Bolshoi-leikhúsið í 240 ár

„Bolshoi leik­húsið er jafn mikið tákn fyrir Rússland og Kalas­hnikov-rifflar,” segir í nýlegri heim­ild­ar­mynd, Bolshoi Babylon, sem skyggn­ist á bak við tjöldin hjá Bolshoi ball­ett­inum. Ómar Þor­geirs­son, sagn- og mark­aðs­fræð­ingur í Moskvu, kynnti sér sög­una.

Bolshoi leik­húsið í Moskvu hefur lengi talist á meðal fremstu ballet- og óperu­húsa heims en leik­húsið fagn­aði í vik­unni 240 ára starfs­af­mæli sínu. Tilurð leik­húss­ins má rekja til 28. mars árið 1776 þegar keis­ara­ynjan Katrín mikla veitti prins­inum Pyotr Urusov leyfi til að setja á lagg­irnar einka­rekið leik­hús í mið­borg Moskvu. Í upp­hafi sam­an­stóð leik­húsið af 43 starfs­mönnum og boðið var upp á ball­ett, leik­rit og óperu. Urusov fékk svo enska leik­hús frum­kvöðul­inn Michael Maddox í lið með sér og afrakstur sam­vinnu þeirra var leik­húsið sem síðar varð þekkt um víða ver­öld undir nafn­inu “Bolshoi”.

Bolshoi tekur á sig mynd

Árið 1780 var leik­húsið alfarið komið í eigu Maddox og sama ár flutti það í nýtt hús­næði við Petrovka götu en leik­húsið dró eftir það nafn sitt af stað­setn­ing­unni og kall­að­ist jafnan “Petr­ov­sky” leik­húsið. Húsa­kynni Petr­ov­sky leik­húss­ins skemmd­ust í brunum árið 1805 og svo aftur árið 1812 - þegar her Napól­e­ons Bónap­arte réðst inn í Moskvu.

End­ur­bygg­ing Petr­ov­sky leik­húss­ins var fram­kvæmd á árunum 1820-1824 og þar sem nýja leik­húsið var mun stærra og glæsi­legra en fyrri húsa­kynni þess, þá var það kallað “Bolshoi” (eða “Stóra”) Petr­ov­sky leik­húsið. Sú bygg­ing brann svo reyndar einnig til grunna árið 1853 en upp úr ösku­tónni reis ný og end­ur­bætt bygg­ing Bolshoi leik­húss­ins árið 1856.

Bolshoi leik­húsið hýsti krýn­ing­ar­at­höfn keis­ar­ans Alex­and­ers II. sama ár en leik­húsið hafði þá verið undir stjórn keis­ara­veld­is­ins síðan árið 1792. Bolshoi leik­húsið hefur raunar alla tíð síðan verið heima­völlur valda­stétt­ar­innar og efna­fólks­ins í Rúss­landi. Leik­húsið gekk því í gegnum reglu­legar end­ur­bætur til að tryggja að bygg­ingin upp­fyllti ströng­ustu aðbún­aðar- og örygg­is­kröfur.

Stalín dyggur aðdáandi

Starf­semi Bolshoi leik­húss­ins sveifl­að­ist einnig með póli­tískum hent­ug­leika og vilja hæst­ráð­enda í Rúss­landi á hverjum tíma fyrir sig. Framtíð Bolshoi leik­húss­ins hékk til að mynda á blá­þræði í kjöl­far Októ­ber­bylt­ing­ar­innar í Rúss­landi árið 1917. Sjálfur Vladimír Lenín, fyrsti leið­togi Sov­ét­ríkj­anna, á þannig að hafa lagt til árið 1918 að Bolshoi leik­húsið yrði ein­fald­lega jafnað við jörðu.

Afstaða Leníns mun hafa verið eitt­hvað á þá leið “að leik­húsið væri of dýrt í rekstri og að lista­menn þess væru ekk­ert annað en hroka­fullir aura­púkar,” ef marka má frá­sögn Lidiu Kharina, fram­kvæmd­ar­stjóra Bolshoi safns­ins. Eftir nokk­urra ára óvissu­á­stand komst stjórn Bol­sé­víka hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að Bolshoi leik­húsið fengi að halda áfram starf­semi sinni. Jósef Stalín er þar sagður hafa talað máli Bolshoi leik­húss­ins og náð á end­anum að sann­færa Lenín. En Stalín var einmitt tíður gestur leik­húss­ins á tíma sínum sem ein­ræð­is­herra Sov­ét­ríkj­anna.

Til merkis um aðdáun Stalíns á Bolshoi leik­hús­inu þá gaf hann lista­mönnum þess und­an­þágu frá því að sinna her­skyldu, jafn­vel á tíma seinni heims­styrj­ald­ar­innar. Þess í stað var reynt eftir fremsta megni að halda úti sýn­ingum í leik­hús­inu. Loft­árásir nas­ista á Moskvu settu þó vit­an­lega strik í reikn­ing­inn. Jafnvel við­leitni Rússa við að dul­búa Bolshoi leik­húsið að utan­verðu kom ekki í veg fyrir að Þjóð­verjar næðu að varpa sprengju við and­dyri leik­húss­ins 22. októ­ber árið 1941. Spreng­ingin olli ekki mann­tjóni en tölu­vert tjón varð á fram­hlið leik­húss­ins og því var lokað á meðan á við­gerðum stóð. Starfs­fólk Bolshoi leik­húss­ins sat þó ekki auðum höndum á þessum óvissu­tíma. Sumir lista­menn­irnir heim­sóttu reglu­lega víg­stöðv­arnar til þess að skemmta her­mönnum Rauða hers­ins á meðan aðrir gerð­ust sjálf­boða­liðar í hernum.

Orðsporið bíður hnekki

Óhætt er að segja að Bolshoi leik­húsið sé búið að setja sterkan svip á menn­ingu og sögu Rússa í gegnum tíð­ina. Hin síð­ari ár hafa þó komið upp nokkur mál sem hafa án vafa orðið til þess að sverta orð­spor leik­húss­ins. Eitt af þessum málum varð­aði afar umdeildar end­ur­bætur sem Bolshoi leik­húsið gekk í gegnum á árunum 2005-2011. Heim­ildir eru fyrir því að end­an­legur kostn­aður fram­kvæmd­anna hafi verið sextán sinnum hærri en upp­haf­leg kostn­að­ar­á­ætlun hafi gert ráð fyrir. Ásakanir um fjár­drátt og spill­ingu fóru því óum­flýj­an­lega á kreik í kjöl­farið og vöktu reiði almenn­ings í Rúss­landi.

Annað mál sem komst í heims­frétt­irnar var fólsku­leg sýru­árás sem Sergei Filin, þáver­andi list­rænn stjórn­andi Bolshoi ball­etts­ins, varð fyrir í byrjun árs 2013. Síðar kom í ljós að Pavel Dmitrichenko, dans­ari hjá Bolshoi ball­ett­inum, hafði skipu­lagt árás­ina og var hann dæmdur í sex ára fang­elsi fyrir vikið. Heim­ild­ar­myndin Bolshoi Babylon fjallar náið um atvikið en þar kemur fram að kveikjan að árásinni hafi verið ákvörðun Filin að veita ekki kær­ustu Dmitrichenko, sem einnig var dans­ari hjá Bolshoi ball­ett­inum, það hlut­verk sem hún sótt­ist eftir.

Það var skammt stórra högga á milli hjá Bolshoi leik­hús­inu á árinu 2013. Því skömmu eftir árás­ina á Filin lét Anastasía Volochkova, fyrrum ein skærasta stjarna Bolshoi ball­etts­ins, stór orð falla í við­tali við rúss­nesku NTV sjón­varps­stöð­ina um að Bolshoi ball­ett­inn væri “risa­stórt vænd­is­hús”. Volochkova hélt því fram að lágt settir dans­arar hefðu oft verið neyddir til þess að sofa hjá fjár­sterkum vel­gjörð­ar­mönnum leik­húss­ins, ann­ars væri fram­tíð þeirra hjá Bolshoi ball­ett­inum í hættu. Anatoly Iksanov, þáver­andi fram­kvæmd­ar­stjóri Bolshoi ball­etts­ins, vís­aði ásök­un­unum alfarið á bug en var stuttu síðar rek­inn úr starfi. Vladimír Urin, eft­ir­maður Iksanov í starfi, talar tæpitungu­laust í við­tali í Bolshoi Babylon heim­ild­ar­mynd­inni um vanda­mál Bolshoi ball­etts­ins. “Við búum í landi þar sem spill­ingin dafnar. Það er ekk­ert leynd­ar­mál. Því þarf að breyta og það mun taka tíma. Þá mun allt falla á sinn rétta stað og hæfi­leika­mesti dans­ar­inn mun þá alltaf fá að dansa.”

Íslendingur stelur senunni

Enginn Íslend­ingur er á meðal þeirra rúm­lega 3000 starfs­manna Bolshoi leik­húss­ins í dag. Nokkur dæmi eru þó um að Íslend­ingar hafi orðið þess heið­urs aðnjót­andi að stíga á svið í Bolshoi leik­hús­inu í gegnum árin, meðal ann­ars í danskeppnum og á verð­launa­há­tíðum.

Dans­ar­inn og dans­höf­und­ur­inn Erna Ómars­dóttir er í þeim hópi en hún dans­aði ein á sviði Bolshoi leik­húss­ins árið 2002 þegar sýn­ing hennar, “My Movem­ents Are Alone Like Streetdogs”, var til­nefnd til Benois de la danse verð­laun­anna. Dans­sýn­ingin þótti nokkuð djörf og óhefð­bundin til sýn­ingar í Bolshoi leik­hús­inu og við­brögð sýn­ing­ar­gesta létu ekki á sér standa. “Áhorf­endur skipt­ust algjör­lega í tvo hópa, með og á móti mér þarna á svið­inu og hávað­inn og hrópin voru eins og á fót­bolta­leik,” sagði Erna í við­tali við Morg­un­blaðið og við­ur­kenndi enn fremur að sýn­ingin hefði verið erf­ið­asta reynsla sem hún hafi gengið í gegnum á sviði.

Rúss­neska dag­blaðið The Moscow Times fjall­aði um bæði dans­sýn­ing­una og frammi­stöðu Ernu á sínum tíma. Í umfjöllun blaðs­ins er dóm­nefnd verð­launa­há­tíð­ar­innar reyndar harð­lega gagn­rýnd fyrir að hafa yfir höfuð til­nefnt svo “sví­virði­lega” dans­sýn­ingu. Ernu er aftur á móti hrósað í hástert fyrir að sýna “algjört sjálfs­ör­yggi og yfir­vegun” við afar krefj­andi aðstæður - á sviði í sjálfu Bolshoi leik­hús­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár