Kári afhendir stærstu undirskriftarsöfnun Íslandssögunnar

Kári Stef­áns­son afhenti for­sæt­is­ráð­herra 85 þús­und und­ir­skriftir um end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins í dag. Þetta er stærsta und­ir­skrift­ar­söfnun Íslands­sög­unnar. Full­trúar allra flokka mættu á athöfn­ina. Stjórn­völd boða aukin útgjöld til heil­brigð­is­mála.

Kári sagði stjórnvöld ekki vera að gera nóg þrátt fyrir áætlanir um aukið fjármagn til heilbrigðismála.
Kári sagði stjórn­völd ekki vera að gera nóg þrátt fyrir áætl­anir um aukið fjár­magn til heil­brigð­is­mála. Mynd: Skjáskot/RÚV

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, afhenti Sigurði Inga Jóhanns­syni for­sæt­is­ráð­herra rúm­lega 85 þús­und und­ir­skriftir í dag um end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins. Þetta er stærsta und­ir­skrift­ar­söfnun Íslands­sög­unnar og hefur staðið yfir í um þrjá mán­uði.

Bændur sætti sig við minna

Full­trúar allra flokka mættu til athafn­ar­innar sem haldin var í hátíð­ar­sal Íslenskrar erfða­grein­ingar. Sigurður Ingi sagði fram­takið eitt af því sem geri það að verkum að Íslend­ingar geti sam­ein­ast sem þjóð, eins og um íþróttir eða menn­ing­ar­líf. Þá byggi þjóðin við býsna gott kerfi, sem gæti verið miklu betra. „Og þangað ætlum við að fara,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Kári sagð­ist geta tekið undir með Sigurði Inga og sagði hann vera að segja nokkurn vegin það sama og hann sjálfur vildi sagt hafa.

„Hann sagði að við værum með ágætis heil­brigð­is­kerfi, af því að hann er bóndi, og bændur hafa alltaf þurft að búa við verri kost en aðrir. Þannig að hann sættir sig við þá hluti sem ég mundi ekki sætta mig við," sagði Kári.

Stjórnvöld sýni fram á fjármögnun spítalans í fyrsta sinn

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra mætti líka, ásamt Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni heil­brigð­is­ráð­herra. Bjarni und­ir­strik­aði fimm ára áætlun rík­is­stjórn­ar­innar um aukið fjár­magn til heil­brigð­is­mála og ræddi við RÚV meðal ann­ars um fjár­mögnun til bygg­ingar á nýjum spít­ala. Búið væri að bæta kjör og nú þyrfti að bæta aðstæður, öryggi og jafn­ræði. Upp­bygg­ing heilsu­gæsl­unnar væri næst á dag­skrá.

„Við erum í fyrsta sinn að sýna fram á fjár­mögnun spít­al­ans og það er risa­stórt skref," sagði Bjarni.

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, sagði að þjóðin þyrfti að geta treyst því að búa ekki við stjórn­völd sem vega að þeim sátt­mála sem gott heil­brigð­is­kerfi sé. Nauð­syn­legt væri að stefna að gjald­frjálsu heil­brigð­is­kerfi og byrja þar á börnum og öryrkjum.

Und­ir­skrift­ar­söfn­unin snýst um að hvetja stjórn­völd til þess að verja ell­efu pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu til heil­brigð­is­kerf­is­ins. Nú er varið um það bil 8,7 pró­sentum og hefur Kári gagn­rýnt það harð­lega. Það sé mun minna heldur en gengur og ger­ist í lönd­unum í kring um okkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár