Mold metin að verðleikum sínum

Fjöldi útskrift­ar­verka er til sýnis í Lista­safni Reykja­víkur í Hafn­ar­hús­inu um þessar mundir. Nemandi í vöru­hönnun sýndi Kjarn­anum verk sitt og útskýrði hvað námið fæli í sér.

Emilía Björg Sigurðardóttir og lokaverkefni hennar í vöruhönnun
Emilía Björg Sig­urð­ar­dóttir og loka­verk­efni hennar í vöru­hönnun

„Þetta er rosa­lega krefj­andi nám. Mér fannst fyrsta árið erf­ið­ast, því þá er maður að finna út til hvers er ætl­ast af manni,“ segir Emilía Björg Sig­urð­ar­dóttir, útskrift­ar­nemi í vöru­hönnun frá Lista­há­skóla Íslands. Hún getur ekki sagt annað en að hún hafi verið mjög ánægð í nám­inu. Hún seg­ist hafa farið í námið vegna þess að hún hafi alltaf verið að hugsa um hvernig hægt væri að blanda saman sköp­un­ar­gáfu og spurn­ingum sem herja á hana um til­vist hluta.

Að ganga inn á sýn­ingu vöru­hönn­un­ar­nema í bóka­safni Lista­safns Reykja­víkur er eins og að ganga inn á rann­sókn­ar­stofu en alls útskrif­ast sjö nem­endur með B.A.-próf í fag­inu frá Lhí í vor. Nemendur höfðu fullt frelsi til að velja efni eða þema útskrift­ar­verka sinna. Emilía segir að verkin hjá þeim hafi þró­ast í svip­aða átt, það er að vekja upp spurn­ingar meðal fólks í sam­fé­lag­inu um end­ur­vinnslu efna.

Emilía segir að útskrift­ar­hóp­ur­inn hafi verið mjög sam­rýndur í gegnum árin. Þau unnu sem hópur að verk­efn­inu Willow Project, sem fór einnig í bóka­út­gáfu fyrir stuttu, og hún segir að það hafi gengið mjög vel. „Okkur hlýtur að líka vel við hvort annað, ann­ars værum við ekki vinir núna,“ segir hún og hlær. „Þetta er eins og systk­ina­hópur. Við erum alltaf upp í skóla saman, borðum saman og við deilum öllu sem við eigum.“ Hún segir að það verði jafn­vel erfitt að útskrif­ast og kveðja hóp­inn.

Hvað er vöruhönnun?

Emilía segir að mörg svör séu í raun­inni við þeirri spurn­ingu og þau byggi á því hver sé spurður. „Vöru­hönnun hefur þró­ast hratt síð­ustu ár og þurft í raun að end­ur­skil­greina sig í takt við tím­ann. Í nám­inu erum við búin að vera að rýna í ferla sem eru nú þegar til staðar. Læra af þeim og jafn­vel koma með til­lögur að end­ur­hönnun, nýta afgangs­efni og pæla í hvernig hlutir eru gerðir. Við skoðum efni og hugsum: af hverju þetta efni og hvaðan kom það? Og við veltum stöðugt fyrir okkur í hvaða sam­hengi sé verið að hanna.

Þannig að við erum alltaf að hugsa um hvernig ferlið byrjar og hvernig það endar. Hvaða efni þú notar, hvaðan það kemur og hvernig það muni enda? Þetta er alltaf að fara að vera ein­hvers konar hringrás,“ segir hún. Emilía bætir við að kenn­ar­arnir leyfi þeim að draga sínar eigin álykt­anir af þeim upp­lýs­ingum sem þau fái og vinna úr þeim á eigin for­sendum.

Flestir nemendur að vinna með endurvinnslu á efnum

Útskrift­ar­nem­end­urnir í vöru­hönnun eru flestir að vinna með end­ur­vinnslu en Emilía segir að það hafi ein­fald­lega legið í loft­inu. Þau spyrja spurn­inga eins og: Af hverju erum við með þessa þrá­hyggju að hafa allt hvítt? Af hverju reynum við ekki að setja mat­ar­af­ganga í hringrás til að skila nær­ingu til jarð­ar­innar? Af hverju verður þetta ekki hluti af okkar hringrás? Með því á hún við að fólk ætti að skila því sem það tekur frá jörð­inni, því þá sé það ekki að eyði­leggja hana og pumpa hana fulla af eit­ur­efnum.

Emilía segir að þemað á sýn­ing­unni hafi verið wunderkammer. „Það eru sýn­ing­ar­kassar sem not­aðir eru til að miðla þekk­ingu og eru í raun upp­spretta safna. Þetta þema hjálp­aði okkur að skapa nánd með sýn­ing­ar­gestum og miðla upp­lýs­ingum til þeirra á von­andi per­sónu­legan hátt. Við erum í bóka­safns­rým­inu og vildum því sýna hvað bækur eru stór hluti af rann­sókn­ar­ferli okkar. Við förum til­baka og finnum gamla þekk­ing­ar­hætti sem sam­fé­lagið hefur jafn­vel gleymt og blöndum því saman við það sem við finnum og lærum í nútíma­sam­fé­lagi,“ bætir hún við. 

Hringrás efnaskipta

Í lýs­ingu á útskrift­ar­verk­efni Emilíu kemur fram að sam­band manns­ins við svörð jarð­ar­innar sé ósjálf­bært sam­band. Moldin sé lít­ils metin í nútíma­sam­fé­lagi þótt hún sé und­ir­staða lífs­ins. Með því að skapa hringrás efna­skipta sem fram­leiðir vökva með moltu­gerð úr úrgangi mat­ar­iðn­aðar getum við skilað nær­ing­ar­efnum til mold­ar­innar.

„Nafnið Elixir var upp­haf­lega notað um goð­sagna­kenndan vökva sem veitti eilíft líf og gat breytt efnum í gull. Með því að nefna úrgangs­vökvann þessu nafni er verið að skír­skota til þessa: að skapa verð­mæti úr úrgangi og benda á hversu ein­falt er að skila nær­ingu til jarð­ar­innar og um leið að draga úr notkun á ólíf­rænum áburði eða skor­dýra­eitri sem rýrir mold­ina. Með þess­ari hringrás er moldin metin að verð­leikum sínum.“

Mikill áhugi fyrir útskriftarsýningum

Sýn­ing­unni í Hafn­ar­hús­inu hefur verið mjög vel tekið, að mati Emilíu enda margir nem­endur að kynna sín verk. Á opnun sýn­ing­ar­innar komu í kringum 2.500 manns en 80 nem­endur sýndu verk sín þar. Hún telur að fólk hafi áhuga á að sjá sýn­ingar af þessu tagi en hún hefur staðið yfir í tvær vikur. Síðasti dagur sýn­ing­ar­innar í Hafn­ar­hús­inu er sunnu­dag­ur­inn 8. maí en sjá má lista yfir útskrift­ar­verk á heima­síðu Lhí.

Ilmur Dögg Gísla­dóttir, kynn­ingar- og verk­efna­stjóri Lista­há­skóla Íslands, segir að fjöldi útskrift­ar­verka og sýn­inga hafi staðið yfir í apríl og maí. Og þrátt fyrir að sýn­ing­unni í Hafn­ar­hús­inu sé að ljúka núna þá séu margir við­burðir í viku hverri. Nem­enda­hóp­ur­inn hafi verið mjög fjöl­breyttur og sam­an­stæði af lista­mönnum úr öllum geirum lista­heims­ins.

Einnig voru sýn­ingar í Gerð­ar­safni í Kópavogi en þar komu nem­endur hvaðanæva úr heim­inum. Sýningin hefur verið fram­lengd vegna góðrar við­töku eins og kemur fram á heima­síðu Gerð­ar­safns. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár