Hættir á RÚV og fer í Pírata

Gunnar Hrafn Jónsson, frétta­maður á erlendri deild Frétta­stofu RÚV, hefur sagt starfi sínu lausu til að hella sér út í póli­tík­ina. Hann ætlar að ganga til liðs við Pírata.

Gunnar Hrafn Jónsson hefur starfað á Fréttastofu RÚV í átta ár en hefur nú sagt upp störfum.
Gunnar Hrafn Jónsson hefur starfað á Frétta­stofu RÚV í átta ár en hefur nú sagt upp störfum. Mynd: Nútíminn

Gunnar Hrafn Jónsson, frétta­maður erlendu deildar Frétta­stofu RÚV, hefur sagt upp störfum eftir átta ár á Frétta­stof­unni til að ganga til liðs við Pírata. Gunnar Hrafn segir frá þessu á Facebooksíðu sinni.

Þar seg­ist hann hafa fundið fyrir vax­andi óþoli síð­ustu miss­eri „fyrir því hvert við stefnum sem sam­fé­lag.“ „Eftir að ég eign­að­ist mitt fyrsta barn fyrir rúmum tveimur árum hefur þessi til­finn­ing bara ágerst. Í fyrsta sinn finnst mér ekki nóg að fók­usa bara á alþjóða­málin eins og ég hef gert sem frétta­maður í erlendum fréttum. Það þarf að taka dálítið til hér heima og það verður bara skýr­ara fyrir mér með hverjum deg­inum sem líður,“ segir Gunnar Hrafn.

Hann bendir á að það sé ekki við­eig­andi fyrir frétta­menn RÚV að tjá sig um mál­efni líð­andi stundar og segir svo í fram­hald­inu:

„Þessi rík­is­stjórn sökkar. Tortóla er skatta­skjól. Pip­ar­fylltar lakk­rís­reimar eru ekki alveg að gera sig. Guðni verður flottur for­seti. Eiður Smári ætti að fá að spila meira.“

Langar í prófkjör

Gunnar Hrafn seg­ist ekki vera búinn að taka neina ákvörðun um það hvernig starfi hans með Pírötum verði háttað. Hann seg­ist bara vera búinn að ákveða að taka þátt í bar­átt­unni. „Strax og ég nefndi það að ég ætl­aði að segja upp í góðri og öruggri vinnu sem ég elska til að ganga í Pírata var ég spurður hvort ég ætl­aði þá í próf­kjör. Auðvitað langar mig til þess,“ segir hann.

Helgi Hrafn hættir

Helgi Hrafn Gunn­ars­son þing­maður Pírata, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í kom­andi þing­kosn­ing­um, sem fyr­ir­hug­aðar eru í haust. Áður hafði Helgi, sem nýtur mik­illa per­sónu­vin­sælda hjá kjós­end­um, sagt að hann ætl­aði fram. Helgi segir að hann sé ekki að hætta í stjórn­mál­um, heldur að færa sig til og starfa innan flokks­ins. „Ég er ekki í stjórn­málum fyrir per­sónu­fylg­i,“ segir hann.

Ekki fyrsti fjölmiðlamaðurinn í Pírötum

Gunnar Hrafn er ekki fyrsti fjöl­miðla­mað­ur­inn sem gengur til liðs við Pírata fyrir kom­andi kosn­ingar. Björn Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri, gaf kost á sér í próf­kjör fyrir Norð­aust­ur­kjör­dæmi og vildi leiða list­ann. Hann end­aði hins vegar í sjö­unda sæti og gagn­rýndi flokk­inn harð­lega fyrir klíku­skap í kjöl­farið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár