Topp 10 - Erlendar kvikmyndir á Íslandi

Ísland hefur umbreyst í kvik­mynda­ver þar sem nátt­úra lands­ins er í lyk­il­hlut­verki.

Topp 10 – Erlendar kvik­myndir á Íslandi

Upp úr 1980 varð sprengja í íslenskri kvik­mynda­gerð og iðn­að­ur­inn hefur vaxað og dafnað æ síðan. Upp úr 2005 varð svo ann­ars konar spreng­ing, þ.e í erlendri kvik­mynda-og þátta­gerð hér á landi. Þetta gerð­ist að ein­hverju leyti vegna laga­setn­ingar frá árinu 1999 þar sem kvik­mynda­fram­leið­endur gátu fengið 12% end­ur­greiðslu af fram­leiðslu­kostn­aði hér­lendis. Önnur ástæða er gott aðgengi, vega­kerfi og stuttar vega­lengdir að töku­stöðum. En helsta ástæðan hlýtur að vera hið ein­staka lands­lag sem hentar einkar vel, sér­stak­lega í hasar­myndir og vís­inda­skáld­skap. Ísland er komið í tísku í Hollywood og erlend tökulið koma nú hingað á hverju ein­asta ári. Hér eru nokkrar af bestu mynd­unum og þátt­unum sem teknar hafa verið upp hér á landi.

10. Batman Begins (2005)

Leð­ur­blöku­mað­ur­inn hefur verið kvik­mynd­aður í bak og fyrir í gegnum tíð­ina og Batman Begins var fyrsta myndin í tríló­gíu leik­stjór­ans Christopher Nolan. Hans myndir höfðu miklu alvar­legri og dekkri tón en hinar eldri og því til­valið að fá hrjóstrugt íslenskt lands­lag að láni. Tekið var upp við Svína­fells­jökul í vest­an­verðum Vatna­jökli en veður setti reyndar strik í reikn­ing­inn (það var ekki nægur snjór á svæð­inu!). Jök­ull­inn var stað­geng­ill fyrir Himala­yja­fjöllin, nánar til­tekið í litla Mið-Asíu rík­inu Bhutan. Þar lærir hinn ungi Bruce Wayne allar sínar bar­daga­listir af fram­tíðar ill­menn­inu Ra´s al Ghul (Liam Neeson). Christian Bale, sem fór með hlut­verk leð­ur­blöku­manns­ins, var ekk­ert sér­stak­lega hrif­inn af veru sinni hér. „Það er fokk­ing kalt á Íslandi. Og þeir borða hvali – þeir borða hvað sem er – lunda.“ Bale, sem er sjálfur mik­ill dýra­vernd­un­ar­sinni, seg­ist einnig hafa verið hræddur um líf sitt við tök­urnar á jökl­inum sem bráðn­aði ogbrotn­aði undan leik­ur­unum.

9. The Secret Life of Walter Mitty (2013)

Ben Stiller var allt í öllu í gam­an­mynd­inni um Walter Mitty, skrif­stofu­blók sem ferð­ast um heim­inn í leit að týndum ljós­mynd­ara tíma­rits­ins Life. Hann lék aðal­hlut­verkið, leik­stýrði og fram­leiddi mynd­ina. Hann var líka út um allt Ísland við tökur og annar hver Íslend­ingur sagð­ist hafa séð honum bregða fyrir. Stór hluti mynd­ar­innar ger­ist á Íslandi en Ísland leikur ekki bara sjálft sig. Atriði sem eiga að ger­ast á Græn­landi og í Afghanistan voru einnig tekin upp hér á landi. Stiller og félagar tóku upp á Stykk­is­hólmi, Grund­ar­firði, Garðinum, Hvera­dölum, Þjórs­ár­brú, Skóga­fossi, Breiða­merk­ur­sandi, Höfn, Seyð­is­firði og sjálfu Geira­bak­arí í Borg­ar­nesi. Fyrir Íslend­inga er ein­stak­lega rugl­ings­legt að horfa á mynd­ina, þ.e. ef maður þekkir til stað­anna. Heiti staða og fjar­lægðir milli þeirra eru alger­lega afbak­aðar. Ólíkt Bale þá var Stiller ákaf­lega snort­inn af landi og þjóð.

8. Beowulf and Grendel (2005)

Myndin er byggð á enska mið­alda­kvæð­inu Bjólfs­kviðu og ger­ist í Skand­in­avíu í kringum árið 500. Kviðan fjallar um hetj­una Bjólf (Gerard Butler) og ris­ann Grendil (Ingvar E. Sig­urðs­son). Sturla Gunn­ars­son leik­stýrði mynd­inni, Vestur Íslend­ingur sem flutti til Kanada á barns­aldri. Myndin var að hluta til íslensk fram­leiðsla, hún er alfarið skotin hér og fjöldi íslenskra leik­ara kemur við sögu t.d. Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir og Ólafur Darri Ólafsson. Hún er þó fyrst og fremst kanadísk og því á enskri tungu. Tökur fóru aðal­lega fram við Skóga­foss og Jök­ulsár­lón en veður reynd­ist tökulið­inu mjög erfitt. Það voru ein­hverjir mestu vindar í manna minnum. Margir bílar tökuliðs­ins skemmd­ust þegar þeir urðu fyrir fjúk­andi hlutum, þak­plötur rifn­uðu af húsum og vegir voru­víða lok­aðir. Þrátt fyrir erf­ið­leik­ana við tök­urnar og mis­jafnt gengi mynd­ar­innar, bæði hvað varðar aðsókn og gagn­rýni, þá var Sturla yfir sig hrif­inn af landi og þjóð og hefur síðan aug­lýst landið og hvatt fólk til að koma hingað.

7. A View to a Kill (1985)

Seinasta Bond-mynd Roger Moore og sú 14. í ser­í­unni um spæj­ar­ann var kvik­myndin sem kom íslenskri nátt­úru á kortið í Hollywood. Roger Moore kom þó aldrei hingað né neinn af aðal­leik­urum mynd­ar­innar eða leik­stjór­inn. Það var svo­kallað 2. tökulið, sem kom hingað í júní 1984 og tók upp senur í Jök­ulsár­lóni og á Breiða­merk­ur­jökli. Atriðið var eitt af þessum frægu opn­un­ar­at­riðum sem yfir­leitt tengj­ast sögu­þræði Bond mynd­anna ekki neitt. Ísland (og Sviss) var að þessu sinni stað­geng­ill Síberíu þar sem 007 flýr undan rauða hernum á skíðum, snjó­sleða og snjó­bretti auk þess sem hann grandar þyrlu. Allt leikið af áhættu­leik­urum og íslenskum skíða­mönnum. Meðal þeirra sem léku í atrið­inu var Ari Trausti Guð­munds­son jarð­fræð­ingur. Þyrlan, sem flutt var frá Skotlandi, var m.a. notuð við sjúkra­flug á meðan tök­unum stóð.

6. Judge Dredd (1995)

Mikil leynd hvíldi yfir tökum fyrir kvik­mynd­ina Judge Dredd í júlí­mán­uði árið 1994. Fram­leið­end­urnir ótt­uð­ust að ef út frétt­ist að kvik­mynd með sjálfum Sylv­ester Stallone væri tekin upp hér þá myndi fólk streyma að. En svo var tekin ákvörðun um að hann kæmi ekki til lands­ins heldur yrði not­aður stað­geng­ill. Stað­geng­ill­inn var reyndar Íslend­ingur að nafni Sigurður John Lúð­víks­son, sem rak um tíma versl­anir sem seldu hjálp­ar­tæki ást­ar­lífs­ins, hann var nauða­líkur Sly. Myndin er gerð eftir sam­nefndri breskri teikni­mynda­sögu þar sem árið er 2080 og Jörðin svotil ónýt. Fólk býr í lok­uðum risa­borgum og „dóm­arar“ sjá um allt í senn, lög­gæslu, dóms­úr­skurði og fang­elsun eða aftökur. Einungis eitt lítið atriði var tekið upp hér, í námunda við Heklu. Fram­leið­andi mynd­ar­innar sagði: „Við komum til Íslands ein­göngu til að mynda lands­lagið. Okkur vant­aði gróð­ur­laust og dálítið ógn­vekj­andi lands­lag og eftir nokkra leit fundum við það sem við vorum að leita að.“

5. Star Wars: The Force Awakens (2015)

Íslend­ingar spennt­ust upp þegar þeir fréttu af því að ein­hverjir hlutar nýj­ustu kvik­mynd­ar­innar um Stjörnu­stríðið yrðu teknir hér á landi. Tökulið komu hingað í nokkur skipti á árinu 2014 en mikil leynd hvíldi yfir verk­efn­inu. Sögu­sagnir flugu t.a.m. um að Chewbacca hefði sést á Eyja­fjalla­jökli og að ísplánetan Hoth úr annarri mynd­inni, The Empire Strikes Back, væri komin aftur til sög­unnar. Þegar myndin kom loks í kvik­mynda­hús var ljóst að Ísland var í miklu auka­hlut­verki og erfitt að greina hvað var tekið hér upp. Jafnvel ein­ungis bak­grunns­skot. Vitað er að tökuliðin voru að störfum við eld­gíg­inn Víti í Kröflu og á svörtum Mýr­dals­sand­inum. En einnig er vitað ein­hver atriði fyrir næstu Stjörnu­stríðs­mynd, Rogue One, voru tekin hér á svip­uðum tíma. Hvort Ísland verður í stærra hlut­verki þar verður að koma í ljós.

4. Oblivion (2013)

Oblivion ger­ist árið 2077 þegar mann­kynið hefur þurft að flýja Jörðina til Títans, sem er eitt af tunglum Sat­úrnusar, vegna stríðs. Par sem leikið er af Tom Cruise og Andreu Riseborough er skilið eftir á Jörðinni til að hafa eft­ir­lit með henni.....eða svo halda þau. Tökulið kom hingað til lands í júní 2012 og var tekið upp á tveimur stöðum. Annars vegar við Jarl­hettur, sem er fjall­garður sem stendur við rætur Lang­jök­uls, og hins vegar við gíg­inn Hrossa­borg á Mývatns­ör­æfum. Myndin ger­ist á aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna og var hinn 10 þús­und ára gamli gígur not­aður sem amer­ískur ruðn­ings­leik­vangur, eyði­lagður af stríði. Leik­stjóri mynd­ar­innar, Joseph Kosinski, nýtti sér íslensku næt­ur­sól­ina við gerð mynd­ar­innar. Oblivion er vís­inda­skáld­skapur af gamla skól­anum og kvöld­birtan gefur af sér sér­stakt and­rúms­loft sem hentar ein­stak­lega vel. Myndin er dálítið und­ar­leg fyrir íslenska áhorf­endur. Það er klippt er ótt og títt milli atriða sem voru tekin upp hér og atriða sem voru tekin upp í Kali­forníu líkt og þetta sé sami stað­ur­inn. Lands­lagið gæti vart verið frá­brugðn­ara.

3. Inter­stellar (2014)

Inter­stellar er heimsenda­mynd sem ger­ist í nálægri fram­tíð. Óút­skýrður korn­skortur ógnar mann­kyni og er því brugðið á það ráð að leita að nýrri plánetu til að búa á. Á köflum er Inter­stellar í raun frekar eins og kennslu­stund í eðl­is­fræði heldur en kvik­mynd í hefð­bundnum skiln­ingi. Tökur hófust hér í ágúst árið 2013 og átti Ísland að vera stað­geng­ill tveggja ólíkra pláneta. Önnur plánetan átti að vera þakin ís. Leik­stjóri mynd­ar­innar, Christopher Nolan, valdi Svína­fells­jökul þar sem það var svæði sem hann þekkti vel eftir gerð Batman Begins. Hin plánetan átti að vera þakin grunnu vatni. Hentugur staður fannst í Máfabót við ósa Skaftár nálægt Kirkju­bæj­ar­klaustri. http://www.thelocationguide.com/blog/2014/11/ng-film-christopher-nolan-films-sci-fi-epic-interstellar-in-alberta-and-iceland/Mjög fjöl­mennt tökulið kom að utan, um 350 manns, og Íslend­ing­arnir voru um 130. Þorpið í Kirkju­bæj­ar­klaustri var alger­lega und­ir­lagt á þessum tíma, hvert gistirími nýtt og fólk leigði út húsin sín.

2. Prometheus (2012)

Myndin er hluti af Alien ser­í­unni en ger­ist fyrr, árið 2093. Hún ger­ist mest­megnis á tungli sem nefn­ist LV-223 og öll atriði sem ger­ast utandyra eru tekin upp á Íslandi. Tveir staðir voru valdir fyrir tök­urnar sem fóru fram sum­arið 2011. Annars vegar er það Detti­foss í Jökulsá á Fjöllum, þar ger­ist byrj­un­ar­at­riði mynd­ar­innar. Hins vegar er það Dóma­dalur við rætur Heklu. Leik­stjóri mynd­ar­innar var Ridley Scott, sá hinn sami og gerði upp­runa­legu Alien mynd­ina frá 1979. Hann hafði upp­haf­lega hugsað sér suð­ræna eyði­mörk sem lands­lag LV-223, t.a.m. í Norður-Afríku eða Mojave í Banda­ríkj­unum. En svo heill­að­ist hann að Íslandi sem honum fannst minna sig á júra-tíma­bilið (fyrir 200-150 milljón árum). „Við erum að skjóta upp­haf tím­ans!“ Tak­markið var að ná fram eins frum­stæðu og líf­lausu lands­lagi og hægt var, síðan sjá tölvur um rest.

1.Game of Thrones (2011-)

Það er óhætt að segja að fram­leið­endur mið­alda­fantasíu­þátt­anna Game of Thrones séu skotnir í Íslandi. Ekki nóg með að fjöl­mörg atriði þátt­anna hafa verið tekin hér upp þá hafa Íslend­ingar verið fengnir til að leika í þátt­unum líka, þ.e. Hafþór Júlíus Björns­son og hljóm­sveit­irnar Sigur Rós og Of Monsters and Men. Íslandi brá fyrst fyrir í þátt­unum í annarri seríu. Tökulið kom í nóv­em­ber 2011 og skaut senur bæði á Vatna­jökli og Mýr­dalsjökli. Síðan þá hafa verið tekin upp atriði fyrir þætt­ina hér á hverju ári nema árið 2014. Atriði hafa verið tekin upp víða um land. Mörg voru tekin upp í Mývatns­sveit, þ.e. í Dimmu­borgum, Hver­felli og Grjóta­gjá. Þá hefur einnig verið tekið upp á Þing­völlum, Goða­fossi, Hval­firði og Grund­ar­firði. Ást­ar­sam­band Íslands og Krúnu­leik­anna er alls ekki búið. Við munum ábyggi­lega sjá nóg af Íslandi í næstu seríu, þeirri sjö­undu, því tökulið mun mæta hingað í jan­úar 2017 og von er á mörgum af helstu­leik­urum ser­í­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár