Sparisjóðsstjórinn ákærður fyrir að gefa félagi sonar síns stofnbréf

Kjarninn birtir ákæru á hendur Geir­mundi Krist­ins­syni, fyrr­ver­andi spari­sjóðs­stjóra Spari­sjóðs­ins í Keflavík. Geir­mundur er ákærður fyrir tvenn umboðs­svik. Annað málið snýr að mörg hund­ruð milljón króna fram­sali á eign til félags í eigu sonar hans.

Geirmundur Kristinsson stýrði Sparisjóðnum í Keflavík í 19 ár. Nú þarf hann að svara til saka vegna ákæru um umboðssvik.
Geir­mundur Krist­ins­son stýrði Spari­sjóðnum í Keflavík í 19 ár. Nú þarf hann að svara til saka vegna ákæru um umboðs­svik.

Geir­mundur Krist­ins­son, sem stýrði spari­sjóðnum í Keflavík í 19 ár, hefur verið ákærður af emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir umboðs­svik. Ákæru­at­riðin eru tvö. Annars vegar er hann ákærður fyrir að hafa mis­notað aðstöðu sína til að lána félagi tengdu Suð­ur­nesja­mönnum 100 millj­ónir króna í formi yfir­drátt­ar­láns, sem tap­að­ist að fullu. Hins vegar á Geir­mundur að hafa fram­selt stofn­bréf í Spari­sjóði Kefla­víkur að verð­mæti 683 millj­ónir króna til einka­hluta­fé­lags­ins Foss­vogs­hyls ehf., sem varð síðar í eigu sonar Geir­mundar. Ekkert end­ur­gjald var tekið vegna þessa en skuld á Foss­vogs­hyl skráð í bækur dótt­ur­fé­lags spari­sjóðs­ins. Ekkert fékkst greitt upp í skuld­ina utan tæp­lega 50 milljón króna arð­greiðslu á árinu 2008.

Hægt er að lesa ákæruna í heild sinni hér.

Félag tengt Suðurnesjamönnum fékk 100 milljóna yfirdrátt

Fyrra málið sem Geir­mundur, sem á 72. ald­ursári, er ákærður fyrir snýr að lán­veit­ingu til Duggs ehf. í júní 2008. Félagið fékk þá 100 milljón króna lán í formi yfir­dráttar hjá Spari­sjóðnum án þess að afstaða lána­nefndar spari­sjóðs­ins lægi fyrir, án þess að áhættu- og greiðslu­mat færi fram og án þess að end­ur­greiðsla láns­ins væri tryggð með nokkrum gætti.

Pen­ing­arnir voru greiddir út sama dag og lagðir inn á reikn­ingi hjá Icebank (síðar Spari­sjóða­bank­inn), sem tók hand­veð í allri inni­stæðu reikn­ings­ins, vegna skuldar félags sem hét Suð­ur­nesja­menn ehf.. Icebank hafði nefni­lega lánað því félagi miklar fjár­hæðir til að kaupa hlut í HS Orku. Af þeim við­skiptum varð ekki og ákvað félagið þess í stað að kaupa aðrar eignir. Í lok árs 2007 voru Suð­ur­nesja­menn í 47 pró­sent eigu Gríms Sæmund­sen, núver­andi for­stjóra Bláa lóns­ins, sem var einnig fram­kvæmda­stjóri Suð­ur­nesja­manna. Á meðal eigna félags­ins í árs­lok 2007 var 11,8 pró­sent hlutur í Bláa Lóninu, 2,73 pró­sent hlutur í Spari­sjóðnum í Keflavík og 100 pró­sent hlutur í SM 1 ehf. sem átti 9,5 pró­sent hlut í Icebank hf. Spari­sjóður Kefla­víkur átti einnig um tíma hlut í Suð­ur­nesja­mönnum. Suð­ur­nesja­menn ehf. voru úrskurð­aðir gjald­þrota í mars 2009.

Í ákæru hér­aðs­sak­sókn­ara kemur fram að yfir­drátt­ar­lánið upp á 100 millj­ónir króna, sem átti upp­haf­lega að vera til eins mán­aðar, hafi aldrei feng­ist greitt.

Framseldi til félags sonar síns

Hitt atriðið sem Geir­mundur er ákærður fyrir snýr að umboðs­svikum þegar hann, sem stjórn­ar­for­maður Víkna, dótt­ur­fé­lags Spari­sjóðs Kefla­víkur, fram­seldi fyrir hönd félags­ins stfon­fjár­bréf í Spari­sjóðnum í Keflavík að verð­mæti 683 millj­ónir króna til einka­hluta­fé­lags­ins Foss­vogs­hyls ehf. í lok árs 2007 án þess að nokkuð end­ur­gjald kæmi fyrir. Sama dag og stofn­fjár­bréfin voru skráð á Foss­vogs­hyl var félagið fram­selt til sonar Geir­mundar, Sverris Geir­munds­sonar. Víkur ehf. eign­að­ist við þetta kröfu á Foss­vogs­hyli sem var færði sem útlán. Lán­veit­ingin var að fullu afskrifuð í bók­haldi spari­sjóðs­ins þann 31. mars 2010.

Ítarlega var fjallað um Foss­vogs­hyl í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um spari­sjóði lands­ins, sem kom út í apríl 2014. Þar segir að Í skýrslu fyrir rann­sókn­ar­nefnd­inni hafi lög­giltur end­ur­skoð­andi hjá Deloitte, og end­ur­skoð­andi Spari­sjóðs­ins í Keflavík, upp­lýst að Geir­mundur Krist­ins­son spari­sjóðs­stjóri hefði við gerð árs­reikn­ings spari­sjóðs fyrir árið 2007 óskað eftir því við sig að fá keypt félag hjá Deloitte sem myndi taka við stofn­fjár­bréfum í eigu sjóðs­ins. „Úr varð að Foss­vogs­hylur var nýtt til þess[...]End­ur­skoð­and­inn kvaðst ekki vita hvers vegna óskað var eftir að bréfin yrðu flutt úr sam­stæðu sjóðs­ins inn í Foss­vogs­hyl ehf. Spari­sjóðs­stjór­inn kvaðts kann­ast við félagið í skýrslu sinni fyrir rann­sókn­ar­nefnd­inni en taldi sig ekki vita til að það hefði tengst Vikum ehf. á nokkur hátt.“

Sverrir Geir­munds­son stað­festi í skýrslu sinni fyrir rann­sókn­ar­nefnd­inni að aldrei hefði verið gerður lána­samn­ingur við Foss­vogs­hyl um skuld­ina né veð­samn­ingur um hin yfir­færðu stofn­fjár­bréf. Foss­vogs­hylur ehf . hefði því getað selt bréfin áfram til þriðja aðila án þess að Vikur ehf. eða Spari­sjóð­ur­inn í Keflavík hefðu getað varið sína hags­muni. Arðs­tekjur Foss­vogs­hyls ehf. á árinu 2008, þ.e. arð­greiðslur vegna árs­ins 2007, voru 48,5 millj­ónir króna. Samkvæmt minnis­p­unkt­unum gekk arð­ur­inn að fullu til nið­ur­greiðslu á við­skipta­skuld félags­ins við Víkur ehf.

Í bréfi Sverris Geir­munds­sonar til rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar 28. jan­úar 2014 er því hafnað að Sverrir hafi átt félagið. Hann hafi, að ósk end­ur­skoð­and­ans, sam­þykkt að sitja tíma­bundið í stjórn félags­ins í byrjun árs 2008 og und­ir­ritað skjöl, að því er hann taldi, því til stað­fest­ingar. Honum hafi ekki verið ljóst að um væri að ræða und­ir­ritun á fram­sal hlut­anna og hann hafi aldrei talið sig eig­anda félags­ins.

Verst rekni sparisjóðurinn

Spari­sjóð­ur­inn í Keflavík virð­ist, sam­kvæmt skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um spari­sjóð­ina, hafa verið einna verst rek­inn allra spari­sjóð­anna. Vaxta­munur hans var til að mynda oft­ast lægri en hjá öllum hinum sjóð­unum, útlán hans virð­ast hafa verið ótrú­lega illa und­ir­byggð, afkoma sjóðs­ins var nán­ast ein­vörð­ungu bundin við gengi hluta­bréfa sem hann átti og emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, sem nú hefur runnið inn í emb­ætti hér­að­sak­sókn­ara, hefur um ára­bil rann­sakað nokkur mál tengd honum.

Vegna þess­arra þátta var afkoma sjóðs­ins af kjarna­rekstri nei­kvæð frá árinu 2003 og fram að þeim degi þegar hann féll. Samtals nam tapið 30 millj­örðum króna, en þorri þeirrrar upp­hæðar kom til á árunum 2008 og 2009. Til að setja slakan und­ir­liggj­andi rekstur sjóðs­ins í sam­hengi þá nam tap af kjarna­rekstri hans, hefð­bund­inni banka­starf­semi, 700 millj­ónum króna á árinu 2006 þrátt fyrir að kynntur hagn­aður fyrir skatta hafi verið tæpir 5,6 millj­arðar króna.

Ef ein­hver spari­sjóð­anna vildi fá að vera litla lestin sem gat þá var það Spari­sjóð­ur­inn í Keflavík. Samkvæmt skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um starf­semi spari­sjóð­anna fimm­föld­uð­ust eignir hans á fimm árum og námu sam­tals 98 millj­örðum króna í lok árs 2008. Tvennt skipti mestu máli fyrir þennan vöxt: útlán sjóðs­ins höfðu fimm­fald­ast á tímbil­inu og virði hluta­bréfa, að mestu óbein eign í Existu í gegnum fjár­fest­inga­fé­lagið Kistu og í Icebank/Spari­sjóða­bank­anum, hækk­aði mikið. Í árs­lok 2006 var til dæmis nærri 70 pró­sent af öllu eigin fé spari­sjóðs­ins bundið í hluta­bréfum í Existu, annað hvort beint eða óbeint. Þá var ótalin áhrif Exista í Spari­sjóða­bank­anum, sem spari­sjóð­ur­inn átti 12 pró­sent í.

Auk þess yfir­tók sjóð­ur­inn nokkra minni sjóði víða um land sem leiddi til þess að eigna­safnið stækk­aði.

Innlán helsta fjármögnunarleiðin

Kefl­vík­ing­arnir fjár­mögn­uðu þessa starf­semi sína að mestu leyti með inn­lána­söfnun. Þegar mest lét, í lok árs 2009, voru inn­lán 62 pró­sent af skuldum sjóðs­ins. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar var bent á að frá sept­em­ber­lokum 2008, þegar banka­kerfið var að hrynja, og fram til loka mars 2010 hafi inn­lán hjá spari­sjóðnum í Keflavík hækkað um 19 millj­arða króna. Á þessu tíma­bili var vit­an­lega í gildi yfir­lýs­ing íslenska rík­is­ins um að tryggja allar inni­stæður. Þeir sem lögðu inn pen­ing í sjóð­inn á þessu tíma­bili voru meðal ann­ars sveita­fé­lög á Suð­ur­nesjum og ýmis fyr­ir­tæki á svæð­inu. Til­gang­ur­inn var að styrkja stöðu sjóðs­ins. Rík­is­sjóður Íslands eign­að­ist líka tveggja millj­arða króna inn­lán hjá sjóðnum sem var meðal annar til­komið vegna greiðslu hans á fjár­magnsteku­skatti sem sveit­ar­fé­lög á Suð­ur­nesjum áttu að greiða í rík­is­sjóð vegna hagn­aðar á sölu eign­ar­hluta þeirra í HS Orku.

Í skýrsl­unni sagði um þetta að Í októ­ber 2008 hafi spari­sjóð­ur­inn leitað til fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins og fór þess á leit að rík­is­sjóður Íslands stofn­aði sér­stakan inn­láns­reikn­ing hjá Spari­sjóðun í Keflavík til að taka á mótu skatt­greiðsl­urm frá sveita­fé­lögum. Sjóð­ur­inn átti ekki pen­inga til að borga útflæði inn­lána í nóv­em­ber og des­em­ber, sem var tæpur millj­arður, enda lausa­fjár­staða hans á þessum tíma ein­ungis 255 millj­ónir króna. Með öðrum orðum gat Spari­sjóð­ur­inn í Keflavík ekki borgað út inn­lán sem vilji var til að taka út í lok árs 2008.

Léleg útlán

Útlánin sem Spari­sjóð­ur­inn í Keflavík veitti voru mörg hver léleg. Mjög léleg. Lán til vensl­aðra aðila voru umtals­verð, 90 pró­sent útlána sem voru með veði í hluta­bréfum voru tryggð með veði í óskráðum bréfum, verð­mæti trygg­inga var í mörgum til­vikum langt undir láns­fjár­hæði og ofmetið. Spari­sjóð­ur­inn var hins vegar lítið fyrir að fram­kvæma veð­köll og því var fyr­ir­t­séð löngu áður en sjóð­ur­inn féll að mikil útlána­töp sem höfðu ekki verið bók­færð væru framundan. Þessi sann­leikur kom líka fram í skýrslu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um starf­sem­ina sem skilað var í sept­em­ber 2008 og Kjarninn hefur áður greint ítar­lega frá.

Þrátt fyrir þessa svörtu skýrslu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins fékk Spari­sjóð­ur­inn í Keflavík að starfa áfram, lána áfram og safna inn­lánum. Hann fór ekki á höf­uðið fyrr en í apríl 2010 og þá var meira að segja ákveðið að stofn­setja nýjan spari­sjóð á grunni þess gamla. Sá tórði þó ein­ungis í tíu mán­uði áður en honum var rennt inn í Lands­bank­ann gegn því að íslenska ríkið borg­aði allt að 26 millj­arða króna með honum. Ástæða þess að svo háa fjár­hæð þurfti til var sú að óháðir sér­fræð­ingar töldu að enn minna myndi inn­heimt­ast af lélegum útlánum spari­sjóðs­ins en áður var áætlað og vegna þess að inn­lánin voru orðin jafn stór hluti af skuldum hans þegar sjóð­ur­inn loks­ins for í þrot eins og raun ber vitni. Í dag er þorri þeirra 33 millj­arða króna af tapi hins opin­bera, skatt­greið­enda, vegna spari­sjóða­kerf­is­ins, sem hefur raun­gerst vegna litla sveita­spari­sjóðs­ins í Keflavík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár