Beinafundur varpar ljósi á 300 ára gamalt mannshvarf

Kristinn Haukur Guðnason skrifar um dul­ar­fullt manns­hvarf og harð­vít­ugar deildur kónga­fólks, sem hafa kom­ist aftur í sviðs­ljósið eftir beina­fund.

Þann 11. ágúst síð­ast­lið­inn fund­ust manna­bein við bygg­ing­ar­fram­kvæmdir í höll einni í Norður-Þýska­landi. Ljóst er að þau eru mjög gömul og til­gátur eru uppi um hvort fund­inn sé aðals­maður sem hvarf undir lok 17. aldar. Hvarf hans var eitt af umtöl­uð­ustu málum síns tíma enda tengd­ist það fram­hjá­haldi og valda­bar­áttu nokk­urra af æðstu aðal­s­mönnum Þýska­lands og síðar bresku krún­unni. Þetta er saga af losta, afbrýði­semi, heift, for­boð­inni ást og morði.

Mannabein undir höllinni

Höllin Leineschloss var reist á fyrri hluta 17. aldar, við ánna Leine sem rennur í gegnum þýsku borg­ina Hannover. Höllin hefur tvisvar verið nær end­ur­byggð, fyrst á fyrri hluta 19. aldar og síðan eftir sprengjuregn banda­manna í seinni heim­styrj­öld­inni, en í bæði skiptin náð­ist að halda upp­runa­lega ytra byrði bygg­ing­ar­innar. Áður fyrr sátu kon­ungar og furstar Hannover í höll­inni en í dag er hún þing­hús Neðra Saxlands. Þegar eldri hluti hall­ar­innar var gerður upp nú í sumar fund­ust beinin 8 metrum undir grunn­inum. Lög­reglan mætti á svæðið og strax var farið með þau í MHH lækna­skól­ann þar sem þau voru rann­sökuð. Þar kom í ljós að þetta voru rif­bein og fót­leggur af full­orðnum karl­manni sem senni­lega var uppi fyrir nokkur hund­ruð árum síðan. Þar sem svo langt er um liðið er því ekki þörf á lög­reglu­rann­sókn en beinin gætu hins vegar upp­lýst 322 ára gam­alt manns­hvarfs­mál sem tengd­ist æðsta aðals­fólki svæð­is­ins á þeim tíma.

Hagkvæmnishjónaband

Á 17. öld var Hannover höf­uð­staður fursta­dæm­is­ins Lüneburg í Hinu Heilaga Róm­verska Keis­ara­dæmi, laustengdu sam­bands­ríki sem náði yfir alla Mið-Evrópu. Upp úr 1680 urðu deilur milli bræðr­anna og her­tog­anna Georgs Vil­hjálms og Ernests Augustus um yfir­ráð á svæð­inu sem lykt­uðu með því að ákveðið var að sam­eina ætt­ina í einum erf­ingja. Dóttir Georgs, Sófía Dórótea, skyldi gift­ast syni Ernests, Georgi Loðvík. Fjöl­skylda Ernests og þá sér­stak­lega kona hans, Sófía, voru mjög á móti ráða­hagnum en sæst var á að Georg Vil­hjálmur myndi borga þeim um 100.000 rík­is­dali árlega. En þau voru ekki þau einu sem voru afhuga hjóna­band­inu. Verðandi brúð­urin tryllt­ist þegar hún frétti að hún ætti að gift­ast náfrænda sínum. Sagan segir að hún hafi öskrað „Ég mun ekki gift­ast þessu svín­s­trýni!” og svo á hún að hafa fallið í yfir­lið. En faðir hennar skip­aði henni að gift­ast nafna hans og þar við sat. Þegar Sófía Dórótea var leidd upp að alt­ar­inu í nóv­em­ber mán­uði árið 1682, leið aftur yfir hana. Hún var þá 16 ára en Georg Loðvík 22. Fram­haldið var ekk­ert bjart­ara fyrir hin nýgiftu hjón. Fjöl­skylda Georgs Loðvíks var kald­lynd í garð Sófíu Dóróteu og hann sjálfur yfir­leitt grimmur við hana. Þegar þau áttu sam­skipti voru þau yfir­leitt full af heift og þau rifust oft hástöfum fyrir framan annað fólk. Stundum beitti Georg hana lík­am­legu ofbeldi þannig að hún varð marin og blá á eftir. Engu að síður hlotn­að­ist þeim tvö börn næstu árin, Georg Augustus (f. 1683) og Sófíu Dóróteu yngri (f. 1686). Eftir það minnk­uðu rifr­ildin milli þeirra en í stað­inn kom kuldi og afskipta­leysi.

300 ástarbréf

Líkt og Sófía Dórótea hafði Georg Loðvík verið neyddur til hjóna­bands­ins. Hjá honum var aftur á móti önnur breyta í dæm­inu, þ.e. þegar hann kynnt­ist ást­konu sinni Melusine von der Schulenberg. Georg Loðvík fór ekki í felur með sam­bandið, hvorki fyrir eig­in­konu sinni né öðrum. Sófíu Dóróteu fannst hún nið­ur­lægð og lét reiði sína opin­ber­lega í ljós en hann tók því fálega. Allt breytt­ist svo árið 1688 þegar hún hitti mann sem hún hafði ekki séð í sjö ár. Filippus Krist­ó­fer von Königsmarck var sænskur greifi og ári eldri en hún. Þau höfðu kynnst sem tán­ingar og líkað vel við hvort annað en ekk­ert róm­an­tískt sam­band var á milli þeirra þá. Filippus var her­maður á mála hjá Hannover-mönnum og barð­ist víða um Evrópu. Hann var bráð­mynd­ar­legur ævin­týra­maður sem hafði þó það orð á sér að vera kæru­laus og óábyrgur glaum­gosi. Eftir að þau end­ur­nýj­uðu kynnin bjó hann í borg­inni í tvö ár og fór vel á með þeim en engan grun­aði að neitt ósæmi­legt væri bak við það. Árið 1690 var hann sendur til Grikk­lands að berj­ast fyrir Feney­inga sem áttu þá í stríði við Ottómana um yfir­ráð á Pelops­skaga. Þegar hann sneri aftur til Hannover juk­ust sam­skipti hans og Sófíu Dóróteu til muna og ekki leið á löngu þar til komst upp um ást­ar­sam­band þeirra. Árið 1692 fékk her­tog­inn Ernest Augustus, faðir Georgs Loðvíks, ást­ar­bréf í hendur sem Sófía Dórótea og Filippus höfðu sent sín á milli. Hann vildi ekki setja hjóna­bandið (og alla rík­is­dal­ina) í hættu og ákvað því að senda Filippus í hernað til Frakk­lands. Hannover menn stóðu þá í hinu svo­kall­aða níu ára stríði til að verj­ast ágangi sól­kon­ungs­ins Loðvíks XIV. Filippus yfir­gaf hins vegar her­deild­ina og reið aftur til Hannover. Þar ját­aði hann lið­hlaupið og grát­bað um að fá að vera um kjurrt í borg­inni.

Þá sá Ernest Augustus sig til­neyddan til að gera hinn ást­sjúka Filippus útlægan úr rík­inu. Meira en 300 ást­ar­bréf milli Fil­ippusar og Sófíu Dóróteu eru varð­veitt í skjala­safni Háskól­ans í Lundi. Margir hafa undr­ast á þessum fjölda en hafa bera í huga að bréfa­send­ingar voru aðal sam­skipta­mát­inn milli fólks á þessum tíma og póst­burð­ar­menn báru út bréf til fólks oft á dag. Bréfin eru að ein­hverju leyti á dul­máli en aug­ljóst er að sam­band þeirra hefur verið mjög náið. Håkan Håkans­son við Lund­ar­há­skóla segir: Ég geri ráð fyrir að þau hafi þurft dul­mál til að fela allar við­kvæmu upp­lýs­ing­arnar. Þau hljóta einnig að hafa fengið ein­hvern sem þau treystu til að fara með bréfin. Í ljósi þess að þetta var ólög­legt ást­ar­sam­band og það end­aði mjög illa.

Mannshvarf um miðja nótt

Þegar að Filippus var gerður útlægur og Georg Loðvík frétti af sam­band­inu rifust hjónin. Hún sak­aði hann um hræsni og hann brást við með því að ganga í skrokk á henni. Filippus fór til Saxlands í aust­ur­hluta Þýska­lands þar sem hann bjó um stund. Þar tal­aði hann opin­skátt um her­toga­fjöl­skyld­una í Hannover og gerði grín að Melusine, ást­konu Georgs Loðvíks. Þegar þetta frétt­ist til Hannover rifust hjónin heift­ar­lega og Georg Loðvík kyrkti eig­in­konu sína nærri til dauða. Eftir þessa rimmu var ljóst að hjóna­bandið var á enda­stöð og Sófía Dórótea biðl­aði til Fil­ippusar að hjálpa sér að flýja. Í júlí mán­uði árið 1694 reið greif­inn sænski til Hannover og beint til ást­konu sinnar þar sem þau eyddu nótt saman.

Þá lögðu þau á ráð um flótta næstu nótt. En kona ein í höll­inni, Klara Elísabet von Platen hjá­kona Ernests Augustus, varð vör við heim­sókn­ina og lét verð­ina grípa Filippus sem var á leið­inni burt. Síðan frétt­ist ekk­ert meir af greif­anum. Marga grun­aði Georg Loðvík um græsku en aldrei fannst neitt lík og því var ekki hægt að sýna fram á að um morð hefði verið að ræða. Margir töldu að verð­irnir hefðu myrt Filippus og fleygt lík­inu í ánna Leine. Sögur herma einnig að Klara Elísabet og tveir verðir hafi játað morðið á Fil­ippusi á dán­ar­beði sínu, öll fyrir sama presti. En það er þó langt frá því að vera stað­fest og málið hefur allar götur síðan verið óleyst. Þetta sama ár, 1694, skildu hjónin. Georg Loðvík gat ekki skilið við konu sína á grunni fram­hjá­halds í ljósi þess að hann var einnig sekur um slíkt athæfi. Því var hún sökuð um að hafa yfir­gefið eig­in­mann sinn og dæmd til fang­els­is­vistar. Sófía Dórótea var flutt til Ahlden kast­ala nálægt Hannover þar sem hún mátti lifa sína daga í ein­semd. Hún fékk ekki einu sinni að sjá börnin sín aftur. En önnur örlög biðu Georgs Loðvíks.

Valdaættir Evrópu

Árið 1698 lést Ernest Augustus og Georg Loðvík erfði titil her­toga og kjörfusta Hannover. Þegar Georg Vil­hjálmur lést árið 1705 erfði Georg Loðvík hans titla einnig í nafni Sófíu Dóróteu og varð þar með einn og óum­deildur vald­hafi Hannover svæð­is­ins. En það var í gegnum móður sína, Sófíu her­toga­ynju, sem hann fékk stærstu sneið­ina. Þegar Anna drottn­ing Englands lést barn­laus þurfti að leita aftur í ættir til að finna erf­ingja. Lög Bret­lands bönn­uðu það að kaþ­ólikki yrði krýndur því var leitað til nær­skyldasta lúth­erska erf­ingj­ans, sem var Georg Loðvík. Í októ­ber árið 1714 sigldi hann yfir Erma­sundið og var krýndur Georg I, kong­ungur Stóra Bret­lands og Írlands. Mikill styr hafði staðið milli kaþ­ólikka og mót­mæl­enda í Bret­landi í um 30 ár og krýn­ing Georgs virk­aði sem olía á þann eld.

Hann ríkti í tæp 13 ár en varð aldrei vin­sæll kon­ungur. Með honum flutti ást­kona hans Melusine og þrjár óskil­getnar dætur þeirra. Börn kon­ungs­ins og Sófíu Dóróteu voru þá upp­komin. Georg Augustus flutti til Englands og varð síðar Georg II kon­ungur. Sófía Dórótea yngri gift­ist Friðriki krón­prins Prúss­lands árið 1706 og varð drottn­ing sjö árum seinna. Hún átti 14 börn, þar á meðal Friðrik mikla Prússa­kóng. Melusine fékk tit­il­inn her­toga­ynja af Kendal og bjó með Georgi I líkt og drottn­ing til dauða­dags hans árið 1727. Ári áður hafði Sófía Dórótea lát­ist í klefa sínum í Ahlden kast­ala. Hún hafði þá setið í fang­elsi í 33 ár.

Lok ástarsögu?

Michael Klintschar hjá MHH segir um beinin umræddu: „Hversu gömul, við vitum það ekki. Bara að beinin eru eldri en 50 ára og þar af leið­andi ekki innan ramma lög­gæsl­unnar.” Ekki er heldur hægt að sjá hver dán­ar­or­sökin var, a.m.k. ekki við fyrstu rann­sókn. Beinin verða flutt til Georg Albrecht Háskól­ans í Gött­ingen þar sem nán­ari rann­sóknir verða gerðar á þeim undir yfir­sjón Fried­helm Wulf forn­leifa­fræð­ings. Það sem meðal ann­ars verður rann­sakað er DNA bygg­ingin úr beina­vefj­unum sem verður borin saman við DNA sýni úr lif­andi skyld­mennum Fil­ippusar Königsmarck. „Ef þetta eru bein Königsmarck, þá er það ákaf­lega spenn­andi.” segir Thomas Schwark safn­stjóri Minja­safns Hannover.

Sagan af Fil­ippusi og Sófíu Dóróteu er nefni­lega ást­ar­saga sem hefur hrifið marga í gegnum tíð­ina, þá sér­stak­lega vegna ást­ar­bréf­anna milli þeirra og örlaga þeirra. Þetta er í raun nokk­urs konar „Rómeó og Júlía í raun­heimum”, saga um for­boðna ást og dauða. Sagan hefur veitt inn­blástur að nokkrum skáld­sögum og kvik­myndum, þar á meðal Saraband for Dead Lovers, breskri kvik­mynd frá árinu 1948, sem bein­línis fjallar um atburð­ina. Það er aftur á móti ekki hægt að full­yrða að beinin séu hans að svo stöddu. Áður en Leineschloss höllin var byggð stóð þar klaustur í meira en 300 ár. Ekki er loku fyrir því skotið að beinin séu af reglu­bróður frá þeim tíma. En ef þetta er Filippus þá er þetta ákveð­inn endir á þess­ari harm­þrungnu ást­ar­sögu. Þá yrði það við­eig­andi að beinin yrðu grafin við hlið Sófíu Dóróteu, í bænum Celle norð­austan við Hannover.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár