Íslenskir dómarar vilja funda með ráðherrum vegna Tyrklands

Skúli Magn­ús­son, for­maður Dóm­ara­fé­lags Íslands, hefur óskað eftir fundi með Sigurði Inga Jóhanns­syni for­sæt­is­ráð­herra og/eða Lilju Alfreðs­dóttur utan­rík­is­ráð­herra og Ólöfu Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra, til að ræða stöð­una sem upp er komin í Tyrk­landi. Þetta kemur fram í bréfi Skúla til Sigurðar Inga, sem sent var á mánu­dag.

Í bréfi sínu vitnar Skúli til harð­orð­aðrar álykt­unar nor­rænu dóm­ara­fé­lag­anna um aðgerðir stjórn­valda í Tyrk­landi gegn dóm­urum í kjöl­far til­raunar til valda­ráns þar í landi í júlí síð­ast­liðnum. Í ályktun dóm­ar­anna er aðgerð­unum, sem hafa meðal ann­ars falið í sér hand­töku og gæslu þús­unda dóm­ara, lýst sem hreins­unum. Þær brjóti í bága við mann­rétt­inda­sátt­mál­ann og aldrei sé hægt að rétt­læta aðgerðir af þessu tagi með neyð­ar­lögum. Í álykt­un­inni eru stjórn­völd á Norð­ur­lönd­unum hvött til þess að grípa til aðgerða vegna ástands­ins.

„Þótt umræddar aðgerðir tyrk­neskra stjórn­valda hafi komið til í beinu fram­haldi af til­raun til valda­ráns og neyð­ar­á­standi í land­inu er óhjá­kvæmi­legt að benda á að staða dóm­ara hefur um ára­bil farið versn­andi, líkt og alþjóða- og evr­ópu­sam­tök dóm­ara hafa ítrekað bent á. Skipaðir dóm­arar hafa svo hund­ruðum skiptir verið færðir á milli starf­stöðva gegn vilja sínum að því er virð­ist í þeim til­gangi að tryggja hlýðni við stefnu­mál og aðgerðir stjórn­valda. Stjórn­völd hafa einnig á und­an­förnum árum skipað fjölda nýrra dóm­ara í þeim til­gangi að end­ur­nýja dóm­ara­stétt­ina á sem skemmstum tíma,“ segir í bréf­inu. Einnig hafi tveir dóm­arar sem beittu sér í málum sem tengd­ust meintri spill­ingu ráða­manna verið hand­teknir, sviptir emb­ætti og ákærðir fyrir brot í starfi í fyrra. Stjórn­völd hafi einnig haft horn í síðu tyrk­neska dóm­ara­fé­lags­ins og það hafi nú verið alfarið lagt niður af stjórn­völdum.

Vegna alls þessa óskar Skúli eftir fund­inum. Tyrkland sé aðili að Evr­ópu­ráð­inu og sam­starfs­ríki Íslands innan Norður-Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, og hann vilji ræða stöð­una sem upp er komin og það hvernig Ísland geti lagt lóð á vog­ar­skál­arnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár