Knattspyrnumaðurinn sem vildi ekki spila

Carlos Kaiser fékk ótrú­leg tæki­færi á ferli sínum sem knatt­spyrnu­maður. Sér­stak­lega í ljósi þess að hann kunni ekk­ert í íþrótti. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti sér ævin­týrið sem Kaiser bjó til um eigin til­búnu hæfi­leika.

Árið 2011 birt­ist sjón­varps­við­tal á brasil­ísku stöð­inni Globo við fyrrum knatt­spyrnu­mann sem flestir höfðu gleymt. Ástæðan fyrir við­tal­inu var sú að allur hans fer­ill hafði verið eitt stórt plat. Hann hafði á ákaf­lega útsmog­inn en jafn­framt nokkuð aðdá­un­ar­verðan hátt náð að koma sér undan því að spila knatt­spyrnu allan sinn feril en þó fengið að njóta ávaxt­anna af því að vera atvinnu knatt­spyrnu­maður. Þetta er sagan af Carlos Kaiser.

Ungur og efnilegur

Carlos Henrique Raposo er fæddur 2. apríl árið 1963 í bænum Rio Pardo í suð­ur­hluta Brasilíu. Hann ólst upp í fátækt og eins og margir ungir piltar ákvað hann að reyna fyrir sér í knatt­spyrn­unni. Bras­il­íu­menn urðu heims­meist­arar í knatt­spyrnu árið 1970, lið sem af mörgum er talið eitt það allra besta í sög­unni, og það hafði mikil áhrif unga drengi eins og Carlos. Fyrir þá var knatt­spyrnan leiðin út úr fátækra­hverf­unum. Um 10 ára ald­ur­inn flutti Carlos norður til stór­borg­ar­innar Río de Janeiro og æfði með ung­linga­liði Botafogo sem var stór­veldi á þeim tíma, liðið sem bæði Garrincha og Jairzinho höfðu spilað með. Hann þótti efni­legur og fór snemma yfir í annað stór­veldi frá Ríó-borg, Flamengo, lið hins mikla Zico. Á þessum tíma fékk hann við­ur­nefnið sitt Kaiser eða keis­ar­inn. Sagan segir að það hafi verið vegna þess að hann hafi minnt á hinn þýska Franz Beckenbauer á velli en mögu­legt er að hann hafi ein­fald­lega búið þetta við­ur­nefni til sjálfur.

Carlos Kaiser var í góðu lík­am­legu formi, mjög snöggur og spil­aði sem fram­herji. Önnur lið fóru að sína honum áhuga, jafn­vel lið utan land­stein­anna. Árið 1979, þegar hann var 16 ára, hitti hann útsend­ara mexíkóska 1. deildar liðs­ins Puebla F.C.. Hann fékk reynslu­samn­ing um að spila með aðal­liði félags­ins og flaug til Mexíkó. En þegar þangað var komið tók hins vegar alvara lífs­ins við. Kaiser æfði með lið­inu um stund og þá tóku þjálf­arar liðs­ins eftir nokkru – Hann var ein­fald­lega mjög lélegur knatt­spyrnu­maður! Hann hafði enga bolta­tækni og engan leikskiln­ing. Eftir nokk­urra mán­aða dvöl í Mexíkó var Carlos Kaiser sendur heim án þess að hafa spilað svo mikið sem einn leik. Eftir þessa sneypu­för voru tveir kostir í boði fyrir hinn unga Kaiser. Annars vegar að hætta knatt­spyrnu­iðkun og snúa sér að öðru. Hins vegar að æfa meira, bæta sig og reyna að kom­ast að hjá öðru liði. Kaiser ákvað þó að gera bæði, hann vildi vera atvinnu­knatt­spyrnu­maður sem ekki spil­aði knatt­spyrnu.

Eins og allir aðrir knatt­spyrnu­menn þá kom ég úr fátækri fjöl­skyldu, en ég vildi verða stór, eiga mikið af pen­ingum svo ég gæti gefið fjöl­skyldu minni betri lífs­af­komu....ég vissi að besta leiðin til þess að láta það ger­ast var í gegnum knatt­spyrnu. Ég vildi verða knatt­spyrnu­maður án þess að þurfa að raun­veru­lega spila.

Úthugsað svindl

Þegar Carlos Kaiser sneri aftur til Ríó var hann dug­legur að stunda hið villta næt­ur­líf borg­ar­innar. Hann hafði hafði tengsla­net eftir veru sína hjá Flamengo og nýtti sér það til að kynn­ast mörgum af þekkt­ustu knatt­spyrnu­mönnum lands­ins. Ein­hverjir voru eldri kempur, svo sem Carlos Alberto Torres, heims­meist­ari frá 1970 og einn af bestu varn­ar­mönnum allra tíma. En flestir voru upp­renn­andi stjörnur, s.s. Romario, Bebeto, Ricardo Rocha og Branco, sem áttu eftir að tryggja Brasilíu heims­meist­ara­tit­il­inn árið 1994. Kaiser var á heima­velli á næt­ur­klúbb­unum. Hann var ein­stak­lega sjar­mer­andi og lað­aði bæði menn og konur að sér. Hann ving­að­ist einnig við fjöl­marga blaða­menn og það átti eftir að skipta miklu máli fyrir feril hans á kom­andi árum.

En hvernig ætl­aði hann að fara að þessu, þ.e. að vera knatt­spyrnu­maður sem ekki spil­aði? Jú, hann nýtti sér tengslin á tvenns konar hátt til þess að fá samn­inga hjá félags­liðum. Þegar leik­menn sem hann þekkti fengu samn­inga reyndu þeir að koma honum að á reynslu­samn­ing á sama tíma. Blaða­menn­irnir skáld­uðu svo upp lof­rullu um hann þannig að ímynd hans væri sterk. Í einni grein sem birt­ist skömmu eftir að Kaiser sneri aftur frá Mexíkó var því haldið fram að stjórn­völd þar í landi hafi reynt að fá hann til að skipta um rík­is­fang til að spila fyrir lands­liðið. Á móti gaf hann blaða­mönn­unum árit­aðar treyjur og ýmsa aðra muni. Leik­menn­irnir héldu einnig þess­ari ímynd á lofti þó að fæstir hefðu nokkurn tím­ann séð hann spila. For­svars­menn lið­anna sáu ekki ástæðu til að draga þetta í efa.

Þegar að Kaiser var kom­inn með fót­inn inn hjá ein­hverju liði og hafði skrifað undir reynslu­samn­ing þá sagð­ist hann ávallt ekki vera í nægi­legu leik­formi. Þetta þýddi að hann fékk nokkrar vikur eða jafn­vel mán­uði þar sem hann stund­aði ein­ungis þrekæf­ingar og þurfti því ekki að sýna fram á neina getu með knött­inn. Hann fékk samt góð laun og gat stundað næt­ur­lífið að vild. Sem atvinnu­knatt­spyrnu­maður fékk hann mikla athygli og kven­hygli. Þegar hann þurfti loks að sparka í bolta á æfingum þá tók við þriðji fasi svindls­ins. Sem fram­herji þá vildi hann fá langar send­ingar fram sem hann myndi hlaupa á eftir en þá lét hann sig falla í jörð­ina og greip um lærið. Þá laug hann því að vöðvi aftan í læri hefði rifnað og kveink­aði sér ógur­lega. Á níunda ára­tugnum höfðu íþrótta­læknar ekki yfir nægi­legri tækni að ráða til að sjá þetta. Seg­u­l­ómun­ar­tæki voru ekki til og því urðu þeir ein­fald­lega að taka hann trú­an­legan. Ef þeir vildu rann­saka Kaiser enn frekar hafði hann sam­band við tann­lækn­inn sinn sem sagði liðs­lækn­unum að leik­mað­ur­inn væri með mikla rót­ar­sýk­ingu og gæti ekki spilað. Yfir­leitt dugði „rifni vöðvinn“ samt til. Hann gat því setið út samn­ing­inn á meiðsla­list­anum og ekki gert hand­tak. Svo hófst leitin að næsta liði, eða þ.e.a.s. fórn­ar­lambi.

Litríkur ferill

Fyrsta félagið sem Carlos Kaiser komst á samn­ing hjá eftir kom­una frá Mexíkó var hans gamla félag Botafogo. Þar gekk áætlun hans full­kom­lega eftir þar til læknir félags­ins, Ronaldo Torres að nafni, komst í spilið. Kaiser gekk oft um með far­síma, tæki sem mjög fáir áttu á þessum tíma, og tal­aði stöðugt á ensku í hann. Hann sagð­ist vera að ræða við útsend­ara liða frá Englandi um áhuga þeirra á sér og mögu­leg félaga­skipti. Þetta vakti mikla aðdáun hjá öllum leik­mönnum og starfs­fólki Botafogo.....nema Torres lækni.

Hann var sá eini sem kunni ensku og hann átt­aði sig á því að Kaiser var bara að segja eitt­hvað bull í sím­ann og heyrði líka engan tala til baka í sím­anum. Þegar Kaiser var í sturtu eitt sinn ákvað lækn­ir­inn athug­uli að rann­saka far­sím­ann. Þá kom í ljós að sím­inn var ein­ungis leik­fang. Eftir þetta atvik var Kaiser fljótur að forða sér frá Botafogo en hann var alls ekki af baki dott­inn í svindlinu og stað­ráð­inn í því að halda „ferl­inum“ gang­andi.

Carlos Kaiser gekk vel að koma sér á samn­inga í Ríó de Janeiro. Þar þekkti hann alla og áður en yfir lauk hafði hann verið á samn­ing hjá öllum fjóru stóru liðum borg­ar­innar, Botafogo, Flamengo, Flu­minense og Vasco da Gama. Hjá Vasco da Gama var hans helsta hlut­verk reyndar að hjálpa öðrum leik­manni að kom­ast yfir áfeng­is­vanda­mál. Auk þess­arra liða komst hann á samn­ing hjá tveimur minni liðum borg­ar­innar, Bangu og America. Árið 1986 fór hann yfir Atl­antsála til Evrópu. Þá fékk hann samn­ing hjá franska 2. deildar lið­inu Gazélec í Ajaccio-borg á eyj­unni Korsíku.Eyja­skeggjar voru spenntir fyrir að fá brasil­ískan fram­herja til liðs­ins og fjöl­menntu á leik­vang­inn þegar sjálfur Carlos Kaiser var afhjúp­aður á opinni æfingu. Hann hafði ekki haft tíma til að hrinda sinni venju­legu svindl-rútínu í gang og ótt­að­ist nú að valda áhorf­endum von­brigðum með afleitri knatt­tækni sinni. Hann greip því til þess ráðs að taka alla bolta á æfinga­svæð­inu og sparka þeim upp í stúku til áhorf­and­anna. Hann kall­aði til þeirra, þakk­aði þeim og kyssti Gazélec merkið á treyj­unni sinni. Áhorf­end­urnir tryllt­ust af fögn­uði yfir nýju hetj­unni sinni en nú voru engir boltar eftir til að sýna listir með. Sýningin fólst því í hlaupa-og þrekæf­ingum sem hent­aði Carlos Kaiser mæta­vel. Ferill hans í Frakk­landi end­aði ári seinna líkt og hjá öðrum félögum, hann spil­aði lítið sem ekk­ert og skor­aði ekki eitt ein­asta mark. Engu að síður fékk hann félaga sína hjá brasil­ísku press­unni til þessa að ljúga því að hann hefði spilað í 8 ár í Frakk­landi og verið aðal­marka­skor­ari Kor­síkuliðs­ins.

Kaiser gerði það að list­formi að koma sér undan því að spila knatt­spyrnu. Þegar að hann sneri heim frá Frakk­landi fékk hann samn­ing hjá Bangu í Ríó. Í blöð­uð­unum birt­ust fyr­ir­sagnir á borð við: „Bangu hefur fengið sinn kóng: Carlos Kaiser“. Eft­ir­vænt­ing­arnar voru miklar eftir allar hetju­sög­urnar frá Frakk­landi en Kaiser hélt áfram sinni rútínu, þ.e. fyrst að æfa án bolta og síðan að þykj­ast vera slas­aður. Engu að síður var hann val­inn í liðið í eitt skipti þó hann væri á meiðsla­lista. Þjálf­ar­inn full­viss­aði hann þó um það að hann yrði ekki lát­inn spila, þetta væri ein­ungis upp á punt. En Bangu lentu 2-0 undir og sár­vant­aði mark og því greip þjálf­ar­inn til þess að senda „stjörnu­fram­herj­ann“ inn á. Þá tók Kaiser eftir því að nokkur ung­menni í áhorf­enda­sk­ar­anum voru að hrópa ókvæð­is­orð að leik­mönnum Bangu. Hann stökk því á grind­verkið fyrir framan áhorf­end­urnar, öskr­aði og blót­aði að þeim þar til dóm­ar­inn kom að og sýndi honum rauða spjaldið...áður en hann kom inn á völl­inn. Þegar for­seti Bangu yfir­heyrði Kaiser um hvað honum hefði gengið til sagði Kaiser að ung­mennin hefðu beint níð­inu að for­set­anum sjálfum og Kaiser hefði þurft að verja heiður hans. Í stað samn­ings­rift­unar fékk Carlos Kaiser hálfs árs fram­leng­ingu á samn­ingi sínum fyrir vikið.

Hvernig komst hann upp með þetta?

Eitt sein­asta liðið sem Carlos Kaiser var samn­ings­bund­inn hjá var banda­ríska liðið El Paso Sixshooters, lið frá Texas sem spil­aði hálfat­vinnu­manna­deild sem nefnd­ist PDL. Það var í upp­hafi tíunda ára­tug­ar­ins, í þann mund sem ver­ald­ar­vef­ur­inn var að koma fram á sjón­ar­sviðið. Áá þeim tíma­punkti ákvað Kaiser að hann gæti ekki haldið svindlinu gang­andi áfram. Hann var búinn að brenna flestar brýr að baki sér í Brasilíu og nú var kom­inn sá tími að hægt væri að „fletta honum upp“. Svindl Kaisers byggði fyrst og fremst á skorti á upp­lýs­ingum. Þegar hann fékk samn­ing var það ein­ungis vegna ummæla ann­arra leik­manna og blaða­manna, ummæla sem hann stýrði alger­lega sjálfur. Á þessum tíma var erfitt að fá góðar og nákvæmar töl­fræði­upp­lýs­ingar um leik­menn eða vídjó­upp­tökur af þeim. Liðin höfðu ein­fald­lega ekki nægi­leg úrræði til að meta gæði leik­manna.

Carlos hik­aði heldur ekki við að ljúga til um feril sinn til að fá samn­inga. Til dæmis sagð­ist hann hafa spilað fyrir argent­ínska stór­veldið Independi­ente frá Buenos Aires. Hann sagð­ist hafa fengið þann samn­ing fyrir til­stilli góð­vinar síns Jorge Burruchaga, sem var lyk­il­maður hjá Independi­ente og síðar heims­meist­ari með argent­ínska lands­lið­inu. Ekki nóg með það, þá sagð­ist Kaiser einnig hafa verið lyk­il­maður hjá lið­inu þegar það vann Cup Liberta­dores (nokk­urs konar meist­ara­deild Suður Ameríku) árið 1984 og Heims­skjöld­inn gegn Liverpool sama ár. Sá sem um er rætt heitir aftur á móti Carlos Enrique, argent­ínskur miðju­maður og leik­maður Independi­ente til margra ára. Carlos Kaiser þekkti ekki einu sinni Jorge Burruchaga og óvíst er hvort hann hafi nokkuð tím­ann komið til Argent­ínu. Á tímum ver­ald­ar­vefs­ins hefði Carlos Kaiser aldrei kom­ist upp með svo ósvífna lygi.

En svindl Kaisers var ekki ein­ungis byggt á lyg­unum heldur einnig per­sónu­töfrum hans. Hann hafði öfl­ugt tengsla­net og var var vin­sæll hjá liðs­fé­lögum sínum og sam­starfs­mönnum alla tíð. Hann gekk meira að segja svo langt að ráða vænd­is­konur handa þeim á ferða­lögum. Flestir liðs­fé­laga hans hafa þó sjálf­sagt vitað hversu lélegur leik­maður hann var. Einn af hans nán­ustu vinum, varn­ar­mað­ur­inn og heims­meist­ar­inn Ricardo Rocha hafði þetta að segja um Kaiser: „Eina vanda­mál hans var bolt­inn. Hann var svo full­kom­inn fram­herji að hann skor­aði aldrei mark og gaf aldrei stoðsend­ingu. Hann sagð­ist svo alltaf vera meiddur. Þegar bolt­inn fór til vinstri fór hann til hægri og öfugt. Hann hafði enga hæfi­leika en hann var mjög, mjög góður maður. Allir elsk­uðu hann.“

Það reynd­ist rétt hjá Rocha. Á ferli sem spann­aði 20 ár spil­aði Carlos Kaiser ein­ungis um 30 leiki þar sem hann kom yfir­leitt inn á á lokamín­út­unum. Hann skor­aði ekki eitt ein­asta mark. Síðan þá hefur Kaiser unnið sem einka­þjálf­ari og hann er ekki plag­aður af eft­ir­sjá. Þvert á móti þá er hann nokkuð ánægður með sig. „Ég sé ekki eftir neinu. Félögin plata nú þegar svo marga leik­menn upp úr skónum, ein­hver varð að vera hefnd­ar­eng­ill­inn,“ sagði Kaiser.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár