Árásarmaðurinn var yfirheyrður í tvígang

Hinn 29 ára gamli Omar Mateen, sem myrti 50 og særði 53 á skemmti­staðnum Pulse í Orlando í nótt, hafði tengsl við íslamska ríkið (ISIS) en FBI yfir­heyrði hann fyrir þremur árum og aftur árið 2014. Hann keypti vopnin sem hann not­aði í árásinni - hálf­sjálf­virkan riffil og skamm­byssu - fyrir viku síðan.

Barack Obama, Banda­ríkja­for­seti, sagði árás­ina vera í rann­sókn og væri unnið eftir því að um hryðju­verka­árás hafi verið að ræða, þó enn hafi ekki feng­ist form­leg stað­festi á því. Allar upp­lýs­ingar væru rann­sak­aðar eins fljótt og mögu­legt væri.

Hann nýtti tæki­færið, og bendi spjót­unum að byssu­lög­gjöf­inni, og því að of auð­velt væri fyrir fólk að verða sér út um vopnm í Banda­ríkj­unum. „Við stöndum frammi fyrir vali. Það er líka ákvörðun að gera ekk­ert í þessu,“ sagði Obama.

Mateen var skot­inn til bana á staðn­um, í leift­ur­sókn sér­sveitar löregl­unnar í Orlando á stað­inn, þegar ljóst var að Mateen hafði skotið fjöl­marga til bana.

Obama sagði banda­rísku þjóð­ina vera með hug­ann hjá þeim sem ættu um sárt að binda vegna árás­ar­innar. Banda­ríkin myndu nú sýna sam­stöðu, og bregð­ast við árásinni með ábyrgum hætti, í takt við þær upp­lýs­ingar sem kæmu fram.

Árásin er versta hryðju­verka­árás í Banda­ríkj­unum frá árás­unum á tví­bura­t­urn­anna 11. sept­em­ber 2001, og versta árás sem beinst hefur gegn hinsegin fólki í sögu lands­ins. Þá er skotárásin sú mann­skæð­asta í sög­unni.

Neyð­ar­á­standi hefur verið lýst yfir í Orlando, og er rann­sókn á árás­unum - og tengslum við hryðju­verka­sam­tök - í fullum gangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár