Helgi Hrafn býður sig ekki fram í komandi Alþingiskosningum

Helgi Hrafn Gunn­ars­son þing­maður Pírata, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í kom­andi þing­kosn­ingum, sem fyr­ir­hug­aðar eru í haust. Áður hafði Helgi, sem nýtur mik­illa per­sónu­vin­sælda hjá kjós­endum, sagt að hann ætl­aði fram. Helgi segir að hann sé ekki að hætta í stjórn­málum, heldur að færa sig til og starfa innan flokks­ins. „Ég er ekki í stjórn­málum fyrir per­sónu­fylgi,“ segir hann.

Hann greinir frá þessu í mynd­bandi á heima­síðu Pírata. Þar segir Helgi einnig að hann hygg­ist bjóða sig fram í kosn­ing­unum 2020, eða fyrr ef stjórn­ar­skrárs­breyt­ingar krefj­ast þess. Ákvörðun sé ekki tekin til að taka minni þátt í póli­tík. Þvert á móti ætli hann að leggja krafta sína í gras­rót­ar­starf Pírata á næsta kjör­tíma­bili. Með þess­ari ákvörðun vill Helgi Hrafn sína í verki þá hug­sjón sína að byggja brú milli þings og þjóðar og koma aftur heim í gras­rót­ina. Hann vill líka byggja brú milli þing­flokks og flokks­ins sjálfs, sem séu mjög ólíkar stofn­anir. Hann vill m.a. að Píratar skrifi sínar eigin þings­á­lykt­un­ar­til­lögur.

Helgi var kos­inn á þing fyrir Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður vorið 2013.

Stuðn­ingur við Pírata hefur vaxið gríð­ar­lega á þessu kjör­tíma­bili. Flokk­ur­inn fékk 5,1 pró­sent í kosn­ing­unum 2013 en mælist nú með 28,3 pró­sent í kosn­inga­spá Kjarnans. Lengi vel mæld­ist flokk­ur­inn með yfir 30 pró­sent fylgi.

Hægt er að sjá mynd­band Helga hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár