Repúblikanar og móðgaðir tónlistarmenn

Hvað lag er best spila fyrir stuðn­ings­menn­ina? Ekki gott að segja. En tón­list­ar­menn­irnir verða að sam­þykkja notk­un­ina á lag­inu. Svo mikið er víst.

Á seinni hluta 20. ald­ar­innar fóru kosn­inga­bar­áttur í Banda­ríkj­unum að fara fram í sí auknum mæli á sjón­varps­skjáum lands­manna. Til að lífga upp á boð­skap­inn gripu fram­boðs­stjór­arnir til þess að nota vin­sæl dæg­ur­lög í aug­lýs­ingum, helst með ein­földum texta sem fólk þekkir. Einnig hafa útsend­ingar frá sam­komum, fram­boðs­fundum og lands­fundum auk­ist, sér­stak­lega með til­komu inter­nets­ins. Þar eru einnig notuð vin­sæl lög, bæði við inn­komu og útgöngu fram­bjóð­enda. Fyrir þetta borga fram­boðin ákveðna upp­hæð til ASCAP, sam­taka banda­rískra laga­höf­unda, eða eiga a.m.k. að gera það. Engu að síður hafa margir tón­list­ar­menn verið ósáttir við hvernig tón­list þeirra er notuð á póli­tískan hátt og í lang­flestum til­fellum þegar um fram­bjóð­endur Repúblíkana­flokks­ins er að ræða.

Ronald Reagan

Fyrir 1984 vissu fáir hvaða skoð­anir rokkarinnBruce Springsteenhefði á þjóð­mál­unum. Ein­hverjir hjá Repúblíkana­flokknum töldu þó lík­legt að hann væri á þeirra línu og styddi vænt­an­lega for­set­ann Ronald Reagan til end­ur­kjörs þá um haustið. Reagan not­aði því lagið „Born in the USA“ um stund sem inn­komu­lag á sam­komum áður en tals­menn Springsteen bönn­uðu notk­un­ina og Springsteen sjálfur hædd­ist að for­set­anum á tón­leikum. „Born in the USA“ er eitt mis­skildasta lag sem til er og notkun Reagan á því bendir til þess að fólk hlusti ein­fald­lega ekki á text­ann. Textinn fjallar nefni­lega um það hversu illa banda­ríska rík­is­stjórnin kom fram við þá her­menn sem börð­ust í Víetnam-stríð­inu en ekki hversu frá­bært land Banda­ríkin séu. Springsteen varð mun póli­tísk­ari eftir þennan atburð og hefur lýst yfir stuðn­ingi og tekið þátt í kosn­inga­bar­áttu ýmissa Demókrata, s.s. John Kerry, Barack Obama og Bernie Sanders.

George W. Bush

Bush verður fyrst og fremst minnst fyrir það rask sem hann olli í Mið­aust­ur­löndum. En fyrir þann tíma hafði hann raskað friði nokk­urra tón­list­ar­manna, nefni­lega Tom Petty og Sting. Margir stjórn­mála­menn hafa nýtt sér lag Petty „I Won´t Back Down“, þar á meðal bæði Clinton hjónin og Ron Paul, guð­faðir Teboðs­hreyf­ing­ar­innar. Þegar Bush yngri not­aði lagið reidd­ist Petty og krafð­ist þess að fram­boðið myndi hætta að nota það. Á kjör­dag spil­aði Petty lagið á heim­ili Al Gore, mót­fram­bjóð­anda Bush. Sting gerði athuga­semdir við notkun Bush á lag­inu „Brand New Day“, sem Al Gore hafði reyndar einnig notað. Sem Breti sagð­ist Sting ekki vilja taka þátt í banda­rísku stjórn­málakarpi og Bush fram­boðið hætti því að nota lagið. Sting bað Al Gore hins vegar aldrei um að hætta að nota það.

John McCain

Fyrrum her­mað­ur­inn og stríðs­fang­inn John McCain fékk það ómögu­lega verk­efni að reyna að halda for­seta­emb­ætt­inu í höndum Repúblíkana­flokks­ins eftir valda­tíð George W. Bush, í miðju efna­hags­hrun­inu haustið 2008. Tón­list­ar­menn voru einnig mis­sáttir við notkun hans á verkum þeirra í kosn­inga­bar­átt­unni. Meðlimir hljóm­sveit­anna Foo Fighters og ABBA urðu sár­móðguð þegar þau komust að því að lögin „My Hero“ og „Take a Chance on Me“ höfðu verið notuð. Þá ákvað country-rokk­ar­inn og Demókrat­inn Jackson Browne að lög­sækja McCain og Repúblíkana­flokk­inn fyrir notkun á lag­inu „Running on Empty“. Browne og McCain sömdu um bætur og sá síð­ar­nefndi baðst opin­ber­lega afsök­unar á athæf­inu. Notkun McCain á lag­inu „Right Now“ klauf aftur á móti hljóm­sveit­ina Van Halen í tvennt. Hinir hol­lensku bræður Eddie og Alex Van Halen reidd­ust en fyrrum söngv­ar­inn Sammy Hagar varð hálf hrærður.

Sarah Palin

Fyrir kosn­ing­arnar 2008 fékk Repúblíkana­flokk­ur­inn teboðs­drottn­ing­una Söru Palin sem vara­for­seta­efni til að lífga upp á fram­boð John McCain. Það gerði hún svo sann­ar­lega en komst þó aðal­lega í frétt­irnar fyrir mis­heppuð við­töl og umdeild ummæli. Palin lenti í deilum við tón­list­ar­fólk vegna notk­unar á lögum á fram­boðs­fundum. Má þar nefna country-söng­kon­una Gretchen Peters vegna lags­ins „Independence Day“ sem fjallar um heim­il­is­of­beldi gegn konum. Peters sagði boð­skap lags­ins alger­lega ósam­rým­an­lega stefnu Palin í jafn­rétt­is­málum. Palin not­aði einnig lagið „Who Says You Can´t Go Home“ með rokk­hljóm­sveit­inni Bon Jovi. For­sprakk­inn Jon Bon Jovi var ekki sáttur þar sem hann studdi og tók virkan þátt í for­seta­fram­boði Barack Obama. Reiðust var samt söng­konan Nancy Wilson úr hljóm­sveit­inni Heart eftir að Palin tók upp á því að nota lag þeirra „Barracuda“ sem inn­komu­lag á sam­komum.

Mér finnst ég alger­lega tekin í bólinu. Skoðanir og gildi Söru Palin standa á engan hátt fyrir okkur sem banda­rískar konur.

Mitt Romney

For­seta­fram­boð morm­ón­ans Mitt Romney gegn Barack Obama árið 2012 þótti ákaf­lega lit­laust. Hann náði þó að rugga bátnum nokkrum sinnum þegar kom að laga­vali fyrir aug­lýs­ingar og sam­komur. Soul-tón­list­ar­mað­ur­inn Al Green sig­aði lög­fræð­ingum sínum á fram­bjóð­and­ann þegar hann not­aði lagið „Let´s Stay Together“ í aug­lýs­ingu gegn Obama, sem Al Green studdi í kosn­ing­unum. Það sama gerði Kanada­mað­ur­inn K´naan þegar lag hans „Wavin´ Flag“ var notað á sam­komu hjá Romney. K´naan sagði aftur á móti að Obama mætti nota lagið frítt ef hann kysi að gera það. Und­ar­leg­asta lagið sem olli Romney vand­ræðum í kosn­inga­bar­átt­unni var „Panic Switch“ með rokk­hljóm­sveit­inni Sil­ver­sun Pickups. Texti lags­ins virk­aði í raun sem satýra á fram­boð Romney og því íhug­uðu með­limir hljóm­sveit­ar­innar að leyfa honum að nota það. Þeir báðu þó um að lagið yrði tekið úr umferð sem var og gert.

Donald Trump

Trump hefur nú slegið öll met hvað varðar and­styggð tón­list­ar­fólks. Hann hefur fengið fleiri hót­anir og beiðnir um af láta af spilun en nokkur annar fram­bjóð­andi í sög­unni. Hér eru helstu dæmin.

Queen

Lagið „We Are the Champions“ er orðin hálf­gerð klisja þegar kemur að ýmsum íþrótta­við­burðum og með­limir hljóm­sveit­ar­innar Queen hafa ekki amast við því. Lagið hefur einnig verið notað í póli­tískum til­gangi í nokkur skipti án þess að mót­mælt væri. En þegar að Donald Trump byrj­aði að nota lagið steig hinn dag­far­sprúði gít­ar­leik­ari Brian May fram og bað hann að hætta. Trump neit­aði og lét spila lagið á lands­fundi Repúblík­ana í júlí. Eftir það birtu með­limir Queen til­kynn­ingu um að þeir væru á móti notk­un­inni en jafn­framt að þeir myndu ekki beita lög­fræð­ingum sínum í mál­inu.

Adele

Framboð Trump hefur notað lögin „Skyfall“ og „Rolling in the Deep“ eftir bresku söng­kon­una Adele við nokkur til­efni. Adele var ekki par sátt við þetta og ákvað að banna alla notkun tón­listar sinnar á póli­tískum vett­vangi. Hún gekk þó ekki svo langt að lýsa yfir fyr­ir­litn­ingu sínu á fram­bjóð­and­anum. Það verður þó að telj­ast lík­legt því að hún hefur áður lýst yfir stuðn­ingi við Verka­manna­flokk­inn í Bret­landi.

Neil Young

Trump not­aði lagið „Rockin´ in the Free World“ þegar hann kynnti atvinnu­mála­stefnu sína í próf­kjöri Rep­búlík­ana og einnig í nokkur skipti síðan þá. Kanadíski rokk­ar­inn mót­mælti notk­un­inni til að byrja með en dró svo í land og sagði að það væri í lagi svo lengi sem Trump borg­aði fyrir leyfið. Young not­aði aftur á móti tæki­færið til þess að lýsa sinni sýn á þjóð­fé­lags­málin sem er tölu­vert öðru­vísi en sýn Trump. Þá lýsti Young einnig ein­dregið yfir stuðn­ingi við Bernie Sanders í próf­kjöri Demókrata....sem byrj­aði í kjöl­farið að nota lagið umrædda.

The Rolling Stones

Trump er mik­ill aðdá­andi bresku rokk­hljóm­sveit­ar­innar og hefur notað mörg af þeirra lögum við ýmis til­efni. Má þar nefna lögin „Sympathy for the Devil“ og „You Can´t Always Get What You Want“. Þá hefur lagið „Start Me Up“ heyrst sér­lega oft í fram­boð­inu. Meðlimir hljóm­sveit­ar­innar eru aftur á móti ekki jafn miklir aðdá­endur Donald Trump og hafa ítrekað beðið hann opin­ber­lega að hætta að nota lögin.

Twisted Sister

Lagið „We´re Not Gonna Take It“ var aðal bar­áttu­söngur Donald Trump þegar hann gaf fyrst kost á sér í próf­kjöri Repúblík­ana sum­arið 2015. Dee Snider, söngv­ari þung­arokks­hljóm­sveit­ar­innar, og Trump voru miklir mátar eftir að þeir tóku saman upp þætt­ina Celebrity Apprentice. En þegar Trump viðr­aði þá hug­mynd að meina öllum múslimum að koma til Banda­ríkj­anna og fram­boð hans fór almennt að anga af útlend­inga­andúð þá sagði Snider stopp og bað Trump að hætta að nota lagið. Snider sagði: Minn Donald Trump er Demókrati, minn Donald Trump styður rétt­inn til fóst­ur­eyð­inga. Hann er það sem þeir kalla norð­austur-Repúblík­ana, félags­lega frjáls­lynd­ann en efna­hags­lega íhalds­sam­ann.

REM

Trump hefði varla getað valið sér verri hljóm­sveit til að abb­ast upp á og banda­rísku rokksveit­ina REM. Meðlimir REM eru ákaf­lega frjáls­lyndir og þekktir yfir aktí­visma á ýmsum sviðum. Þá hefur Michael Stipe, söngv­ari og for­sprakki hljóm­sveit­ar­innar, ítrekað lýst yfir stuðn­ingi við fram­bjóð­endur Demókrata í for­seta­kosn­ingum. Trump hefur notað REM lagið „It´s the End of the World as We Know It (And I Feel Fine)“ marg­sinnis, bæði í aug­lýs­ingum og sam­komum og þá aðal­lega í hræðslu­á­róðri. Stipe vand­aði Trump ekki kveðj­urnar: Fokkið ykkur allir saman, þið sorg­legu, athygl­is­sjúku, vald­sjúku litlu karlar. Ekki nota okkar tón­list eða mína rödd í ykkar heimsku­legu og far­sa­kenndu her­ferð.

Aerosmith

Trump reitti Steven Tyler, söngv­ara banda­rísku rokk­hljóm­sveit­ar­innar Aer­osmith, til reiði fyrir notkun á lag­inu „Dream On“. Tyler lýsti þó ekki van­þóknun sinni á fram­bjóð­and­anum eða stefnu hans heldur kvart­aði yfir því að Trump væri að stela tón­list­inni. Söngv­ar­inn kjaft­stóri not­aði tæki­færið til að flytja erindi í Huffington Post um höf­und­ar­rétt og stöðu tón­list­ar­fólks í dag.

Allee Willis

Willis hefur samið mikið af þekktum lögum fyrir kvik­myndir og sjón­varps­þætti. Donald Trump hefur notað eitt af hennar lögum, „You´re the Best“ úr kvik­mynd­inni The Karate Kid, sem inn­göngu­lag á sam­komum. Willis á reyndar ekki rétt­inn á lag­inu sem Joe Esposito söng á sínum tíma en hún full­yrðir að Trump sé svo sann­ar­lega ekki „sá besti“. Þá segir hún einnig að Hillary Clinton megi nota lagið kjósi hún að gera það.

Luciano Pavarotti

Pavarotti lést árið 2007 en ekkja hans, Nicoletta Mantovani, hefur kraf­ist þess að Donald Trump hætti að nota útgáfu hins mikla ten­órs af arí­unni „Nessun Dorma“ eftir Puccini. Mantovani segir: Við viljum minna á það að þau gildi bræðra­lags og sam­stöðu sem ein­kenndu feril Luciano Pavarotti eru ósam­rým­an­leg heims­sýn Donald Trump.

Bítlarnir

Nánar til­tekið var það fjöl­skylda Bít­ils­ins George Harrison sem mót­mælti notkun fram­boðs Trump á lag­inu „Here Comes the Sun“. Harrison, sem lést árið 2001, bæði samdi lagið og söng það. Lagið var notað við inn­komu Ivönku Trump, dóttur Donalds, þegar hún kynnti hann til leiks á lands­fundi Rep­búblíkana­flokks­ins í júli. Fjöl­skyldan sagði þó að þau hefðu senni­lega leyft notk­un­ina á Harrison lag­inu „Beware of Darkness“ við þetta tæki­færi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár