Hefur Twitter einhver áhrif?

Twitter-sam­fé­lagið hefur blómstrað í kjöl­far umróts í íslensku stjórn­málaum­hverfi og ný myllu­merki spretta upp nær dag­lega. Æ fleiri nýta sér mið­il­inn til að tjá skoð­anir sínar. Stjórn­mála­fræð­ingur segir Twitter „hálf­gerðan elítu­miðil“.

Mikil umræða skap­að­ist á sam­fé­lags­miðl­inum Twitter í kjöl­far upp­ljóstrana úr Panama­skjöl­unum í byrjun apríl. Almenn­ingur og stjórn­mála­menn létu rödd sína heyr­ast undir myllu­merkjum og hefur umræðan einnig opn­ast fyrir skap­andi tístum og beittum athuga­semdum. Myllu­merkið #cashljós var upp­spretta umræðna og má segja að Twitter-sam­fé­lagið hafi sprungið út sem aldrei fyrr. En eru áhrifin eins mikil og ætla mætti? Eru þau ein­hver?

Bylt­ingum hefur áður verið hrint af stað á Twitter undir myllu­merkjum eins og #FreeTheNipple, #Þöggun og #Éger­ekkitabú þar sem mark­miðið var að opna á umræðu um birt­ingu brjósta og geir­varta á sam­fé­lags­miðlum, kyn­ferð­is­of­beldi og geð­ræn vanda­mál. Kjarninn náði tali af nokkrum tíst­urum og álits­gjöfum til að spjalla um þessa nýju umræðu­menn­ingu á Íslandi.

Nýtt myllumerki fæðist

„Það þarft að úthugsa aðal­at­riðið. Það er ekk­ert pláss til að fara í ein­hverjar lang­lokur,“ segir Haukur Bragason, tíst­ari og athafna­maður, um kosti umræðu á Twitter. Hann er hálf­gerður nýliði á miðl­inum en hefur verið virkur í rúmt ár, eða frá því að FreetheNipple-bylt­ingin byrj­aði. Hún opn­aði Twitter-heim­inn fyrir honum. Hann sá hvað þetta virk­aði hratt og vel í fjöl­miðla­um­ræðu.

Myllu­merkið #cashljós fædd­ist á síð­unni hans en hann aug­lýsti eftir svoköll­uðu „hashtaki“ til að nota kvöldið sem fyrsti Kast­ljós­þátt­ur­inn var sýndur 3. apríl. Úr varð að nota #cashljós en hug­myndin kom frá Liljari Þor­björns­syni. Næstu daga og vikur var þetta merki notað til að færa not­endur saman í umræðu tengda Panama­skjöl­unum. Haukur segir að með notkun myllu­merkis sé auð­veld­ara fyrir hinn almenna les­anda að fylgj­ast með umræð­unni og einnig auð­veldar það fjöl­miðla­vinnu eftir á.

Yngra fólk virkara á Twitter

Haukur segir tölu­verður munur sé á Twitter og Facebook. Það sé afmark­aðri hluti af sam­fé­lag­inu á Twitter og yngra fólk sé virkara á því. Twitter bjóði einnig upp á praktískan vinkil á umræð­una sem hann telur betra en hjá Facebook. Hann bendir einnig á að hver sem er geti skoðað það sem sagt er á Twitter því síðan sé opin öllum. Það þurfi ekki einu sinni að vera með reikn­ing. Hann telur það líka gott að íslenska Twitter-sam­fé­lagið sé laust við „virkir í athuga­semdum.“ Hann segir að Twitter-sam­fé­lagið eigi eftir að halda áfram að stækka en hann vonar samt sem áður að það eigi eftir að hald­ast í svip­uðu horfi.

Hvað verður „viral“?

„Ég held að sam­fé­lags­miðlar almennt og umræðan á net­inu hafi haft áhrif á póli­tíska umræðu. Mikið af fólki fær í raun­inni ein­göngu fréttir í gegnum sam­fé­lags­miðla í stað þess að fara sjálft á frétta­miðla,“ segir Iris Edda Nowenstein, tíst­ari og mál­fræð­ingur. Hún talar um sam­fé­lags­miðla sem linka­menn­ingu. „Við skoðum það sem vinir okkar eða þeir sem við fylgjum deila. Þetta gerir það að verkum að þær upp­lýs­ingar og skoð­anir sem kom­ast helst til skila og móta hug­myndir fólks eru þær sem verða „viral“, kom­ast í rosa­lega dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum,“ segir hún.

Og þetta hefur ýmis­legt í för með sér, telur Iris. Það sem helst kemst í dreif­ingu hafi kannski ákveðin ein­kenni - það sé krassandi, sýni eitt­hvað ótrú­legt eða þá að það hafi ein­hvern per­sónu­legan vinkil sem fólk lað­ast að. „Þetta gerir það kannski að verkum að þeir sem skrifa og er skrifað um leit­ast eftir því að fram­leiða efni sem gæti verið gripið með þessum hætti. Ég held að þetta eigi bæði við um blaða­menn og stjórn­mála­menn,“ segir Iris.

Samfélagsmiðlar hafa umbylt skipulagningu mótmæla

Iris segir að ekki megi gleyma því að sam­fé­lags­miðlar hafi umbylt skipu­lagn­ingu mót­mæla. „Ef við ein­blínum á Twitter sér­stak­lega þá er jafn­vel gengið ennþá lengra í þessum ein­föld­unum, þar sem maður hefur bara 140 slög til þess að koma ein­hverju frá sér.“ Hún segir að það sem verði vin­sæl­ast sé einmitt yfir­leitt eitt­hvað fyndið, hnyttið eða beitt eða eitt­hvað sem fólk tengir mikið við.

„Það er eig­in­lega óhjá­kvæmi­legt að það feli í sér ákveðnar ein­fald­anir og jafn­vel sköpun á nýjum veru­leika, þar sem eitt­hvað getur kom­ist í umferð án þess að vera satt og þannig mótað skoð­anir fólks. Það er kannski að ein­hverju leyti var­huga­vert ef þetta verður eft­ir­sókn­ar­verð fram­setn­ing á efni hjá stjórn­mála­mönnum og það eru nátt­úru­lega nokkrir þing­menn sem hafa verið áber­andi í umræð­unni á Twitter,“ segir Iris.

Hún telur aftur á móti að tengslin við almenn­ing verða kannski meiri við stjórn­mála­menn og að þeir geti tekið þátt í umræð­unni með beinni hætti, án þess að þeim sé hlíft af form­fest­unni sem er fólgin í sam­skiptum við blaða­menn.

Myllumerkin mikilvæg

Önnur sér­staða Twitter, að mati Irisar, er að umræðu­efni geta orðið „viral“ með þessum myllu­merkjum sem skapa umræðu­vett­vang og þegar öll virknin safn­ast svona saman á einum stað er auð­velt að fá það á til­finn­ing­una að allt sé að springa. „Vit­und­ar­vakn­ing, bylt­ing, ég veit ekki hvað. Svo er þetta mögu­lega til­tölu­lega fámennur hópur fólks á bak við þetta,“ segir Iris.

Iris telur að Twitter-mið­ill­inn sé þess eðlis að umræðan á honum geti orðið mjög áber­andi. Ólíkt Facebook sé allt opið, sem hefur það kannski að verkum að það mynd­ist minni skoð­ana­bóla en þar þó hún sé vissu­lega til staðar á Twitter líka og sumar skoð­anir vin­sælli en aðrar. „Fjöl­miðlar sækja sér oft almennt efni, frekar en til­tek­inn Facebook-status, á Twitter og setja það fram sem umræð­una í þjóð­fé­lag­inu.“

Er meiri virðing borin fyrir Twitter?

Iris segir að það sé eins og það sé meiri virð­ing borin fyrir því sem kemur á Twitter en efn­inu frá „virkum í athuga­semdum“ til dæmis, eins og Haukur benti líka á. Kannski er ástæðan sú það sé minna um hatur og per­són­u­árásir og jafn­vel staf­setn­ing­ar­villur, segir hún. „Þessir þættir safn­ast allir saman og ég held þeir hafi áhrif bæði á umræðu og stjórn­málin sjálf, en það er kannski mis­jafnt eftir stjórn­mála­mönnum og jafn­vel flokkum hversu mikið er tekið mark á þessu.“

Snarpara og hnitmiðaðra

„Ég myndi segja að þetta hafi verið að þró­ast í mjög jákvæða átt,“ segir Bragi Valdimar Skúlason, virkur tíst­ari og „alls­konar annað“, um Twitter-sam­fé­lagið. Hann segir að ekki hafi verið svo mikil póli­tík á miðl­inum hingað til en af og til gjósi hún upp. Sér­stak­lega eftir atburði síð­ast­lið­inna vikna. „Þetta sést best þegar allir sitja og góna á sama hlut­inn, allt frá sjón­varps­þáttum til risa­vax­inna fjöl­miðla­við­burða,“ segir hann.

Bragi Valdimar segir að mikið sé verið að djóka á Twitter en þó séu oft þung högg inn á milli. Mikill munur sé á umfjöllun á Facebook og Twitter. Twitter sé mikið snarpara og hnit­mið­aðra. Hann segir að skýrasta dæmið um áhrif Twitter hér heima hafi verið FreetheNipple-bylt­ingin í fyrra en hann telur að þá hafi fólk fattað að það gæti virki­lega haft áhrif í sam­ein­ingu. Fjöl­miðlar taki upp ummæli af Twitter og fólk end­ur­tísti. „Fólk espast upp og finnur að aðrir eru að lesa. Þannig getur það troðið sér inn í umræð­una,“ bætir hann við.

Fjölmiðlar fylgast með

Braga Valdimar finnst Twitter-umræðan vera heilt yfir heil­brigð og mál­efn­an­leg — og hressandi. Hann segir að allir orða­leikir séu afgreiddir fljótt og örugg­lega allir mögu­legir brand­arar um hvert mál­efni sagðir. „Það er mjög gaman að fylgj­ast með þessu,“ segir hann. „Þetta kemur í bylgjum og fólk hefur ýmis­legt gott til mál­anna að leggja.“

„Ég held að fólk fylgist alltaf meira og meira með því sem er að ger­ast á Twitter,“ segir Bragi Valdimar. Hann segir aug­ljóst að það sem þar fer fram hafi áhrif, sér­stak­lega í svona róti sem gengur nú yfir sam­fé­lagið og að efn­is­þyrstir fjöl­miðlar og taugatrekktir almanna­tenglar fylgist grannt með.

Hann segir að umræðan í sam­fé­lag­inu verði oft ein­hliða en þetta sé vett­vangur þar sem hægt sé að skipt­ast á skoð­unum. Fólk sé fljótt að koma og sigta út bullið. „Það er mjög áber­andi hvað þetta er í raun mál­efn­an­legt og umfram allt sjúk­lega skemmti­legt,“ segir hann.

Hálfgerður elítumiðill

Birgir Guð­munds­son, stjórn­mála­fræð­ingur og dós­ent við Félags­vís­inda­deild Háskól­ans á Akureyri, hefur verið að velta fyrir sér þeim breyt­ingum sem átt hafa sér stað í fjöl­miðlaum­hverfi á Íslandi, til dæmis hvernig flokkar og stjórn­mála­menn komi boðum áleiðis. Hann spyr sig hvaða leiðir fram­bjóð­endur séu að nota og hvernig sé best að ná eyrum almenn­ings.

Birgir seg­ist ekki hafa lagt sig mikið eftir Twitter og að mið­ill­inn sé tal­inn hálf­gerður elítu­mið­ill, þar sem blaða­menn, íþrótta­á­huga­menn og stjórn­mála­menn séu sam­an­komnir. Almenn­ingur sé ekki svo mikið á Twitter.

Facebook vinsælla hjá stjórnmálamönnum

Birgir segir að hann hafi verið að tala við fram­bjóð­endur í póli­tík síðan árið 2010 um notkun sam­fé­lags­miðla. Í rann­sóknum sínum komi fram að stjórn­mála­menn noti sam­fé­lags­miðla sífellt meira með hverju árinu sem líður og að Facebook sé sá sam­fé­lags­mið­ill sem not­aður er mest, bæði hér á Íslandi og á Norð­ur­lönd­unum. Gríð­ar­legur munur sé á notkun miðl­anna, en í könnun frá árinu 2013 kemur fram að fram­bjóð­endur í alþing­is­kosn­ing­unum sama ár not­uðu Facebook í 88 pró­sent til­vika en Twitter í 18 pró­sent. En síðan eru liðin mörg ár.

Almenningur orðinn fréttastjóri

Þetta eru hug­myndir sem fræði­menn velta fyrir sér núna; sam­spil umræðu og pólítíkur. Stjórn­mála­menn hafa lengi nýtt sér hina hefð­bundnu miðla en Birgir segir þá einmitt laga sig að starf­semi og lög­málum fjöl­miðl­anna. Þeir læri á það hvað virkar í við­kom­andi fjöl­miðlaum­hverfi. Þeir þurfi að ná til áheyr­enda með sem bestum leiðum.

Það sem hefur gerst núna, segir Birgir, er að aðferða­fræðin hefur breyst. Það sé ekki lengur aðeins einn frétta­stjóri sem ákveði hvað sé frétt og hvað ekki heldur ráði nú frétta­mat mörg þús­und ein­stak­linga sem deili efni í gegnum sam­fé­lags­miðl­ana. Núna reyni stjórn­mála­menn og blaða­menn að finna efni sem höfðar til ein­stak­linga og fær þá til að smella á það og deila enda eru slíkar deil­ingar mik­il­væg dreif­ing­ar­leið. Þetta ýti undir per­sónu­legri nálgun því það sem tengir fólk og fær það til að deila frétt er ekki að það sé að hugsa um almanna­hag eða þjóð­fé­lags­legt mik­il­vægi, heldur er það í flestum til­fellum ein­fald­lega að deila ein­hverju áhuga­verðu með vinum sínum. „Það eru mikil tengsl milli venju­legra miðla og sam­fé­lags­miðla, það er sem sagt sam­band þarna á milli. En flækju­stigið fyrir þá sem vilja taka þátt í og hafa áhrif á þjóð­fé­lags­um­ræðu vex aftur á móti mikið í kjöl­farið,“ segir hann.

Heimsmynd blaðamanna mótist af netinu

Birgir telur að þó að á Twitter séu hópar eða elítur frekar en hinn almenni borg­ari, hafi umræðan þar engu að síður áhrif og stjórni henni jafn­vel. Og að hún hafi áhrif á hefð­bundnu fjöl­miðl­ana líka. Til dæmis hafði #cashljós-umræðan áhrif meðal fjöl­miðla og innan þess geira.

Gerð var könnun meðal blaða­manna árið 2012 og kom meðal ann­ars fram að þeir teldu sjálfs­rit­skoðun vera í 45% til­fella í fag­stétt þeirra. Birgir telur að blaða­menn taki almennt til­lit til umræðu á net­inu og hann segir að heims­mynd þeirra mót­ist af þessu umhverfi. Frétta­matið mót­ist þar af leið­andi líka af því. Það sama má segja um við­horf og umræðu hjá blaða­mönnum og stjórn­mála­mönnum. Þessir tveir starfs­hópar séu upp­teknir af því hvað öðru fólki finnst.

Íslensk Twitter-menning skapaðist fyrst meðal íþróttaáhugamanna

Baldvin Þór Bergsson, þátta­stjórn­andi Kast­ljóss á RÚV og stjórn­mála­fræð­ingur, hefur rann­sakað áhrif sam­fé­lags­miðla á póli­tískan áhuga og þátt­töku. Hann bendir í fyrsta lagi á að Twitter sé til­tölu­lega nýr mið­ill og að íslenskur almenn­ingur hafi ekki verið virkur þar til nýlega. Baldvin segir að notkun mið­ils­ins verði mest innan hópa eins og til dæmis meðal íþrótta­á­huga­manna. Fyrsta Twitter-menn­ing á Íslandi skap­að­ist einmitt á þeim vett­vangi. Það verði mikil umræða í kringum íþrótta­við­burði og myllu­merkið henti ein­stak­lega vel til þess að leiða slíka hópa saman.

Á Íslandi var það #12stig sem opn­aði Twitter-heim­inn fyrir Íslend­ingum, að mati Baldvins. Hann vinnur nú að rann­sókn á FreetheNipple-bylt­ing­unni en hann segir að hægt sé að kanna dreifni umræð­unnar; hversu víða hún nær og hvaða áhrif hún hefur. Það sé aug­ljóst að umræðan hafði þau áhrif að umfjöllun um mál­efnið jókst mikið, til skemmri tíma að minnsta kosti. En það sé mun erf­ið­ara að álykta hver sam­fé­lags­leg áhrif séu.

Áhrif fólks mismikil

Baldvin tekur undir með Birgi að ákveðin sé elítu­væð­ing á Twitter. Sem sagt, að ekki verði allir sem stofna reikn­ing stór nöfn á miðl­inum. Alla­jafna sé þekkt fólk vin­sæl­ast á miðl­inum. „Það er hættan við Twitter í póli­tískri umræðu,“ segir Baldvin. „Áhrif þeirra sem taka þátt eru mis­mikil og ákveð­inn valda­kjarni mynd­ast í umræð­unni.

Hann telur mik­il­vægt að muna að þótt ímynd sam­fé­lags­miðla eigi að vera þannig að allir hafi sömu rödd sé reyndin önnur. Þar verði til áhrifa­miklir ein­stak­lingar og hópar en þeir valda­minni fái ekki sömu athygli.

Baldvin segir að fólk bæði van­meti og ofmeti Twitter. Það sé ekki hægt að líta fram hjá áhrifum mið­ils­ins en á sama tíma sé ekki ástæða til að eigna Twitter það sem fólk gerir. Það sé fólkið að baki hug­mynda og gjörða sem skiptir máli og að það nái árangri á eigin verð­leikum, ekki út af sam­fé­lags­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár