Tölvuárásir á fjölmargar vinsælar vefsíður

Netárásir á fjöl­margar þekktar vef­síður, sem sumar hverjar inn­heimta gjald af greiðslu­kortum, voru gerðar í gær. Yfirvöld í Banda­ríkj­unum verj­ast frétta en

Tölvu­árás átti sér stað á fjöl­margar vef­síður í gær og varð mikil truflun á net­notkun, einkum í Banda­ríkj­unum, vegna þessa. Árásin þykir gefa vís­bend­ingar um að óör­yggi vegna vax­andi við­skipta á inter­net­inu sé aðkallandi mál að leysa.

Sam­fé­lags­miðlar og efn­isveit­ur á borð við Twitter, Airbnb og Net­flix voru gerðar óað­gengi­leg­ar fyr­ir millj­ón­ir not­enda í Banda­ríkj­un­um og Evr­ópu, og þá var sam­band við Spotify einnig rofið á tíma­bili.

Árás­irn­ar voru ít­rekað gerðar og náðu varnir þess­ara vef­miðla ekki að koma í veg fyrir að þær trufl­uðu þjón­ustu og við­skipti.

Netárás­irn­ar eru til rann­sóknar hjá þjóðarör­ygg­is­stofn­un­ar Banda­ríkj­anna (NSA) og Banda­rísku al­rík­is­lög­regl­unni (FBI), og hafa stofn­an­irnar varist frétta af þeim.

Á meðan á árás­un­um stóð gátu net­verj­ar ekki birt færsl­ur á sam­fé­lags­síðum, verslað, horft á mynd­bands­upp­tök­ur eða spilað tölvu­leiki á net­inu. Tjónið vegna þessa var gríð­ar­lega umfangs­mikið, þó erfitt sé að meta það til fjár, að því er fram kom í umfjöllun tækni­vefs­ins The Verge. Árás­irnar eru litnar alvar­legum augum.

Netþjón­ustu­fyr­ir­tækið Dynamic Network Services Inc. (Dyn) til­kynnti um ell­efu­leytið í gær að ráð­ist hefði verið á þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins.

Meðal þeirra vef­síða sem urðu fyr­ir trufl­un­um voru Reddit, fjöl­miðl­arn­ir CNN, Guar­di­an, HBO og People tíma­ritið, sem og greiðslu­þjón­usta PayPal.

Þá varð versl­unar- og fjöl­miðl­aris­inn Amazon einnig fyrir trufl­unum og komust not­endur ekki inn á heima­svæði sín á tíma­bili, vegna árásanna. Það tók þó ekki langan tíma að ná þjón­ust­unni aftur í lag.

Kort sem birt var af þeim stöðum sem yrðu fyr­ir trufl­un­um vegna netárás­anna náði upp­haf­lega yfir stór­an hluta aust­ur­strand­ar Banda­ríkj­anna og Texas, en síðar í dag voru áhrif árás­anna einnig grein­an­leg í Miðvest­ur­ríkj­un­um og Kali­forn­íu, og þá urðu not­end­ur Net­flix, Spotify og Twitter í Evr­ópu einnig fyr­ir trufl­un­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár