Ísland í geimvísindastofnun: Klikkuð hugmynd eða snilldarútspil?

Þátttaka Íslands í Geim­vís­inda­stofnun Evrópu er ekki bara raun­sær mögu­leiki heldur einnig spenn­andi tæki­færi.

Eflaust ráku ein­hverjir upp stór augu þegar fréttir bár­ust af þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis að Ísland skyldi sækja um aðild að Geim­vís­inda­stofnun Evrópu (ESA). Helgi Hrafn Gunn­ars­son Pírati er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar en auk hans standa að baki henni þing­menn úr öllum flokkum: Ásta Guðrún Helga­dóttir og Birgitta Jóns­dóttir úr Píra­tötum; Katrín Jak­obs­dótt­ir og Svandís Svav­ars­dóttir frá VG; Óttarr Proppé, Páll Valur Björns­son og Róbert Marshall úr Bjartri Framtíð; Helgi Hjörvar og Katrín Júl­í­us­dóttir úr Sam­fylk­ingu; Vil­hjálmur Árnason úr Sjálf­stæð­is­flokknum og Líneik Anna Sæv­ars­dóttir úr Fram­sókn­ar­flokknum.

Er þetta klikkuð hug­mynd? Þegar orðin Ísland og geim­vís­indi birt­ast í sömu setn­ingu kemur ef til vill upp í hug­ann útrásaræv­in­týri Íslands í geim­ferða­brans­ann með til­heyr­andi kostn­aði fyrir skatt­greið­endur. En lesi fólk grein­ar­gerð til­lög­unnar kemur í ljós að loka­mark­miðið er ekki að taka vík­inga­klappið í alþjóð­legu geim­stöð­inni heldur er til­gang­ur­inn ein­stak­lega jarð­bund­inn: Að stuðla að fjöl­breytt­ari atvinnu­mögu­leikum heima fyrir og efla vís­inda­sam­starf við aðrar þjóðir.

Að und­an­förnu hefur nokkuð verið rætt um speki­leka frá Íslandi. Brott­fluttir Íslend­ingar eru að stórum hluta háskóla­menntað fólk í leit að fjöl­breytt­ari atvinnu­tæki­færum erlendis. Aðfluttir sinna fremur störfum sem krefj­ast síður háskóla­mennt­unar, svo sem í ferða­mennsku, með fullri virð­ingu fyrir þeim mik­il­vægu störfum. Grein­ing­ar­að­ilar hafa bent á að lífs­kjara­sókn á Íslandi sé háð því að verð­mæta­sköpun byggð á hug­viti auk­ist, þar sem menntað vinnu­afl er nýtt til hins ítrasta. Hvers kyns mót­vægi við atvinnu­vegi byggða á nýt­ingu nátt­úru­auð­linda hefur oft verið kallað „eitt­hvað annað”. Þátttaka Íslands í iðn­aði tengdum geim­vís­indum er dæmi um eitt­hvað allt, allt annað.

Öll Norðurlöndin með — nema Ísland

ESA var stofnað árið 1975 með það að leið­ar­ljósi að vera sam­starfs­vett­vangur Evr­ópu­ríkja í geim­rann­sóknum. Aðild­ar­ríki þess eru nú 22 tals­ins og skiptir engu máli hvort þjóð er aðili að Evr­ópu­sam­band­inu eða ekki. Öll Norð­ur­löndin að Íslandi frá­töldu eru aðilar að ESA og sjá mikla hags­muni fólgna í þátt­töku sinni. Það er ekki síður áhuga­vert að smá­þjóðir á borð við Kýpur og Möltu eru í umsókn­ar­ferli. Hvers vegna eru smá­þjóðir með tak­mark­aða inn­viði fyrir geim­iðnað að sækj­ast eftir aðild?

Svarið má að mestu rekja til reglu­gerðar stofn­un­ar­innar sem segir að ESA þurfi að fjár­festa í aðild­ar­þjóðum í hlut­falli við fjár­fram­lag þeirra. Þar stendur skýrum stöfum að eigi minna en 96% af fram­lagi hverrar aðild­ar­þjóðar renni til baka í formi verk­efna. Smærri ríki fá iðu­lega ríf­lega sinn skerf af sinni fjár­fest­ingu, þ.e. meira en 100% af fram­lagi sínu. Með aðild gætu íslenskir háskólar, hug­bún­aðar- og hátækni­fyr­ir­tæki gerst verk­takar fyrir ESA og staðið til boða verk­efni sem Ísland gæti aldrei ráð­ist í upp á sitt eins­dæmi.

Rannsóknir og vöktun á umhverfi Íslands

Þó svo ESA beri heitið geim­vís­inda­stofnun snýst starf­semi hennar ekki síður um rann­sóknir á jörð­inni, auk þess sem hún gegnir mik­il­vægu hlut­verki í fjar­skiptum og stað­setn­ing­ar­tækni. Mest fjár­magn rennur í rann­sóknir á jörð­inni eða um 20-30% en aðeins 10-15% í geim­vís­indi. Aðild­ar­löndum er skylt að standa undir þriðj­ungi af grunn­starf­semi ESA en er síðan frjálst að velja um þátt­töku í öðrum verk­efnum.

Ætla má að Ísland ein­blíni á þátt­töku í rann­sóknum tengdum jörð­inni þar sem við eigum mik­illa hags­muna að gæta bæði á sjó og á landi. Gervi­tungl ESA eru leið­andi rann­sókn­ar­tæki fyrir hlýnun sjávar, þróun jökla, jarð­hrær­ingar, útbreiðslu haf­íss og bráðnun íshell­unnar í Norður-Íshafi.

Aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum og mál­efni norð­ur­slóða eru að verða mik­il­vægur þáttur í utan­rík­is­stefnu Íslands. Besta leiðin til að gera Ísland að trú­verð­ugum þátt­tak­anda í þessum mála­flokkum er að virkja vís­inda­rann­sóknir og alþjóð­legt sam­starf.

Framlag Íslands skilar sér til baka á formi verkefna

Hvað kostar að vera með? Fjár­fram­lög aðild­ar­ríkja eru háð þjóð­ar­fram­leiðslu og umfangi þátt­töku þeirra í val­frjálsum verk­efnum. Sé fram­lag núver­andi aðild­ar­ríkja ESA skoðað sem hlut­fall af þjóð­ar­fram­leiðslu fæst hug­mynd um mögu­legt fram­lag Íslands. Eistland er dæmi um nýtt aðild­ar­ríki og fara fram­lög þeirra öll í val­frjáls verk­efni. Sé Eistland notað sem við­mið­un­ar­land yrði árlegt fram­lag Íslands um 83 millj­ónir króna. Ef miðað er við Danmörku yrðu heild­ar­fram­lög Íslands um 220 millj­ónir á ári. Þessar upp­hæðir mið­ast við Ísland sem full­gilt aðild­ar­ríki en búast má við að fram­lög Íslands yrðu mun lægri fyrst um sinn.

Það er aug­ljóst að ekki er um him­in­háar upp­hæðir að ræða. Til að mynda er hinn sígildi sam­an­burður við Icesave, Hörpu og Hval­fjarð­ar­göng algjör­lega frá­leitur. Upphæðin er er af sömu stærð­argráðu og árlegur rekstur Íslenska dans­flokks­ins eða Dval­ar­heim­ili aldr­aðra í Borg­ar­nesi, Land­mæl­inga Íslands, Húsa­frið­un­ar­sjóðs, Embætti sýslu­manns Vest­fjarða eða árlegt fram­lag Íslands til NATO.

Hver ein­asta króna sem Ísland legði til í ESA myndi skila sér til baka til atvinnu­lífs­ins í formi úthlut­aðra verk­efna. Þá eru ekki með­talin þau óbeinu áhrif á hag­kerfið sem tengd nýsköp­un­ar­starf­semi hefði í för með sér. Í ítar­legum úttektum sem gerðar voru á þátt­töku hinna Norð­ur­land­anna í ESA var kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu, að fyrir hverja milljón króna sem varið er í sam­starf við ESA urðu til 4 til 5 millj­ónir í veltu fyrir þar­lend fyr­ir­tæki.

Að öllu ofan­töldu er ljóst að þátt­taka Íslands er ekki bara raun­sær mögu­leiki heldur einnig spenn­andi tæki­færi. Þess vegna ættu stjórn­völd að kanna málið af fullri alvöru. Innganga í ESA er liður í því að skapa rétta umgjörð fyrir nýsköpun og iðnað byggðan á hug­viti. Og í leið­inni verður hægt að segja íslenskum skóla­börnum í fyrsta skipti, „Krakkar, ÞIÐ getið orðið geim­farar“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár