Poppstjarnan, sendiherrann og skartgripahönnuðurinn frá Úsbekistan

Gulnara Karimova er engin venju­leg athafna­kona. Þessi 44 ára þús­und­þjala­smiður lauk dokt­ors­prófi árið 2001 en ári áður kláraði hún meist­ara­nám í Harvard. Sex árum síðar varð hún aðstoð­arutan­rík­is­ráð­herra Úsbekistan, fasta­full­trúi lands­ins hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum og seinna sendi­herra á Spáni. Sú stað­reynd að faðir hennar var for­seti Úsbekistan hafði vafa­laust áhrif á það að hún hlaut jafn skjótan frama og raun ber vitni.

En nú er haf­inn darrað­ar­dans í Tashkent, höf­uð­borg Úsbekistan, vegna þess að pabbi hennar Gulnöru er dáinn. Islam Karimov var ein­ræð­is­herra í tæpa þrjá ára­tugi eða allt frá því fyrir stofnun sjálf­stæðs ríkis Úsbeka í kjöl­far falls Sov­ét­ríkj­anna. Úsbekistan er fjöl­menn­asta ríki mið Asíu með um 30 millj­ónir íbúa. Lega þess er hern­að­ar­lega mik­il­væg. Birgða­stöðvar Banda­ríkja­hers eru í land­inu og voru þær nýttar í stríð­inu í Afganistan. Stjórnin í Tashkent er harð­hent og upp­lýs­inga­gjöf ógagnsæ. Leyni­þjón­ustan og valda­klíkur í höf­uð­borg­inni fara með mikil völd. Þegar þegnar mót­mæla rík­is­stjórn­inni er brugð­ist hart við og hafa and­stæð­ingar stjórn­valda verið soðnir lif­andi.

Gulnara var áður álitin krón­prinsessa Úsbekistan og hugs­an­legur arf­taki föður síns. En ljóst er að lík­urnar á for­seta­emb­ætti í föð­ur­arf eru afar litlar nú þar sem hún hefur verið í stofu­fang­elsi ásamt dóttur sinni síðan 2014. Hópur sænskra rann­sókn­ar­blaða­manna komst að því að sænsk-finnska fjar­skipta­fyr­ir­tækið Telia Sonera hefði borgað um 400 milj­ónir dala í mútu­greiðslur til aðila tengdum Gulnöru. Málið er enn þann dag í dag stærsta mútu­mál í sögu Norð­ur­landa.

Það mál var eitt margra spill­ing­ar­mála sem rakin hafa verið til hennar. Verstu til­fellin voru á fjar­skipta­mark­aði Úsbekistan en hún kúg­aði erlenda fjár­festa sem vildu þar inn um stjarn­fræði­lega háar upp­hæðir. Einnig á hún að hafa lekið upp­lýs­ingum sem komu illa við æðstu stjórn­ar­menn lands­ins. Eftir ótrú­legan feril settu þeir hana á bak við lás og slá. Hann fékk heila­blóð­fall nýverið eftir að hafa skálað við úsbeska Ólymp­íu­fara í vodka eftir að þeir síð­ar­nefndu komu heim frá Ríó.

Shavkat Mirziyoyev for­sæt­is­ráð­herra hefur verið skip­aður starf­andi for­seti. Hann er þekktur fyrir að nota hnef­ana frekar en heil­ann til að ná sínum málum fram. Hann er sagður vera nátengdur áhrifa­miklum rúss­neskum millj­arða­mær­ingum. Enn fremur er hann æðsti yfir­maður land­bún­að­ar­geirans í land­inu, þ.á.m. hins mik­il­væga bómull­ar­týnslu­geira þar sem ásak­anir um almenna þrælkun og barna­þrælkun hafa komið fram.

Líklegt er að yfir­maður SNB leyni­þjón­ust­unnar í land­inu, Rustam Inoyatov, hafi gefið grænt ljós á arf­tak­ann. Leynilög­reglu­for­ing­inn á víst nægi­lega vand­ræða­legar upp­lýs­ingar um flesta hátt setta stjórn­mála­menn í land­inu til að geta haft áhrif á þá. Rustam leiddi hand­tök­una á Gulnöru Karimovu for­seta­dóttur og nokk­urra banda­manna hennar. Hand­takan hefði aldrei átt sér stað nema með sam­þykki fyrr­ver­andi for­seta og föður hennar.

Eftir að hún lenti í stofu­fang­elsi tókst henni að leka hand­skrif­uðum bréfum til BBC. Þar kom meðal ann­ars fram að unnusti hennar hafi verið dreg­inn á hár­inu með bundið fyrir augun á meðan hand­tök­unni stóð. Í bréf­unum segir hún einnig frá því hvernig hún hafi áttað sig á bágri aðstöðu sam­borg­ara sinna á meðan fang­els­is­vist­inni stóð. En slíkar upp­götv­anir munu varla að vekja með­aumkun hjá neinum.

Gulnara var mikil félags­vera. Banda­ríska sendi­ráðið lýsti henni sem hötuð­ustu mann­eskj­unni í Úsbekistan. Hún víl­aði það ekki fyrir sér að baða sig í sviðs­ljós­inu. Hún samdi og flutti dæg­ur­lög undir sviðsnafn­inu Googoosha og tók upp krassandi tón­list­ar­mynd­bönd m.a. í dúett með Gerard Depar­dieu.

Þrátt fyrir að vera ríkt af auð­lindum þá er efna­hagur Úsbekistan bág­bor­inn. Ríkið er eitt ein­angr­að­asta og strang­asta alræð­is­ríki heims. Helstu atvinnu­grein­arnar eru bómull­ar­vinnsla, gull­námu­gröftur og jarð­gas. Fyrir utan að eiga landa­mæri að Afganistan þá eru Rússland og Kína ekki langt undan. Þróun stjórn- og efna­hags­mála þar mun ekki fara fram­hjá þessum stór­veldum né heldur Banda­ríkj­unum sem horft hefur í gegnum fingur sér varð­andi stöðu mann­rétt­inda­mála í land­inu.

Þar sem harður kerfis­karl mun taka við for­seta­kefl­inu af harð­stjóra sem ríkti í land­inu í 27 ár er lík­legt að aðstæður íbúa lands­ins muni lítið breyt­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár