Efasemdir um að Evróputilskipun standist stjórnarskrána

Ákveðið hefur verið að senda þings­á­lykt­un­ar­til­lögu utan­rík­is­ráð­herra, um stað­fest­ingu EES reglna um fjár­mála­eft­ir­lit, aftur í nefnd. Þetta var gert eftir hörð mót­mæli fjölda þing­manna á þing­fundi í morgun, en greiða átti atkvæði um málið á fund­inum.

Ástæða mót­mæl­anna eru ummæli Bjargar Thoraren­sen, pró­fess­ors í lög­fræði og sér­fræð­ings í stjórn­skip­un­ar­rétti, um til­lög­una. Björg sagði við Morg­un­blaðið í gær að henni þætti málið ekki hafa tekið nægum lag­fær­ingum og að það verðu „ekk­ert lengra kom­ist í að teygja stjórn­ar­skrána heldur en orðið er.“ Samkvæmt til­lög­unni verði fram­sal valda­heim­ilda til yfir­þjóð­legrar stofn­unar gríð­ar­lega mikið, meira en rúm­ast innan stjórn­ar­skrár­innar.

Björg sagði jafn­framt: „Mín skoðun er sú að for­send­urn­ar sem voru uppi við gerð EES-samn­ings­ins 1992 séu brostn­ar. Þess vegna tel ég þess­ar lag­fær­ing­ar, sem hafa verið gerðar til þess að fella þær að tveggja stoða kerf­inu, ekki breyta eðli máls­ins. Þetta er nýtt fram­sal á nýj­um sviðum.“

Það var Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, sem vakti athygli á mál­inu í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun. Hann spurði Eygló Harð­ar­dóttur, sem er starf­andi utan­rík­is­ráð­herra, um málið. Hann sagði að risið hafi alvar­leg stjórn­skipu­leg álita­efni vegna máls­ins, sem feli í sér meira fram­sal á rík­is­valdi en nokkur dæmi séu um. „Fram­salið er ekki vel afmarkað, er ekki á þröngu sviði og er veru­lega íþyngj­andi. Það veitir m.a. yfir­þjóð­legri stofnun rétt til að grípa inn í hvers kyns fjár­mála­starf­semi og við sér­stakar aðstæður rétt til þess að stöðva á einni nóttu rekstur slíks fyr­ir­tækis. Þetta er miklu meira fram­sal en við höfum séð áður.“ Allir þing­menn sem tóku þátt í umræðu um málið, fyrir utan einn, hafi verið á sama máli.

„Nú er uppi ný staða í mál­inu. Nú hefur það gerst að einn af helstu stjórn­skip­un­ar­fræð­ingum lands­ins, Björg Thoraren­sen pró­fessor, hefur stigið fram og gefið tvö­falda yfir­lýs­ingu um að hún sé sam­mála þessu og telji að þetta rúmist ekki innan stjórn­ar­skrár­innar.“ Hann spurði því hvaða skaði yrði þótt mál­inu yrði frestað og utan­rík­is­mála­nefnd, stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, skoði málið þar til í næstu viku.

Eygló svar­aði því til að hún hefði rætt við Lilju Alfreðs­dóttur utan­rík­is­ráð­herra um málið og sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá henni teldu stjórn­völd málið rúm­ast innan heim­ilda og búið væri að vinna málið lengi.

„Ætlar hæst­virtur ráð­herra að koma hingað og segja að það sé í lagi að böðl­ast áfram með málið og þar með að leggja blessun sína yfir það að fram­kvæmd­ar­valdið gangi á skítugum skóm yfir stjórn­ar­skrána? Hefur ekki hæst­virtur ráð­herra svarið eið að stjórn­ar­skránni?“ spurði Össur þá. 

„Eins og ég sagði í svari mínu hlust­aði ég og skil að þetta mál sé umdeilt. Hins vegar hefur verið talið og það hefur utan­rík­is­mála­nefnd án efa farið mjög vel yfir, sem og utan­rík­is­ráðu­neytið og fjár­mála­ráðu­neytið, og talið að þetta rúm­að­ist innan þeirra heim­ilda sem við höfum. Það var for­sendan fyrir því að ráð­herr­ann mælti fyrir þessu máli og utan­rík­is­mála­nefnd afgreiðir það síðan. Ég get raunar ekki bætt neinu við hvað það varðar,“ svar­aði Eygló. 

Að loknum fyr­ir­spurna­tím­anum kvöddu sér fjöl­margir þing­menn hljóðs og ósk­uðu eftir því að málið yrði tekið af dag­skrá. „Alþingi getur ekki gengið til atkvæða og greitt atkvæði gegn fag­legu áliti helsta sér­fræð­ings lands­ins um stjórn­ar­skrána sem við höfum svarið eið að,“ sagði Helgi Hjörvar um málið. Nafni hans Helgi Hrafn Gunn­ars­son tók undir með honum. „Ég mæli ein­dregið með því að við frestum þess­ari atkvæða­greiðslu þar til málið er útkljáð. EES má bara bíða eftir því að Alþingi Íslend­inga tryggi að reglu­gerðin stand­ist stjórn­ar­skrá. Ekkert í okkar störfum er sjálf­sagð­ara en það.“

„Við erum ekki að tala um hvaða mál sem er, við erum að tala um það að rök­stutt er af einum helsta sér­fræð­ingi Íslands í stjórn­skip­un­ar­rétti að hér verði ekki lengra kom­ist í því að teygja stjórn­ar­skrána. Ég held í ljósi þess að þetta kom fram í gær að við verðum ein­fald­lega að fresta þess­ari atkvæða­greiðslu,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir, og sagði óábyrgt að gera annað en fresta mál­inu. 

Eygló Harð­ar­dóttir kom þá aftur upp í ræðu­stól og óskaði eftir því að gert yrði hlé á fund­inum og þing­flokks­for­menn myndu ráða ráðum sínum. Það var gert og ákveðið var að málið yrði sent aftur inn í nefnd, til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár