Háskólastúdínan sem varð ein afkastamesta leyniskytta Rauða hersins

Ómar Þor­geirs­son, sagn- og mark­aðs­fræð­ingur búsettur í Moskvu, kynnti sér sögu leyniskytt­unnar goð­sagna­kenndu - sem þekkt var undir við­ur­nefn­inu „Lafði Dauði“.

Sig­ur­dag­ur­inn 9. maí er mik­ill hátíð­ar­dagur í Rúss­landi ár hvert en þá minn­ast Rússar bæði sigra og fórna Rauða hers­ins í „Föð­ur­lands­stríð­inu mikla“ á árunum 1941-1945. Dagskrá Sig­ur­dags­ins í Moskvu í ár var nokkuð hefð­bundin með til­heyr­andi her­sýn­ingu þar sem meira en tíu þús­und her­menn mar­ser­uðu um Rauða torgið, ásamt því að sýna helstu hern­aðar far­ar­tæki rúss­neska hers­ins.

Samkvæmt rúss­nesku RT-frétta­stof­unni var her­sýn­ingin í ár þó frá­brugðin að því leyti að nú mar­ser­uðu einnig rúss­neskar herkonur í fyrsta skipti á Rauða torg­inu á Sig­ur­dag­inn. Ekki kemur þó fram í umfjöll­un­inni af hverju herkonur hafa ekki tekið þátt í her­sýn­ing­unni til þessa. Hvernig sem því líður þá er sann­ar­lega vel til fundið að konur eigi full­trúa í hinni árlegu her­sýn­ingu - til heið­urs kyn­systrum sínum sem lögðu sitt að mörkum fyrir Rauða her­inn í Föð­ur­lands­stríð­inu mikla.

Konur í fremstu víglínu stríðsátaka

Því hefur verið haldið fram að ákveðið for­dæmi fyrir beinni þátt­töku í stríðs­á­tökum hafi verið sett af rúss­neskum konum á tímum fyrri heims­styrj­ald­ar­innar, en þá skráðu þús­undir kvenna sig í her­inn og sinntu þar marg­vís­legum störfum. Sagn­fræð­ing­ur­inn Laurie Stoff, höf­undur bók­ar­innar They Fought for the Mother­land, full­yrðir reyndar að Rússar hafi verið einu stríðs­að­il­arnir sem tefldu mark­visst fram konum í bar­dögum í fremstu víg­línu í fyrri heims­styrj­öld­inni.

Þá eru heim­ildir fyrir því að Komm­ún­ista­flokkur Sov­ét­ríkj­anna hafi allt frá árinu 1931 staðið fyrir her­þjálfun í skólum þar sem stelpum jafnt sem strákum voru kennd und­ir­stöðu­at­riði her­þjálf­unar. Síðar hefur sov­éska stríðs­myndin Chapayev frá árinu 1934, í leik­stjórn bræðr­anna Georgi og Sergei Vasilyev, einnig verið talin á meðal áhrifa­valda fyrir konur til að ganga í her­inn. Ástæðan er sú að í mynd­inni fer leik­konan Varvara Mya­snikova á kostum sem kven­hetjan Anka en hún var gjarnan vopnuð vél­byssu og varð umsvifa­laust að miklu átrún­að­ar­goði á meðal fjölda kvenna í Sov­ét­ríkj­unum.

Konur í Sov­ét­ríkj­unum höfðu því ein­hver fót­spor til að feta í og ein­hverjar fyr­ir­myndir til að sam­svara sig við og líta upp til þegar síð­ari heims­styrj­öldin skall á. En eig­in­legar ástæður þess að svo margar konur ákváðu að ganga til liðs við Rauða her­inn í Föð­ur­lands­stríð­inu mikla gegn nas­istum hafa þó eflaust verið jafn ólíkar og þær voru margar. Þær konur sem vildu berj­ast í fremstu víg­línu þurftu hins vegar að sýna það og sanna, miklu fremur en karlar, að þær hefðu hug­rekkið og dráp­seðlið sem til þurfti í stríðs­á­tökum.

Goðsögnin „Lafði Dauði“ verður til

Lyudmila Mik­hailovna Pavlichenko fædd­ist 12. júlí árið 1916 í smá­bænum Belaya Tserkov í nágrenni Kænu­garðs í Úkraínu. Pavlichenko var því 24 ára gömul þegar nas­istar hófu inn­rás inn í Sov­ét­ríkin þann 22. júní árið 1941, en hún var þá að læra sagn­fræði í háskóla. Pavlichenko ákvað hins vegar að skrá sig sem sjálf­boða­liði í her­inn og var með þeim fyrstu sem svör­uðu kall­inu eftir mikið mann­fall hjá Rauða hernum í upp­hafi stríðs­átak­anna. Henni stóð þá til boða að verða hjúkr­un­ar­kona en hún neit­aði og taldi sig hafa meira fram að færa með því berj­ast í fremstu víg­línu með riffil í hönd. Pavlichenko hafði reyndar lagt stund á skot­fimi frá unga aldri og gat sýnt fram á skír­teini sem und­ir­strik­aði hæfi­leika hennar með riffil­inn. Það var hins vegar ekki fyrr en hún sýndi í verki hversu góð skytta hún var að hún fékk end­an­lega inn­göngu í her­inn sem leyniskytta, eftir að hún drap sína fyrstu tvo óvina­her­menn í nokk­urs konar „inn­töku­prófi“.

Pavlichenko var fljót að skapa sér orð­spor sem afburða­skytta þegar hún tók þátt í vörn Rauða hers­ins í hafn­ar­borg­inni Ódessu á norð­vest­ur­strönd Svarta­hafs. Á aðeins tveimur og hálfum mán­uði á svæð­inu drap hún alls 187 óvina­her­menn. Pavlichenko hélt svo upp­teknum hætti þegar her­deild hennar var send til að verja Seva­stopol á Krím­skaga, eftir að nas­istar og banda­menn þeirra höfðu náð yfir­ráðum í Ódessu.

Pavlichenko var búin að berj­ast í meira en átta mán­uði í Seva­stopol þegar hún særð­ist illa. Á þeim tíma­punkti var hún komin með 309 dráp á óvina­her­mönnum skráð á sínu nafni. Pavlichenko var fyrir vikið kölluð „Lafði Dauði“ (e. „Lady Death“) í fjöl­miðlum og orðin að sann­kall­aðri goð­sögn í Sov­ét­ríkj­unum og víðar. Af þeim sökum sáu yfir­völd í Kreml sér leik á borði til að nýta sér vin­sældir leyniskytt­unnar og aft­ur­köll­uðu hana úr fremstu víg­línu í júlí árið 1942 og sendu hana þess í stað í afar mik­il­vægan leið­angur, utan Sov­ét­ríkj­anna.

Diplómatísk sendiferð fyrir Stalín

Pavlichenko var send í opin­berar heim­sóknir til Banda­ríkj­anna, Kanada og Bret­lands frá ágúst til nóv­em­ber árið 1942. Hlutverk Pavlichenko var fyrst og fremst að reyna að sann­færa ráða­menn þjóð­anna að ráð­ast gegn nas­istum í Vestur-Evrópu, en á tíma heim­sókn­anna stóðu Sov­ét­menn í ströngu í Orr­ust­unni um Stalín­grad.

Pavlichenko varð þannig fyrsti her­maður Sov­ét­ríkj­anna til þess að heim­sækja Hvíta húsið þegar hún heim­sótti Franklin Roosevelt Banda­ríkja­for­seta og eig­in­konu hans, Eleanor Roosevelt. Pavlichenko og for­seta­frúin náðu að sögn sér­stak­lega vel saman en leyniskyttan naut almennt mik­illa vin­sælda á ferða­lagi sínu um Banda­ríkin. Hinn þekkti banda­ríski þjóð­laga­söngv­ari Woody Guthrie samdi meðal ann­ars lagið „Miss Pavlichenko“ henni til heið­urs.

En þrátt fyrir að Banda­rískir fjöl­miðlar hafi að mestu leyti hrósað Pavlichenko í hástert voru einnig dæmi um blaða­greinar sem settu út á útlit hennar og klæða­burð. Leyniskyttan var því ekki alltaf sátt með margar spurn­ingar sem hún fékk frá þar­lendum blaða­mönn­unum. Gremja hennar kom þannig ber­sýni­lega í ljós í við­tali við Time magazine þar sem hún svar­aði gagn­rýn­is­rödd­unum fullum hálsi. „Ég klæð­ist ein­kenn­is­bún­ingi mínum með stolti. Á honum hangir orða Leníns. Hann hefur verið úta­t­aður blóði í bar­daga. Það er hins vegar aug­ljóst að það skiptir banda­rískar konur meira máli hvort að klæðst sé silki nær­fötum eða ekki undir her­klæð­unum. Hvað ein­kenn­is­bún­ing­ur­inn raun­veru­lega stendur fyrir, skilja þær alls ekki,“ var haft eftir Pavlichenko.

Goðsögnin lifir áfram

Þrátt fyrir að litið hafi verið á sendi­ferð Pavlichenko sem vel heppn­aða þá þurfti Rauði her­inn að bíða í tæp tvö ár eftir því að banda­menn réð­ust loks­ins inn í Vestur-Evrópu með inn­rásinni í Normandí. Á þeim tíma­punkti var Rauði her­inn kom­inn með yfir­hönd­ina á aust­ur­víg­stöðvum en tími Pavlichenko í fremstu víg­línu var aftur á móti lið­inn. Hún var þá búin að hækka í tign innan hers­ins og búið að sæma hana æðstu medalíu sem „Hetja Sov­ét­ríkj­anna“. Pavlichenko hélt þó áfram að þjóna Rauða hernum út stríðið þar sem hún þjálf­aði og und­ir­bjó leyniskyttur fyrir stríðs­á­tök.

Að stríðslokum snéri Pavlichenko sér aftur að námi og útskrif­að­ist sem sagn­fræð­ingur frá Rík­is­há­skól­anum í Kænu­garði í lok árs 1945. Síðar flutti hún til Moskvu og vann við rann­sóknir fyrir Sovéska sjó­her­inn en hún varð einnig áber­andi í bar­áttu upp­gjafa­her­manna fyrir betri kjörum. Pavlichenko var aðeins 58 ára þegar dó, þann 10. októ­ber árið 1974, en hún var jörðuð í Novodevichy kirkju­garð­inum í Moskvu.

Minning Pavlichenko var heiðruð með ýmsum hætti en tveimur árum eftir dauða hennar var til að mynda gefið út frí­merki með mynd af leyniskytt­unni en það var einnig gert þegar stríðs­á­tök stóðu sem hæst í síð­ari heims­styrj­öld­inni árið 1943. Síðar hafa verið skrif­aðar margar bækur og blaða­greinar um hetju­dáð Pavlichenko og jafnan fjallað um afrek hennar á goð­sagna­kenndan hátt. Þá var nýlega gerð kvik­mynd um ævi Pavlichenko sem ber tit­il­inn „Bar­dag­inn um Seva­stopol“ og var hún frum­sýnd í byrjun apríl 2015.

Athygli vakti að kvik­myndin var fram­leidd með aðkomu fjár­magns frá bæði Rúss­landi og Úkraínu og því talað um menn­ing­ar­legt sam­starfs­verk­efni, á afar við­kvæmum tímum í sam­skiptum land­anna vegna stöðu mála á Krím­skaga - En eitt er þó víst, að goð­sögnin um Lafði Dauða” mun halda áfram að lifa góðu lífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár