Flestir búa í eigin húsnæði en óánægjan með markaðinn er mikil

Yfir 80 pró­sent Íslend­inga eru óánægðir með fram­boðið á hús­næð­is­mark­aðnum og mik­ill meiri­hluti leigj­enda seg­ist vilja eiga eigið hús­næði. Hús­næð­is­mála­ráð­herra kynnti nið­ur­stöður ítar­legrar könn­unar Gallup í morgun.

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, kynnti niðurstöður ítarlegrar könnunar Gallup á stöðu leigjenda og eigenda húsnæðis í morgun.
Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, kynnti nið­ur­stöður ítar­legrar könn­unar Gallup á stöðu leigj­enda og eig­enda hús­næðis í morgun. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Yfir 80 pró­sent Íslend­inga eru óánægðir með fram­boðið á hús­næð­is­mark­aðnum, hvort sem þeir eru að leigja eða eiga sitt eigið hús­næði. Mun fleiri eiga hús­næði heldur en leigja, eða um 78 pró­sent, á meðan 22 pró­sent leigja. Eins og gefur að skilja flytja þeir sem leigja mun oftar heldur en þeir sem eiga, en yfir helm­ingur þeirra sem eiga eigið hús­næði hafa aldrei flutt á síð­ustu 10 árum. Hins vegar er hlut­fallið tæp sjö pró­sent meðal leigj­enda. 

Þetta eru nið­ur­stöður umfangs­mik­illar könn­unar sem Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, kynnti á morg­un­verð­ar­fundi um hús­næð­is­mál á Grand Hótel í morgun. Könnunin var tví­þætt, ann­ars vegar um leigj­endur og hins vegar um eig­endur hús­næðis. Farið var yfir nið­ur­stöð­urnar og við­horf íbúa til hús­næð­is­mark­að­ar­ins skoð­aðar. Elsa Lára Arn­ar­dóttir, vara­for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, ræddi einnig um fyr­ir­hug­aðar rétt­ar­bætur og auk­inn stuðn­ing við fólk á hús­næð­is­mark­aði. 

Eigendur húsnæðis flytja sjaldnar og búa í stærri íbúðum

Mikill munur er á milli þeirra sem eiga og leigja þegar kemur að flutn­ingum. Helm­ingur þeirra sem á hús­næði hafa flutt á síð­ustu 10 árum, lang­flestir ein­ungis einu sinni. Tæplega 95 pró­sent leigj­enda hafa flutt á síð­ustu 10 árum, flestir fjórum sinnum. Þá munar einnig tölu­verðu á með­al­stærð hús­næðis eftir því hvort fólk á eða leigir. Með­al­fer­metra­fjöldi hús­næðis í eigu íbúa eru 150 fer­metrar, en 89 fer­metrar hjá þeim sem leigja.

75 prósent leigjenda telja sig búa í öruggu húsnæði

Lang­flestir segj­ast vera leigj­endur af nauð­syn, eða rúm 65 pró­sent. Einungis rúm 10 pró­sent segj­ast vera á leigu­mark­aði vegna þess að þeir kjósa að vera það. Rúm 23 pró­sent eru leigj­endur tíma­bundið.

Yfir 55 pró­sent Íslend­inga sem eru á leigu­mark­aði fannst erfitt eða mjög erfitt að verða sér út um síð­asta hús­næðið sitt. Rúmlega sjö pró­sent fannst það mjög auð­velt og tæpum 20 pró­sent frekar auð­velt.

Þrír af hverjum fjórum telja að leigu­hús­næði sem þeir búi í sé öruggt, þar af 35 pró­sent finnst það mjög öruggt. Hlut­fallið var rúm 45 pró­sent í svip­aðri könnun sem gerð var árið 2003. 10 pró­sent telja mjög lík­legt að þeir geti misst hús­næðið og rúm 15 pró­sent frekar lík­legt.

Fjárhagsstaða leigjenda erfið

Þegar fjár­hags­staða leigj­enda er skoðuð sést að lang­flestir hafa það frekar erfitt. Nær þrír af hverjum fjórum geta ekki safnað neinu sparifé og þar af segj­ast tutt­ugu pró­sent safna skuldum. Einungis rúm fimm pró­sent leigj­enda segj­ast geta safnað tals­verðu sparifé. Staðan er mun betri hjá þeim sem eiga eigið hús­næði. Að með­al­tali er leigan um 42 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum heim­il­is­ins.

Flestir leigj­endur telja nær öruggt að þeir verði á leigu­mark­aðnum áfram eftir eitt ár, eða tæp 70 pró­sent. 14 pró­sent þeirra telja að það verði einnig svo eftir 10 ár. Varðandi næst þegar fólk skipti um hús­næði telja um 45 pró­sent að það verði annað hvort öruggt eða mjög lík­legt að þeir haldi áfram á leigu­mark­aðnum.

Skiptar skoðanir á séreignalífeyrissparnaðarúrræði

Rúmur helm­ingur leigj­enda á mark­aðnum seg­ist vera að greiða í sér­eigna­líf­eyr­is­sparnað, en sam­kvæmt nýjum lögum sem Eygló hefur talað fyrir er hægt að nýta sér­eigna­sparn­að­inn sinn til kaupa á fyrstu íbúð­inni sinni.

Tæp 40 pró­sent sögð­ust hafa áhuga eða mik­inn áhuga á að nýta sér úrræðið, en sama hlut­fall sagð­ist hafa engan eða lít­inn áhuga á því. Munurinn var mik­ill eftir aldri, en áhug­inn minnk­aði eftir því sem fólk varð eldra. Líklega vegna þess að úrræðið á ekki við þá, þar sem ein­ungis er hægt að nýta sér það ef við­kom­andi er að kaupa sér sína fyrstu íbúð. Þá var áhug­inn mestur meðal þeirra sem búa í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur.

En þrír af hverjum fjórum leigj­endum sögð­ust samt sem áður vilja helst eiga sitt eigið hús­næði, ef nægj­an­legt fram­boð væri af öruggu leigu­hús­næði og hús­næði til kaups.

Mikil breyting frá 2003

Séu nið­ur­stöð­urnar bornar saman við svip­aða könnun sem gerð var árið 2003, sést glögg­lega að hús­næð­is­vand­inn hefur auk­ist. Fólk er frekar í leigu­í­búðum af nauð­syn og þar er erf­ið­ara að finna hús­næði, hvort heldur sem maður er að kaupa eða leigja.

65 pró­sent svar­enda 2015 voru búsettir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 35 á lands­byggð­inni. Könnunin var gerð af Gallup í nóv­em­ber og des­em­ber á síð­asta ári. 786 leigj­endur svör­uðu og 2.266 eig­endur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár