Breytingar á erfðaefni heilbrigðra fósturvísa framkvæmdar í fyrsta sinn

Fréttin birt­ist fyrst á vef­síð­unni Hvatanum.

Þrosk­un­ar­fræð­ing­ur­inn Fredrik Lanner við Karol­inska háskól­ann í Svíþjóð hefur fram­kvæmt erfða­breyt­ingar á heil­brigðum fóst­ur­vísum fyrstur manna, svo vitað sé. Afar strangar reglur gilda um erfða­breyt­ingar fóst­ur­vísa og í dag er ólög­legt að gera slíkar breyt­inga ef ætl­unin er að fóst­ur­vís­arnir verði að full­þroska ein­stak­lingi.

Tæknin sem Lanner not­ast við nefn­ist CRISPR/Cas en með henni er mögu­legt að gera mjög nákvæmar erfða­breyt­ingar. Með tækn­inni skap­ast því mögu­leikar á því að breyta erfða­efni fóst­ur­vísa og væri til dæmis hægt að nýta hana til að útrýma ákveðnum sjúk­dómum í fram­tíð­inni.

Á und­an­förnum árum hafa hraðar fram­farir átt sér stað í erfða­tækni og þá sér í lagi þegar kemur að erfða­breyt­ingum fóst­ur­vísa. Í fyrra sögðu vís­inda­menn í Kína frá því að þeir hafi erfða­breytt fóst­ur­vísum sem ekki voru líf­væn­legir, meðal ann­ars í þeim til­gangi að rann­saka sjúk­dóm­inn beta-dverg­korna­blóð­leysi. Fyrr á þessu ári fengu vís­inda­menn við Francis Crick Institute í Bret­landi síðan leyfi til að erfða­breyta heil­brigðum fóst­ur­vísum gegn því að þeim væri eytt innan sjö daga.

Rann­sóknir Lanner ganga út á að upp­götva nýjar með­ferðir við ófrjó­semi auk þess að rann­saka stofn­frumur fóst­ur­vísa. Lanner von­ast til þess að rann­sóknir hans muni í fram­tíð­inni hjálpa þeim sem glíma við ófrjó­semi, varpi ljósi á leiðir til að koma í veg fyrir fóst­ur­lát og að hægt verði að nýta nið­ur­stöð­urnar til að með­höndla sjúk­dóma.

Í sam­tali við NPR sagði Lanner að öllum fóst­ur­vísum í rann­sókn­inni hans sé eytt innan 14 daga frá frjóvgun. Lanner sagð­ist einnig vera á móti því að tæknin væri nýtt í að búa til svokölluð "hönn­un­ar­börn" þar sem eig­in­leikum á borð við augnilt, hár­lit og hæð sé breytt.

Frá upp­hafi hefur CRISPR/Cas tæknin verið afar umdeild og eru skiptar skoð­anir á því hvort rétt­læt­an­legt sé að grípa inn í fóst­ur­þroska með þessum hætti. Þeir sem hlynntir eru tækn­inni hafa bent á kosti þess að geta komið í veg fyrir lífs­hættu­lega sjúk­dóma. Aðrir hafa talað gegn tækn­inni og meðal ann­ars nefnt að með þessum hætti sé verið að breyta erfða­efni ein­stak­lings án þess að hann hafi gefið fyrir því leyfi sjálfur, þar að auki sé óvíst hvaða lang­tíma­af­leið­ingar breyt­ingar á erfða­efni komi til með að hafa.

Fréttin birt­ist fyrst á vefnum Hvatinn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár