MS kærir úrskurð Samkeppniseftirlitsins – Heildarhagræði falið í sameingu og samstarfi

Ari Edwald, for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unnar (MS), segir sam­ein­ingar og sam­starf á mark­aði með mjólk­ur­af­urðir hafa skilað í heild um 30 króna hag­ræð­ingu á lítra og sparað neyt­endur sam­tals um 2,5 millj­arða króna á ári. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag. Sam­keppn­is­eft­ir­litið úrskurð­aði í mark­aðs­mis­notkunn­ar­máli MS í byrjun júní og sektaði fyr­ir­tækið um 480 millj­ónir króna fyrir alvar­leg brot á sam­keppn­is­lögum.

MS hefur kært úrskurð­inn til áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála. Ari seg­ist ein­fald­lega vera ósam­mála ýmsum full­yrð­ingum úrskurð­ar­ins og segir fyr­ir­tækið ekki hafa ástæðu til ann­ars en að „fara að réttum lögum“ og að MS hafi engan hag af því að keppi­nautum á mark­aði með mjólk­ur­af­urðir fækki.

„MS er ekki rekið með hagn­að­ar­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi. Arð­sem­is­krafan sem við vinnum eftir væri ekki talin við­un­andi í almennum rekstri,“ segir Ari og segir að besta rekstrar á fyr­ir­tæk­is­ins hafi verið árið 2007 þegar 250 millj­óna hagn­aður fékkst af rekstr­inum. „Sú lagaum­gjörð sem við vinnum eftir var ekki sett til höf­uðs neyt­endum, þvert á móti var hún sett í þeirra þágu. Það var verið að reyna að finna lausn á því verk­efni að koma vör­unni á markað með sem minnstum kostn­aði. Hugsunin var að lækka verð til neyt­enda.“

Í úrskurði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins er MS sagt hafa mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með því að selja keppi­nautum hrá­mjólk til fram­leiðslu á mjólk­ur­vörum á óeðli­lega háu verði á sama tíma og MS og aðilar tengdir fyr­ir­tæk­inu fengu hrá­efni undir kostn­að­ar­verði.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið sektaði MS upp­haf­lega fyrir umrædd brot í sept­em­ber 2014. Þá var sektin 370 millj­ónir króna. Áfrýj­un­­ar­­nefnd sam­keppn­is­­mála komst að þeirri nið­­ur­­stöðu í des­em­ber 2014 að fella yrði úrskurð­inn úr gildi, vegna þess að MS upp­­lýsti ekki eft­ir­litið um samn­ing á milli fyr­ir­tæk­is­ins og Kaup­­fé­lags Skag­­firð­inga, sem á hlut í MS og er einn þeirra aðila sem fékk hrá­­mjólk á lægra verði. MS lagði samn­ing­inn ekki fram fyrr en við mál­­flutn­ing fyrir áfrýj­un­­ar­­nefnd­inni, þrátt fyrir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefði ítrekað beðið um skýr­ingar og gögn frá fyr­ir­tæk­inu.

Ljóst er að sektin sem MS hefur nú kært mun hafa veru­leg áhrif á rekstur MS, en fyr­ir­tækið tap­aði 330 millj­ónum króna í fyrra. Það tap var til­komið vegna þess að fram­­leiðsla umfram mark­aðs­þarfir inn­­an­lands var sjö til átta milljón lítr­­ar. Þ.e. fram­­leið­end­­urn­ir, bænd­­ur, fram­­leiddu meiri mjólk en nauð­­syn­­legt var og MS þurfti að kaupa hana af þeim.

Í við­tal­inu segir Ari afkomu bænda á upp­boðs­mark­aði með mjólk verða mun ótrygg­ari en í núver­andi skipu­lagi. MS hafi tekið á sig „miklar skuld­bind­ingar um að kaupa alla mjólk á sama verði af bædnum hvar sem er á land­inu og inn­heimta sama flutn­ings­kostnað. Án þess lagaum­hverfis sem mjólkur­iðn­aður býr við myndi ekk­ert eitt sam­keppn­is­fyr­ir­tækj­anna taka að sér að sækja mjólk­ina á afskekkt­ustu bæina og greiða sama verð. Eða bjóða vörur um allt land á sama heild­sölu­verði. Afkoma bænda yrði miklu ótrygg­ari á þeim upp­boðs­mark­aði.“

Að mati Ara mun það hafa mikil áhrif ef leið Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins verði farin í þessum efnum þá muni kúa­bú­skapur á Íslandi drag­ast saman um „ein­hverja tugi millj­óna lítra eða kannski um þriðj­ung frá því sem nú er.“ Slíkar breyt­ingar á kerf­inu eigi að ræða á Alþingi en ekki vera að frum­kvæði ein­staka stofn­anna eða stjórn­enda þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár