Er austurhluti Úkraínu að týnast?

Síð­ast­liðið ár hefur fennt yfir átökin í aust­ustu héröðum Úkraínu þar sem rúss­neskir aðskiln­að­ar­sinnar ráða ríkjum. Vopnahlé hefur hald­ist en frið­ar­samn­ingar engu að síður ekki virtir. Við slíkar aðstæður er veru­lega hætta á að svæði hrein­lega týn­ist. Þau stjórna sér sjálf en alþjóða­sam­fé­lagið lítur ekki við þeim.

Áminning

Söng­konan Jamala steig á svið 14. maí síð­ast­lið­inn og sigr­aði Eurovision söng­keppn­ina þvert á allar spár. Jamala er 32 ára gömul og ættuð frá Krím­skaga. Faðir hennar er af Tatara-ættum en lagið sem hún flutti, „1944“, fjallar einmitt um nauð­ung­ar­flutn­inga þess þjóð­flokks frá Krím­skaga til Úzbekistan á tímum Stalíns. Talið er að um 230.000 manns hafi verið reknir af skag­anum og tug­þús­undir soltið til bana á leið­inni. Í dag er atburð­ur­inn skil­greindur sem þjóð­ar­morð. Rússar, sem spáð hafði verið sigri, urðu æfir, sök­uðu Úkra­ínu­menn um póli­tískan áróður og hót­uðu að snið­ganga keppn­ina að ári. Póli­tískur áróður er bann­aður sam­kvæmt reglum Eurovision en lag­inu var hleypt í gegn vegna þess að það fjall­aði um sögu­lega atburði en ekki nútím­ann. Flestir Úkra­ínu­menn og þar á meðal for­seti lands­ins, Petro Poros­henko, við­ur­kenna þó fús­lega að lagið sé inn­blásið af atburðum sein­ustu ára. Lagið minnir okkur nefni­lega sterk­lega á inn­limun Rússa á Krím­skaga og stríðið í Donbass, aust­ustu héröðum Úkraínu.

Krím

Í febr­úar 2014 hófust óeirðir á Krím­skaga.Þetta var vegna bylt­ing­ar­innar á Maidan-torgi í Kiev skömmu áður og hall­ar­bylt­ing­ar­innar gegn for­set­anum Viktor Yanukovich sem var mjög hallur undir Rússa. Meiri­hluti íbúa (um 2/3) á Krím­skaga eru af rúss­neskum ættum og sögu­lega séð er svæðið rúss­neskt. Eitt af fyrstu verkum sov­éska leið­tog­ans Nikita Khrushchev var að færa Krím­skaga frá Rúss­landi til Úkraínu sem gjöf. Það var árið 1954. Khrushchev var Rússi en hafði sterka teng­ingu við Úkraínu og hafði búið þar lengi. Innan Sov­ét­ríkj­anna skipti þessi skipt­ing í raun ekki miklu máli þar sem bæði Úkraína og Rússland lutu Kreml. En þegar Sov­ét­ríkin leyst­ust upp í upp­hafi tíunda ára­tug­ar­ins varð þetta skyndi­lega hita­mál. Rússar gagn­rýndu rétt­mæti til­færsl­unnar og einnig lög­mæti hennar þar sem mjög fáir með­limir æðsta ráðs Sov­ét­ríkj­anna voru sam­an­komnir til að sam­þykkja flutn­ing­inn. Um þetta var deilt í nokkur ár þangað til Rússar gáfu sig árið 1997 og við­ur­kenndu yfir­ráð Úkra­ínu­manna á Krím­skaga. Aftur á móti hélt málið áfram á skag­anum sjálfum þar sem íbú­arnir deildu sín á milli og rúss­neskir þjóð­ern­is­sinnar hétu því að einn dag myndi skag­inn sam­ein­ast Rúss­landi á ný.

Það dylst engum að Rússar sjálfir áttu sinn þátt í óeirð­unum í febr­úar 2014. Óein­kenn­is­klæddir víga­menn voru sendir yfir landa­mærin til að skipu­leggja, taka þátt í og aðstoða við yfir­töku rúss­neskra aðskiln­að­ar­sinna. Hlut­irnir gerð­ust mjög hratt á þessum tíma. Þann 11. mars lýsa leið­togar aðskiln­að­ar­sinna yfir sjálf­stæði Krím­skaga, 16. mars er haldin þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um hvort ganga eigi Rúss­landi á hönd og 18. mars inn­lim­uðu Rússar skag­ann form­lega. Á innan við mán­uði hafði eitt Evr­ópu­ríki tekið um 27 þús­und fer­kíló­metra og um 2 millj­ónir íbúa af öðru Evr­ópu­ríki. Það duld­ist engum að þetta var þaul­skipu­lagt og það sem merki­leg­ast er að þetta var að mestu leyti blóð­laust. Úkra­ínu­stjórn og Vest­ur­veldin beittu ekki her­valdi en for­dæmdu yfir­tök­una þó harka­lega. Þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan þar sem 96% höfðu sam­þykkt að gang­ast Rússum á hönd var afgreidd sem brand­ari. Úkra­ínu­menn og fleiri hópar á skag­anum höfðu snið­gengið hana. Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa neitað að við­ur­kenna yfir­tök­una og er hún þess í stað skil­greind sem her­nám. Í kjöl­farið á yfir­tök­unni voru Rússar reknir úr G8, hópi helstu iðn­ríkja heims, og ýmsar aðrar þving­anir settar bæði á ríkið sem og ýmsa rúss­neska valda­menn.

Donbass

Eftir inn­limun Krím­skaga brut­ust út óeirðir Úkra­ínu­manna af rúss­neskum ættum víðs vegar í aust­ur­hluta lands­ins. Hvergi þó meiri en í hér­uð­unum Donetsk og Luhansk, aust­ast í land­inu, við landa­mæri Rúss­lands. Óeirð­irnar hörðn­uðu þar og brut­ust út í alvöru stríðs­á­tök þó að mann­fall væri ekki mikið. Rússar hafa aldrei viljað við­ur­kenna þátt sinn í stríð­inu en ljóst er að þeir sendu óein­kenn­is­klædda her­menn, vopn og vistir yfir landa­mærin til að aðstoða aðskiln­að­ar­sinn­ana. Þann 11. maí 2014 voru haldnar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur í báðum héröð­unum þar sem aðskiln­að­ar­sinnar héldu því fram að sjálf­stæði frá Úkraínu hefði verið sam­þykkt með miklum meiri­hluta. Hvorki Úkraína né alþjóða­sam­fé­lagið hefur þó við­ur­kennt þessar atkvæða­greiðslur. Degi seinna var lýst yfir sjálf­stæði ríkj­anna Donetsk og Luhansk.

Bardagar héldu áfram þar sem úkra­ínski stjórn­ar­her­inn og aðskiln­að­ar­sinnar skipt­ust á að vera í sókn. Alþjóða­sam­fé­lagið reyndi þá að grípa í taumana og semja um vopna­hlé og frið á svæð­inu, undir for­ystu Francois Hollande Frakk­lands­for­seta. Frið­ar­við­ræð­urnar fóru fram í Minsk, höf­uð­borg Hvíta Rúss­lands, í sept­em­ber 2014 og febr­úar 2015. Þar náð­ist sam­komu­lag um vopna­hlé og að héröðin myndu ganga aftur inn í Úkraínu en fá aukna sjálf­stjórn. Vopna­hléið hefur að mestu leyti haldið, utan við nokkrar skærur snemma árs 2015, en treg­lega hefur gengið að fá leið­toga aðskiln­að­ar­sinna til að und­ir­búa héröðin undir sam­ein­ingu. Einnig hefur gengið illa að fá stjórn­völd í Kiev til að skipu­leggja kosn­ingar og fleira sem nauð­syn­legt er fyrir sam­ein­ingu. Van­traustið og úlfúðin er ein­fald­lega ennþá of mikil milli stríðs­að­il­anna og þjóð­ern­is­kenndin sem er í hæstu hæðum báðum megin er ekki til að liðka fyrir sam­ein­ingu. Staðan í dag er nán­ast óbreytt. Aðskiln­að­ar­sinnar stjórna stórum svæðum og óvíst hver fram­tíð þeirra verður. Þau eiga meira að segja á hættu að verða svokölluð týnd ríki.

Týndu ríkin

Týnd ríki eru þau sem eru sjálf­stæð í raun og veru en njóta ekki við­ur­kenn­ingar alþjóða­sam­fé­lags­ins. Sum ríki (Ísrael, Palest­ína, Kósóvó, Norður og Suður Kórea o.fl.) eru ekki við­ur­kennd af öllum ríkjum innan Sam­ein­uðu þjóð­anna. Týndu ríkin eru hins vegar við­ur­kennd af ein­ungis örfáum ríkjum, sum engum. Hér eru nokkur af þeim helstu.

Transni­stría

Íbúa­fjöldi Rúmlega 500.000

Til­heyrir Moldóvu

Við­ur­kennt af Engum

Transni­stría er land­ræma á landa­mærum Moldóvu og Úkraínu. Sjálf­stæði var lýst yfir 2. sept­em­ber 1990 og um mitt ár 1992 braust út stríð milli Transni­str­íu­manna og Mold­óvu­manna þar sem Rússar studdu þá fyrr­nefndu. Landið er það eina í heim­inum sem enn skartar sov­éskum fána.

Suður Ossetía

Íbúa­fjöldi Rúmlega 50.000

Til­heyrir Georgíu

Við­ur­kennt af Rúss­landi, Venes­ú­ela, Ník­aragúa, Nauru

Lýstu yfir sjálf­stæði 21. des­em­ber 1991 og í kjöl­farið braust út stríð við Georg­íu­menn sem stóð fram á sum­arið 1992 þar sem Rússar börð­ust við hlið Ossetíu­manna. Árið 2008 braust aftur út stríð milli þjóð­anna og efld­ust þá tengsl Suður Ossetíu og Rúss­lands. Síðan 2015 hafa Rússar í raun stýrt rík­inu fyrir þá, sbr. fjár­mál, vel­ferð­ar­mál, landamæra­vörslu o.fl.

Abkhazía

Íbúa­fjöldi Um 250.000

Til­heyrir Georgíu

Við­ur­kennt af Rúss­landi, Venes­ú­ela, Ník­aragúa, Nauru

Abkhazíumenn lýstu yfir sjálf­stæði þann 23. júlí árið 1992. Þá braust út stríð við Georg­íu­menn sem stóð yfir í rúmt ár og nutu Abkhazíumenn stuðn­ings Rússa. Georgískir borg­arar voru strá­felldir og flæmdir burt af svæð­inu. Bardagar milli þjóð­anna hófust aftur í tengslum við stríðið í Suður Ossetíu árið 2008.

Nagorno-Karabakh

Íbúa­fjöldi Um 150.000

Til­heyrir Azerbaijan

Við­ur­kennt af Engum

Deilur Armena og Azera eiga sér langa for­sögu og skærur hófust á svæð­inu áður en Sov­ét­ríkin féllu. 2. sept­em­ber árið 1991 lýstu Armenar á Nagorno-Karabakh svæð­inu yfir sjálf­stæði. Hinir fornu fjendur héldu í stríð, Armenar með hjálp Rússa og Grikkja og Azerar með hjálp Tyrkja. Tug­þús­undir fór­ust og um milljón manns þurftu að flýja heim­ili sín. Stríðinu lauk um mitt ár 1994 og Nagorno-Karabakh menn sitja nú á stærra landi en þeir gerðu kröfu um í upp­hafi.

Norður Kýpur

Íbúa­fjöldi 300.000

Til­heyrir Kýpur

Við­ur­kennt af Tyrk­landi

Árið 1974 var gert valda­rán á Kýpur þar sem reynt var að sam­eina eyj­una Grikk­landi. Tyrkir gerðu inn­rás nokkrum dögum seinna og hófust þá miklir fólks­flutn­ingar. Kýpur-Grikkir flúðu suður en Kýpur-Tyrkir norður. Árið 1983 lýstu Kýpur-Tyrkir loks yfir sjálf­stæði og tyrk­neski her­inn tryggði öryggi þeirra.

Listinn er alls ekki tæm­andi. Til eru fleiri ríki sem njóta ekki við­ur­kenn­ingar alþjóða­sam­fé­lags­ins s.s Sóma­líland og Vestur-Sahara í Afríku og eyjan Taíwan í Kínahafi. Önnur slík ríki hafa verið inn­limuð inn í móð­ur­ríkin, sbr. Tjétjénía inn í Rússland árið 2000 og Krajina inn í Króatíu árið 1995.

Vandi týndra ríkja

Týnd ríki eiga yfir­leitt við tölu­verða erf­ið­leika að stríða. Þau eru fjár­hags­lega óstöðug og almennt eru lífs­kjör betri í því ríki sem þau klufu sig frá. Þau eru einnig mjög háð þeim ríkjum sem studdu þau til sjálfs­stjórnar í upp­hafi, sem í mörgum til­fellum er Rússland. Rússar hafa stutt sín týndu ríki bæði hern­að­ar­lega og fjár­hags­lega en að öðru leyti reyn­ist þessum ríkjum mjög erfitt að fá erlenda aðila til að fjár­festa. Það er bæði vegna þess að ríkin er óstöðug og bar­dagar gætu blossað upp hvenær sem er og einnig sú laga­lega óvissa sem fylgir þeim. Týndu ríkin eru ekki aðilar að alþjóða­sátt­málum og óvíst hvort að alþjóða­lög og samn­ingar haldi innan þeirra. Þau geta heldur ekki alger­lega treyst á stuðn­ings­ríki sín til að sinna varn­ar­málum fyrir sig. Mjög stór hluti af rík­is­út­gjöldum fer í her­inn og landamæra­gæslu. Þar sem þessi ríki eru yfir­leitt fámenn er því minna eftir til að nota í vel­ferð­ar­mál. Spilling er mikil og skipu­lögð glæp­a­starf­semi einnig. Innviðir sam­fé­lags­ins, svo sem lög­gæsla og dóms­kerfi, eru ein­fald­lega of veikir til að takast á við þetta. Ofan á þetta bæt­ist flótta­manna­vandi þar sem deil­urnar eru yfir­leitt af þjóð­ern­is­legum toga. Annað hvum­leitt vanda­mál fyrir íbúa týndu ríkj­anna er land­leysi þeirra. Vegabréf þeirra eru einskis nýt nema þá til að ferð­ast til þeirra örfáu landa sem við­ur­kenna þau.

Taktísk þol­in­mæði (strategic patience) er aðferða­fræði sem gjarnan hefur verið beitt gegn aðskiln­að­ar­sinnum. Í þess­ari aðferða­fræði felst lítið annað en opin­ber for­dæm­ing, við­skipta­þving­anir og bið­lund. Vonast er til að íbúar týndu ríkj­anna muni í tíð og tíma fá nóg af stöð­unni og þrýsta á um að sam­ein­ingu. Þessi stefna hefur þó ekki virkað að neinu viti. Að ein­hverju leyti er það vegna þess að lífs­kjör í móð­ur­rík­inu eru ekk­ert endi­lega mikið betri en í því týnda. Ríki á borð við Moldóva og Georgía eru með þeim fátæk­ustu í Evrópu. Einnig hafa Rússar reynst nokkuð sterkur bak­hjarl. Síðan má ekki van­meta þátt þjóð­ern­is­stefn­unnar, sem er mjög sterk á þessum svæðum. Týndu ríkin hafa hald­ist á floti í ald­ar­fjórð­ung og jafn­vel lengur.

Geta Donetsk og Luhansk orðið týnd ríki?

Týndu ríkin hafa hingað til verið smá og fámenn, þetta eru svæði sem aldrei heyr­ist neitt frá í fjöl­miðlum nema þá í tengslum við stríðs­á­tök. Nú í apríl komst Nagorno-Karabakh í frétt­irnar fyrir skærur við landa­mæri rík­is­ins. Í fyrstu virð­ist það óhugs­andi að þetta geti orðið örlög Donetsk og Luhansk. Svæðið sem aðskiln­að­ar­sinnar ráða yfir er mjög víð­feðmt og á því búa sam­tals um 3,5 milljón manns. Þetta eru gam­al­gróin iðn­að­ar­héröð sem skiptu Sov­ét­ríkin miklu máli en hafa reyndar mátt muna fífil sinn feg­urri sein­ustu ár þar sem lífs­gæðum hefur hrakað umtals­vert. Svæðið er einnig mik­il­vægt vegna náma­graftrar á kolum og öðrum jarð­efnum. Getur svo mik­il­vægt svæði orðið draugur innan alþjóða­sam­fé­lags­ins?

Stefna Rússa virð­ist vera sú að festa Donetsk og Luhansk í þessu móti. Rússland ber ábyrgð á til­vist flestra týndra ríkja, beint eða óbeint, og sú stefna hefur gef­ist vel fyrir þá. Með þessu ná þeir að hafa áhrif innan ríkja sem flest hafa flúið í faðm Vest­ur­veld­anna eftir fall Sov­ét­ríkj­anna. Þetta setur þau ríki úr skorðum og elur á úlfúð og deilum. Ríki á borð við Úkraínu, Moldóvu og Georgíu eiga erf­ið­ara með að ganga inn í sam­bönd á borð við NATO eða ESB með slík átök í sínum garði. Segja má að Rússar hafi stigið yfir lín­una þegar þeir inn­lim­uðu Krím­skaga og það hefur komið þeim veru­lega í koll. Sú aðgerð hefur reynst þeim mjög dýr, bæði vegna aðlög­unar skag­ans sjálfs að Rúss­landi og for­dæm­ingar og efna­hags­þving­ana alþjóða­sam­fé­lags­ins. Innlimun Donetsk og Luhansk er því ekki inni í mynd­inni. Óbreytt ástand hentar Rússum hins vegar mjög vel.

Ljóst er að þver­móðska Úkra­ínu­manna og vest­ur­veld­anna mun ekki liðka fyrir sam­ein­ingu lands­ins. Ef að Donetsk og Luhansk eiga að ganga aftur inn í Úkraínu er ágætt að líta til Transni­stríu. Mold­óvu­menn hafa brugðið á þann leik að liðka fyrir við­skiptum, sam­skiptum og ferða­lögum til og frá Transni­stríu og það hefur gef­ist vel. Sam­skiptin hafa gengið svo vel að fjöl­margir íbúar beggja ríkj­anna von­ast nú eftir sam­ein­ingu, eftir ald­ar­fjórð­ungs aðskilnað. Það mun þó taka tíma rétt eins og sam­ein­ing í Úkraínu mun gera. Lyk­ill­inn eru góð sam­skipti og minni þjóð­ern­is­hyggja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár