Höskuldur: Útspil Sigmundar Davíðs setur allt í upplausn

Hösk­uldur Þór­halls­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, seg­ist draga þá ályktun að nýjasta útspil Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns flokks­ins, um að halda ekki kosn­ingar í haust sé „til þess eins fallið að koma í veg fyrir þá mik­il­vægu vinnu sem framundan er í þing­inu og setja þar allt í upp­lausn. Slíkt myndi einnig sprengja rík­is­stjórn­ina og þar með færu mörg mál í súg­inn.“

Hann seg­ist draga þá ályktun að atburða­rás síð­ustu daga sé Sigurði Inga Jóhanns­syni, for­sæt­is­ráð­herra og vara­for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins mjög að móti skapi. Hösk­uldur bendir á að þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi sam­þykkt það skil­yrði Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir áfram­hald­andi stjórn­ar­sam­starfi að kosn­ingar yrðu haldnar í haust gegn því að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fengi að skipa nýjan for­sæt­is­ráð­herra. Það sé því engin ástæða til að efast um að næstu þing­kosn­ingar „fari fram í vetr­ar­byrjun þótt enn sé óljóst með nákvæma dag­setn­ingu.“ Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Hösk­uldar á Facebook.

Færslu Hösk­uldar má lesa hér að neðan í heild sinni:

„Í kjöl­far bréfs for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins til félags­manna hafa á ný kviknað efa­semdir um það hvort kosn­ingar verði haldnar í haust eða ekki. Í kjöl­far Panama­skjal­anna þar sem upp­lýst var um spill­ingu, leynd, skatt­svik fjöl­margra ein­stak­linga, sagði þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra af sér. Í kjöl­farið sam­þykkti þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins það skil­yrði Sjálf­stæð­is­manna að kosn­ingar yrðu haldnar í haust gegn því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn féllist á að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn skip­aði áfram for­sæt­is­ráð­herra úr sínum röðum. Á það féllst Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Sigurður Ingi Jóhannsnson tók við af for­manni flokks­ins. Þetta skil­yrði setti þing­flokkur Fram­sókn­ar­manna ekki síst til að tryggja að unnt væri að halda áfram vinnu við og klára mik­il­væg mál á borð við hús­næð­is­frum­vörp, afnám hafta, mik­il­vægar sam­göngu­bætur auk fleiri mála sem listuð voru upp í sam­komu­lag­inu.

Þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur unnið í sam­ræmi við þetta sam­komu­lag þrátt fyrir að mér og mörgum finn­ist það súrt í broti að ekki verði hægt að ljúka ýmsum öðrum málum sem við teljum einnig mik­il­væg. En ég lít svo á að ekki komi annað til greina en að standa við það sam­komu­lag sem gert var. Ég er ekki einn um þá skoðun í þing­flokknum - og bendi m.a. á orð Sigurðar Inga Jóhanns­sonar for­sæt­is­ráð­herra, sem sagði í til­efni þeirrar atburða­rásar sem for­mað­ur­inn hefur hrundið af stað, að hann væri „vanur því að standa við orð sín“. Ég dreg þá ályktun að nýjasta atburða­rásin sé for­sæt­is­ráð­herra mjög að móti skapi. Nýjasta útspil for­manns flokks­ins er að mínu mati til þess eins fallið að koma í veg fyrir þá mik­il­vægu vinnu sem framundan er í þing­inu og setja þar allt í upp­lausn. Slíkt myndi einnig sprengja rík­is­stjórn­ina og þar með færu mörg mál í súg­inn.

Á meðan nákvæm dag­setn­ing kjör­dags liggur ekki fyrir mun áfram ríkja óvissa um það hvort flokk­arnir eigi að halda flokks­þing og raða fólki á lista þó að flestir séu vel á veg komnir með þá vinnu. Það er þó ekki ástæða til að efast um að næstu þing­kosn­ingar fari fram í vetr­ar­byrjun þótt enn sé óljóst með nákvæma dag­setn­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár