Topp tíu: Möguleg ný ríki

Heims­myndin breyt­ist sífellt. Tölu­verðar líkur eru á því að ný ríki verði til á næst­unni. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur rýndi í mynd­ina sem nú blasir við og rað­aði upp lík­legum nýjum ríkjum.

Fjöldi sjálf­stæðra ríkja í heim­inum eykst stöðugt. Fyrir 100 árum síðan voru u.þ.b. 60 ríki til sem höfðu fulla sjálf­stjórn. Í dag eru þau um 200. Aðild­ar­ríki Sam­ein­uðu þjóð­anna eru 193 en auk þeirra eru til ríki sem hafa tak­mark­aða alþjóð­lega við­ur­kenn­ingu, s.s. Kósóvó, Tævan og Norður Kýpur. Þá er ótalið sjálft Vatíkanið, smæsta ríki heims með íbúa­fjölda á við Stykk­is­hólm. Fjölgun ríkja hefur komið í bylgjum sein­ustu 100 árin. Eftir fyrri heims­styrj­öld­ina voru Evrópa og Mið­aust­ur­lönd teiknuð upp á nýtt og fjöldi nýrra ríkja varð til. Á sjötta og sjö­unda ára­tugnum fengu ótal nýlendur Evr­ópustór­veld­anna sjálf­stæði. Við fall komm­ún­ism­ans í Evrópu upp úr 1990 splundr­uð­ust Sov­ét­ríkin og Júgóslavía. Það sem áður voru 2 ríki eru nú 22 og gæti fjöglað enn. Ein­hverjar sam­ein­ingar hafa orðið á þessum tíma, svo sem inn­limun Tíbet í Kína og sam­ein­ing Víetnam. En síðan Austur og Vestur Þýska­land voru sam­einuð árið 1990 hefur engin sam­ein­ing átt sér stað. Annars konar sam­ein­ing hefur aftur á móti tekið við með stækkun og fjölgun alþjóð­legra stofn­ana og sam­taka eins og Evr­ópu­sam­bands­ins, Afr­íku­sam­bands­ins, Sam­ein­uðu Þjóðanna, Atl­ants­hafs­banda­lags­ins o.sv.frv. Nýjustu ríki heims­ins eru Austur Tímor (2002), Svart­fjalla­land (2006) og Suður Súdan (2011). En hver verða næstu sjálf­stæðu ríki heims?

10. Feneyjar

Gjáin milli norður og suður hér­aða Ítalíu hefur alltaf verið tölu­verð en Feney­ingar skera sig úr. Í þess­ari fornu versl­un­ar­borg við Adría­hafið og í hér­að­inu sem það til­heyrir (Veneto) er mikil þjóð­ern­is­hyggja og and­staða við suð­ur­héröðin sem margir telja spillt og mafíu­vædd. Sjálf­stæð­is­hreyf­ingin í hér­að­inu er nátengd hinu svo­kall­aða Norð­ur­banda­lagi sem er einn af hinum rísandi flokkum þjóð­ern­ispópúlista í Evrópu. Flokk­ur­inn, sem yfir­leitt hefur verið á jaðr­inum í stjórn­málum Ítalíu, hlaut yfir 50% atkvæða í Veneto í hér­aðs­kosn­in­ungum árið 2015. Sjálf­stæð­is­hreyf­ingin hefur verið til staðar síðan á átt­unda ára­tugnum en nú fyrst er kom­inn þungi í bar­átt­una. Veneto teygir sig frá Adría­haf­inu norður að aust­ur­rísku landa­mær­unum og telur um 5 millj­ónir íbúa. Ljóst er að stjórn­völd í Róm munu berj­ast með kjafti og klóm gegn sjálf­stæði hér­aðs­ins. Sjálf­stæði Veneto gæti einnig ýtt undir sjálf­stæð­istil­burði ann­arra auð­ugra hér­aða norður Ítalíu s.s. Lang­barða­lands og Fjalla­lands.

9. Kashmír

Þegar Indland fékk sjálf­stæði frá Bretum árið 1947 kröfð­ust múslimar á svæð­inu þess að stofna eigið ríki, Pakistan (sem seinna klofn­aði í tvennt og Bangla­desh varð til). Nýstofn­uðu ríkin tvö gripu strax til vopna vegna skipt­ingar Kashmír-hér­aðs nyrst á svæð­inu. Kashmír liggur við Himalaya fjöllin og þar búa um 10 millj­ónir manna, flestir múslimar, en Ind­verjar hafa ráðið stærstum hluta svæð­is­ins til þessa. Deilan hefur nú staðið yfir í tæp­lega 70 ár og sér ekki fyrir end­ann á henni. Yfir­leitt eru skærur á svæð­inu og nokkrum sinnum hefur brot­ist út eig­in­legt stríð. Deilan hefur litað öll sam­skipti þess­arra tveggja risa­vöxnu ríkja og valdið því að bæði ríki hafa komið sér upp kjarn­orku­vopnum. Hvorugt ríki tekur það í mál að gefa eftir svæði til hins en upp hafa komið hug­myndir um sjálf­stætt Kashmír. Hversu stórt það ríki yrði er svo önnur umræða en flestir eru sam­mála um að það myndi að minnsta kosti spanna sjálfan Kashmír dal­inn sem mestar deil­urnar hafa staðið um.

8. Quebec

Þann 30. októ­ber árið 1995 gengu íbúar í Quebec fylki í Kanada til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um full­veldi hér­aðs­ins. Atkvæða­greiðslan var kosn­inga­lof­orð Parti Quebecois flokks­ins og ljóst að ef íbúar sam­þykktu full­veldi myndu leið­togar hans lýsa yfir fullu sjálf­stæði Quebec frá Kanada. Quebec er ekki ein­göngu sér­stakt vegna franskrar tungu og menn­ingar heldur einnig vegna laga­hefðar. Mörgum íbúum Quebec finnst fylkið ekki passa inn í Kanada og þykir það afskipt í stjórn­málum lands­ins. Fáir bjugg­ust þó við jafn spenn­andi kosn­ingum og raunin varð. Full­veldi var hafnað með ein­ungis 1,16% mun, eða rúm­lega 50.000 atkvæðum. Sjálf­stæð­is­sinnar í Quebec hafa náð að semja um tölu­verða sjálfs­stjórn í ýmsum málum en mestur vindur er úr hreyf­ing­unni í bili. Styrkur Parti Quebecois hefur dalað og flokk­ur­inn ekki náð að knýja fram aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

7. Flæmingjaland og Vallónía

Það er sagt að Belgar líti fyrst á sig sem Evr­ópu­menn, svo sem annað hvort Flæm­ingja eða Vallóna, en aðeins í þriðja sæti sem Belga. Belgía er ekki þjóð­ríki heldur afurð deilna milli Hol­lend­inga og Frakka fyrir tæpum 200 árum síðan. Flæm­ingja­land í norðri er auð­ugt og íhalds­samt svæði þar sem meiri­hluti fólks talar hol­lensku. Þar hafa sjálfs­stæð­is­sinn­arnir í Nýja Flæm­ingja­banda­lag­inu aukið fylgi sitt tölu­vert á sein­ustu árum og árið 2014 komust þeir í fyrsta skipti í rík­is­stjórn Belgíu. Hin franska Vallónía í suðri er tölu­vert frjáls­lynd­ara svæði en þar er einnig sjálf­stæð­is­hreyf­ing, þó hún sé ekki jafn sterk og sú flæmska. Í fyrstu virð­ist auð­velt að skipta land­inu í tvennt ef það væri vilji íbú­anna, en það sem flækir málið er höf­uð­borgin Brussel. Hún er stað­sett í Flæm­ingja­landi en tölu­verður meiri­hluti borg­ar­búa eru Vallónar. Það yrði und­ar­legt fyr­ir­komu­lag ef höf­uð­borg Evr­ópu­sam­bands­ins yrði nokk­urs konar eyja í öðru ríki líkt og Vestur-Berlín var í kalda stríð­inu.

6. Palestína

Staða Palest­ínu hefur verið ein heitasta kartafla alþjóða­stjórn­mála um ára­tuga skeið. Við stofnun Ísra­els­ríkis árið 1948 braust út stríð milli Gyðinga og Araba á svæð­inu sem lauk með því að Egyptar nernumdu Gaza svæðið og Jórdan­íu­menn Vest­ur­bakk­ann. Í sex-daga stríð­inu árið 1967 lentu svæðin undir yfir­ráðum Ísraela og eru þar enn. Stans­laus styr hefur staðið um svæðið síðan. Árið 1988 lýstu Palest­ínu­menn yfir sjálf­stæði og meiri­hluti ríkja heims við­ur­kennir til­vist ríkis þeirra. Þeir hafa meira að segja áheyrn­ar­full­trúa hjá Sam­ein­uðu Þjóðunum. Sjálf­stæði þeirra er þó meira í orði en á borði því að landið er hernumið og getur því ekki stýrt sér sjálft. Með fjölgun land­nema­byggða Ísra­els­manna, veg­tálma og veggja sem aðskilja svæði verður staða Palest­ínu­manna sífellt þrengri með hverju árinu. Margoft hefur verið reynt að leysa deil­una án nokk­urs árang­urs en ljóst er að núver­andi þróun getur ekki haldið áfram að eilífu.

5. Bosníu Serbar

Það eru fáir staðir í Evrópu þar sem ríkir jafn mikil fátækt, eymd og gremja og í Lýðveldi Serbanna. Lýð­veldið sem hefur mikla sjálf­stjórn er hluti af Bosníu Herzegóvínu og afsprengi Dayton frið­ar­samn­ing­anna árið 1995 þegar bund­inn var endir á blóð­baðið þar í landi. Miklar þjóð­ern­is­hreins­anir höfðu átt sér stað og reynt var að draga lín­urnar milli svæð­anna á þeim for­sendum. Bosníu Serbum hefur að mestu leyti verið kennt um styrj­öld­ina og leið­togar þeirra, Radovan Karadzic og Ratko Mladic, eru ein­hverjir alræmd­ustu stríðs­glæpa­menn heims. Þjóð­arstolt Bosníu Serba er því sært en engu að síður er mik­ill vilji til að slíta sig frá Bosníu og mynda eigið ríki. Milorad Dodik, for­seti Bosníu Serba, hefur harka­lega gagn­rýnt allt sam­starf við Bosn­íu­menn og heimtað þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði hér­aðs­ins. Bosn­íu­menn hafa aftur á móti svarað honum með því að þá yrðu frið­ar­samn­ing­arnir fyrir bý og mögu­leiki á nýju stríði. Ástandið á Balkanskaga er því enn mjög eld­fimt, 20 árum eftir blóð­baðið mikla.

4. Kúrdistan

Kúr­distan er fjalla­svæði sem nær yfir hluta Tyrk­lands, Sýrlands, Íraks og Írans og íbú­arnir eru um 30 millj­ónir. Sjálf­stæð­istil­burðir Kúrda hafa að mestu leyti farið fram í gegnum Verka­manna­flokk Kúrda, sem stofn­aður var á átt­unda ára­tugnum af Abdullah Öcalan. Sá flokkur hefur beitt vopna­valdi, verið skil­greindur sem hryðju­verka­sam­tök og Öcalan sjálfur situr nú í fang­elsi. Um helm­ingur Kúrda býr innan landamæra Tyrk­lands en þar hefur and­staðan við rétt­indi þeirra verið mest. Ólíklegt er að nokkuð breyt­ist í þeim efnum meðan Recep Erdogan er við völd en hann hefur beitt sér af hörku gegn Kúrdum, bæði innan landamæra Tyrk­lands og utan. Kúrdar hafa notið meiri sjálf­stjórnar í hinum ríkj­unum og nú meðan vargöld ríkir í Írak og Sýrlandi stjórna þeir stóru land­svæði þar. Það mun velta á fram­vindu stríðs­ins hvort Kúrdar nái jafn­vel að mynda sjálf­stætt ríki til fram­tíðar.

3. Grænland

Það virð­ist meit­lað í stein að Grænland hljóti fullt sjálf­stæði frá Danmörku á kom­andi árum. Landið fékk heima­stjórn árið 1979 og yfir­ráð yfir lög­reglu, dóm­stólum og fleiru árið 2009. Bæði var sam­þykkt í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu með yfir 70% atkvæða og flokkar sem stefna að auk­inni sjálf­stjórn lands­ins eru með ríf­legan meiri­hluta á græn­lenska þing­inu. Danir fara ennþá með varnir og utan­rík­is­mál Græn­lands en það sem hefur hindrað fullt sjálf­stæði lands­ins hingað til eru efna­hags­málin. Danir greiða Græn­lend­ingum um 58 millj­arða íslenskra króna árlega en sú upp­hæð mun lækka þegar Græn­lend­ingar ná betri nýt­ingu á auð­lindum sínum. Með hlýrra lofts­lagi er búist við að það verði fyrr en seinna og ljóst er að Græn­lend­ingar sitja á miklum auði í formi málma og olíu. Bjart­sýn­ustu menn segja að Grænland gæti orðið sjálf­stætt innan 5 ára.

2. Katalónía

Eins og mörg önnur svæði á Spáni hefur Kata­lónía tak­mark­aða sjálf­stjórn en óánægjan kraumar í hér­að­inu. Þjóð­ern­is­vit­undin nær langt aftur í aldir, menn­ingin er sterk og tungu­málið nokkuð frá­brugðið spænsku. Kata­lónía er efna­hags­lega mik­il­væg­asta svæði Spánar og íbú­arnir um 7,5 milljón. Stjórn­völd í Madríd hafa því barist með kjafti og klóm gegn sjálf­stæð­istil­burðum hér­aðs­ins því ef Kata­lónía fær sjálf­stæði gætu t.d. Baskar fylgt á eftir. Þetta er helsta ástæða þess að Spán­verjar eru tregir að við­ur­kenna nýstofnuð ríki. Árið 2014 var haldin þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla í Kata­lóníu þar sem sjálf­stæði var sam­þykkt með yfir 80% atkvæða en hún var hins vegar ekki bind­andi og stjórn­völd í Madríd höfn­uðu henni. Aukinn þungi hefur þó færst í sjálf­stæð­is­hreyf­ing­una und­an­farin ár og í hverri ein­ustu götu má sjá fána Kata­lóníu hanga niður úr svölum eða gluggum íbúða. Það er lík­legra en ekki að hér­aðið verði sjálf­stætt á kom­andi árum.

1. Skotland

Árið 1603 erfði skoski kon­ung­ur­inn Jakob VI England en vita­skuld færð­ust völdin þá frá Edinborg til Lundúna. Skotar hafa þó aldrei litið á sig sem nýlendu og sjálf­stæði hefði þótt óhugs­andi fyrir ein­ungis nokkrum árum síðan. Sjálf­stæð­is­sinnar í Skoska Þjóð­ar­flokknum mæld­ust varla þar til um 1970 en síðan þá hefur fylgið rokkað milli 10 og 20%. Á und­an­förnum árum hefur flokk­ur­inn þó alger­lega sprungið út. Þjóð­ern­is­vit­und hefur vaxið gríð­ar­lega en þó með jákvæðum for­merkjum, þ.e. laus við útlend­inga­hatur og and­stöðu við minni­hluta­hópa. Skotar hafa lagt áherslu á jafn­ara, frið­sam­ara og sann­gjarn­ara þjóð­fé­lag en nágrannar þeirra fyrir sunnan. Skoski Þjóð­ar­flokk­ur­inn hefur nú yfir­burða­stöðu í skoskum stjórn­málum og nán­ast alla þing­menn lands­ins á breska þing­inu. Flokk­ur­inn náði að knýja fram þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði lands­ins haustið 2014 en það var fellt með um 10% mun. En eftir að Bretar sam­þykktu að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu nú í sumar er lík­legt að Skotar haldi aðra atkvæða­greiðlu, jafn­vel á næsta ári. Hver ein­asta sýsla Skotlands vildi vera áfram í Evr­ópu­sam­band­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár