Heldur í gamla sjarmann

Dúsa Ólafs­dóttir fata­hönn­uður er annar eig­andi versl­un­ar­innar Stef­áns­búð / P3 sem nýverið flutti á Laugaveg 7. Hún býr í ynd­is­legri íbúð í Þing­holt­unum, sem hún lýsir eins og litlu þorpi sem hún vill alls ekki flytja frá. „Ég hef búið lengi í þessu hverfi sem er svo gam­alt, gróið og skemmti­legt. Ég geng í og úr vinnu og hef allt sem ég þarf í göngu­færi sem er dásam­legt. Það besta við heim­ilið eru glugg­a­rnir en suð­ur­hlið húss­ins er ekk­ert nema gluggar, garð­ur­inn er líka risa­stór og fal­legur svo fyrir utan glugg­ana eru stór og stæði­leg tré.“

Heldur í gamla sjarmann

Upp­á­halds­staður hennar er við borð­stofu­borðið, ekki skrítið kannski þar sem það er hönnun Le Corbusier. „Við borð­stofu­borðið er morg­un­kaffið drukkið, kvöld­matur snæddur og tölvu­vinna unnin. Þar er líka birta frá morgni til kvölds og fal­leg­asta og stærsta tréð er fyrir utan aust­ur­glugg­ann.“ Það besta við íbúð­ina þykir henni vera hversu vel tókst að móder­næsa hana án þess að hún missti gamla sjar­mann. „Það var bara gert með því að opna aðeins stærsta rýmið og breyta þremur her­bergjum í eitt. Rósettur og skraut­listar halda sínum stað og sóma sér vel og sama gildir um gömlu hurð­irnar með gömlu snerlunum.“ Það er gler í öllum hurðum heim­il­is­ins nema svefn­her­bergis- og þvotta­húss­hurð­unum og þar af leið­andi nær birtan alls staðar í gegn.

Mexíkóska skálin 

Gömul kona seldi Dúsu þessa skál þar sem hún sat með föður sínum og systk­inum á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár