Af hverju er iPhone 7 ekki með heyrnatólatengi?

Stærsta fréttin af Apple við­burð­inum í fyrra­dag var óneit­an­lega skortur á 3,5mm heyrnatóla­teng­inu á iPhone 7. Þetta er sann­ar­lega mjög umdeilt en er alls ekki í fyrsta sinn sem Apple fjar­lægir tækni sem fæstir höfðu talið úrelta. Þegar Apple gaf út fyrstu iMac tölv­una árið 1997 þá var til dæmis mjög umdeilt að á henni voru aðeins USB tengi í stað hefð­bund­inna Serial tengja. USB tengin voru til­tölu­lega ný og lítið af auka­hlutum í boði fyrir þau. Á þessum tíma var þetta áhættu­samt hjá Apple. Fyr­ir­tækið rambaði á barmi gjald­þrots og erfitt var að sjá vel­gengni USB stað­als­ins fyrir. iMac sló hins­vegar í gegn og sú vel­gengni hjálp­aði óneit­an­lega til við að gera USB að þeim staðli sem það er í dag.

Apple hefur verið mjög ötult í að hætta stuðn­ingi við ýmsa tækni sem þá virt­ist besti val­kost­ur­inn en, eftir á að hyggja, hefðu mátt deyja mun fyrr. Eitt skýrasta dæmið um þetta var ákvörð­unin að styðja ekki Flash marg­miðl­un­ar­staðal Adobe í fyrsta iPhone sím­anum (og öllum þar á eftir). Flash var þá með yfir­burð­ar­stöðu á mark­aði og engar aðrar raun­hæfar lausnir í sjón­máli. Margir spáðu iPhone ekki lang­lífi án Flash stuðn­ings. Margar til­raunir voru gerðar með Flash stuðn­ing á Android tækjum sem allar runnu út í sand­inn. Í dag er Flash nán­ast dautt og HTML5 hefur tekið við. Með því að neita að styðja Flash gat Apple, í krafti stærðar sinnar og stöðu, ýtt mark­að­unum í rétta átt. Jafnvel þótt Apple hafi varla vitað hver sú átt yrði árið 2007.

Stundum er stefnan hins vegar mun skýr­ari. Apple bauð sein­ast upp á VGA tengi á far­tölvu í Powerbook G3 árið 2001. Apple var þá ljóst að staf­ræn tengi voru fram­tíðin. Þeir próf­uðu sig því áfram með DVI, Mini Display Port og not­ast núna helst við Thund­er­bolt tengi og HDMI. Þrátt fyrir þetta þá lifir VGA tengið ennþá góðu lífi og bjóða flestir fram­leið­endur upp á tölvur með slíku tengi.

Trúa á þráðlausa framtíð

Í raun má skipta svona aðgerðum Apple í tvo hópa; Tækni sem er lögð niður til að nota nýjan staðal sem er betri (t.d. Mini Display Port í stað DVI sem kom í stað VGA) og svo tækni sem ein­fald­lega er úrelt eða önnur inn­byggð virkni er betri fram­tíð­ar­kostur. Gott dæmi um það er þegar Macbook Pro Retina vélin los­aði sig við hefð­bundna LAN tengið.

En hvora af þessum leiðum er Apple að fara þegar kemur að 3,5mm teng­inu? Vilja þeir mögu­lega fá alla yfir á sinn lok­aða Lightn­ing staðal? Margir virð­ast túlka þessa ákvörðun Apple þannig. Með því að þröngva not­endum yfir í Lightn­ing þá verða þeir mögu­lega trygg­ari (bundn­ari) fyr­ir­tæk­inu. Við­skipta­vinur sem á rán­dýr heyrn­ar­tól sem virka bara með iPhone er ólík­legri að versla aðra teg­und af símum. Einnig er beinn fjár­hags­legur ávinn­ingur fyrir Apple því fram­leið­endur sem nota Lightn­ing tengið þurfa að greiða Apple hlut­fall af hverju seldu tæki.

Apple svar­aði þessum pæl­ingum með afger­andi hætti í gær. Skila­boðin þar voru bæði ein­föld og skýr. Fyrstu orðin í kynn­ing­ar­mynd­inni fyrir þráð­lausu AirPods heyrnatólin voru;

„Við trúum á þráð­lausa fram­tíð, fram­tíð þar sem öll tækin þín tengj­ast áreynslu­laust saman“.

Apple ætlar sér nefni­lega ekki að fjar­lægja 3,5mm fyrir „nýtt og betra“ tengi eða til þess að þvinga not­endur yfir í sinn lok­aða staðal. Apple lítur ein­fald­lega á 3,5mm tengið með sömu augum og þeir

sáu LAN tengið; úrelt tækni sem þráð­laus tækni leysir af hólmi. Rökin fyrir því að hætta að styðj­ast við LAN tengið á þeim tíma­punkti var ein­fald­lega sú að hinn val­kost­ur­inn, þráð­laust inter­net, var nógu gott fyrir flesta. Þrýs­ingur frá Macbook not­endum hjálp­aði svo til við að fá betri net­beina á mark­að­inn. Að sama skapi er Lighting tengi Apple eða USB Type-C ekki arf­taki 3,5mm teng­is­ins frekar en að USB sé arf­taki LAN teng­is­ins eða USB minnis­lyklar arf­taki disk­ettu­drifs­ins. Við ákveðnar aðstæður virkar bein­teng­ing klár­lega betur. Fyrir þær aðstæður býður Apple upp á redd­ingu í formi breyti­stykkis. En með því að taka í burtu heyrnatóla­tengið þá ætlar Apple sér að setja þá 70 milljón síma sem þeir selja árlega á þráð­lausa hluta vog­ar­skálar­innar. Þannig munu tengja­lausir iPhone símar gefa Bluetooth staðl­inum og fram­leið­endum Bluetooth heyrnatóla það spark í rass­gatið sem þeim hefur sár­lega vantað.

Tæknileg leynisósa

Það skiptir Apple engu máli að Bluetooth sé ennþá ekki nógu góð. Og þetta ennþá er einmitt lyk­il­at­riðið hér því Bluetooth tæknin er langt í frá því að vera nógu góð til að leysa hefð­bundna 3,5mm tengið full­kom­lega af hólmi við allar aðstæður. Apple leysir mikið af þeim göllum með AirPods heyrnatól­unum sem einnig voru kynnt í gær, $159 heyrna­tól sem nota NFC ásamt tækni­legri leyn­isósu til þess að gera upp­lifun af Bluetooth marg­falt betri. En AirPods eru engin töfra­lausn fyrir hinn hefð­bundna not­enda. Til þess eru þau allt of dýr. Það skiptir þó litlu máli því nóg er til af ágætis Bluetooth heyrnatólum frá ótelj­andi fram­leið­endum.

Eins og áður not­ast Apple áfram við opinn staðal sem stendur öllum fram­leið­endum til boða. Heyrna­tól fram­leidd af Apple munu sann­ar­lega virka betur með iPhone en Android símum, ef þau styðja Android á annað borð, en sá sem verslar dýr og vönduð heyrna­tól þarf ekki að hafa áhyggjur af því að þau virki ekki með nýjum síma, óháð því hvaða stýri­kerfi hann keyrir á. Í litlum tækjum þar sem hver milli­meter af plássi er verð­mætur mun 3,5mm tengið ein­fald­lega hverfa á allra næstu árum. Það er lík­legt að þessar breyt­ingar verða bæði sárs­auka­fullar og óþol­andi. Eina sem er öruggt að við þurfum að finna pláss fyrir enn eitt hleðslu­tækið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár