Hinir raunverulegu krúnuleikar

Game of Thrones sjón­varps­þátta­ser­í­urnar byggja á sögu­legum bak­grunni. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti sér sögu­legu þræði þess­ara mögn­uðu þátta.

Sjón­varps­á­horf­endur hafa setið límdir við skjá­inn og fylgst með svika­myll­unum, ofbeld­inu og óhugn­að­inum sem birt­ist okkur í A Game of Thrones þátta­röð­inni sem nú er á sínu sjötta ári. Fæstir gera sér þó grein fyrir því að þeir séu að fylgj­ast með alvöru per­sónum og atburðum úr mann­kyns­sög­unni. Áhorf­endur geta þó hug­hreyst sig við það að upp­vakn­ingar og drekar eru und­an­skildir.

Ævintýrið verður til

George R.R. Martin er fæddur árið 1948 í New Jersey fylki í Banda­ríkj­unum. Hann hóf að skrifa hryll­ings­sögur og vís­inda­skáld­skap á átt­unda ára­tugnum og náði snemma nokkrum vin­sældum í þeim geira. Seint á níunda ára­tugnum datt hann þó úr tísku og beitti sér þá frekar á öðrum sviðum,svo sem hand­rita­skrifum fyrir sjón­varps­þætti. Hann varð þó fljótt leiður á því og upp úr 1990 hóf hann að skrifa mið­alda­skáld­sögu sem hann hugð­ist nefna Avalon. Fljót­lega átt­aði hann sig þó á því að þetta yrði að vera miklu stærra verk. Verkið fékk titlinn A Song of Ice and Fire og árið 1996 kom út fyrsta bókin í ser­í­unni, A Game of Thrones. Bókinni var vel tekið af gagn­rýnendum og seld­ist sæmi­lega vel. Þremur árum seinna kom næsta bók út, A Clash of Kings og svo koll af kolli. Bækur Martins voru nú farnar að rjúka upp met­sölu­listana, jafn­vel þó þær væru mjög langar og tölu­vert flóknar. Mikill áhugi var fyrir því að festa sög­una á filmu en ljóst var að þetta gæti aldrei orðið kvik­mynd, heim­ur­inn var alltof stór og sagan of löng til þess. Árið 2007 keypti sjón­varps­stöðin HBO því rétt­inn til að fram­leiða sjón­varps­þætti og sýn­ing þeirra hófst árið 2011. Vart þarf að minn­ast á vin­sældir þátt­anna sem vaxið hafa stöðugt með hverju árinu. Sögunni er ennþá ekki lokið. Enn eiga eftir að koma út a.m.k. tvær bækur og óvíst er hversu margar þátt­arað­irnar verða.

Fyr­ir­myndir og áhrifa­valdar George R.R. Martin koma víðs vegar að. Sem barn ólst hann upp á Tolkien og seinna meir á hryll­ings og vís­inda­skáld­skap höf­unda á borð við H.P. Lovecraft, Robert A. Heinlein og Isaac Asimov. Martin hefur verið kall­aður „hinn nýji Tolkien“ eða „hinn amer­íski Tolkien“ en hann er þó ekki hrif­inn af slíkri nafn­gift. Vissu­lega eiga verk Tolkiens sinn þátt í að móta hug­ar­heim Martins en í raun eru verkin eins og and­stæður. Í heimi Tolkiens er allt klippt og skorið, það fer ekk­ert á milli mála hver er hetjan og hver óvin­ur­inn. Þetta eru epísk hetju­verk. Í A Song of Ice and Fire er allt annað uppi á ten­ingnum, þar eru aðeins örfáar per­sónur sem eru alger­lega alslæmar eða algóðar. Samúð les­and­ans rokkar á milli per­sóna þar sem van­trausti og efa er sáð alls staðar. Bakstungur eru dag­legt brauð og Martin hikar ekki við að taka lyk­il­per­sónur af lífi á svip­legan hátt og án aðvör­unar. Þessar fyr­ir­myndir fékk hann ekki frá Tolkien eða öðrum rit­höf­undum 20. ald­ar­innar heldur úr mann­kyns­sög­unni. Hann lá yfir stórum rullum um mið­alda­sögu Englands, Frakk­lands og ann­arra landa. Hann rann­sak­aði klæðnað, burt­reiðar, matar­æði og annað til þess að hafa sem bestan skiln­ing á tíma­bil­inu. Einnig heim­sótti hann Evrópu til að skoða mið­alda­kast­ala og aðrar minjar. A Song of Ice and Fire er fantasíu­heimur með upp­skáld­uðum nöfnum, drekum og galdri. En Martin fann sögu­svið sitt í Englandi 15. aldar.

Bretlandseyjar – Westeros

Westeros er meg­in­landið þar sem bróð­ur­part­ur­inn af atburðum A Song of Ice and Fire ger­ast. Fyr­ir­myndin að Westeros er aug­ljós­lega Bretland á mið­öldum, þ.e. tungu­mál, klæðn­aður, menn­ing o.sv.frv. En auk þess er landa­fræði meg­in­lands­ins byggð á Bret­landseyjum, þ.e. ef Írlandi er snúið í hálf­hring og sett neðan við Bretland.

Rósastríðin

Rósa­stríðin í Englandi eru grund­völl­ur­inn að A Song of Ice and Fire. Það voru deilur milli tveggja ætta sem báðar gerðu til­kall til ensku krún­unnar og brut­ust út í nokkrum stríðum á árunum 1455 til 1487. Annars vegar var það York ættin úr norðr­inu (Stark) og hins vegar hin vell­auð­uga Lancaster ætt úr vestri (Lanni­ster). Heiti stríð­anna er seinni tíma til­bún­ingur. Hin hvíta rós Yorks­hire var vissu­lega merki þeirrar ættar í stríð­unum en hin rauða rós Lancaster var ekki notuð fyrr en seinna.

Ríkharður af York – Eddard Stark

Þriðji her­tog­inn af York var dyggur stuðn­ings­maður og ráð­gjafi kon­ungs­ins Hinriks VI af Lancaster. Hinrik var veik­geðja kon­ungur sem átti við mikla geð­ræna kvilla að stríða og gat verið óstarf­hæfur löngum stundum. Þegar kon­ungur var frá var Rík­harður nefndur Verndari rík­is­ins (Hönd kon­ungs) og sá um dag­legan rekstur þess. Hann átti aftur á móti í deilum við drottn­ing­una, Margréti af Anjou, og her­sveitir þeirra lentu saman. Þær deilur end­uðu með því að Rík­harður missti höf­uðið.

Margrét af Anjou – Cersei Lannister

Hin franska drottn­ing fyr­ir­leit mann sinn Hinrik VI en var hel­tekin af börnum sínum. Hún var slóttug og mis­kunn­ar­laus og stýrði kon­ung­dæm­inu í raun um nokk­urt skeið. Margrét var hroka­full, ósveigj­an­leg, illa liðin og tók ekki alltaf bestu ákvarð­an­irnar. En hún var þó stór leik­maður og and­stæð­ingar hennar ótt­uð­ust hana.

Játvarður af Westminster – Joffrey Baratheon

„Þessi drengur, þó ein­ungis þrettán ára að aldri, talar nú þegar um ekk­ert annað en að háls­höggva menn og heyja stríð.“ Þannig skrifar Giovanni Pietro Panicharolla, sendi­herra frá Mílanó, árið 1467 um hinn unga krón­prins Játvarð, son Hinriks VI kon­ungs og Mar­grétar af Anjou. Fleiri frá­sagnir eru til af sad­isma prins­ins, jafn­vel gagn­vart eig­in­konu sinni Önnu Neville (Sansa Stark). Ját­varður var einnig sagður óskil­get­inn og vanga­veltur voru uppi um að faðir hans væri ein­hver af nán­ustu banda­mönnum Mar­grétar eins og t.d. Beufort her­togi af Somerset. Prinsinn dó ein­ungis 17 ára í orr­ust­unni um Tewkesbury árið 1471 þar sem fram­göngu hans hefur verið lýst sem mik­illi rag­mennsku.

Játvarður IV konungur – Robb Stark/Robert Baratheon

Ját­varður var sonur Ríkharðs af York og einn öfl­ug­asti her­for­ingi síns tíma. Eftir að faðir hans var drep­inn var það í hans höndum að stýra York ætt­inni gegn kon­ungi. Árið 1461 steypti hann Hinriki VI og var sjálfur krýndur. Ját­varður sveik banda­mann sinn Richard Neville (Walder Frey) um að gift­ast þeirri konu sem Neville hafði valið. Þess í stað gift­ist hann lág­að­als­kon­unni Elísa­betu Woodville (Talisa Stark) af ást. Þetta olli því að honum var steypt og Hinriki VI komið aftur til valda en það varði þó ein­ungis í um hálft ár. Ját­varður komst aftur til valda og stýrði Englandi í friði fyrir Lancaster ætt­inni næstu tólf árin. Seinustu árin var hann þó skugg­inn af sjálfum sér. Hann drakk mikið, fitn­aði, stund­aði hór­mang og fram­koma hans í hirð­inni þótti ósæmi­leg. Hann dó ein­ungis fer­tugur við stang­veiði árið 1483.

Ríkharður III – Tyrion Lannister/Stannis Baratheon

Rík­harður er ein þekktasta per­sóna úr leik­ritum Williams Shakespe­are. Enn þann dag í dag er hann þekktur sem kropp­in­bak­ur­inn grimmi. Lítill, veik­burða og van­skap­aður. Shakespe­are og aðrir sagna­rit­arar sem lutu Tudor ætt­inni ýktu þó stór­lega fötlun höf­uð­and­stæð­ings síns. Í raun var Rík­harður nokkuð rétt­látur kon­ungur, sem hafði hag þeirra verst settu fyrir brjósti og upp­gröftur leifa hans árið 2012 í Leicester sýndu að mænu­fötlun hans var mun minni en áður var talið. Hann hefur alls ekki verið kropp­in­bakur. Rík­harður var af York ætt og afar trúr bróður sínum kon­ung­inum Játvarði IV. Þegar Ját­varður lést lýsti hann þó tvo barn­unga syni kon­ungs­ins óskil­getna og tók sjálfur krún­una.

Hinrik Tudor – Daenerys Targaryen

Hinrik beið lengi hinum megin við Erma­sundið (The Narrow Sea) í útlegð í Frakk­landi á meðan stríð og ringul­reið gekk yfir heima­land hans England. Loks sigldi hann yfir sundið með her Frakka og Skota, fékk margar af helstu aðal­sættum í Englandi á sitt band og sigr­aði Ríkharð III í bar­dag­anum við Bosworth. Hinrik sigr­aði England undir fána drek­ans, þjóð­ar­tákni Wales þar sem hann fyrst lenti. Í kjöl­farið var hann krýndur Hinrik VII Eng­lands­kon­ungur. Hann var af Lancaster ætt en gift­ist Elísa­betu af York skömmu eftir valda­tök­una og þar með sam­ein­aði hann ætt­irnar tvær og lauk Rósa­stríð­unum.

Heimur A Song of Ice and Fire er þó langt frá því bund­inn við Rósa­stríðin. George R.R. Martin hefur notað margt annað úr sögu Bret­lands og ann­arra ríkja í verk­inu.

Játvarður I – Tywin Lannister

Ját­varður I, kall­aður Longs­hanks eða hinn hávaxni, réði Englandi í lok 13. aldar og er almennt tal­inn einn mesti harð­stjóri í sögu lands­ins. Hann var valda­gráð­ugur lét ekk­ert stöðva sig. Grimmd hans gegn t.d. Gyðingum og Skotum er vel þekkt og hann hrein­lega hræddi sam­tíma­fólk sitt upp úr skónum. Honum var annt um ætt sína og arf­leið en sonur hans, hinn veik­geðja Ját­varður II, olli honum miklum von­brigðum.

Anne og George Boleyn – Margaery og Loras Tyrell

Anne Boleyn var ensk aðals­kona á fyrri hluta 16. aldar sem ving­að­ist við marga af helstu ráða­mönnum Evrópu uns hún gift­ist Hinriki VIII Eng­lands­kon­ungi, hjóna­band sem hleypti öllu í bál og brand. Á þess­ari veg­ferð sinni eign­að­ist hún marga óvini. Hún var náin bróður sínum George Boleyn, sem sumir telja að hafi verið sam­kyn­hneigður. Svo náin reyndar að þau voru sökuð um sifja­spell og tekin af lífi árið 1536.

Veggur Hadríanusar – Veggurinn

Róm­ar­keis­ar­inn Hadrí­anus lét byggja vegg snemma á annarri öld þvert yfir norð­ur­hluta Bret­lands. Hlutar hans standa enn í dag, ekki langt frá landa­mærum Englands og Skotlands. Til­gangur veggs­ins var að verja svæðið sunnan veggs­ins fyrir inn­rásum Pikta og ann­arra villtra ætt­bálka (Wildlings).

Musterisriddarar – Næturverðirnir

Nokkurs konar blanda af ridd­ara-og munka­reglum, stundum kall­aðir bar­daga­munkar. Voru fjöl­mennar og vold­ugar á mið­öldum, sér­stak­lega í tengslum við kross­ferð­irnar.

Meg­in­landið austan við Westeros kall­ast Essos og þar hefur Martin leyft sér að blanda ýmsu saman.

Ítölsk borg­ríki – Hinar frjálsu borgir

Vell­auðug smá­ríki sem byggðu á verslun á Mið­jarð­ar­haf­inu, t.d. Genóa, Písa, Feneyjar og Mílanó.

Hin gullna hjörð – Dothraki

Mongólar frá Asíu lögðu undir sig víð­femt svæði á 13. öld með leift­ur­sókn. Ferð­uð­ust um í stórum hópum á hest­baki og lögðu svæði í eyði.

Mamalúkar – Hinir óspilltu

Herir sem voru sam­settir af þrælum í Mið­aust­ur­löndum á mið­öldum. Voru not­aðir til að berj­ast við og að lokum hrekja kross­far­ana út úr land­inu helga fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs.

Hring­leika­hús Róm­ar­veldis – Bar­daga­gryfj­urnar

Hinir heims­þekktu leik­vangar þar sem Róm­verjar öttu saman skylm­inga­þrælum og rán­dýrum. Þar voru einnig sett á svið stórar orr­ustur úr sögu veld­is­ins, jafn­vel sjóorr­ustur.

George R. R. Martin hefur ekki ein­ungis byggt ákveðnar per­sónur, hópa og staði á sögu­legum fyr­ir­myndum. Hann hefur einnig byggt ein­staka atriði á ákveðnum atburðum úr sög­unni.

Hinn svarti kvöld­verður/Glencoe morðin – Rauða brúð­kaupið

Tvær af blóð­ug­ustu bakstungum sög­unnar áttu sér stað í Skotlandi. Árið 1440 var Vil­hjálmi jarli af Douglas sem þá var 16 ára og yngri bróður hans boðið til Edin­borg­ar­kast­ala til að snæða með kon­ung­inum, hinum 10 ára gamla Jakobi II. Douglas ættin var orðin valda­mikil í land­inu, of valda­mikil að mati sumra. Douglas bræð­urnir voru dregnir út úr miðri veislu og afhöfð­aðir á staðnum. Svipað atvik átti sér stað 250 árum síðar í Glencoe í skosku hálönd­unum. Það atvik tengd­ist deilum mót­mæl­enda og kaþ­ólikka í land­inu. Um 40 mönnum af MacDonald ætt, sein­ustu ætt­inni sem ennþá studdi hinn kaþ­ólska kon­ung Jakob VII, voru drepnir í miðri veislu. Margir hverjir sof­andi í rúmum sínum. Bæði þessi til­vik þóttu ein­hver sví­virði­leg­ustu eið­rof í skoskri sögu.

Yfirbót Jane Shore – Skammarganga Cersei

Jane Shore var frilla Ját­varðar IV sem hélt einnig við aðra aðals­menn eftir dauða hans. Ríkharði III var ákaf­lega í nöp við hana og sak­aði hana um hór­dóm, galdra o.fl. Hún var látin ganga í gegnum Lundúni ber­fætt og á nær­klæð­unum einum saman. Í fylgd hennar voru verðir og kirkj­unnar menn sem sungu sálma á meðan nið­ur­læg­ing­unni stóð. Mikill fjöldi var sam­an­kom­inn til að fylgj­ast með.

Þetta eru aðeins örfá dæmi úr hinu mikla verki sem ennþá er í smíðum. Martin hefur aldrei hafnað því að nota sögu­legar per­sónur og atburði við skrif sín. Þvert á móti lýsir hann sjálfur mörgum af fyr­ir­myndum sínum. Hann segir:

„Ég hef áhuga á fólk­inu í mann­kyns­sög­unni. Það eru til svo margar æðis­legar sögur um stríð, orr­ustur, tæl­ingar, svik og kosti sem fólk velur. Svo margir hlutir sem erfitt er að skálda. En auð­vitað skálda ég þetta ekki. Ég tek þetta og skafa af númer og nöfn, hækka allt upp í 11 og breyti litnum úr rauðum í fjólu­bláan og þá er ég kom­inn með gott atriði í bæk­urnar.“

Þessi atriði verða þó aldrei full­komin afrit af fyr­ir­myndum sínum. Martin nýtur þess að blanda sög­unni saman og stundum er erfitt að sjá nákvæm­lega hverjar fyr­ir­mynd­irnar eru. Gald­ur­inn við A Song of Ice and Fire er einmitt sá að verkið kemur stans­laust á óvart.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár