Topp 10 - Pólitískir skandalar

Þegar skandalar koma upp á stjórn­mála­svið­inu, þá nötrar allt og skelfur í sam­fé­lag­inu. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti sér sögu frægra skandala.

Nú þegar Panama­skjölin hafa leitt í ljós eitt af stærstu hneyksl­is­málum sam­tím­ans og margir stjórn­mála­menn, þar á meðal á Íslandi, eiga í vök að verj­ast er vert að líta yfir nokkur af stærstu málum sein­ustu ára­tuga. Hér er vita­skuld ein­ungis litið til lýð­ræð­is­ríkja þar sem sið­ferð­is­vit­und og kröfur eru mun meiri en í ein­ræð­is­ríkjum.

10. Forsætisráðherra mafíunnar

Giulio Andreotti var stór leik­maður í ítölskum stjórn­málum um hálfrar aldar skeið. Hann gengdi ýmsum emb­ættum og ráð­herra­stöðum fyrir Kristi­lega Demókrata, þar á meðal vermdi hann for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn í þrí­gang. Mafían hafði gríð­ar­leg ítök í ítölskum stjórn­málum um miðja sein­ustu öld og allt fram á tíunda ára­tug­inn. Þetta átti sér­stak­lega við um Sikiley þar sem stjórn­mála­menn héldu vernd­ar­hendi yfir mafíu­mönnum. Árið 1993 var Andreotti, sem þá var á átt­ræð­is­aldri, dreg­inn fyrir dóm­stóla á Sikiley og ákærður fyrir sam­starf við mafí­una. Hann var sýkn­aður í það skipti en nokkrum árum seinna var hann ákærður ásamt nokkrum öðrum mafíu­for­ingjum fyrir morð á blaða­manni árið 1979. Andreotti var sak­felldur í hér­aði fyrir morðið og dæmdur til 24 ára fang­els­is­vistar. Ári seinna var hann þó sýkn­aður í hæsta­rétti. Mál Andreotti var eitt af þeim málum sem leiddi til falls Kristi­lega Demókrata og algerrar umturn­unar ítal­skra stjórn­mála árið 1994.

9. Borgarstjóri á krakki

Árið 2010 var hinn lit­ríki Rob Ford kjör­inn borg­ar­stjóri Toronto borgar í Kanada. Hann var mjög vin­sæll hægri­maður en þó ekki flokks­bund­inn. Hann var mjög óheflaður í mál­fari og átti að baki langa sögu af umdeildum og jafn­vel van­hugs­uðum ummælum sem hann þurfti iðu­lega að biðj­ast afsök­unar á. En helsti akki­les­ar­hæll Ford var ofdrykkja og eit­ur­lyfja­notkun. Hann var marg­stað­inn að ofurölvun á almanna­færi með til­heyr­andi óspektum. Hann sást einnig í félags­skap með eit­ur­lyfja­sölum og öðrum glæpa­mönnum. Árið 2014 var svo botn­inum náð þegar fram kom mynd­bands­upp­taka af honum reykj­andi krakk. Það sama ár dró hann sig úr fram­boði til borg­ar­stjóra vegna veik­inda en hann var þá hrjáður af maga­krabba­meini. Hann hélt þó áfram sæti sínu í borg­ar­stjórn Toronto. Rob Ford lést úr meini sínu þann 22. mars síð­ast­lið­inn.

8. Profumo málið

Árið 1963 var her­mála­ráð­herra Bret­lands, John Profumo, stað­inn að því að ljúga að þing­inu. Hann laug því að hafa ekki átt í kyn­ferð­is­legu sam­bandi við hina 19 ára gömlu Christine Keeler. Fljót­lega komst þó hið sanna í ljós en málið hafði enn meiri vigt sökum þess að ást­maður Keeler var sov­éskur njósn­ari að nafni Yevgeni Ivanov. Keeler var ákærð fyrir mein­særi og mað­ur­inn sem kynnti hana fyrir Profumo, Stephen Ward, var kærður fyrir hór­mang. Í rétt­ar­höld­unum tók Ward sitt eigið líf. [http://www.britannica.com/event/Profumo-affair] Profumo sagði af sér ráð­herra­emb­ætti og stjórn­mála­ferli hans var þar með lokið. Málið fékk gríð­ar­mikla umfjöllun og laskaði Íhalds­stjórn Harolds Macmillan mikið. Macmillan sagði af sér skömmu seinna og Íhalds­flokk­ur­inn tap­aði stórt í kosn­ing­unum ári seinna.

7. Hinn fallegi leikur

Þann 27. maí 2015 voru sjö stjórn­endur alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bands­ins FIFA hand­teknir í Zürich. Þeir voru á leið­inni á þing í höf­uð­stöðv­unum þar í borg. Fleiri hand­tökur áttu sér stað á sama tíma við höf­uð­stöðvar norður amer­íska knatt­spyrnu­sam­bands­ins CONCACAF í Miami. Það hafði verið vitað lengi að spill­ing grass­er­aði innan knatt­spyrnu­sam­band­anna og vegna upp­ljóstr­anna gátu yfir­völd loks­ins hafið aðgerðir. Málið sner­ist m.a. um mútur, pen­inga­þvætti og svik og sner­ist að miklu leyti um samn­inga við fata­fram­leið­endur. En einnig um mis­ferli við val á stað­setn­ingu heims­meist­ara­móts­ins í Suður Afríku 2010 og for­seta­kosn­ingu FIFA 2011. Mikið af þessum brotum áttu sér stað undir stjórn for­seta CONCACAF, Jack Warner frá Trinidad og Tóbagó. Rann­sóknir fóru í gang um víða ver­öld og þrýst­ingur jókst á Sepp Blatter for­seta FIFA að segja af sér. Fyrr á þessu ári var Blatter loks bann­aður frá knatt­spyrnu í 6 ár. Rannsókn máls­ins og fleiri spill­ing­ar­mála innan FIFA eru ennþá í rann­sókn.

6. Hinn kynóði Strauss-Kahn

Dominique Strauss-Kahn var einn af lyk­il­mönnum í franska Sós­í­alista­flokknum á tíunda ára­tug sein­ustu aldar og sat m.a. sem fjár­mála og iðn­að­ar­ráð­herra. Árið 2007 dró hann sig út úr lands­mál­unum og tók við stöðu for­stjóra Alþjóða gjald­eyr­is­sjóðs­ins. Hann átti því mikil sam­skipti við íslensk stjór­völd eftir banka­hrunið 2008. Þann 15. maí árið 2011 var hann hand­tek­inn í New York og ákærður fyrir að hafa nauðgað hót­el­þernu. Ljóst var að sam­ræði hafði átt sér stað en sak­sókn­ari dró þó ákæruna til baka. Þetta var ekki eina kyn­ferð­is­hneykslið sem Strauss-Kahn hefur tengst. Hann hefur verið sak­aður um kyn­ferð­is­lega áreitni við aðrar konur og fyrir að hafa skipu­lagt og tekið þátt í veislum þar sem vænd­is­konur voru við­staddar. Eftir hand­tök­una í New York sagði Strauss-Kahn af sér for­stjóra­stöð­unni í Alþjóða gjald­eyr­is­sjóðnum og hefur ekki átt aft­ur­kvæmt í heim stjórn­mál­anna síðan.

5. Forseti í kröppum dansi

Hinn danselski Jacob Zuma hefur verið for­seti Suður Afríku síðan árið 2009. Hann situr fyrir Afríska Þjóð­ar­ráðið sem hefur verið sam­fleytt við völd síðan aðskiln­að­ar­stefnan apartheid leið undir lok. Zuma tók við af Thabo Mbeki við vof­veif­legar aðstæður í suður afrískum stjórn­málum þegar þeir báðir voru bendl­aðir við spill­ing­ar­mál. Zuma hefur ávallt verið afar umdeildur. Hann hefur verið sak­aður um mútur, mútu­þægni og skattaund­an­skot. Árið 2005 var hann ákærður fyrir að hafa nauðgað dóttur póli­tísks vinar síns en þá var Zuma vara­for­seti lands­ins. Málið var eitt mesta hneyksl­is­mál Suður Afríku eftir apartheid og klauf þjóð­ina nán­ast í tvennt. Nú berst Jacob Zuma enn á ný fyrir póli­tísku lífi sínu þar sem hann er sak­aður um mis­notkun á opin­beru fé. Féð var notað til end­ur­bóta á heim­ili hans í Nkandla í Aust­ur­hluta lands­ins en flokkur hans hefur verið tregur við að draga hann til ábyrgðar.

4. Nauðgarinn Katsav

Moshe Katsav var for­seti Ísraels á árunum 2000-2007 fyrir Likud flokk­inn. Í Ísrael er emb­ætti for­seta svipað og hér á Íslandi, þ.e. ein­ungis þjóð­höfð­ingi, en for­setar hafa þó yfir­leitt verið flokks­bundnir. Árið 2006 var Katsav grun­aður um kyn­ferð­is­lega áreitni og nauðgun á und­ir­sáta sínum þegar hann var ferða­mála­ráð­herra nokkrum árum fyrr. Lög­reglu­rann­sókn hófst og upp kom á dag­inn að kon­urnar sem Katsav hafði ráð­ist á voru margar. Katsav bar við sak­leysi og sak­aði kon­urnar um fjár­kúgun. Einnig sak­aði hann fjöl­miðla um norna­veiðar gegn sér. Fáir tóku það þó alvar­lega. For­set­inn dró sig í hlé og ári seinna var hann end­an­lega settur af. Árið 2009 var Katsav ákærður fyrir nauðgun og önnur kyn­ferð­is­brot og tveimur árum seinna var hann fund­inn sekur og dæmdur til 7 ára fang­els­is­vistar. Katsav afplánar nú fang­els­is­dóm sinn í borg­inni Ramla.

3. Lewinsky málið

Kyn­ferð­is­sam­band Banda­ríkja­for­set­ans Bill Clinton og lær­lings­ins Monicu Lewinsky komst í frétt­irnar í jan­úar árið 1998. Clinton þvertók fyrir sam­bandið í upp­hafi með hinum frægu orðum “Ég átti ekki í kyn­ferð­is­sam­bandi við þessa konu”. Þetta átti eftir að hund­elta hann á næstu miss­erum. Um sum­arið við­ur­kenndi Lewinsky að sam­bandið hafði átt sér stað og skömmu seinna for­set­inn sjálfur. Samband þeirra var þó ekki það sem kom honum í klandur heldur lygin og yfir­hylm­ingin sem átti sér stað í kjöl­farið. Þingið ákærði Clinton fyrir mein­særi og var það sam­þykkt í neðri deild þings­ins. Demókra­ta­flokkur Clintons var á þessum tíma í minni­hluta í báðum deildum þings­ins og því hefði hann hæg­lega getað misst emb­ættið. Vin­sældir for­set­ans voru þó í hæstu hæðum um þetta leyti og það hefði verið mjög óvin­sælt að steypa honum. Það voru því nokkrir Repúblík­anar í öld­ung­ar­deild­inni sem ákváðu að sýkna Clinton árið 1999 og því slapp hann með skrekk­inn.

2. Bunga Bunga

Silvio Berlusconi hefur verið einn helsti leið­togi hægri­manna og einn áhrifa­mesti stjórn­mála­maður Ítalíu síðan í kosn­ing­unum frægu árið 1994 þegar stokkað var upp í stjórn­mál­unum þar í landi. Hann hefur verið ákaf­lega vin­sæll og er það ekki síst vegna fjöl­miðla­veldis hans sem hann byggði upp á átt­unda ára­tugnum. Hann hefur verið for­sæt­is­ráð­herra í þrí­gang en fer­ill hans hefur í seinni tíð verið mark­aður af ýmsum hneyksl­is­málum. Hann hefur m.a. verið sak­aður um mútur, fölsun reikn­inga, emb­ætt­is­glöp og mis­beit­ingu valds. Alvar­leg­ustu ásak­an­irnar á hendur Berlusconi voru þó vegna hinna svoköll­uðu Bunga Bunga sam­kvæma sem hann hélt þar sem barn­ungar stúlkur gengu um naktar í fylgd mið­aldra karl­manna. Hann fékk ákæru og var dæmdur í hér­aðs­dómi fyrir barna­vændi en eins og svo oft áður var hann sýkn­aður í áfrýj­un­ar­rétti. Berlusconi situr nú af sér dóm í sam­fé­lags­vinnu fyrir skatt­svik.

1. Watergate

Endingin –gate er orðin sam­nefn­ari fyrir skandal og það ekki að ástæðu­lausu. Watergate hneykslið er það þekktasta í sög­unni. Þann 17. júní árið 1972 voru fimm inn­brots­þjófar gripnir við höf­uð­stöðvar Demókra­ta­flokks­ins í Washington. Það var að miklu leyti fyrir til­stilli blaða­mann­ana Bob Woodward og Carl Bern­stein hjá Washington Post dag­blað­inu að upp komst um tengsl inn­brots­þjóf­anna og for­set­ans Richards Nixon. Málið tengd­ist ekki ein­ungis Nixon sjálfum heldur einnig hátt settum mönnum í ýmsum stofn­unum á borð við alrík­is­lög­regl­una FBI og leyni­þjón­ust­una CIA. Efri deild þings­ins hóf rann­sókn á mál­inu og krafð­ist þess að fá afhentar hljóð­upp­tökur úr hvíta hús­inu þar sem tengsl for­set­ans við inn­brotið komu ber­sýni­lega í ljós. Þann 9. ágúst árið 1974 sagði Richard Nixon af sér emb­ætti for­seta en var náð­aður af arf­taka sínum Gerald Ford.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár