Píratar boða fjóra flokka í stjórnarmyndunarviðræður

Píratar ætla í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður í vik­unni. Þeir hafa sent bréf til VG, Bjartrar fram­tíðar, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar með ósk um við­ræður. Flokk­ur­inn vill kynna nið­ur­stöður þeirra við­ræðna tveimur dögum fyrir kosn­ingar.

Birgitta Jónsdóttir, Smári McCarthy og Einar Brynjólfsson mynda hópinn sem á að sjá um stjórnarmyndunarviðræður Pírata.
Birgitta Jóns­dóttir, Smári McCarthy og Einar Brynj­ólfs­son mynda hóp­inn sem á að sjá um stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður Pírata. Mynd: Brynjar Snaer Thrastarson

Píratar eru til­búnir að hefja strax form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður við aðra flokka út frá fimm megin áherslum Pírata til þess að geta lagt drög að stjórn­ar­sátt­mála áður en íslensk þjóð gengur til þing­kosn­inga laug­ar­dag­inn 29. októ­ber næst­kom­andi. Flokk­ur­inn segir að hann muni ekki taka þátt í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með þeim flokkum sem ekki geta skuld­bundið sig til ákveð­inna verka fyrir kosn­inga. Flokk­arnir sem Píratar vilja hefja við­ræður við eru fjórir og for­menn þeirra allra hafa fengið sent bréf þess efnis. Þeir eru Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, Óttar Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, Oddný Harð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar. Rætt verður við for­menn­ina í kom­andi viku og í þeirri röð sem þeir eru nefndir hér að ofan.

For­menn­irnir munu, þiggi þeir boð Pírata, funda með þriggja manna umboðs­mannateymi flokks­ins sem mun svo skila skýrslu um þær við­ræður til kjós­enda fimmtu­dag­inn 27. októ­ber næst­kom­andi. Það er skil­yrði fyrir stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum Pírata fyrir kosn­ingar að nið­ur­stöður við­ræðn­anna verði kynntar þann dag, og þar af leið­andi fyrir kosn­ingar.

Þetta kom fram á blaða­manna­fundi sem Píratar héldu í Hann­es­ar­holti í morgun þar sem til­kynnt var hvernig Píratar ætla að standa að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum fyrir kom­andi kosn­ingar.

Þeir þrír ein­stak­lingar sem hafa hlotið umboð Pírata, eftir að erind­is­bréf þeirra var sam­þykkt í kosn­inga­kerfi flokks­ins, eru Birgitta Jóns­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata og odd­viti flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi Norður, Smári McCarthy, sem leiðir lista Pírata í Suð­ur­kjör­dæmi, og Einar Brynj­ólfs­son, sem situr í 1. sæti á lista flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Áherslu­málin fimm sem Píratar leggja áherslu á í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum sínum eru:

  • Ný stjórn­ar­skrá
  • Réttlát dreif­ing arðs af auð­lindum
  • Gjald­frjáls heil­brigð­is­þjón­usta
  • Efling aðkomu almenn­ings að ákvarð­ana­töku
  • End­ur­vekja traust og tækla spill­ingu

Málamiðlanir við stjórnarmyndun leiði af sér svik við kjósendur

Á fund­inum var einnig lesin upp yfir­lýs­ing Pírötum. Þar segir að gengið sé til kosn­inga á undan áætlun vegna „þeirrar spill­ingar sem afhjúpuð var fyrir umheim­inum í Panama­skjöl­unum. Fimm ráð­herrar urðu upp­vísir að spill­ingu á kjör­tíma­bil­inu. Í fjöl­menn­ustu mót­mælum Íslands­sög­unnar sýndi almenn­ingur vilja sinn til breyt­inga. Erindi Pírata byggir á kröfu um nauð­syn­legar kerf­is­breyt­ingar, sið­bót í stjórn­málum og stríð á hendur spill­ingu og sjálftöku. Píratar leggja því þunga áherslu á að færa þjóð­inni full­veldi sitt og sjálf­stæði að nýju.

Sú hefð hefur skap­ast í íslenskum stjórn­málum að lof­orð eru einatt svikin eftir kosn­ingar og bera menn fyrir sig „póli­tískan ómögu­leika“ eins og frægt er orðið. Hefðin er sú, að stjórn­mála­flokkar sem mynda rík­is­stjórnir á Íslandi skýla sér bak við mála­miðl­anir í stjórn­ar­myndun. Þannig tekst þeim ítrekað að svíkja kjós­endur sína.

Við Píratar viljum koma í veg fyrir póli­tískan ómögu­leika. Við viljum kerf­is­breyt­ingar. Við ætlum ekki að blekkja kjós­endur. Við munum ekki taka þátt í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með þeim flokkum sem ekki geta skuld­bundið sig til ákveð­inna verka fyrir kosn­inga.

Við gerum okkur grein fyrir því að okkar stefnu­skrá er okkar óska­listi. Stjórn­mál eru list hins mögu­lega; eng­inn fær allar sínar óskir upp­fylltar í samn­ingum við aðra. Kjós­endur eiga rétt á að vita hvað atkvæði þeirra merkir fyrir kosn­ingar, ekki aðeins að þeim loknum.“

„Pólitískur ómöguleiki“ Bjarna

Sá „póli­tíski ómögu­leiki“ sem Píratar vitna til í yfir­lýs­ingu sinni snýst um það þegar fjórir af þeim sex þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem leiddu kjör­dæmi flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ingar lof­uðu því að áfram­hald við­ræðna um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu yrði sett í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu á kjör­tíma­bil­inu sem nú er að líða. Allir fjórir urðu síðar ráð­herrar í þeirri rík­is­stjórn sem tók við völdum vorið 2013. Engir fyr­ir­varar um meiri­hluta á Alþingi, meiri­hluta innan rík­is­stjórnar eða sýni­legan þjóð­ar­vilja í skoð­ana­könn­unum voru settir fram. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, sagði það oftar en nokkur annar Sjálf­stæð­is­maður að þjóð­ar­at­kvæðið myndi fara fram og að flokkur hans myndi standa við það.

Eftir kosn­ing­arnar 2013 var það lof­orð dregið til baka. Í við­tali við Kastljós í febr­úar 2014 sagði Bjarni: „„Ég get ekki fylli­lega staðið við það að láta fara fram þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um það hvort við höldum áfram við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið þar sem það er póli­tískur ómögu­leiki til staðar.“ Sá ómögu­leiki var að mati Bjarna sá að flokkur hans væri and­vígur aðild og það væri sam­starfs­flokkur hans í rík­is­stjórn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, einnig.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, setti einnig fram vil­yrði um að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um aðild­ar­við­ræð­urnar myndi fara fram í aðdrag­anda kosn­inga 2013. Þegar Sig­mundur Davíð og Bjarni kynntu rík­is­stjórn­ar­sam­starf sitt á Laug­ar­vatni að loknum kosn­ingum spurði frétta­maður á staðn­um: „Getum við treyst því að það verði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um áfram­hald­andi við­ræð­ur?“ Sig­mundur Davíð svar­aði: „Að sjálf­sögðu kemur til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.“

Fylgi Pírata hefur snarlækkað á árinu

Það stefnir í flóknar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður eftir kom­andi kosn­ingar. Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans fær fjór­flokk­ur­inn svo­kall­aði – sem sögu­lega hefur haft um 90 pró­sent fylgi hið minnsta – ein­ungis um 54 pró­sent atkvæða. Ómöguleg virð­ist, miðað við stöð­una nú, að mynda tveggja flokka stjórn. Sá ómögu­leiki verður enn meiri í kjöl­far þess sem Píratar lýstu yfir í dag, þar sem þeir virð­ast bein­línis úti­loka sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk, en Píratar og Sjálf­stæð­is­flokkur eru einu tveir flokk­arnir sem mæl­ast með í kringum 20 pró­sent fylgi og eru þar með stærstu flokkar lands­ins sam­kvæmt könn­unum. Því verður lík­leg­asta stjórn­ar­mynstrið eftir kosn­ingar þriggja- eða fjög­urra flokka rík­is­stjórn.

Píratar hafa farið með him­in­skautum í skoð­ana­könn­unum meg­in­hluta þessa kjör­tíma­bils. Hæst mæld­ust þeir með tæp­lega 40 pró­sent fylgi. Fylgið hefur þó rjátl­ast af flokknum á und­an­förnum mán­uðum, og sér­stak­lega eftir birt­ingu Panama­skjal­anna í apríl og enn meira eftir að Viðreisn til­kynnti um

sína

fram­boðs­lista í haust­byrjun. Í byrjun sept­em­ber mæld­ist fylgi flokks­ins 24,9 pró­sent fylgi. Í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans mælist það 19,2 pró­sent. Einungis Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með meira fylgi, eða 22,1 pró­sent.

Það sem Jón Kalman sagði

Þær stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður sem Píratar eru nú að reyna að hrinda af stað eru mjög í anda þess sem hvatt var til í grein sem Jón Kalman Stef­áns­son rit­höf­undur skrif­aði á Kjarnann í maí 2015 og vakti mikla athygli. Fyr­ir­sögn hennar var „Tími Katrínar Jak­obs­dóttur er runn­inn upp – hvort sem henni líkar betur eða verr“.

Þar sagði Jón Kalman að vinstri- og jafn­að­ar­menn geti ann­að­hvort haldið upp­teknum hætti, gengið sundruð til næstu kosn­inga og þannig tryggt áfram­hald­andi mis­skipt­ingu. Eða fylkt sér á bak við þann eina stjórn­mála­mann sem hefur getu og vin­sældir til að leiða breið­fylk­ingu í anda R-list­ans: Katrínu Jak­obs­dóttur. „Ef hún hefur áhuga á að hrifsa sam­fé­lagið úr járn­klóm hags­muna, nýfrjáls­hyggju og lýð­skrumara, þá verður hún að stíga fram og sam­eina vinstri– og miðju­menn að baki sér. Og aðrir for­ystu­menn eiga að víkja. Þeir eiga að taka hags­muni þjóðar fram yfir per­sónu­legan metnað og verða ridd­arar í sveit Katrínar Jak­obs­dóttur. Hennar tími er ein­fald­lega runn­inn upp. Hvort sem henni líkar betur eða verr“.

Í kjöl­fari ræddu full­trúar allra stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna opin­ber­lega um áhuga sinn á því að mynda kosn­inga­banda­lag. Katrín Jak­obs­dóttir gerði það í útvarps­þætti í júní 2015 og aftur í sjón­varps­þætti í októ­ber sama ár og sagði að hún væri áhuga­söm um kosn­inga­banda­lag á vinstri vængnum.

Árni Páll Árnason, þáver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, tal­aði fyrir kosn­inga­banda­lagi stjórn­ar­and­stöðu­flokka á flokks­stjórn­ar­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar í sept­em­ber 2015 og hafði áður gert slíkt hið sama í maí sama ár, þegar hann var spurður út í grein Jóns Kalman.

Róbert Marshall birti síðan stöðu­upp­færslu á Facebook í des­em­ber í fyrra þar sem hann kall­aði eftir sam­eig­in­legu fram­boði umbóta­afla í næstu kosn­ingum sem leitt yrði af Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manni Vinstri grænna. Þar sagði Róbert að þeir sem aðhyllist umbætur og alvöru aðgerðir á sviði umhverfis, jafn­réttis, mennta- og heil­brigð­is­mála þurfi að skipa sér í sveit saman og búa til aðgerð­ar­á­ætlun fyrir næstu kjör­tíma­bili. „Stilla sam­eig­in­lega upp á lista í öllum kjör­dæmum og stilla upp rík­is­stjórn þar sem hæfi­leikar, bak­grunnur og verk­efni ráða mann­val­inu. Ég sé fyrir mér stjórn sem væri að mestu skip­aða utan­þings­ráð­herrum sem við kynnum fyrir kosn­ingar og yrði leidd af Katrínu Jak­obs­dóttur. Verk­efnin fram undan eru risa­vaxin og munu reyna á okkur en við getum þetta. Það er von. Björgum Íslandi."

Síðan hefur auð­vitað margt breyst, nýtt fólk er komið í fram­varð­ar­sveit sumra flokk­anna, fylgi þeirra hefur sveifl­ast og, síð­ast en ekki síst, þá var kosn­ingum flýtt eftir að for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar neydd­ist til að segja af sér vegna tengsla hans við aflands­fé­lag í Panama sem var auk þess kröfu­hafi í bú föllnu bank­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár