gagn­rýnið um sjálft sig og aðra og leggi sig fram um að rækta fag­mennsku. Þannig skipti sam­ræðan ekki síður miklu máli, og jafn­vel fremur, en regl­urnar sjálfar. Þær séu ein­ungis hjálp­ar­tæki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðfræði

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár